Þjóðviljinn - 09.10.1966, Blaðsíða 2
2 SÖJA — ÞJÓÐVTLJINN — Sunnudagur 9. okhSber 1966
Körfuknattleikur:
KR mun taka þáttí
Evrópubikarkeppni
Körfuknattleiksdeild KR hef-
ur nú fyrir nokkru hafið vetr-
arstarfið. Verður þetta 10.
starfsár- deildarinnar væntan-
lega með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Reynt vcrður
að auka unglingastarfið með
fjölgun æfinga í yngri flokk-
unum, en til þess að það væri
hægt, hefur verið ákveðið að
flytja æfingar meistaraflokks
að nokkru leyti í íþróttahöll-
ina, því að KR-heimilið er
löngu orðið of lítið fyrir þá
fjölþættu 'starfsemi sem fram
fer innan félagsins.
sumar hefur farið íram
bikarkeppni í körfuknattleik á
vegum KKÍ. Heldur hefur ver.
ið hljótt um þessa keppni og
mun fáum um hana kunnugt.
KR sigraði í Reykjavíkurriðli,
vann Ármann í úrslitaleik með
50 stigum gegn 37, en Ármann
var sigurvegari í þessari
keppni á s.l. ári. í keppni þess-
ari mega leikmenn I. deildar
taka þátt, og keppti I. flokkur
því fyrir. hönd félagsins. Úr-
slitamót þessarar keppni fer
fram hér í Reykjavík, vænt-
anlega um miðjan þennan
mánuð.
Deildin mun minnast 10 ára
afmælisins eftir föngum, og sem
liður í því, hefur verið ákveðið
að taka þátt í Evrópubikar-
keppni meistaraliða í körfu-
knattleik, en eins og kunnugt.
er varð KR íslandsmeistari í
körfuknattleik í ár og öðlaðist
það með þátttökurétt.
Helgi Jóhannsson, landsliðs-
þjálfari, sem var maðurinn
bak við hinn „sæta“ sigur yfir
Dönum á Polar Cup í Kaup-
mannahöfn um s.l. páska hefur
verið ráðinn þjálfari meistara-
flokks fyrir Evrópukeppnina
og hyggja KR-ingar gott til
samvinnu við hann.
Dregið verður 14. október
n.k. um það hverjir verða mót-
herjar KR í fyrstu umferð bik-
arkeppninnar sem fram fer um
miðjan nóvember.
(Prá Körfuknattleiksdeild KR)
Haustmót TR hefst 11 okt.
Eins og fram kemur í fé-
lagsbréfi T.R., hefst haustmót
Taflfélags Reykjavíkur þriðju-
daginn 11. október n.k. Teflt
verður í meistaraflokki, 1.
flokki, 2. flokki og unglinga-
Aijíbassador
Herra Juan Serrat, sem und-
anfarið hefur verið sendiherra
Spánar á íslandi afhenti 7. þ.m.
forseta íslands trúnaðarbréf
sitt sem ambassador Spánar á
íslandi við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum að vjðstöddum
menntamálaráðherra dr. Gylfa
Þ. Gíslasyni í fjarveru utanrík-
isráðherra.
flokki. Meistaraílokki verður
skipt í 6 manna riðla í undan-
úrglitum. Tveir efstu menn úr
hverjum riðli keppa síðan til
úrslitá um titilinn haustmeist-
ari Taflfélags Reykjavíkur, og
farandbikar. Öðrum þátttak-
endum í undanúrslitum verður
síðan skipt í tvo riðla, sem
keppa um verðlaunabikar í
hvorum riðli fyrir sig. Efsti
maður í l. fl. flyzt upp í meist-
araflokk. Tveir efstu menn í
2. fl. og efsti maður í ung-
lingaflokki flytjast upp í 1.
flokk.
Innritun í mótið fer fram
mánudaginn 10. okt. n.k. kl.
5 til 7 og 8. til 10 e.h. og lýk-
ur þá um kvöldið.
Viðreisnin
étur vini sína
Ósjaldan hefur Morgun-
blaðið flutt það kunna spak-
mæli að byltingin éti börnin
sín, en nú gæti blaðið til til-
breytingar- fitjað upp á nýj-
um sannindum: viðreisnin
étur vini sína. Afleiðingar
þeirrar stjórnarstefnu hafa
nú um skeið ekki hvað sízt
bitnað á þeim mönnum sem
fögnuðu viðreisninni ákafleg-
ast. Má þar nefna ýmsa iðn-
rekendur; nú fyrir nokkrum
dögum birti Mprgunblaðið til
að mynda enn eina auglýs-
ingu um nauðungaruppboð
hjá Magnúsi Víglundssyni.
