Þjóðviljinn - 06.07.1966, Page 10
Skaut fimm pú$-
urskotum áður en
báturinn stöðvaði
SK laugardag var vélbáturinn
Ma*ús IV. RE 18 tekinn að
ólöglegum veiðum innan fisk.
veiðitakmarkanna á Faxaflóa.
Fór varðskip með bátinn hing-
að til Reykjavíkur og hófust rétt-
arhöld í máli skipstjórans
í Sakadómj Reykjavíkur í fyrra-
dag.
Þjóðviljinn átti í gær tal við
Sverri Einarsson fulltrúa hjá
sakadómi og skýrði hann svo
frá að skipstjórinn hefði í fyrstu
neitað ákæru en að lokum ját-
aði hann þó að hafa togað tvisv-
ar innan fiskveiðimarkanna og
að hann hefði verið að undir-!
. búa þriðja togið er varðskÍDið
bar að og gaf honum stöðv-
unarmerki.
Það var kl. 16.28 á laugar-
dagínn sem varðskipið kom að
bátnum og gaf honum merki um
að stöðva en skipstjóri hans
sinnti því ekki og stöðvaði ekki
bátinn fyrr en kl. 17.15 er varð-
skipið hafði skotið 15 púðurskot-
um að honum.
Rannsókn málsins lauk í gær
og verða niðurstöður hennar
sendar saksóknara ríkisins til
meðferðar.
Slysadagar í
Bandaríkjunum
CHICAGO 5/7 — Um síðustu
helgi og á þjóðhátíðardaginn, 4.
júlí, fórust 567 manns í bílslys-
um i Bandaríkjunum. Auk þess
drukknuðu 264 í bétsferðum
sömu daga.
Miðvikudagur 6. júlí 1966 — 31. árgangur — 147. tölublað.
HalJa tílJan Máyen
oa tíl Shetlandseyja
Deilt um fram-
tíð Gíbraltar
LONDON 5/7 — Fulltrúar Bret-
lands og Spánar koma saman í
London á fimmtudag til að ræða
framtíð krúnunýlendunnar Gí-
braltar á suðurströnd Spánar.
Leggja Spánverjar til, að ný-
lendan »verði hluti Spánar, í
staðihn fái Bretar áfram að hafa
herstöð á Gíbraltar og lofað er
að tryggð verði öll réttindi þeirra
30 þús. manna sem þar búa.
Bretar segjast hinsvegar ráða
Gíbraltar í fullu samræmi við
alþjóðarétt, en skika þennan
fengu þeir samkvæmt Utrecht-
friðarsamningum 1713.
Leikarar Gestaleikhússins ásamt stjórnanda og teiknara: Sitjandi frá vinstri: Bríet Héðinsdóttir,
Helga Valtýsdóttir, Una Collins, Kristín Anna Þórarinsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir. Standandi:
Kevin Palmer, Arnar Jónsson, Bjarni Steingrímsson, Karl Guðmundsson og Matthías Karelsson.
Leikferð Gestaleikhússins
Sýna fyndnasta verk leik-
bókmenntanna úti á landi
■ Nýr leikflokkur, Gestaleikhúsið, er nú að fara af stað
í leikför um landið og ætlar að sýna eitt fyndnasta verk vinnu
leikbókmenntanna fyrr og síðar, Bunbury eða The Impor-
tance of Being Earnest eftir Oscar Wilde.
■ Það eru leikarar frá bæði Þjóðleikhúsinu og Leik-
félagi Reykjavíkur sem standa að Gesta'leikhúsinu og leik-
stjóri er ekki valinn af verri endanum, Kevin Palmer,
brezki leikstjórinn sem sá um uppfærsluna á Ó, þetta er
indælt stríð í Þjóðleikhúsinu hefur sett leikinn á svið og
Una Collins teiknað búninga og sviðsmyndir.
Fyrsta sýnlng Gestaleikhússins
á- Bunbury verður á Hellissandi
á föstudaginn, 8. júlí, síðan verð-
ur sýnt í Ólafsvík á laugardag
og á sunnudagskvöld í Grafar-
nesi. Þá verður farið áfram
um vesturland og síðan norður-
um og austur óg er áætlað að
fara kringum landið og koma
aftur til Reykjavíkur í síðari
Norrænt leikstjóranántskeið
haldið á /s/andi næsta ár
Guðlaugur Rósinkranz, Þjóð-
leikhússtjóri, er um þ*ssar
mundir nýkominn að utan. Þjóð-
viljinn átti í gær tal við Guð-
laug og spurði frétta úr hans
ferð. Guðlaugur kvaðst hafa
verið viðstaddur leikhússtjóra-
námskeið og leiktjaldamálara,
sem haldið er árlega á Norður-
Ferð ÆF á
Ólafsvöku
Æskulýðsfylkingin efnir til
sumarleyfisferðar á ölafsvök-
una í Færeyjum, sem haldin
er um mánaðamótin júlí ágúst
ár hvert.
