Þjóðviljinn - 08.09.1966, Síða 7
Síldarverkmiðj an á Vopnafirði.
»
Fimmtudagur 8. september 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
—----------------------------------------------:--------------------------
□ Mökkinn úr bræðslunni leggnr langsum eftir þorpinu, en öfugt við
Reykvíkinga munu íbúamir áreiðanlega blessa ilminn úr stromphólkum
verksmiðjunnar, því hann merkir þeim peninga í bókstaflegum skiln-
ingi. íbúar í Vopnafjarðarkauptúni eru eitthvað á fimmta hundrað, en
smæðina bæta þeir upp með stoltaralegum • götunöfnum og það er skilti
á öðru hverju húsi. Myndu ekki sannir Vesturbæingar og KRingar kipp-
ast við ef þeir vissu að á Vopnafirði er líka til Holtsgata og ætli ýmsum
af fyrirmönnum Reykjavíkurborgar þyki ekki súrt í brotið að fá að vita
að þeirra Hamrahlíð er ekki sú eina á jarðarkringlunni? Og svo eru skilti
með nöfnum eins og: Kolbeinsgata og Hafnarbyggð.
Staldrað við á
Grein og
myndir: Grétar
Oddsson
En þrátt' fyrir allt bruðlið
með skiltin, finnst manni að í
raun og veru sé ekki nema
ein gata í plássinu. Sú sem
liggur eftir því endilöngu lík-
lega frá vestri til austurs á
norðurströnd fjarðarins, eins
og hann er sýndur á kortinu.
Og ef vindurinn hagar sér á
Vopnafirði eftir eðli sínu, blæs
hann annaðhvort út, eða inn
fjörðinn og mökkurinn frá
verksmiðjunni leggur þá ævin-
lega helming bæjarins undir
sig í einu.
Það er greinileg velsæld á
Vopnafirði, en hún grundvall-
ast aftur á silfurlitum fiski,
sem fer í torfum um hafsvæðin
austur og norður af íslandi og
útlendingar eru fjarska gráð-
ugir í og við. síldarsöltun og
síldarbræðslu vinna flestir
Vopnfirðingar og slangur af að-
komumönnum.
Síldin
Vopnafjörður hefur komið
allmjög við sögu í síldarævin-
týri síðustu sumra. Bræðslan
þar afkastar miklu og hefur
mikið þróarrými, svo að þang-
að hefur verið gott að leita,
þegar allt hefur staðið fast á
hinum stöðunum og þar hefur
venjulega verið mikið saltað.
f sumar hefur hinsvegar brugð-
ið svo við, að staðið hefur í
járniim að nægt hráefni feng-
ist til bræðslunnar og söltun
hefur verið tiltölulega lítil ó
þeim söltunarstöðvum, sem
starfræktar eru. Vopnfirðingar
eru því ekkert óskaplega
hressir með sumarið.
Jökull Jakobsson skáld, sem
vinnur á einni söltunarstöðinni
á Vopnafirði, segir mér að með-
an síldarleysið ríkti í vor og
fram eftir sumrinu, hafi vinnu-
aflið á stöðvunum verið Jánað
á tvist og bast út um sveit-
irnar til að byggja þar fjós og
súrheysttirna fyrir bændur. Má
því með nokkrum rétti halda
því fram, að á Vopnafirði hafi
síldarleysið í sumar stuðlað að
uppbyggingu sveitanna!
Meðfram síldinni reka Vopn-
firðingar smábúskap, verzlun
og hákarlaveiðar. Líklega er
Vopnafjörður eini staðurinn á
landinu, þar sem hákarlaveiðar
eru stundaðar sem atvinnu-
grein nú orðið. Svo er skepn-
an ófrýnileg, verkuð ofan í
þorraglaða Reykvíkinga og ef-
laust einhverja fleiri. Það skal
ég og undirrita, að vopnfirzkur
hákarl meðtekinn á réttum og
þjóðlegum grundvelli er svo
sannarlega ekki til að fúlsa
við.
Byggingar
Eins og allir vita er annar-
hver maður á íslandi að byggja
hús og Vopnfirðingar hafa ekki
sloppið undan þeim faraldri
frekar en aðrir. Þar eru mörg
íbúðarhús ýmist nýbyggð eða í
smíðum. Þá er langt komið
smíði veglegs barnaskóla, sem
eflaust verður sá myndarleg-
asti á Austfjörðum fullbúinn.
Hann er teiknaður af Sigvalda
heitnum Thordarson arkitekt,
en hann var ættaður frá Vopna-
firði. f vor var tekið í notkun
nýtt hús, sem síldarverksmiðj-
an reisti yfir skrifsiofur og
starfsfólk. Það er allt með
miklum myndarskap og ólíkt
því sem maður á að venjast,
þegar verbúðir eiga í hlut og er
samanburður ,,hóteli“ staðarins
hreint ekki í vil. Það er einn-
ig nýtt, líkast lítilli vöru-
skemmu tilsýndar og yrði á-
reiðanlega ekki bendlað við
veitingarekstur nema fyrir
glossaralegar vindlingaauglýs-
ingar á stafninum. Skylt er að
geta þess, að „hótelið" er rek-
ið af aðkomumanni.