Gunnar Guðjónsson var ekki
'ieldur neitt tvíátta í hrifn-
'ngu sinni af viðreisninni
neðan hann var forrnaður
Vetzlunarráðs íslands; nú
hvílir hann í búk ófreskjunn-
ar með sitt sænska frystihús
og mun naumast gera sér
vonir um að hreppa hina
fornu lífsbjörg Jónasar.' Og
nú síðast er röðin komin að
Byggingarfélaginu Brú, einu
kunnasta verktakafyrirtæki
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík. Aðaleigandi þess, Þor-
björn Jóhannsson kjötkaup-
maður, mun hafa ætlað sér
annað hlutskipti en að verða
, sjálfur réttur á borðum hinn.
ar óseðjandi viðreisnar.
V
Á
ferð og flugi
Nýlega var birt hér stutt
frásögn um hinar ævintýra-
legu geimferðir Gylfa Þ.
Gíslasonar. Hann var þá
stundina staddur í Washing-
ton, en fyrr en nokkurn varði
var hann kominn til Kaup-
mannahafnar og búinn að
undirrita norrænan menning-
arsamning. Hins vegar herma
blöðin að hann hafi verið á
íslandi á föstudaginn var.
Þann dag snemma aflienti
ambassador Spánar embætt-
isskilríki sín á .Bessastöðum,
og þar var viðstaddur utan-
ríkisráðherra íslands — Gylfi
Þ. Gíslason. Um hádegið
hafði Verzlunarráðið boð
inni, og þar flutti aðalræð-
una viðskiptamálaráðherra ís-
lands — Gylfi Þ. Gíslason.
Síðdegis sama dag var haldið
boð til heiðurs Sigurði Nor-
dal áttræðum; gestgjafi og
aðalræðumaður í þvi ágæta
samkvæmi var menntamála-
ráðherra íslands — Gylfi Þ.
Gislason. Hins vegar herma
blöðin ekki hvað ráðherrann
hafi haft fyrir stafni um
kvöldið. — Austri.
VERÐLÆKKUN
hjólb. sl'óngwr
\ 1.070,- kr. 148,—
\ 1.500,— kr. 150,—
\ 625,- kr. 115,—
\ 1.900,— kr. 241,—
\ 3.047,— kr. 266,—
670x15
820x15
500x16
650x20
750x20
EINKAUMB
HJOLBARÐAR fra
: RASNOIMPORT MOSKVA
<m: v. , s.
IMARS
TRADIING
SIMI17373
Kr. 300,00 daggjald
og 2,50 á ekinn km.
ÞER
LEIK
ur ?
Rauðarárstíg 37
sími 22-0-22
8.30 Létt morguniög: Marsar
eftir Gruber, Crawford o.fl.
og Vínarlög eftir Lehár, Stolz
o.fl.
8.55 Útdráttur úr forusfcugrein-
um dagblaðanna.
9.10 Morguntónleikar- a) Kon-
sertino nr- 2 í G-dúr fyrir
strengjasveit eftir Pergolesi. 1
Musici leika. b) Kantatai nr.
140 eftir Bach. Hans-Joachim
Rotzch tenórsöngvari, * Elisa-
beth Grúmmer sópransöng-
kt>na, Theo Adam bassasöngv-
ari, kór ■ Tómasarkirkjunnar
og Gewandhaushljómsveitin í
Leipzig flytja- Stjómandi:
Kurt Thomas. c) Svíta nr. 8
í f-moll eftir Hándel. Gustaf
Leonhardt leikur á sembal. d)
Fiðlukonsert eftir Carl Niel-
sen. Yehudi Menuhin og Sin-
fóníuhljómsveit danska út-
varpsins leika; Mogens Wöl-
dike stj.
1100 Messa í Dómkirkjunni.
Prestur: Séra Skarphéðinn
Péfcursson prófastur f Bjama-
nesi.
14.00 Miðdegistónleikar. a) Pí-
anókonsert nr. 2 í B-dúr eft-
ir Beethoven. Arfcur Schnabel
og hljómsveitin Philharmbnia
leika; Issay Dobrowen’ stj. b)
Sinfónía nr- 9 eftir Anton
Bruckner. Fílharminíusveitin
í Vínarborg leikur; Zubin
Metha stj.
15.30 Sunnudagslögin.
17.30 Bamatími: Anna Snorra-
dóttir stjómar-'a) Ævintýri
litlu bamanna- b) Gullastokk-
urinn: Sitt af hverju til fróð-
leiks og skemmtunar. c) Af
kóngssyni og kóngsdótfcur,
ævintýri frá miðöldum. d) Sí-
gilt ævintýri: Gæfuprinsinn,
eftir Oscar Wilde, í þýffingu
Stefáns Jónssonar. Steindór
Hjörieifsson leikari les.
18.30 Frægir söngvarar: Mari-
an Anderson syngur-
20 00 Grímsstaðir á Fjöllum.