Flogið vérður frá Reykjavík
þann 27. júlí. dvalizt i Þórs-
höfn fram yfir hátíðina og
síðan verður farið kynnisferð
um eyjamar.
Flogið heim 3. ágúst.
Allar nánari upplýsingar á
skrifstofu Æskulýðsfylkingar-
innar Tjarnargötu 20 í síma
17513 milli 4 og 7 daglega.
Félagar þqð er óþarfi að
reka nokkum áróður fyrir
þessari giæsilegu ferð, en
tryggið ykkur far í tíma.
löndum. en var nú haldið í Nor-
egi, nánar tiltekið í Ósló. Hér er
vanalegast um að ræða 10-15
daga námskeið og mjög til þeirra
vandað. Guðlaugur er í stjóm
Leiklistarsambands Norðurlanda,
sem heldur námskeiðin, og verð-
ur námskeiðið næst haldið á Is-
Iandi, því kvaðst Guðlaugur
.gjama hafa viljað kynnast því
af eigin raun. Um 45 manns tóku
þátt í námskeiðinu nú. Frá Is-
iandi fóru fimm, þrír leikstjórar
og tveir leiktjaldamálarar, þau
Erlingur Gíslason. Brynja Bene-
diktsdóttir, Sveinn Einarsson,
Lárus Ingólfsson og Steinþór
Sigurðsson. Hinn frægi tékkneski
leikmyndamálari Jósef Svoboda
flutti fyrirlestra við námskeiðið
og hélt mikla sýningu og þótti
það nokkrum tíðindum sæta, því
hann er nú einna þekktastur
Evrópumanna á sínu sviði.
Þá gat Guðlaugur þess, að
hann hefði setið stjórnarfund
Norræna lýðháskólans í Kungs-
álv, en Guðlaugur hefur verið í
skólastjórninni frá upphafi. Á
þeim fundi var það ákveðið að
byggja nýja og veglega byggingu
fyrir starfsemi skólans, og er
ætlunin að Norræna akademían
fái þar innj. Kungsálv er
skammt frá Gautaborg og skól-
inn þannig vel í sveit settur. Gert
er ráð fyrir að skólabyggingin
muni kosta hálfa þriðju miljón
sænskra króna.
hluta ágúst. Verða sýningar á
hverju kvöldi. «.
Bunbury hefur verið sýnt hér
á landi einu sinni áður og var
það leikflokkur Menntaskólans í
Reykjavík sem sýndi það sl.
vetur við góðar undirtektir. Þýð-
andi leikritsins er Bjarni Guð-
mundsson blaðafulltrúi.
Leikritið Bunbury skrifaði
Oscar Wilde árið 1895 og fjall-
ar það um brezkt yfirstéttarfólk
þess tíma og er þar óspart skop-
azt að yfirborðsmennsku og
snobbi þeirrar stéttar, en gam-
anið þó allt græzkulaust og
endar vel, enda sagði Wilde
sjálfur að hann hefði þama skrif-
að „ómerkilegt leikrit fyrir al-
varlegt fólk“. Leikritið er þó
ekki ómerkilegra en svo, að það
þykir enn með beztu gamanleikj-
um sem samdir hafa verið og
sannur skóli fyrir hvern leikara
að fá tækfæri til að leika í því,
eins og Helga Valtýsdóttir komst
að orði á fundi með blaðamönn-
um á mánudag.
Níu hlutverk eru í leiknum og
fara með þau Helga Valtýsdótt-
ir, Kristín Anna Þórarinsdóttir,
Bríet Héðinsdóttir, Sigríður Þor-
valdsdóttir, Bjarni Steingríms-
son, Karl Guðmundsson, Amar
Jónsson og Matthías Karelsson.
Leikaramir hafa lagt mikla
í æfingar og undirbún-
ing ferðarinnar og sérstakar
þakkir eiga þau skilið Kevin
Palmer og Una Collins, sagði
Arnar Jónsson blaðamönnum, en
þau hafa unnið á við 10 manns.
Una hefur bæði teiknað og
saumað kvenbúningana og teikn-
að sviðsmyndir sem eru þrjár.