Kirkjan á Vopnafirði er frítt
og látlaust hús, eins og marg-
ar þorpskirkjur. Á hliðinu
stendur skýrum stöfum: „Guð
blessi þig“ og vonandi verður
sú fróma ósk að áhrínsorðum
á hverjum þeim sem gengur
þar undir. Þegar ég kom i bæ-
lill
•••• •:•:•'■.. ..........
V - I :■■■■
;.
••-•■•■••:•••••••'
Frá höfninni á Vopnafirði. IIöfrung„r Akranesi liggur við bryggjuna-
inn var gamall maður að slá
blettinn umhveríis kirkjuna.
Hann sló með orfi og Ijá og
þegar ég fór aftur að áliðnum
degi var hann enn að slá. Dag-
slátta drottins á Vopnafirði er
með öðrum orðum ekki véltæk.
Þó að kalt blési þann dag,
sem ég var staddur þar, verður
því ekki neitað að Vopnafjarð-
arkauptún stendur ó hlýlegum
stað. Höfnin er varin af tveim
háum, en grasi vöxnum hólm-
um og er æðarvarp í öðrum
þeirra a.m.k., því þar getur að
líta fuglahræður og önnur fíg-
úruverk. Hákarlatrillur og hand-
færabátar heimamanna vagga
sér værðarlega á legunni og við
bryggjuna liggur aflaskipið
mikla, Höfrungur II. Það er
bræla úti og Skagabáturinn
liggur hér einskipa. Nokkrir
menn eru að koma gildum
staurum fyrir í bryggjunni. Að
sjálfsögðu er verið að stækka
hana, eins og allar aðrar
bryggjur á landinu. Götunafnið
Kolbeinsgata, helgast af því að
kauptúnið stendur á svonefnd-
um Kolbeinstanga.
Umhverfi
Umhverfi kauptúnsins er at-
hyglisvert og sérkennilegt. Ein-
kennist það einkum af kletta-
borgum og hjöllum, en línurn-
ar eru mjúkar. Sunnan fjarð-
arins, gegnt kauptúninu er hár
fjallgarður og heitir Smjör-
fjöll. Vera má að fannirnar i
efstu eggjum fjallanna hafi
minnt forfeður vora á smjör-
slettur og naínið sé dregið þar
af. Þó geta beitargæði róðið
nafngift þessari. Vegurinn norð-
ur úr kauptúninu liggur að
lokuðu hliði hjá bænum Leið-
arhöfn. Þar er innsiglingarviti
Vopnfirðinga. Rétt innan við
girðinguna er sérkennileg
klettaborg, sem minnir um
margt á frægar dómkirkjur
suður í álfu og mætti vel segja
mér að hér standi biskupsstóll
íslenzks huldufólks.
Að öllu samanlögðu er bygg-
ingarlist náttúrunnar hjá
Vopnafjarðarkauptúni slík, að
hér hlaut að fæðast upp sá
íslendingur sem lengst hefur
náð , í þeirri list, Sigvaldi
Thordarson.
Yfirleitt fer það orð af Hafn-
aríirði, að þar sé fagurt, en
hafnfirzkur leikari, sem gerði
reisu sína til Vopnafjarðar' í
leikstjórnarerindum venti sínu
kvæði í kross og gerðist sveit-
arstjóri þar í plássi. Maður-
inn heitir Guðjón Ingi Sigurðs-
son og þótti efnilegur á sínu
sviði hér syðra. Ef til vill er
leikstjórn og sveitarstjórn ekki
með öllu óskyld mál, þegar
allt kemur til alls!
En svo að aðrir veraldlegir
og andlegir leiðtogar hreppsins
séu ekki skildir út undan, þyk-
ir mér rétt að nafngreina þá.
Æðsta yfirvald í veraldlegum
málum er Erlendur Björnsson
sýslumaður N.-Múlasýslu. Hann
situr á Seyðisfirði, þar sem
vatnslögnin er ærið flókin.
Hreppsstjóri er Friðrik Sigur-
jónsson í Ytri-Hlíð og oddviti
Sigurður Gunnarsson Ljótsstöð-
um II. Andlegur leiðtogi er Sig-
mar Torfason prestur.
Auðvitað koma nafnkunnir
menn við sögu í öllu því at-
hafnafáti, sem einkennt hefur
Vopnafjörð eins og aðra Aust-
firði undanfarin sumur. Þar
skulu fyrst tilnefndir tveir,
sem í sameiningu reka söltun-
arstöðina „Austurborg". Þeir
Gunnar Halldórsson og Jón Þ.
Árnason. Báðir eru þjóðkunn-
ir. Sá fyrrnefndi fyrir söltun-
Framhald á 9. síðu.
1 Éll
IÉhUsMí
■ ; ;
Hið nýja og glæsilega skólahús sem Sigvaldi Thordarson teiknaði.
Fallegur klettarani rétt utan við kauptúnið.