Þjóðviljinn - 17.08.1966, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.08.1966, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 17. ágúst 1966 — ÞJÖÐVXLJXNN — slÐA j Ein síðasta myndin af Ottó N. I*orlákssyni, tekin í marz 1966. ið niðri fyrir. Þar voru þær mamma og gamla konan afa- systir mín. Ég læt þær vita umsvifalaust að það sé tóm vitleysa sem standi í biblíu- sögunum, jörðin sé ekki aðal- atriðið í heiminum, hún gangi kringum sólina, jörðin sé alls ekki flöt, heldur hnöttur og snúizt um möndul sinn — og sitthvað fleira af vísindum. Konumar urðu alveg æfar vegna þessa guðleysis í mér. Sigurður kom að í því og skír- skotaði ég til hans, en hann eyddi málinu með þessari ráð- leggingu: ,,Blessaður vertuekki að tala um þetta við kvenfólk- ið. Það skilur ekki neitt í því!“ Ég minnist spurninganna hjá séra Magnúsi Helgasyni, hann var þa ' hýkominn austur, ég’ held það hafi verið í fyrsta sinn sem hann fermdi á Torfa- stöðum. Ein fermingarsystir mín var Sigríður í Brattholti. — Séra Magnús byrjaði ekki á þvi að hlýða okkur yfir kverið, heldur spurði hvort við værum skrifandi, og kunnu flest eitt- hvað að pára, næst spurði hann eftir reikningskunnáttu. Var víst Iítið um það en ég hafði lært samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu. Bróðir fóstra míns, lausamaður og söðlasmiður, dvaldist tíma í Helludal, gáfumaður, hann kenndi mér að skrifa og reikna. — Við vorum viku hjá séra Magnúsi og hann lét okkur reikna alla dagana, en gekk ekki eftir þvi að við kynnum kverið utanbókar. Það varð uppistand í sveitinni, fólki þótti óþarft að verið væri að troða í okkur reikningi, nær að hugsa um kristindóminn. Það stóð ekki lengi, séra Magnús sigraði og varð ástsæll fræðari, um- skapaði héraðið í sinni mynd. □ Hvað var það svo sem strák- urinn frá Helludal las á kirkju- loftinu í Haukadal og heima hjá sér? Skyldi það ekki hafa reynzt á við meðalskólagöngu? Áttræður svaraði Ottó í við- tali spurningu um róttsékni sína á þessa leið: ,,Blessaður vertu, ég hef allt- af verið róttækur, ég var það löngu áður en ég fór að braska við verkalýðshreyfingu. Ég drakk í mig róttæknina lengst upp til fjalla og á kirkjuloftinu í Haukadal, um fermingu var ég orðinn svo trúlaus að ég neitaði að vera til altaris." Og spurningu um hvaða bækur hann hefði lesið svaraði hann svo: „Það skal ég segja þér. Ég las Klausturpóstinn, Fjölni, Skírni, Ný félagsrit, Þjóðólf, riorðan- blöðin, Stjörnufræði Úrsíns (hún gerði mig trúlausan) og svo auðvitað íslendingasögur, Forn- aldarsögur Norðurlanda. jNoregs- konungasögur og margt fleira“. □ Lesturinn kveikti útþrá og framalöngun. Ný félagsrit beindu huganum að þjóðmálum og þjóðmálabaráttu. Því skyldu ekki enn verða unnin afrek sem sögur færu af? Bækumar kunnu frá að segja svaðilförum og hreystiverkum á sjó og vöktu áhuga á sjómannsstarfi. Varþað ekki einmitt útgönguleið úrvið- burðasnauðum heimi vinnu- manns og fátæks búandmanns í sveit? Útþráin og menntunarlöngun- in urðu svo sterk að engin bönd héldu. Ottó fór seytján ára alfarinn frá Eiríki fóstra sínum í Helludal, og tók að stunda sjóróðra á Suðurnesj- um og varð brátt háseti á skútu, en skútuútgerð var einmitt })á í miklum blóma, auðmagnað- ur atvinnurekstur sem sogaði til sín fólk og f ærði útgerðarmönn- um oft stórgróða. En Ottó vildi fyrir hvern mun læra eitthvað, og honum tókst að komast í Stýrimannaskólann og var þar við nám þrjá vetrarparta. Á þeim vetrum, 1894, er Sjó- mannafélagið Báran nr. 1 í Reykjavík stofnað. Ottó útskrif- aðist 1895 úr Stýrimannaskólan- um (fiskimannanróf) með hárri einkunn. — Árið eftir, 17. október 1896, kvæntist hann Carolinu Siemsen, kaup- mannsdóttur úr Reykjavík, (f. 23. 