Þjóðviljinn - 06.07.1966, Page 5

Þjóðviljinn - 06.07.1966, Page 5
Miðvöoidagur 6. jóií 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Eins og Þjóðviljinn hefuráð- ur skýrt frá eru um þessar mundir liðin 40 ár síðan ís- lenzka rikið hóf reglubundna landhelgisgaezlu hér við land með eigin varðskipum, en fram til þess tíma hafði þó slík gæzla verið framkvæmd með ýmsum leiguskipum um all- mörg ár, lengri eða skemmri tíma í einu. Fyrstu gæzluskipin Landhelgisgœzla fslands: FARSÆLT STARF I FJORUTIU AR Varðskipið Ægir á ferð á Húnaflóa innannm fjallháa borgaraís- jaka. S.Í.S. hefur ákveðið að hefja MÖLUN KORNS TIL FÓÐURS □ Undanfarinn hálfan annan áratug hefur Samband ísl. samvinnufélaga gengizt fyr- ir athugunum á því hvort hagkvæmt sé að flytja fóð- urvörur inn sem ómalaðar korntcgundir, lausar í skip- um, og koma hér upp mann- virkjum og tækjum til korn- geymslu til kornmölunar. □ Stjórn Sambandsins hefur nú ákveðið að leita eftir því að heimilaður verði frjáls innflutningur á ómöluöu korni til fóðurgerðar og á öðrum fóðurvörum. Fáist leyfið verður fyrstu stöðinni af þessu tagi væntanlega komið upp i sumar með kornhlöðu og miðlunartækj- um og er búizt við að fyrsti skipsfarmurinn af ómöluðu korni komi til landsins í haust. Verðlag hér á landi á inn- fluttum fóðurvörum er talsvert hærra en víða erlendis og stafar það ekki sízt af þvi að fóðurvörurnar eru fluttar inn sekkjaðar. Mörg undanfarin ár hefur verzlunin með fóðurvörur sæit óeðlilegum skilyrðum. Vegna samninga Isiendinga við Bandaríkin um kaup á um- framafurðum þar í landi hef- ur fóðurbætisverzlunin nær eingöngu beinzt til Bar.darikj- anna og leiðir þetta fyrirkcmu- lag vitaskuld til óhagkvæmara verðlags hér innanlands. Verð- ur að telja það nauðsynlegt að gefa fóðurvöruverzlunina frjálsa svo að innkaupin geti farið fram þar sem þau reynasthag- kvæmust hverju sinni. Samkvæmt athugun Sam- bandsins er um tvær leiðir að ræða við innflutning ómalaðs korns. Hin fyrri gerir ráðfyrir innflutningi kornsins í mjög stórum förmum til einnár ís- lenzkrar hafnar þar sem reist- ar yrðu stórar kornhlöður, kornmyllur og fóðurblöndunar- stöð. Síðari kosturinn er innflutn- ingur í miklu minni förmum til þe;rra hafna landsins sem liggja bezt við helztu landbúnað^r- héruðunum ogaðkoma þar upp litlum og ódýrum kornhlöðum og einföldum búnaði til möl- unar og fóðurblöndunar. Niðurstöður Sambandsins enj þær, að með báðum þessum leiðum megi auka verulega hagkvæmni fóðurbætisverzlun- arinnar, en að síðari leiðin sé heppilegri þar sem hún kostar mun minni fjárfestingu. Enn er þó eftir að finna endanlega lausn á ýmsum tæknilegum framkvæmdaatrið- um og eru sum þeirra þess eðl- is að reynslan ein getur skorið •úr þeim til fulls. Árið 1926 lét íslenzka rikis- stjómin með samþykki Alþingis hinsvegar bæði smíða nýtt hraðgengt varðskip, Öðin, og keypti auk þess annað skip, Þór, af Björgunarfélagi Vest- mannaeyja, og hófu skipin bæði gæzlu- og björgunarstörf á vegum rikisins um mánaða- mótin júní—júlí það ár. Óðinn kom hingað til Reykjavíkur ný- smíðaður 23. júní og fór sína fyrstu gæzluför 29. sm, og eigendaskipti að Þór urðu 1. júlí. Skiphcrra Óðins var Jóhann P. Jónsson, en Þórs Friðrik F. Ólafsson, síðar skólastjóri Stýrimannaskólans, — báðir valinkunnir menn með góða sérmcnntun og reynslu til hinna nýju starfa. Þeir eru nú báðir fallnir í valinn, en annars eru ennþá staríandi 5 af þeim mönnum, sem voru á þcssum tveim varðskipum fyrir 40 ár- um, þeir: Þórarinn Björnsson, skipherra á v/s Óðni. Jón Jónsson, skipherra á v‘/s Þór. Haraldur Björnsson, skipherra á v/s Ægi. Kristján Sigurjónsson, fyrrver- andi yfirvélstjóri, nú skipa- eftirlitsmaður Landhelgis- gæzlunnar. Gunnar V. Gíslason fyrrver- andi skiphcrra, starfar