Þjóðviljinn - 14.09.1966, Blaðsíða 4
/j. SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 14. september 1966
Ctgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. ,
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Sími 17-500 (5 lírrnr). Askriftairverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 7.00.
Skripaleikur
f|jóðfrelsishreyfingin í Víetnam segist lengi hafa
*■ haft undir höndum úrslit hinna svokölluðu
kosninga á hernámssvæði Bandaríkjanna í Suður-
Víetnam; það hafi verið búið að telja löngu áður
en kosið var. Svo er að sjá sem Morgunblaðið hafi
einnig komizt yfir þessa óvenjulegu vitneskju fyr-
irfram; að minnsta kosti skýrir blaðið svo frá í
gær að úrslitin hafi orðið mikill ósigur fyrir
kommúnista, áður en nokkur úrslit höfðu verið
birt. Vandséð er þó hvemig kommúnistar hafa get-
að beðið ósigur í þessum kosningum, því þeir áttu
enga aðild að þeim og raunar engir andstæðingar
leppstjórnarinnar í Saigon. Hinar svokölluðu kosn-
ingar voru í því einu fólgnar að 700 þúsund manna
her rak fólk á kjörstað þar sem einlitur hópur var
í framboði. Hefur þessi fyrirlitlegi loddaraleikur
vakið reiði hvarvetna um heim; það mun óvíða
hugsanlegt nema á íslandi að málgagn forsætisráð-
herrans telji kosningar af þessu tagi til marks um
frelsi og lýðræði.
VT 4
Svona fór um sjóferB þá
Sandvíkin þar sem Gesina strandaði.
Og hér sést Gesina strönduð í fjörunni.
Meðfylgjandi myndir tók
Einar Guðmundsson sjómaður
í Neskaupstað á fimmtudag-
inn f síðustu viku af norska
bátnum Gesima, sem strand-
aði á Kársnesfjöru í Sandvík
norðan Gerpis aðfaranótt
þriðjudags.
Eins og myndirnar bera
með sér stendur báturinn rétt-
ur og með stefnið á þurru í
fjörunni, en þarna er fínn
sjávarsandur. Er skipið með
öllu óskemmt og sömuleiðis
farmurinn, sem voru 1100
tunnur af saltsíld.
Einar var að fylgja Kristj-
áni skipstjóra á Goðanum til
Sandvikur er hann tók mynd-
irnar, en sá síðarnefndi kann-
aði aðstæður til björgunar
fyrir tryggingarfélagið, sem
hér á hagsmuna að gæta.
Auðvelt virðist vera að koma
farminum á þurrt, en hvort
reynt verður áð ná bátnum út
skal ósagt látið.
Hvað sem því Iíður má
fullyrða, að áhöfn Gesima
hafi haft „heppnina“ með sér
í þessari strandsiglingu með
því að hitta fjöruna í Sand-
vík, því að á báðar hendur
eru þverhnípt standbjörg á
löngu svæði og engum lífs
von, er undir þau siglir.
Sjópróf fóru fram í strand-
máli þessu á Seyðisfirði sl.
föstudag og hefur frétzt, að
skipstjórinn á Gesima hafi
þar borið, að hann hafi talið
sig vera á öruggri siglingu
inn Seyðisfjörð, er báturinn
tók niðri í Sandvfk. Hyggur
hann sig hafa villzt á vitun-
um á Dalatanga og Glettings-
nesi. — H.G.
A stæða er til að minna á að um þessar mundir
eru liðin tíu ár síðan raunverulegar og frjáls-
ar kosningar áttu að fara fram í öllu Vietnam; það
var meginatriði Genfarsamkomulagsins frá 1954.
Bandaríkin komu í veg fyrir þær kosningar og
beittu til þess Diem einræðisherra sem síðan. var
myrtur fyrir atbeina bandarísku leyniþjónustunn-
ar. Ástæðan fyrir því að ekki mátti kjósa kom fram
í endurminningum Eisenhowers forseta, en hann
kvað það samhljóða álit dómbærra manna að í
frjálsum kosningum myndi þjóðfrelsishreyfingin
undir forustu Ho Chi Minhs fá 80% atkvæða. Síð-
an hefur verið unnið skipulega að því að fækka
kjósendum í Víetnam með sprengjum og benzín-
hlaupi, eiturgasi og annarri þeirri. tækni sem
Bandaríkin hafa gert að sérgrein sinni. Samt eru
Bandaríkin engu nær því marki að brjóta niður
sjálfstæðisvilja fólksins í Víetnam; einmitt skrípa-
kosningarnar á sunnudaginn var eru óræk sönn-
un þess.
