Þjóðviljinn - 24.07.1966, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sumrudagur 24. júlí 1966.
w
CLAUDE CATTAERT:
ÞANGAÐ
SEM
GULL-
FISKAR
FARA
farið úr fötunum. Og hann hélt
á blómvendi.
Hann stóð upp og það skrjáf-
aði hátt í bréfinu utanum blóm-
in. — Er alit í lagi að koma inn?
Hann var I miklu uppnámi.
— En ef einhver skyldi nú sjá
þig? sagði ég aðvarandi. Ég
hugsaði alls ekki um sjálfamig.
— Það eru allir enn í bæl-
ir. u, og svo hafði ég vaðið fyrir
neðan mig. Hann veifaði blóm-
vendinum. — Einhver kom með
þau í gasrkvöldi, en í stað þess
að fara með þau upp, faldi ég
þau undir stiganum, svo að ég
gæti haft eitthvað mér til erind-
is.
Hann gleymdi þvv hvað þetta
var á furðulegum tíma dags og
Theresu og systur Philoméne, en
ég sagði ekki neitt; enginn hafði
neytt mig til að fara fram úr
rúminu.
Við læddumst eftir ganginum
að herbergi afa, hvort á eftir
öðru og gsettum þess að ekki
marraði í gólffjölunum; gólfdreg-
illinn er ósköp slitinn, en pabba
finnst hann fullgóður á gang-
inn. Dymar að herbergi afa
stóðu í hálfa gátt og dauft ljós
sást á veggnum. Ekkert hljóð
heyrðist úr herbergi systurPhil-
oméne; hún hlaut að vera sof-
andi enn. Ég stanzaði þar sem
Ijósið féll út og gaf Pitou merki
um að fara á undan, en hann
stanzaði líka, hnykkti lokknum
frá enninu og missti næstum
blómvöndinn; það skrjáfaði býsn
i pappímum og ég sagði í hálf-
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dóríó
Laugavegi 18 III hæg Oyftaj
SÍMI 24-6-16.
P E B M A
HárgTeiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968
DÖM U R
Hárgreiðsla við allra hæfi.
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10, Vonarstrætis-
megin — Sími 14-6-62.
Hárgreiðslustofa
Austurbæjar
Maiia Guðmundsdóttir
Laugavegi 13 — Síml 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað.
um hljóðum að hann væri asni
að fara ekki varlegar.
— Þú ert ekki hrædd, er það?
hvíslaði hann.
Hvað gekk eiginlega að h««v
um? — Hrædd við hvað?
Það er samt rétt að taka það
fram að afi hafði aldrei verið
sérlega vingjamlegur.
— Ég veit það ekki. Hann
kyngdi. — Hann er nú einusinni
dauður.
Ég skildi þetta ekki. — hann
er dáinn og segir ekki neitt.
— Nei, það er nú einmitt það.
Hann hikaði enn við dymar.—
Ætlarðu inn eða ekki? sagéi ég.
Hann gerði mig taugaóstyrka.
Hann gékk áfram en hörfaði
undir eins til baka. — Mörgæsin
er þama inni.
— Hver? Ég hélt mér hefði
misheyrzt.
— Sjáðu sjálf.
Ég gægðist inn fyrir hurðina.
í armstól var systir Philoméne,
lá á hliðinni og steinsvaf. Hún
var eins og stórt hvítt og svart
tjald sem vindurinn hafði feykt
um koll.
— Hún er steinsofandi, sagði
ég við Pitou. — Þetta er allt f
lagi.
— Heldurðu það? Rödd hans
titraði; kannski var hann ekki
mjög ákafur í að verða fullorð-
inn. Þetta er alltaf eins, fólk
talar einhver býsn, en gerirsvo
aldrei neitt. Ég ýtti honum á-
fram. Hann hrasaði og hljóp og
faldi sig bakvið armstólinn.
Fyrst sá ég ekkert nemahvítu
rúmfötin, þétt skorðuð, síðan
pakka sem tvær gulleitar hendur
studdu að með talnabandi milli
fingranna. Ofar, fyrir ofan lafa-
frakkann — í okkar hverfi er
hann aðeins notaður við brúð-
kaup og útför — var ókunnugur
maður sofandi, eða þóttist öllu
heldur sofa. Það grisjaði í skall-
ann gegnum vandlega greitt hár-
ið og höfuðið var nákvæmlega á
miðjum koddanum og minnti
mig á dýrindis ávöxt á bómull-
arbeði.
