Þjóðviljinn - 16.08.1966, Síða 10
FYLKINGIN
Fulltrúaráðs-
fundur
Fundur verður haldinn í
fulltrúaráði ÆFR n.k. mið-
vikudagskvöld kl. 8.30. —
Fundarefni: Starfið •' fram-
undan.
Upplesstur
Á fimmtudagskvöldið kl.
8.30 mun Jón frá Pálmholti
Iesa upp nýja frumsamda
smásögu sem væntaniega
á eftir að vekja athygli þó
að draga megi í efa að hún
fáist birt á næstunni.
Fylkingarfélagar
Síðasta helgarferðin á
þessu sumri verður farin
helgina 21.—22. ágúst. —
Verður farið til hins fagra
#staðar Þórsmerkur. Félag-
ar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka með sér
gesti. Allar nánari upplýs-
ingar um förina og skrá-
setningu í hana eru veitt-
ar í símum 17513 og 50308.
ÆFH.
■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Fischer kominn
í 1.—2. sæti
Að Ioknum sextán umferðum
í Piatigorskyskákmótinu í Kali-
forníu éru Spassky og Fischer
eftir með tíu vinninga, en tvær
umferðir eru nú eftir.
Eischer hefur sótt sig mjög
síðari hluta mótsins og hefur
hlotið 6Vz vinning í síðustu sjö
umferðum. I 16. umferð vakti
mesta athygli glæsilegur sigur
Larsens yfir heimsmeistaranum
Petrosjan, en Larsen sigraði
ginnjg í fyrri skák þeirra á mót-
Inu.
önnur úrslit í 16- umferð urðu
þes§i: Fischer vann Najdorf,
Portisch vann Donner, jafntefli
varð hjá Spassky og Ivkov og
einnig hjá Reshevsky og Unzick-
er.
Staðan þegar tvær umferðir
eru eftir er þannig: Spassky og
Fischer 10 vinninga, Larsen og
Unzicker 8% vinning, Najdorf og
Reshevsky 8 vinninga, Portisch
7% vinning og biðfekák, Petrosj-
an 7V2 vinning, Donner sex vinn-
inga og Ivkov fimm vinninga og
biðskák.
íslenzka olympluskáksveitin valin:
Sterkasta sveitin sem við
höfum sent út til keppni
□ íslenzka skáksveit-
in, sem keppir á 17. Ol-
ympíuleikjunum á Kúbu
í haust, hefur nú verið
valin, og er hún skipuð
okkar beztu skákmönn-
um, vafalaust sterkasta
ikáksveit sem við höf-
um sent á alþjóðlegt
skákmót um langan
fcíma.
17. Olympíumótið í skák verð-
ur haldið í Havana á Kúbu 25.
október til 20. nóvember n.k.
í sumar voru 9 skákmeistarar
valdir sem líklegir keppendur af
fslands hálfu. og hafa þeir
stundað æfingar undir stjórn
Friðriks Ólafssonar síðan 6. júlí
í sumar.
Á fundi stjórnar Skáksam-
bands íslands hinn 8. ágúst sl,
voru eftirtalflir skákmenn vald-
ir keppendur i mótinu:
1. borð: Friðrik Ólafsson stór-
meistari.
2. borð: Ingi R. Jóhannssón, al-
þjóðlegur meistari.
3. borð: Guðmundur Pálmason.
4. borð: Freysteinn Þorbergsson,
Skákmeistari Norðurlanda.
1. varam.: Gunnar Gunnarsson,
Skákmeistari íslands 1966.
2. varam.: Guðm. Sigurjónsson,
Skákmeistari íslands 1965.