Vonandi ekki
Fj'f ofbeldismaður réðist inn á heimili Eýjólfs
■*-J Konráðs Jónssonar Morgunblaðsritstjóra myndi
sá síðamefndi væntanlega 'taka karlmannlega á
móti. Ef ofbeldismaðurinn byði ritstjóranum síðan
frið með þeim skilmálum að hann fengi að dvelj-
ast áfram á heimilinu, hafa afnot af gögnum þess
og gæðum og hlutast til um stjórnmálaskoðanir
húsbóndans, myndi ritstjórinn væntanlega telja
heimilisfrið fólginn 1 því einu að fjarlægja illvirkj*
ann og láta hann bera ábyrgð gerða sinna. Illræð-
ismaðurinn gæti samt stutt aðgerðir sínar fjöl-
mörgum ritsmíðum úr Morgunblaðinu, þar sem
stórveldi er talið heimilt að ráðast á smáþjóð og
setjast upp í landi hennar og það talið sannur frið-
ur að ofbeldið nái fram að ganga. En vonandi
kemur aldrei til þess að ritstjórinn þurfi á þenn-
an hátt að sannreyna kenningar sínar. — m.
Lóíun undir f jölbýlishús
úthlutað í Fossvogshverfi
■ Á fundi borgarráðs 6. þ.
m. var samþykkt tillaga lóða-
nefndar um lóðaúthlutun fyrir
fjölbýlishús í Fossvogi við
Efstaland, Geitland, Gautland
og Hörðaland. Fá eftirtaldir
aðilar þar úthlutað lóðum sam-
kvæmt samþykktinni:
EFSTALAND 2—4:
Þorkell Einarsson, Krossamýr-
arbletti 14.
Svanhildur Þorkelsdóttir,
Éikjuvogi 23.
Einár • Þorkelsson, Krossamýr-
arbletti 14.
Einar Jónsson, Meðalholti 4.
Hreiðar O. Guðjónsson, Grett-
isgötu 61.
Dagbjört Sigurbergsdóttir, Ás-
braut 7, Kópavogi.
Björgvin Samúelsson, Goðheim-
um 16.
Guðleif Hrefna Vigfúsdóttir,
Kleppsvegi 42.
Helgi Gíslason, Álfheimum 58.
Kristinn Jónsson, Hrísateigi 15.
Páll M. Helgason, Laugarnes-
vegi 85.
Jón Björnsson, Langholtsv. 170.
EFSTALAND 10:
Árni S. Gunnarsson, Holts-
götu 17.
Gilbert Sigurðsson, Gullteigi 18.
Ingibergur Baldvinsson, Miklu- .
braut 64.
Magnús Þ. Einarsson, Arnar-
hrauni 4, Hafnarfirði.
Hanna Gunnarsdóttir, Smára-
götu 7.
Oddur Gústafsson, Laugarnes-
vegi 60.
GEITLAND 2:
Valdimar Árnason, Laugavegi
51 B.
Árni Eyþórs Valdimarsson,
Hringbraut 100.
Ásta Guðmundsdóttir, Smiðju-
stíg 11 A.
Birgir Már Birgisson, Njáls-
götu 31 A.
Gunnar H. Valdimarsson, Háa-
leitisbraut 24.
Hörður L. Valdimarsson, Ljós-
heimum 8.
GAUTLAND 5:
Guðmurídur Viggð Jensson,
Brunnstíg 10.
Guðmundur K. Vilbergsson,
Sörlaskjóli 22.
Kristmann Óskarsson, Þing-
holtsstræti 8.
Magnús Ólafsson, Mýrargötu 16.
Ólafur Þ. Sæmundsson, Sjafn-
argötu 2.
Rúdólf Sævar Ingólfsson,
, Drápuhlíð 25.
GAUTLAND 7:
Guðrún Helga Hannesdóttir,
Sólheimum 42.
Jón Kristinsson, Holtsgötu 14.
Pétur Magnússon, Háaleitis-
braut 49.