Kevin Palmer sagðist fyafa orð-
ið mjög ánægður er hann var
beðinn að vera leikstjóri, því
hann sagðist meta mjög þetta
framtak leikaranna að nota frí-
ið sitt til að ferðast um og gefa
fólki úti á landi kost á að
komast í leikhús.
Er enda ekki að efa að fólk
úti á landi kunni einnig vel að
meta þessar heimsóknir, ekki
sízt þar sem nú eru á ferðinni
reyndir leikarar með sígilt verk.
Reykjavíkurúr-
valið ^efN FBU
Reykjavíkurúrvalið, sem leik-
ur við úrvalslið frá Fjóni á
Laugardalsvelli í kvöld, verður
þannig skipað:
Heimir Guðjónsson, Árni Njáls
son, Ársæll Kjartansson. Hans
Guðmundsson, Anton Bjarnason,
Ellert Schram, Einar Árnason,
Eyleifur Hafsteinsson, Hermann
Gunnarsson, Helgi Númason og
Axel Axelsson. .
Varamenn:
Guttormur Ólafsson, Þorsteinn
Friðþjófsson, Baldur Scheving.
Erlendur Magnússon og Reynir
Jónsson.
Tilnefndir í félags-
stjórn „Sumargjafar"
Á fundi sínum sl. föstudag
samþykkti borgarráð að tilnefna
Ásgeir Guðmundsson kennara í
stjóm Barnavinafélagsins Sum-
argjafar til 4 ára og Þóri Kr.
Þórðarson prófessor og borgar-
fulltrúa til vara til jafnlangs
tíma.'
Gott veður var á síldarmið-
unum fyrri sólarhring. en lítil
veiði. Voru skipin einkum að
veiðum 100—120 mílur ASA frá
Dalatanga. Nokkur skip hafa
halðið á miðin við Shetlandseyj-
ar, og hafði frétzt af einhverri
veiði hjá þeim skipum í gær-
morgun. Þá var eitt skip 50—70
mílur SSV frá Jan Mayen og
lóðaði það á nokkurt síldarmagn.
Skipið hafði í gærmorgun feng-
ið þar einhvern afla og var þar
um að ræða góða síld. Allmörg
skip eru nú á leið á þessar veiði-
slóðir við Jan Mayen.
Fyrra sólarhring tilkynntu alls
39 skip um afla, samtals 1.772
£onn.
Dalatangi
Guðbjörg ÍS 55 tonn
Heimir SU 55 —
Sigurvon RE 37 —
Hafþór RE 35 —
Árni Magnússon GK 70 —
Guðm. Þórðarson 30
Helga RE 30 —
Ingiber Ólason II. GK 30 —
Dagfari ÞH 70 —
Gjafar VE 75 —
Baldur EA 30 —
Ölafur bekkur OF 37 —
Hafrún IS 60 —
Vigri GK 60 —
Guðbj. Kristján IS 25 —
Höfrungur II. AK 50 —
Guðmundur Péturs IS 22 —
Sig. Jónsson SU 51 —
Reykjanes 20 —
Raufarhöfn:
Þorleifur OF 11 —
Snæfugl SU 16 —
a síld fyrir austi
Þrymur BA 70
Sigurborg Sl 30
Sveinbj. Jakobsson SH 30
GuUberg NS 55
Súlan EA 50
Sæúlfur BA 35
Huginn II. VE 55
jarmi II. EA 90
Lómur KE 90
Skímir AK 20
Guðrún Jónsd. IS 65
Mímir ÍS 35
Siíflfirðingur SI 35
Guðrún Guðleifsd. IS 36
Anna SI 17
Sigurfari AK 55
Eldborg GK 90
Sig. Bjarnason EA 43
Agabrot hjá
Könum?
Bandaríska upplýsingaþjón-
ustan hringdi til Þjóðviljans
í gærdag og óskaði eftir því
að komast í samband við
heimildarmann blaðsins um
flug orustuþotunnar yfir Þing-
völlum núna um helgina.
Vildi hin bandaríska stofn-
un fá sem nákvæmastar upp-
lýsingar um þetta flug og tel-
ur að flugmaðurinn hafi brot-
ið reglur hernámsliðsins og
sé ætlunin að taka hann í
karphúsið og verði hann jafn-
vel dreginn fyrir herrétt.
Hér er greinilega yfirbót á
ferðum.
Fundur skólastjóra héraðs-
mið- og gagnfræðaskólanna
Dagana 27.-29. júlí s.I. var
haldinn fundur skólastjóra hér-
aðs-, mið- og gagnfræðaskóla að
Laugarvatni, er fræðslumála-
stjórn boðaði til. Undanfarin ár
hafa hliðstæðir fundir verið
haldnir og á þeim flutt erindi
og rædd skóla- og uppeldismál.
