Þjóðviljinn - 09.10.1966, Side 3
Sunttudagar 9. október 1066 — tsSÚÐWBiSWEB!- — SÍÐA J
Berfrand Russell
„OPIÐ BRÉP'
til bandarísku þjóðarinnar
Bertrand Russell
✓ ■
Ég beini þessari áskorun til
yðar, bandariskir borgarar, sem
þátttakandi í baráttunni fyrir
frelsi og félagslegu réttlæti.
Ýmsir vilja telja það að land
ykkar hafi lifað eftir þessum
hugsjónum og Bandaríkin eiga
sér raunverulega hefð að baki,
sem upprunalega var, trú á bar-
áttuna fyrir mannlegu frelsi og
félagslegu jafnrétti. Það er
þessi hefð sem svikin hefur
verið af þeim fáu sem nú fara
með völd í Bandarikjunum.
Þegar ég rita þessa áskorun
bið ég yður um að hugleiða,
það, hvað bandaríska stjórnin
hefur gert á hlut víetnömsku
þjóðarinnar. Getið þér í fullri
einlægni réttiætt notkun eitur-
gass og drepandi kemískra
efna, grimmilegar sprengju-
árásir á allt landið með napalm
og fosfór? Enda þótt bandarísk
blöð ljúgi til um þpssa hluti,
eru sannanirnar fyrir því að
þessum gas- og eiturefnum hef-
ur verið beitt, óyggjandi. Nap-
alm og fosfór brennir unz
fórnardýrið er dautt. hold.
Bandaríkjamenn hafa einnig
beitt vopnum eins og „lata
hundinum", sprengju sem inni-
heldur lft.000 flugbeittar stál-
flísar. Þær ' flá sundur þá
þorpsbúa sem fyrir þeim verða.
Á þéttbýlasta svæði í Norður-
Vietnam hefur á síðustu þrett-
án mánuðum verið várpað 100
milj. slíkra stálflísa.
Er Bandarikin hófu stríð
sitt gegn Víetnömum eftir að
hafa greitt stríð Frakka gegn
þessari sömu þjóð, hafði banda-
ríska varnarmálaráðuneytið yf-
ir að ráða 160 miljörðum doll-
ara. Þessi upphæð er síðan
tvöfölduð Bandaríska hermála-
ráðuneytið er' voldugasta fyrir-
tæki heims, á 1.28 miljón fer-
kílómetra lands í Bandaríkjun-
um og þúsundir ferkílómetra í
öðrum löndum.
Nú eru 75 af 100 „centum"
notuð til að heyja stríð eða
undirbúa stríð. Miljarðar dala
eru látnar í vasa bandarískra
herforingja og Pentagon hefur
fengið fjármálavald sem héfur
áhrif út í hvern krók og kima
hins bandaríska þjóðfélags.
Það fjármagn sem hernaðaryf-
irvöldin í Bandaríkjunum ráða
yfir er þrisvar sinnum meira
en það sem US Steel, Metropol-
itan Life Insurance, American
Tel & Tel, General Motors og
Standard Oil hafa yfir að ráða.
Hermálaráðuneytið hefur i
sinni þjónustu þrisvar sinnum
fleira fólk en þessi stórfyrir-
tæki samanlagt. Miljarðar doll-
ara fara með viðskiptasamning-
um frá Pentagon til stóriðnað-
arins. 1960 var 21 miljarð dala
veitt til hernaðarframleiðsl-
unnar: Af þessari gífurlegu
upphæð hlutu fimm fyrirtæki
nær einn miljarð dala hvert.
Ég bið yður annars að hug-
leiða það að í stjórnum þess-
ara fyrirtækja eru 1400 liðs-
foringjar, 26Í hershöfðingi og
aðrir háttsettir menn úr hern-
um. General Dynamics hefur á
launalista sínum 187 liðsfor-
ingja, 27 herforingja og flota-
foringja og einn fyrrverandi
varnarmálaráðherra.
Þetta er sú ráðandi stétt sem
situr með hið raunverulega
vald án tillits til þess hver er
kjörinn til æðstu embætta og
sérhver forseti er neyddur til
þess að þjóna hagsmunum
þessa volduga hóps.