Pitou andvarpaði. — Þiðhafið
ekki fært hann í einkennisbún-
inginn eða sett á hann orðumar.
• Hann hallaði sér áfram von-
svikinn til að sjá þetta betur.
— Þetta er örugglega líkíRödd
hans var næstum sigrihrósandi.
Kyrrðin og þögnin gerðu hann
vissan í sinni sök. Hann vareins
og hvolpur sem var að þvíkom-
inn að gelta og skondraði kring-
um rúmið. *
Á borðinu, sem lyfjaflöskum-
ar höfðu verið fjarlægðar af,
var sortulyngskvistur í silfur-
bolla og hálfbrunnið kerti 1
stjaka. Þungur andardrátturinn
í armstólnum varð stöku sinnum
hrotukenndur. Ég leit í kring-
um mig i herberginu; allt var
snyrtilegt og í röð og reglu
nema hvað flaska af ölkeldu-
vatni, sem ég hafði séð systur
Philoméne halda á í fanginu
tveim dögum áður, stóð nú
gleymd' á dragkistunni. Það
vantaði aðeins tvo eða þrjásopa
upp á að hún væri full. Ég man
að Theresa sagði frammi í eld-
húsi: — Hann bað um aðdrekka
og andartaki seinna var hann dá-
inn.
Ég hafði engan áhuga ámann-
inum sem lá þama stífur og
drumbslegur eins og stytta á
torgi, en Eiaskan með litla borð-
inu v-akti Eorvitni ir.fna; ég fann
un^jw-loga lykt, ramma og þó
muskulejsa. Þrd hefði átt aðgal-
op#a >-*sírinn og h!er_ma og
leyfa sólinni að reka burt þenn-
an þef; en ?;lt var harðlokað i
herberginu-; gkvtígatjóldin dregin
fyrir. Ég ncyddi sjálfa mig til
að horfa á sstthvað annað. Á
arinhillunni ^ar roð myndum
neðan ,6 spegilinn — sinábam
á sessis ’ kólastrákur mt<ð hvítan,1
stífaðaa kraga, hðsforingi með
dá!£tið rfsrsjiegg. Allir þessir
höfðu d-ii#- þver af öðrurti i
þcssum ’-cmla manni, löngu áð-
ur *n aanr dó sjálfur. Hinir
dauðu liía • manni. Ég hugsaði
ekkert «m það að systir Philom- ]
éne kýnni aó vakna á hverrj
stundu eða Tlieresa, Miss eða
mamma mín gæru komið, en
hinir dauðu vom að fylla mig
líka. Ég fór að finna til hræðslu.
Til allrar hamingju hnippti Pitoú
í mig. — Allt í lagi, þetta er
nóg, eiginlega er lík ekki svo
merkilegt.
Við komumst aftur fram á
stigapallinn án bess að neitt
kæmi fyrir. Ég læsti á eftir Pitou,
fór inn í herbergið mitt og hjúfr-
aði mig niður í rúmið undir á-
breiðunum, þrátt fyrir hitann.
Ég reyndi eins og ég gat, en ég
gat ómögulega sofnað aftur. Mer
fannst sem heiH hópur af dauðu-
fólki væri á ferð innani mér.
Ég var næstum fegin þegar Miss
kom inn með brjóstin á morgun-
verðarbakkanum. Theresa gekk
eftir ganginum og það glamraði
í háu hælunum hennar. Gerard
blístraði meðan hann leitaði að
einhverju í skápnum sinum. Þau
voru strax búin að gieyma
dauðsfallinu í fjölskyldunni og
voru farin að haga sér eins og
vanalega. Ég var sjálf rétt að
byrja að hugsa um það.
Miss lét mig flýta mér að
borða morgunmatinn. Ég yrði
rétt einu sinni of sein í skólann.
Það héngu svört tjöld með
kögri utanmeð útidyrunum, svo
að þær urðu eins og gluggi. Við
í þann vegmn að fara
**!: á götuna, þegar fjórir svart-
klæddir merm með stifar húfúr
katrai á hlaupum og héldu áeins
konar skáp. Sólin skein ó lakkið
og það var edns og yfirborð
vatns og silfurkrossinn í miðj-
unni minnti á sundmann sem
lét sig fljóta á bakinu.