Séra Páll Þorleifsson fyrrver-
andi prófastur á Skinnastað
flytur erindi.
20.20 Kórsöngur: Karlakórinn
Geysir á Akureyri syngur.
Söngstjóri: Árrri. Ingimundar-
son. Einsöngvarar: Jóhann
Konráðsson og Aðalsteinn
Jónsson- Píanóleikari: Þór-
gunnur Ingimundard- Aðrir
hljóðfæraleikarar: Guðni
Friðriksson, Hannes Arason
og Stefán Halldórsson.
21.00 A náttmálum. Vésteinn
Ólason og Hjörtur Pálsson
sjá um þáttinn.
Lethinen stjóma hljómsveit-
um sínum; Barbra Streisand
syngur með einni hljómsveit-
inni.
18.00 Þingfréttir.
18-20 Á óperusviði. Útdráttur
úr söngleiknum Salad Days,
effir Julian Slade-
20.00 Um daginn og veginn.
Ingibjörg Þorgeirsdóttir talar.
20.20 Ástkæra ylhýra málið:
Gömlu lögin sungin og leik-
in.
20- 35 Gerðu skyldu þína, Scott,
. sakamálaleikrit eftir John P-
Wynn. Fjórði kafli: Líkið
undir brúnni. Þýðandi: Óskar
Ingimarsson. Leikstjóri: Bald-
vin Halldórsson. Leikendur:
Róbert Arnfinnssbn, Jóhanna
Norðfjörð, Erlingur Gíslason,
Helga Valtýsdóttir, Rúrik
Harajdsson, Jón Júlíusson,
Sverrir Guðmundsson, Þóra
Friðriksdóttir, Þorgrimur Ein-
arsson. *
21- 15 Sellósónata eftir Debussy-
Mstislav Rostropovitsj og
Benjamin Britten leika.
21.30 Útvarpssagan: Fiskimenn-
.imir.
22.15 Dauðadansinn, smásaga
eftir L. A- G- Strong. Guðjón
Guðjónsson les þýðingu sína.
22.35 Sænsk nútímatónlist: Þor-
kell Sigurbjömsson kynnir.
23.20 Dagskrárlok.
NORPQLE
22.10 Danslög.
23-30 Dagskrárlok.
SKOLAÚLPAN
Útvarpið á mánudag
7.00 Morgunútvarp.
13.30 Setning ATþingis- a) Guðs-
þjónusta í Dómkirkjunni.
Prestur: Séra Ólafur Skúla-
son. b) Þingsetning.
15.00 Miðdegisútvarp. Islenzk
lög og klassísk tónlist- Averil
Williams og Gísli Magnússon
leika fjögur islenzk þjóðlög,
útsett fyrir flaufcu og píanó af
Árna Björnssyni. Fílharmon-
íusveit Berlínair leikur Man-
fred, forleik op. 115 eftir
Schumann; André Clutens stj.
Edwin Fischer og kammer-
hljómsveit hans leika Rondo
í D-dúr fyrir píanó og hljóm-
sveit (K 382) eftir Mozart. Er-
ling Blöndal Bengtsson og
Kjell Bækkelund leika Selló-
sónötu í g-moll op. 65 eftir
Chopin. Femand Dufréne.
Paul FaiTlefer og hljómsveit
franska útvarpsins leika
kammerkonsert fyrir fla<utu,
enskt hom og strengjasveit
, eftir Arthur Honegger; Ge-
orge Tzipine stj. Monique
Haas leikur prelúdíur úr arm-
arri bók eftir Debussy.
16.30 Síðdegisútvarp. Létt mús-
ík: Felix Slatkin, Peter Matz,
Bert Kaempfert, David Car-
roll, Roland Shaw og Rawno
Hann ve'it h»a5 fiann vili, enía INORPOLE úlpu.
Yt/abyrSi er úr 100% nylon, fó5ri5 er orlon lo5-
iódur, kraginn er dralon pijónakragi. Norpofe ölp-
an'er mjög hlý og algjörlega vatnsheid.
HEKLS, Akureyri
Iðnskólinn í Reykjavík mun starfrækja
námskeið fyrir
Starfsfólk á teiknistofum
einæg þátttaka fæst.
A. Dagnámskeið fyrir fólk þegar starfandi á teikni-
stofum. — Kennt verður tvisvar í viku.
B. Kvöldnámskeið fyrir þá, er hyggja á slík störf.
Kennt verður þrisvar í víku.
Innritun fer fram í skrifstofu skólans og eru þar
veittar nánari upplýsingar. Innritun lýkur fimmtu-
daginn 13. þ.m. Kennsla hefst mánudaginn 17. okt.
SKÓLASTJÓRI.
✓'. .
útvarpið