Þannig hefur hið bandaríska
lýðræði verið svipt lífi og til-
gangi vegna þess að þjóðin get-
ur ekki fjarlægt þá menn sem
stjórna henni í raun og. veru.
En samt sem áður •— þrátt
fyrir, gífurieg auðæfi Banda-
ríkjamanna, þrátt fyrir þá
staðreynd að með aðeins sex
prósent af íbúum jarðar hafa
Bandaríkin yfir að ráða njerri
tveim þriðju hlutum af hrá-
efnum jarðar. þrátt fyrir það
að hafa yfirráð yfir olíu heims,
kóbolti, wolfram, járnmálmi,
gúmmí og öðrum lífsnauðsyn-
legum hráefnum, þrátt fyrir
þann miljarðagróða sem fáein
bandarísk stórfyrirtæki sópa
saman með þeim afleiðingum
að fjöldinn sveltur með öðrum
þjóðum. — þrátt fyrir allt
þetta lifa 66 miljónir Banda-
ríkjamanna sem öreigar.
Bandarískar borgÍF- eru fullar
af fátækrahverfum. Það eru
þeir fátæku sem bera skatta-
byrðarnar og verður að halda
niðri með nýlendustríðum og
öðrum árásarstyrjöldum.
Ég bið yður alla að reyna
að skilja það sem skeður dag-
lega umhverfis yður, reyna að
skilja það hverskonar þjóðfé-
lagskerfi það er sem hefur tek-
ið völd í Bandaríkjunum og
breytt þeim í eitt gífurlegt
vopnabúr heimsveldis.
Það er þessi volduga hervél,
þessar miklu auðhringasam-
steypur og leyniþjónusta þeirra
sem þjóðir þriggja meginlanda
líta á sem höfuðfjandmann og
orsökina fyrir fátækt sinni og
sulti.
Lítum við á þær ríkisstjórn-
ir, sem háðar eru Bandaríkj-
unum, finnum við ætíð stjórn-
ir sem styðja hina ríku, góss-
eigendur, og stórkapítalista.
Þetta á við um Brasilu, Perú,
Venezúela, Thailand, Suður-
...............
FEDERICO GARCIA LORCA:
Líf eftir þetta líf
Ef ég dey
þá skiljið svalimar eftir opiiar.
Hér er barn að éta epli.
* (Ég sé það út um svaladymar).
Og sláttumaður úti á akri.
(Ég heyri til hans utan af svölum).
Ef ég skyldi dey'ja
þá skiljið svalimar eftir opnar.
RAINER MARIA RILKE:
bmr bvoSn betta Rík -.. •
Þær höfðu vanizt honum. Engu að síður
var það, er Ijósið kom og flökti við
í gustinum, að þá var hann orðinn þeim
alls ókunnur. Þær þógu’ honum um háls.
og vegna bess þær vissu ekki neitt'
um örlög hans og ævi, snunnu þær
uod sögur um hann. ,meðan þvoðu þær
allt h'kíð Önnur beirra þurfti að hósta.
á meðan lagði’ hún edikssvampinn sinn
á andlit hans og iafnsk'jótt hætti hin
og lacrð; frá sér burstann, dropar drupu
með ’öfnu bili af bekknum niðr’ á gólf.
En höndin hans. sem st.irðnað hafði
ferleoa krennt og u-ndin. aualjóslega
boðaðj hcð- hann bvrsti ekki meir.
■ v
óg það var satt Þær tóku aft.ur til
við starfa sinn með snöggum þurrum hósta
og hröðum handatökum meðan skuggar
.flöktu urh beran vegg í lampaljósi,
* sem fiskar snrikli í neti. Nóttin gein
aldim<o við glugganum sem grafarhúm
umlyki þessa gröf hvar nafnlaus nakinn maður
nýþveginn gisti einn og lagði lögmál.
Málfríður Einarsdóttir þýddi.
Kóreu og Japanv' Þetta áVið
um heim allan.
Afleiðing alls þessa er sú, að
til þess að berja niður þjóð-
byltingu eins og þá í Víetnam
neyðast Bandaríkjamenn til
þess að haga sér á sama hátt
og Japanir gerðu í Suðaustur-
Asíu. Þetta er bókstaflega satt.