Sigurborg Hjaltadöttir, Álf-
heimum 42.
Böðvar Magnússon, Kárastíg 12.
Margrét Dóra Guðmundsdóttir,
Háaleitisbraut 14.
GAUTLAND 9.
Guðbjörn Guðmundsson. GL?
heimum 20.
Sigríður Kristjánsdóttir,
Smáragötu 4.
Hólmfríður Kristjánsdóttir. Álf-
heimum 66.
Ar .björg Kjaran, Smáragötu 10.
Kristján Gíslason, Hraunteigi
24.
Grímur Valdimarsson, Kára-
stíg 9 A.
GAUTLAND 1.: ,
Björn J. Sigurðsson, Bústaða-
vegi 95.
Kristbjörn Daníelsson, Sam-
túni 18.
Jóhannes S. Daníelsson,
Nökkvavogi 58.
Eyjólfur Þorbjörnsson, Barða-
vogi 14.
Sigmundur Leifsson, Álfheim-
um 13.
Garðar Sveinbjarnarson, Lang-
holtsvegi 108.
HÖRÐALAND 2—6: .
Byggingarsamvinnufélag Rvík-
ur, Hverfisgötu 116. Listi yf-
ir byggingaraðila skal send-
ur borgarráði til samþykktar
eigi síðar en 1. nóvember
næstkomandi.
★
Gatnagerðargfjald ákveðst kr.
34,5 per rúmm. og áætlast kr.
100.000,00 pr. stigahús í tvegja
stigahúsa fjölbýlishúsunum, en
kr. 70i.000,00 pr. stigahús í
þriggja stigahúsa fjölbýlishús-
unum og skal greiðast í einu
lagi fyrir hvert stigahús.
Frestur til greiðslu gjaldsins
er til 21. september n.k. og
fellur úthlutunin sjálfkrafa úr
gildi hafi gjaldið þá ekki verið
greitt.
Borgarverkfræðingur og lóða-
nefnd setja alla nánari skil-
mála þ.á.m, um byggingar- og
afhendingarfrest.
ÞÚ LÆRIR
MÁLIÐ
í
MfMI
--------------------- 3>
Klúbburinn Öruggur akstur
Sl. föstudagskvöld var hald-
inn á vegum Samvinnutrygg-
inga í hinu nýja félagsheimiJi
VALASKJÁLF á Egilsstöðum
stofnfundur klúbbsins ÖRUGG-
UR AKSTUR á Austfjörðum.
Var hann sóttur af bifreiðar-
stjórum víðsvegar af Héraði og
neðan af Fjörðum. Fyndarstjóri
var Guðmundur Magnússon
oddviti þeirra Egilsstaða-manna,
en fundarritari Magnús Einars-
son tryggingafulltrúi. Mættir
voru frá aðalskrifstofu Sam-
vinnutrygginga í Reykjavík þeir
Gunnar Sigurðsson forstöðu-
maður afgreiðslu — sem afhenti
nýjar viðurkenningar fyrirtæk-
isins fyrir öruggan akstur — og
Baldvin Þ. Kristjánsson félags-
málafulltrúi, sem flutti fram-
söguerindi um umferðaröryggjs-
mál.
Umræður urðu miklar, og að
þeim loknum var klúbburinn
stofnaður með samhljóða at-
kvæðum allra fundarmanna, lög
samþykkt og stjófn kosin. Skipa
hana þessir menn:
Marinó Sigurbjörnsson verzl-
unarstjóri, Reyðarfirði, formað-
ur, Vilberg Lárusson rafvirki,
Egilsstöðum, ritari, og Bergur
Ólafsson vélvirki, sama stað
meðstjómandi. Varastj. skipa:
Ólafur Jensson bóndi, Urriða-
vatni, Benedikt Guðnason öku-
kennari og bóndi, Ásgarði, og
Sveinn Sörenson bifreiðarstjóri,
Eskifirði.
Á fur.dinum ríkti mikill á-
hugi fyrir framtíðarstarfsemi
klúbbsins, og verkefni til að
sinna talin ærin. í fundarlok
var sameiginleg Jkaffidrykkja i
boði Samvinnutrygginga, og að
síðustu var sýnd sænsk um-
ferðarlitkvikmynd: „VIT OG
VILJI“, sem umferðarslysa-
varnarfélagið í Svíþjóð hefur
látið gera.