12. 1875), hinni mestu á- gætis- og hæfileikakonu, er síðar varð brautryðjandi að stofnun verkakvennafélaganna. Voru þau hjónin svo samrýmd að af bar, og unnust heitt alla stund meðan þau lifðu bæði. Það mun eitt þyngsta áfall Ott- ós á ævinni þegar hann missti konu sína nú fyrir nokkrum árum, 1958. Þá fannst honum sem örðugt mundi að lifa leng- ur. Þau eignuðust fimm börn, Hendrik, Kristin, Margréti, Jaf- et og Steinunni, og eru þau öll á lífi. □ Hér skal minnt á einn megin- þátt í ævistarfi Ottós N. Þor- lákssonar: Stofnun og skipu- lagningu sjómannafélaganna sem nefndust Bárufélögin, en saga þeirra á tímabilinu 1894— 1909 er einn gagnmerkasti þátt- ur í sögu íslenzknar verkalýðs- hreyfingar á fyrstu áratugum hennar, brautryðjendastarf. Ég hcld ekki að betur verði sagt frá tildrögum að stofnun Bárufélaganna en með orðum Ottós sjálfs. En hann sagði þannig frá i viðtali á hálfrar aldar afmæli Bárufélaganna, 14. nóvember 1944: „Haustið 1894 í september, stofnuðu útgerðarmenn í Reykja- vík Útgerðarmannafélagið, og var Tryggvi Gunnarsson helzti forgöngumaður þess. Útgerðar- menn sögðust stofna þetta félag vegna ,heimtufrekju hásetanna1, en því fór fjarri að kröfur há- setanna væru harðar eða þær bornar fram af neinum rosta. Okkur Tryggva lenti saman nokkrum sinnum, á fundum og utan þeirra. Ég var uppi- vöðslusamur Sjálfstæðismaður en Tryggvi einn helzti máttar- stólpi Heimastjórnarinnar. Á bæjarstjómarfundum kom það oft fyrir að ég kallaði fram í hjá Tryggva þegar mér þótti hann eitthvað halla á sjómenn. Einu sinni við slíkt tækifæri, þegar fullt var á áheyrenda- bekkjunum, kallaði Halldór Daníelsson bæjarfógeti: „Hver var að grípa fram í?“. Þá rumdi í Tryggva: „Ætli það sé ekki hann Ottó eins og vant er!“ □ Útgerðarmannafélagið sýndi hvað það ætlaði sér með því að setja reglur um ráðningu sjómanna sem voru þeim mjög óhagstæður. Mér datt í hug að það væri fjandi leiðinlegt að geta ekki hamlað eitthvað á móti með samtökum sjó- manna. Ég var þá á Stýri- mannaskólanum og reyndi aðfá skólafélagana í lið með mér, reyndi víst við þá alla, en eng- inn var fáanlegur nema Geir Sigurðsson. Hinir nenntu ekki að eiga við þetta eða vildu það ekki af ýmsum ástæðum. Við Gcir höfðum lengi verið beztu vinir frá því að við vorum saman til sjós á „Margréti11. 17—18 ára unglingar. En þá kom vandinn mesti, hvernig ætti að stofna félagið og hver ætti að veita því for- stöðu. Útilokað var að við Geir yrðum í stjóm þess, vegna skólans. Markús skólastjóri var harðlega á móti þvi að skóla- piltar væru í nokkru brauki sem drægi hug þeirra frá nám- inu; honum var meinilla við drykkjuskap, en vildi síður að nemendur væm í stúkum, hélt þá að kvöldin fæm öll í fundi og slíkan óþarfa. Ég held að andúð hans á þátttöku okkar í sjómannafélagsskapnum hafi eingöngu verið af sömu ástæð- um, hann var hræddur um að það mundi tmfla námið. Hvomgur okkar Geirs hafði verið í nokkrum félagsskap, nema í einhverri skólafélags- nefnu, eri einhverjir skólabræð- ur okkar vom templarar og töldum við helzt að leita bæri þangað eftir fyrirmynd. Við höfðum eitthvað kynnzt Jóni Jónssyni, hann var gagnfræð- ingur frá Flensborg, en hafði stundað sjómennsku, var nokkm eldri en við og templari. Það varð úr að ég fór til hans að tala um félagsstofnunina og fékk hann eftir langa mæðu til þess að verða formaður. Við fómm svo að ganga á milli sjómanna og fengum góðar und- irtektir. var félagið stofnað 14. nóv. 1894 af nálega þrjátíu sjó- mönnum. Vom strax gerðar ráðstafanir til að rétta hlut há- seta gagnvart útgerðarmanna- félaginu og vom haldnir viku- legir fundir fram undir ver- tíðarbyrjun, í