AUir hafa þessir menn gefið
jákvætt svar um þátttöku, Guð-
mundur Pálmason þó með fyrir-
vara, en vonir standa til að úr r
hans málum rætist svo að hann
geti verið með. Ef svo verður !
ekki mun Jón Kristipsson, Skák-,
meistari Reykjavikur 1966, taka-
sæti 2. varamanns og hinir
flytjast upp. Fyrirliði skáksveit-
arinnar verður Friðrik Ólafsson,
en fararstjóri Guðbjartur Guð-
mundsson gjaldkeri Skáksam-
bands íslands.
Vafalítið eru þeir menn, sem
valdir hafa verið 'sem keppend- ■
ur, okkar sterkustu skákmenn :
nú og er langt síðan við höfum
sent svo öfluga skáksveit á al-
| þjóðlegt skákmót. Stjórn skák-
i sambandsins hefur vandað vel
Framhald á 3. síðu.,
Guðmundur Sigurjónsson
Gunnar Gunnarsson
Þriðjudagur 16. ágúst 1966 — 31. árgangur — 181. tölublað.
Veiðin um helgina
alls 10308 lestir
■ Um helgina var allgóð síldveiði á miðunum fyrir
Austurlandi en veiðisvæðið hefur færzt nokkuð fjær landi
og er nú 170—180 sjómílur ASA frá Dalatanga. Frá laug-
ardagsmorgni til sunnudagsmorguns tilkynntu 36 skip um
afla, samtals 5299 lestir, og frá sunnudagsmorgni til mánu-
dagsmorguns tilkynntu 37 skip afla. alls 5009 lestir.
Skip sem fengu yfir 190 lestir: I
Dalatangi (Sunnudagur): lestir
Halldór Jónsson SH 115
Akurey RE 342 '
Skírnir AK . 170
ísleifur IV. VE 200 ,
Björg . NK 242 j
Náttfari ÞH 220 ;
Gísli Árni RE 230
Höfrungur III. AK 110
Ólafur Sigurðsson AK 170
Ólafur Magnússon EA 130
Loflur Baldvinsson EA 100
Ingiber Ólafsson GK 180
Sig. Bjarnason EA 100
Helga Guðmundsd. BA 150
Guðbjartur Kristján IS 120
Guðm. Péturs IS 320
Ásbjörn RE 200
Fákur GK 150
Snæfell EA 220
Framnes IS 140
Dan IS 135
Helga RE 120
Víðir II. GK 140
Hafþór RE 320
Sóley IS 160
Dagfari ÞH 130
Fagriklettur GK 170
Dalatangi (Mánudagur): Iestir ,
Gjafar VE 180
Björgúlfur EA 180
Guðrún Þorkelsd. SU | 180 j
Gullver NS 380 j
Gullberg NS 190 !
Ingvar Guðjónss. SK 160
Helga Björg HU 110
Hannes Hafstein EA 320
Guðrún Guðleifsd. IS 172
Jón Garðar GK 231)
Jón Finnsson GK 100
Helgi Flóventsson ÞH 175
Björgunarsveitir að norðan og sun nan á æfingu:
Áttu stefnumót norðan Hveravalla
■ Um helgina áttu sex björgunarsveitir Slysavarnafé-
lags íslands — að norðan og sunnan — stefnumót við Seyð-
isárrétt norðan Hveravalla og æfðu björgunarsveitarmenn-
imir, sem voru liðlega 70 að tölu, sig í meðferð kompása
og korta, gerðir voru út leitarflokkar o'g leitarmennirnir
reyndu 40 nýjar labb-rabb talstöðvar sem reyndust á-
gætlega.
Eftir hádegið var haldin for-
mannaráðstefna og flokksstjórar
útskýfðu fyrir mönnum sínum
skipulagningu leita og hver
flokkur fékk ákveðna stefnu til
að ganga eftir. Flokksstjórarnir
fengu innsigluð fyrirmæli og
máttu þeir ekki opna þau fyrr
en aðalstöðvarnar gáfu merki.