Að þessu sinni fluttu erindi:
Magnús Gíslason, námsstjóri, um
gagnfræðanám; Óskar Halldórs-
son, námsstjóri, um móðurmáls-
kennslu; Guðmundur Arr^laugs-
Mót norrænna ungtemplra
sett kl. 5 síðdegis í gær
Kl. 5 síðdegis í gær var mót
norrænna ungtemplara sett í
dómkirkjunni í Reykjavík. Séra
Árelíus Níelsson formaður und-
irbúningsnefndar bauð gesti vel-
komna, frú Auður Auðuns for-
seti borgarstjórnar fiutti ávarp
og formaður sambandsins, Henry
Sörmann hélt ræðu. Þá söng
Erlingur’ Vigfússon einsöng.
í gærkvöld var haldin mót-
tökuhátíð í Lídó og voru þar
um hönd höfð ýmis skemmtiat-
riði. í dag hefst þingið kl. 10
f.h. í Þjóðleikhúsinu og verða
þar flutt ávörp og ræður, m.a.
ávarpar dr. Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra þingið. —
Síðdegisfundur verður haldinn í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Þá verður farið með gestina um
borgina og m.a. skoðað Árbæj-
arsafn. í kvöld sækja gestirnir
skemmtun í Sigtúni.
Á morgun verður farið í
ferðalag til Þingvalla, Laugar-
vatns, Geysis, Gullfoss, Skál-
holts og Hveragerðis og mun
séra Eiríkur Eiríksson þjóð-
garðsvörður segja gestunum
sögu Þingvalla og sýna þeim
staðinn.
, Auk ungtemplara frá Norður-
löndum sækir Lars Spjuth, for-
maður alþjóðasambands ung-
templara, sei-n búsettur er í
Ástralíu mótið. Sömuleiðis um-
dæmistemplar IOGT í Japan og
einn fulltrúi frá Tyrklandi. Þá
sækir mótið Karl Wenneberg,
framkvæmdastjóri Norræna góð-
templararáðsins.
Miðstöu ungtemplaramótsins er
í hinu nýja húsi IOGT við Ei-
ríksgötu og er þetta fyrsta notk-
un hússins í þágu templara.
Að lokum má geta þess, að
mótsstjórn hefur fengið Freymóð
Jóhánnsson, listmálara til að
halda sýningu á nokkrum mynda
sinna í IOGT-húsinu meðan mót-
ið r.tendur.
son, rektor, um stærðfræði- og
eðlisfræðikennslu; Stefán Júlíus-
son, framkvæmdastjóri Fræðslu-
myndasafns ríkisins, um fræðslu-
myndir og Stefán Ólafur Jóns-
son, námsstjóri, um starfsfræðslu
og félagsfræðikennslu.
Um öll þessi erindi urðu um-
ræður og fyrirlesarar svöruðu
fyrirspurnum. Annað meginvið-
fangsefni fundarins var rann-
sókn skólamála, sem nú er haf-
in, að tilhlutan menntamálaráð-
herra dr. Gylfa Þ. Gíslasonar.
Fræðslumálastjóri Helgi Elí-
asson gerði grein fyrir undir-
búningi málsins og lagði það
fyrir fundinn.
Menntamálaráðh. dr. Gylfi Þ. '
Gíslason kom á fundinn, er mál-
ið var tekið fyrir og tók þátt
í umræðum, ennfremur sat fund-
inn Jóhann Hannesson, skóla-
meistari á Laugarvatni, en hann
á sæti í nefnd, eem vinnur að
rannsókn skólamála, ásamt dr.
Wolfgáng Edelstein og Andra ís-
akssyni, sálfræðingi, sem er for-
maður nefndarinnar, en þeir
voru báðir erlendis og gótu því
ekki^ sótt fundinn.
Fundinn sátu nær allir skóla-
stjórar héraðs- og gagnfræða-
skólanna auk nokkurra náms-
stjóra og fulltrúa fræðslumála-
stjóra. Konur velfl^stra fundar-
manna dvöldust að Laugarvatni
fundardagana.
í sambandi við fund þennan
var haldinn aðalfundur Félags
skólastjóra gagnfræða- og hér-
aðsskóla. Stjórn þessa skipa nú:
Árni Þórðarson, formaður; Bene-
dikt Sigvaldason. Jón Á. Giss-
urarson. ritari; Magnús Jónsson,
féhirðir. Ólafur Þ. Kristjánsson.
varaformaður.