febrúarlok. □ Strax þennan fyrsta vetur gengu flestir búsettir sjómenn í Reykjavík í félagið. Fyrir utan hagsmunamálin beitti fé- lagið sér af alefli móti drykkju- skap sjómanna, sem þá var mjög mikill. Síðar kynntist ég Sigurði Ei- ríkssyni regluboða, og gerðum við samning með okkur að ég og Carólína skyldum gangast fyrir stofnun sjómannastúku í Reykjavík en hann skyldi stofna Bárufélagsdcildir í sjóplássum a regluboðaferðalögum sínum. Hér vora stofnaðar tvær sjó- mannastúkur, ,,Dröfn“ og síð- ar „Víkingur" en- Sigurður stofriaði þrjú sjómannafélög, Bámfélögin á Eyrarbakka, Stokkseyri og í Keflavík. Útgcrðarmenn lögðu mikla fæð á þá sem stóðu fyrir þess- um félagsskap sjómanna og gerðu ýmislegt til að knésetja hann. Mér var einu sinni boé- in skipstjórastaða suður á Sel- tjarnarnesi, éf cg vildi hætta að skipta mér af' Bárufélögun- um. Einmitt þá var of mikið framboð af yfirmönnum. En ég kunni ekki að verzla." □ Spumingu í þessu sama við- tali hvort stofnendur Bémfé- lagsins hafi nokkuð kynnt sér verkalýðshreyfingu erlendis svaraði Ottó á þessa leið: „Nei, enginn okkar sem stofn- uðum Bámfélögin höfðum nein kynni af verkalýðshreyfingu er- lendis og þckktum engar rót- tækar, pólitískar hreyfingar. Það eina í þá áttina sem fyrir okkur hafði borið voru blaða- greinar og sögur um rússnesku níhilistana. Verkamenn og sjó- menn í Reykjavík fylgdu þá flestir að málum Birni Jóns- syni og ísafold, en hún flutti alloft vinsamlegar greinar um mál sjómanna og landverka- manna, barðist móti kvenna- vinnu við uppskipun, og átaldi slæma aðbúð sjómanna. En á fyrstu ámm Bámnnar kom frá útlöndum sannurbylt- ingamaður, og í félagið til okk- ar. Það var Valdimar Bjama- son. Hann hafði verið lengi í siglingum og eitthvað tekið þátt í sjómannafélagsskap erlendis. Hann var nokkur ár í félaginu og fræddi okkur um verkalýðs- hreyfinguna í öðmm löndum, hafði þó að ég held aðallega kynnzt henni af bóklestri. Valdimar var ágætlega gefinn, fjörlegur í framkomu, vel máli- farinn og mesti ákafamaður, en ekki vel út.haldsgóður". □ Því meir sem maður kynnist Mig minnir það hafi verið veturinn 1927—’28, að ég sá Ottó N. Þorláksson í fyrsta skipti. Ég var ekki enn skropp- inn úr skóla, en hafði þó tek- ið mínar fyrstu vígslur útí kommúnismó. Kannski sá ég hann fyrst á Spörtufundi, eða kannski var það heima hjá honum sjálfum á Vesturgötu 29, því húsi, sem fóstrað hefur róttækastar pólitískar hugsan- ir í hinum aristókratíska Vest- urbæ. Mér varð maðurinn minnisstæður: öldurmannlegur í sjón, þótt ekki væri hann þá á háum aldri, andlitið svip- mikið og ennið gáfulegt, aug- un snör og urðu stundum dökk. Það stafaði af honum ró og festu og þegar hann talaði mátti fljótt merkja, að hann bjó yfir mikilli reynslu í öllu því, er varðaði verkalýð og vinnandi fólk. Mér, ungri menntamannsspírunni, þótti gott að hlýða á tal hans, og síðar datt mér stundum í hug, að svo hefðu spakir menn sögu- aldar litið út, þeir er fóstruðu unga menn og kenndu þeim lögvísi. Ég minnist alls þessa nú, þegar Ottó N. Þorláksson er hniginn til moldar nálega hálftíræður að aldri. Með hon- sitt, 1956. um lýkur langri og mikilli sögu, svo langri, að verkalýðshreyf- ingin á fslandi getur tekið mið af honum í tímatali sínu. Einn- ig í þeim skilningi, að þar sem var upphaf félagsbundinnar verkalýðshreyfingar íslenzkrar, þar var Ottó N. Þorláksson og staddur. Þegar ég kynntist Ottó N. Þorlákssyni fyrst var mér raun- ar alls ókunnugt um ævi hans og starf, menntaskólagræningi, sem þekkti lítt eða ekki sögu vinnandi fólks í landinu. En allmörgum árum síðar átti ég kost á að snudda lítið eitt i heimildum að sögu Dagsbrúnar. einkum á fyrstu tveimur