Miss vældi eins og barinn
hundur og vék til hliðar. Menn-
imir gengu hjá með bogin bök
og minntu mig á ræningja.
Mér leiðist Boulevard Péreire
með þessum óendanlegu grindum.
Við vorum á leið eftir hennþ
þegar lest kom útúr göngumrm.
Hvert var lestin að fara? Á
brautarstöö? En á eftir brautar-
stöðinni?
— Hvert er lestin að fara?
Miss þurrkaði sér um andlitið;
í hitanum voru hárin á vörtunni
þakin svitadögg. — Lestimar í
stærri hringnum fara kringum
París.
Við komum að stórum kross-
götum; fólkið gekk eftir gang-
stéttunum, umferðin fór í eilífa
hringi. Grindumar byrjuðu aftur
hinum megin og íestin hélt a-
fram þar fyrir neðan, hélt sig í
steinrennunni sinni og fór þaðan
aldrei. Mér fannst eins og lítill
hluti af mér hefði orðið eftir í
herbergi dána mannsins ogkæm-
ist þaðan aldrei.
Ungfrú Faguet hefur skóla
fyrir treggáfuð börn. Ég ereitt
þeirra, þótt ég hafi ekki hug-
mynd um hvemig stóð á því að
ég varð treg. Ég virðist hafa
verið það áður en ég lærði að
lesa meira að segja. Ég fer 1
skólann tvisvar í viku og læri
annars heima; ungfrú Faguet
kemur líka heim til mín tvisvar
í viku. Við erum bara sex í
bekknum, en ég er yfirleitt neðst.
Ég ætti að skammast mín fyrir
það, þótt ég skilji ekki hvers
vegna; ef það væri ekki ég þá
væri einhver annar krakki neðst-
ur. Ég heyrði ungfrú Faguet einu
sinni segja við móður mína: —
Ég held ekki að hún sé vangef-
SöltunarsSúlkur
Getum bætt við okkur nokkrum söltunar-
stúlkum. Fríar ferðir og húsnæði á staðnum.
j
S í L D 1 N H. F.
Raufarhöfn — Sími 96-51199.
4808 — Súsanna hrindir Maud til hliðar, en Þórður nær taki á
henni. „Stanz, hvert ætlið þér?“ Hann reynir að rífa sig lausan
og hlaupa burt, en Þórður heldur henni fastri— Stuttu síðar sit-
ur hún í stofunni t>g reynir að ljúga sig út úr vandræðunum,
en enginn trúir her.ni- „Ég hef ekki hugmynd um hvar sonur
yðar er Ég þekki hann alls ekki ....“ — Þau kalla á
Brown bílstjóra- Hann þekkir umhverfið sem Bobby er vanur
að vera í og hefur oft þurft að bíða eftir honum á vafasömum
stöðum ....... Hann hefur líka oft séð Súsönnu .......... — Hún
sér að/ spilið er tapað og segir nú stamandi frá því sem hún
veit,
SKOTTA
© KTng Fenturm SynÆcate, tne,, 1964. Wortá rigtrte naerved.
— Víst getið þið haft það rólegt í kvöld, mammaj* Þið látið bara
eins og við sétun ekki tBL
VORUTRYGGINGAR
HEIMIR TRYGGIR VORUR
UM ALLAN HEIM
TRYGGINGAFÉLAGJÐ HEIMIRf
LINDARGÖTU 9 • REYKJAVfK - SÍMI 22122 — 21260
©ntinenlal
Úfvegum effir beiðni
flestar stærðir hjólbarða
á jarðvinnslutæki
Önnumst ísuður og
viðgerðir á flestum stærðum
Gúmmívmnusfofan h.f.
Skipholti 35 - Sími 30688
og 31055
Einhleýpur sjómaður
óskar eftir herbergi, baöi og gæti látið í té afnot
af síma. Hef leigt 5 ár á sama stað.
Meömæli frá síöasta leigusala fyrir hendi.
Tilboö óskast send Þjóðviljanum. Merkt: „Vél-
stjóri 900“, fyrir mánaðamót.