Eftir þessar æfingar var ten-
ingnum snúið við og haldin var
kvöldvaka þar sem hver björg-
unarsveit lagði til efni. M.a.
flutti Ingólfur Nikodemusson frá
Sauðárkróki skemmtilega frá-
sögn af hvarfi Reynisstaða-
bræðra og Gestur Guðmunds-
son frá Blönduósi var forsöngv-
ari í fjöldasöng. .
Snemma á sunnudagsmorgun
voru björgunarsveitarmennirnir
kallaðir út eins og um leit væri
að ræða. Skipulögðu flokks-
stjórnarnir 6 leitarsvæði, all-
fjarri aðalstöðvunum og voru
Stjórnandi æfinganna var
Hannes Hafstein fulltrúi Slysa-
varnafélagsins og skýrði hann
Þjóðviljanum frá tilhögun þeirra.
Hannesi til aðstoðar voru for-
menn sveitanna sem skipuðu æf-
ingarráð.
Björgunarsveitamönnunum var
skipt í 6 flokka og voru for-
menn' sveitanna flokksstjórar.
Sveitirnar sex, sem komu frá
Reykjavík, Kópavogi, IJafnar-
firði, Akranesi, Blönduósi og
Sauðárkróki, söfnuðust saman
við Seyðisárrétt snemma á laug-
ardagsmorgun og flutti Hannes
Hafstein ávarp.
Siðan voru haldin þrjú nám-
skeið, það fyrsta um kompása
og kort sem Tómas Hjaltason
Reykjavík sá um. Annað nám-
skeiðið var um slysahjálp og
stjórnaði Lúðvík Jónsson Akra-
nesi því. Það siðasta var um
talstöðvar og var stjórnandi
Þorvaldur Mawby frá Reykjavík.
sveitirnar fluttar þangað á bíl-
um.
í þessari „leit“ voru reyndar
40 nýjar talstöðvar sem ein-
göngu eru ætlaðar til notkun-
ar milli leitarflokka innbyrðis.
Gekk leitin vel og kom síðasti
flokkurinn í aðalbúðirnar um
klukkan 2.
Þá fóru menn að tygja sig til
heimferðar og sagði Hannes Haf-
stein að æfinga^nar hefðu tek-
izt vel enda veður með afbrigð-
um gott. Slíkar æfingar hefðu
verið haldnar áður, en þetta
væri í fyrsta skipti sém björg-
unarsveitir af Norður- og Suður-
landi kæmu saman til æfinga og
væri þetta vonandi aðeins byrj-
un á frekara samstarfi.
Ágúsfmét TR
hefst 23. |un.
Ágústmót Taflfélags Reykja-
víkur hefst að Freyjugötu 27 í
Reykjavík þann 23. ágúst n. k.
Tefldar verða níu umferðir eftir
Monradkerfi- Mótið verður opið
eða án flokkagreiningar. Skrá-
setning í móííð fer fram dagana
17., 18- og 22. ágúst klukkan 8-
Jón Kjartansson SU 115
Fróðaklettur GK 153
Árni Geir KE 111
Sigurborg SE 120
Hólmanes SU 180
Sólfari AK 100
Grótta RE 170
Þráinn NK 122
Hoffell SU 120
Örn RE 240
Bergur VE 125
Bjarmi EA 130
Ásþór RE 200
Drengur
höfuðkíípu-
hrofnar
Það slys varð á sunnudag í
Villingaholtshreppi í Árnessýslu
að bíll frá Reykjavík lenti út
af veginum í beygju með þeim
afleiðingum að lítill drengur höf-
uðkúpubrotnaði.
Slysið varð skammt frá af-
leggjaranum að Hróarsholtí og
mun ökumaður hafa misst vald
á bifreiðinni í lausamöl og lenti
út af veginum háegra fnégih’
Tvær konur voru í bílnum með
mörg börn. en enginn slasaðist
alvarlega nema drengurinn sem
er á fimmta ári. Hann liggur
á Landakotsspítala.