nú við eftirlit með gúmmí- björgunarbátum, vopnum o. fl. Allt frá þcssum tíma og þar til nú, hefur svo íslenzka ríkið gert út og starfrækt fleiri eða færri varðskip, og síðasta ára- tuginn einnig gæzluflugvélar. Myndin var tckin mcðan hæst stóð „þorskastríði ð“ svonefnda haustið 1958 og Bretar beittu að hcita má daglega hcrvaldi gegn íslenzkum varðskipsmönnum, er þcir voru að gegna skyldu- störfum sínum. Þarna sést varðskipið I»ór, þá flaggskip íslenzka flotans, I námunda við brezkan togara og landhelgisbrjót. Fyrstu árin var allt skrifstofu- hald í stjórnarráðinu sjálfu, en þegar Skipaútgcrð ríkisins var stofnuð árið 1929 tók hún að sér reksturinn. Hélzt sú skipan óbreytt ]xir til 1952, er fiskveiðilandhelgin var færð út að sérstakur forstjóri var ráð- inn til þeirra starfa, en bók- liald m.m. var þó áfram hjá Skipaútgerðinni. Er svo ennþá, en búast má við að á þessu verðl breyting á næstu árum, er Landhelgisgæzlan fær til af- nota rúmgott skrifstofuhúsnæði í nýju Lögreglustöðinni í Rvík, þar sem hægt verður að sam- eina alla slíka starfsemi honnar á einn stað. Á slíkum tímamótum sem þessum er ekki ócðlilcgt að menn líti bæöi til baka yfir farinn veg, og einnig rcyni að gerá sér einhverja hugmynd um þróunina 1 nánustu íram- tíð. Framtíðar- verkefnin Saga Landhelgisgæzlunnar og þróun frá lítilli byrjun og til dagsins í dag, er sem öllum er kunnugt, nátengd sjálfstæðis- og útgerðarmálum þjóðarinnar og öllum svo vel kunn að ó- þarft er að rekja hana ná- kvæmlega hér. Þeim málum lögðu margir góðir og framsýn- ir menn lið sitt og má þá ekki gleyma hinu stórmerka átaki Björgunarfélags Vestmannaeyja, er það reið á vaðið með kaup- unum og útgerðinni á björgun- arskipinu Þór árið 1920, sem raunverulega varð upphafhinn- ar reglulegu gæzlustarfsemi þótt nokkur ár liðu þar til hún varð að veruleika. Um framtíðina er það skemmst að segja, að nærtækasta og stærsta verkefnið er smíði Þannig hugsuðu Bretar sér varðskipln íslenzku. Kannski þelr hafi komizt á aðra skoðun eftir 1, september („Evening Standard‘‘). á nýjuj stóra varðskípi; til endurnýjunar á skipastólmrm, en öllum tindirbúningi aðþeirri smíði er nú svo langt komið að í næstu viku eru vamtan- legir hingað sérfræðingar frá erlendum ski pasmíðastöðvum, sem gert hafa tilboð í byggmgu þess, til endanlegra viðræðna um málið. Gert er ráð fyrir að varðskipið verði tilbúið til notkunar nm áramótin 1967— 1968. Þá má ekki gleyma þvi að þáttur flugsins á eflaust eftir að aukast mjög, og þá tilhvers- konar annarra starfa en beirma gæzlustarfa. Bendir reynslan af notkun hinnar litlu þyrlu, EIR, sem Landhelgisgaazlan og Slysavarnafélagið keyptu sam- eiginlega fyrir ári, ein- dregið til þess, að sú tækni eigi mikla framtíð fyrir sér hér sem annarsstaðar, til hvers- konar gæzlu, björgunar- eða að- stoðarstarfa. En lítið gagn er af nýjum tækjum eða tækni, nema þeir sem með þau fara þekki gjörla notkun þeirra, getu og eðlileg tákmörk. Þess vegna er það • eitt af aðalviðfangsefnum fram- tíðarinnar að þjálfa alla starfs- menn gæzlunnar sem bezt til hinna fjölþættu starfa þeirra. Gamla orðtækið ,,Mennt er máttur" á ekki sízt við um þessa starfsemi. Starfs- menn landhelgisgæzlunnar hafa ætíð verið og verða líklegaallt- af fáir miðað við fjölbreytní verkefna þeirra, og þess vegna mjög mikil nauðsyn á alhliða þekkingu þeirra. Það er því ekki aðeins ætlunin að halda áfram að endurbæta varðskipa- námskeið yfirmanna varðskip- anna við Stýrimannaskólann, heldur einnig að reyna að gefa sér meiri tima til sérþjálfunar annarra starfsmanna, Ofanritað er að meginefni til skýrsla Landhelgisgæzlunnar um 40 ára starfsemi. Á fundi sem Pétur Sigurðsson áttimeð Framhald á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.