ára- tugum þessarar aldar, og þá bar oft fyrir augu mín nafnið Ottó N. Þorláksson. Hann skar sig víða úr í þessum heimild- um, maður sem jafnan var þá nær staddur, er nýstárlegar hugmyndir bar á góma eða ný- mæli vakin. Það mun hafa verið um 1907, að Ottó N. Þorláksson sagði skilið við sjóinn. Bárufélögin, sögu Bámfélaganna verður augljósara að Ottó var lífið og sálin í þeirri gagnmerku sjó- mannahreyfingu, sá af fomstu- mönnum þeirra sem markviss- ast vann að skipulagningu hennar og ætlaði henni stærst- an hlut í þjóðlífinu. Sjómannafélögin, Bámfélags- deildir, spretta upp í verstöðv- um Suðvesturlandsins á þessum ámm. I>eim tekst að verða meira og minna opinberlega viður- kenndir aðilar af hálfu sjó- manna við kjarasamninga, og þar kom að Bámfélögin vom við ýmis tækifæri viðurkennd Framhald á 6. síðu. fyrstu samtök íslenzkra sjó- manna, sem Ottó hafði átt mikinn þátt í að stofna höfðu nú víst flest lifað sitt fegursta. Þá var verkamannafélagið Dagsbrún eins árs gömul, vart farin að taka tennur. Á þessu ári getur Ottós fyrst i sögu Dagsbrúnar, svo ég viti. Hann vakti þá máls á því á fundi, að menn beittu sér fyrir stofnun félagsbrauðgerðar. Innan Dags- brúnar bar um það leyti tölu- vert á hugmyndum um stofnun pöntunarfélaga til að afla verkamönnum lífsnauðsynja á skaplegra verði en þeir áttu við að búa undir alveldi kaup- manna. en tillaga Ottós um fé- lagsbrauðgerð var ekki fram- kvæmd að þessu sinni. Tíu ár- um síðar rættist draumurinn: Alþýðubrauðgerðin varð fyrsta sameign íslenzkra verkalýðsfé- laga. Á þessu sama ári, 1907, var reynt að stofna heildarsamtök með íslenzkum verkamönnum og koma á fót fyrsta stjórn- málaflokki þeirra, Verkamanna- sambandi íslands. Ottó N. Þor- láksson var einn af frumkvöðl- um þessa sambands og átti sinn þátt í, að Dagsbrún gerðist að- ili að því. Nú munu þeir vera sárafáir meðal fslendinga er hafa nokkra hugmynd um. að Verkamannasamband fslands hafi verið til, og því þykir mér skylt að rifja stuttlega upp stefnuskrá þessa félagsskapar, sem Ottó N. Þorláksson stofn- aði ásamt samherjum sínum í bernsku íslenzkrar verkalýðs- hreyfingar, ef vera kynni að núlifandi kynslóð minntist þess, hverjir orðuðu fyrstir þau lífsréttindi. sem hún býr við í dag. f stefnuskrá Verkamanna- sambands íslands stendur sú staðhæfing fremst að vinnan sé móðir allrar velmegunar og að arðurinn af vinnunni gangi til þeirra. er taka þátt í henni. Þá er þess krafizt, að allir menn, karlar og konur. bæði giftar og ógiftar, sem eru 21 árs að aldri, hafi óbundinn kosningarrétt. Skylt er að kon- ur hafi jafnrétti á við karl- menn í stjórnmálum, atvinnu- málum og menntamálum. Öll- um skal veitt ókeypis fræðsla fram að vissum aldri. Öreiga- styrk skal veita öllum, er ekki geta séð fyrir sér sjálfir, án þess að missa nokkurs í af réttindum sínum. Stofna skal sjúkrasjóði og styrkja ■ af al- mannafé. Engir aðrir en bú- settir menn í landinu méga eiga fasteignir, fossa, ítök, nám- ur eða reka atvinnu í því eða landhelgi þess. Fullt sjálfstæði íslands skal viðurkennt. Þessi voru helztu atriðin í stefnuskrá Verkamannasam- bands íslands, sem fáir muna nú lengur að var til, en lifði þó allt fram til ársins 1911. Þessi fyrstu stjórnmálasamtök íslenzkra verkamanna eru tengd manndómsárum Ottós N. Þorlákssonar og voru einn þeirra drauma hans. sem áttu eftir að rætast. Alla stund frá því að Ottó N. Þorláksson fór af sjónum var verkamannafélagið Dags- brún helzti vettvangur starf- semi hans. Frumbýlingsár þessa félags eru æði forvitnileg. Dags- Framhald á 6. síðu. Ottó og Carolina Sicmsen daginn fyrir 60 ára hjúskaparafmæli i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.