Þá var. Volkswagenbifreið ek-
ið út af veginum við Tíðaskarð
í Kjós og lenti hann í skurði
og valt um koll. Vildi þetta
þannig til að ökumaður var að
keyra fram úr öðrum bíl, sem
stóð á veginum með allar hurð-
ir opnar, og lenti of tæpt á
brúninni. í bílnum voru þrjár
konur og nokkur börn. en eng-
an sakaði.
Um 7 leytið í gærkvöld var
enn ekið út af vegi, rétt fyrir
framan Engimýri í Öxnadal.
Átta manns, allt Frakkar, voru í
bílnum og þlaut þrennt mar-
bletti og skrámur og var1 flutt
til Akureyrar. Stýrisútbúnaður
Slys, á Hellu:
Varð að saga sviffíuguna /
sundur tíl að ná manninum
Á sunnudag varð það óhapp
á flugvellinum á Hellu afí svif-
flugu hlekktist á í lendingu með
þeim afleiðingum að flugmað-
urinn slabaðist og flugvélin
gjöreyðilagðist. Ekki er vitað
um orsakir slyssins, en við
skyndiathugun á flaki svifflug-
unnar- fannst ekkert athugavert
við íæki hennar.
Flugmaðurinn, Erling Ólafs-
son, hafði þó áður en hann lenti
haft samband við imenn niðri
og sagt þeim að stjórntæki svif-
flugunnar létu illa að stjórn.
Tókst honum ekki að rétta flug-
una af er hann lenti óg hún
stakkst niður í flugvöllinn og
vatzt svo, að saga varð hana
í sundur til að ná Erling út
henni.
Sjúkraflugvél var fengin til
að flytja Erling til Reykjavíkur
þar sem óttazt var að hann væri
hættulega slasaður en við lækn-
isrannsókn reyndust meiðsl hans
ekki alvarleg.
10 e.h. í skrifstofu félagsins að bílsins. sem var frá bílaleigu,
Freyjugötu 27. — (Frá T- R.). hafði bilað.
-----------------------—------£__________
Breyting á umferð um Hafnarfjörð
Umferð létt ufStrandgötu -
einstefnuukstur tii suðurs
I morgun kom til framkvæmda
sú breyting á umferð um mið-
bæinn í Hafnarfirði, að einstefnu
akstur verður um Strandgötu til
suðurs og jafnframt verður
Fjarðargata, hin nýja gata neð-
an Strandgötu, aðalbraut fyrir
allri umferð. Breyting þessi er
gerð til að létta umferð af
Strandgötu, sem verið hefur að-
alumferðargata um Hafnarfjörð
til þessa- Strætisvagnar munu
fara um Fjarðargötu báðar leið-
ir, strax og biðskýlið hefur verið
flutt þangað af Strandgötu.
Önnur breyting á umferð í
Hafnarfirði tekur gildi nú næstu
daga, og er hún gerð#l að beina
óþarfa umferð af Þúfubarði.
Bannað verður að beygja til
hægri af Þúfubarði inn á Reykja-
nesbraut og eins verður bannað
að beygja af Reykjanesbraut til
vinstri inn á Þúfubarð, þannig
að umferð sunnan af Suðumesj-
um og suður þangað fer nú um
Suðurgötu en ekki Þúfubarð,
enda hefur syðsti hluti Suður-
götu verið lagfærður nú fyrir
skemmstu-
Tapaði kvik-
mynrfavél
Hollenzkur rafmagnsverkfræð-
ingur sem hér er staddur í sum-
arfríi hefur orðið fyrir því ó-
happi að tapa kvikmyndatöku-
vél einhversstaðar í Reykjavík.
Er þetta 8 mm vél í tösku sem
merkt er nafni hans. Peter van
Dusschoten. Rannsóknarlögregl-
an biður þá sem einhver.iar upp-
lýsingar gætu gefið um vélina
að gefa sig fram.
1
I