Fangabúðirnar undir stjórn
Ngo Dinh Diems, þar sem inni-
lokuð voru næstum 60% íbú-
anna í sveitaþorpunum, voru
vettvangur pyndinga. fjölda-
morða og fjöldagrafa. Sérstök
vopn eins og gas og kemísk
efni og napalm eru eins hræði-
leg og nokkuð það sem naz-
istar beittu í heimsstyrjöld-
inni síðari. *
bregðast við á nákvæmlegá
sama hátt og Víetnamar hafa
gert ef ráðizt væri inn í Banda-
ríkin og bandaríska þjóðin
yrði fyrir því sama og banda-
ríski herinn og stjórnin hafa
gert Víetnömum. Sú bandaríska
mótmælahreyfing sem hefúr
hrifið hugi manna um heim
allan er í dag eini vitnisburð-
urinn um þandaríska þátttöku
í baráttunni fyrir frelsi ein-
staklingsins og þjóðfélagslegu
réttlæti. Vígvöllur frelsisins er
í Washington, í baráttunni við
striðsglæpamennina Johnson.
Rusk og McNamará — sem
hafa saurgað Bandaríkin og
borgara þeirra. Og þessir merin’
hafa meira gert, þeir hafa stol-
ið Bandaríkjunum frá þjóð-
inni og fengið The Great So-
ciety — HiJi mikla þjóðfélag —
til þess að hljóma sem háð í
augúm þjóðanna.
Þetta er nakinn sannleikur-
inn, sannleikur sem í sífellt
rikar-a mæli- grípur inn í dag-
legt líf Bandaríkjamanna. Það
er ekki unnt að stinga höfðinu
i sandinn. Bandáríska þjóðin
er hinsvegar tekin að vakna og
sýna nokkuð að þeirri ákveðni
og því hugrekki sem Víetnamar
hafa sýnt á svo hrífandi
Framhald á 5. síðu.
Það er rétt, að nazistar ilt-
rýmdu Gyðingum á kerfisbund-
inn hátt og að Bandaríkjamenn
hafa enn ekki gert neitt til-
svarandi í Vietnam. Að Gyð-
ingaofsóknunum undanskildum
hefur hinsvegar allt það er
nazistar gerðu i Austur-Evr-
ópu verið'endurtekið af Banda-
ríkjamönnum í Vietnam, og
það í enn rikara mæli og með
tækni sem er ennþá hræðilegri.
Ég hef snúið mér tií mennta-
manna og annarra þekktra
manna og kvenna úr öllum
heimsálfum og beðið þá að
taka sæti í þeim alþjóðlega
striðsglæpadómstól sem mun
taka til meðferðar gögn við-
víkjandi glæpum bandarisku
stjórnarinnar í , Vietnam. Þér
munið það að Þjóðverjar voru
sekir fundnir ef þeir höfðu
tekið þátt í eða viðurkennt
glæpi stjórnar sinnar. Enginn
taldi það nægilega afsökun ef
Þjóðverjar héldu því fram, að
þeir hefðu að vísu vitað um
gasklefana, pyndingarnar og
útrýmingarnar en ekki verið
færir um að koma í veg fyr-
ir þétta*allt.
Þessvegna*er hin raunveru-
lega barátta fyrir frelsi og lýð-
ræði í Bandaríkjunum sjálfum
háð gegn valdaræningjum hins
bandaríska þjóðfélags. Ég ef-
ast ekki eitt andartak um það
að bandaríska þjóðin myndi
JAKOBÍNA SIGURÐARDÓTTIR:
Imbabœn
Vér imbar smáir föllum fram
ferlega spældir nú,
biðjandi klárt þinn blóðga hramm
að bjarga vórri trú.
í rusli er allt vort ráð ef þú
ei ráð til bjargar sér.
Augliti þínu að oss snú,
ellegar förumst vér.
Vietconga í Viet Nam
vegur þú grenjandi.
Vér imbar smáir föllum fram
fræknleik þinn prísandi.
Á þitf mektuga matarborð
mænum vér sníkjandi:
Gef oss hvem dag vort daglegt morð
í dátasjónvarpi.
Jakobína Sigurðardóttir.