Þjóðviljinn - 09.10.1966, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVTLJINN — Sunnudagur 9. október 1966
Otgefandi: Sameiningarflokk<ur alþýdu — Sósíalisbaíloídc-
urirm.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnós Kjartansson,
Sigurður Suðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj-: Þorvaldur Jóhannesson.
Síml 17-500 (5 lfnur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Latusa*
söluverð kr. 7.00.
Atta ára loddarabrögð
¥^að er nánast skoplegt að heyra ráðherra Sjálí-
* staeðisflokksins og Alþýðuflokksins koma fram
opinberlega dögum oftar í ræðum og greinum og
biðja almenning í landinu að styðja sig til baráttu
við verðbólguna. Þeir eru ófeimnir ráðherrarnir
að flíka því að þeir séu allir af vilja gerðir til að
'takast á við verðbólguvandann og gefa jafnvel í
skyn að þéir muni geta eitthvað í þá átt!
TTtramkoma sem þessi gæti haft einhver áhrif á
* mann sem kæmi til landsins eftir langa fjar-'
veru og hefði engin tök haft á því að fylgjast með
íslenzkum þjóðmálum í áratug. Hann gæti sem
bezt hugsað þannig að mennirnir sjö í ráðherra-
stólunum virtust allir af vilja gjörðir og rét't væri
að lofa þeim að reyna að sýna hvað þeir gætu.
Hins vegar verður slíkri framkomu manna og
flokka sem verið hafa við völd á íslandi frá því um
áramótin 1958-59 og hafa frá byrjun valdaferils
síns talið það aðalstefnumál sitt að ráða við verð-
bólguvandann ekki líkt við annað frekar en at-
hafnir trúðleikara sem í. átta ár hefur verið að
endurtaka á almannafæri sömu sjónhverfingam-
ar, svo hver einasti maður er löngu orðinn leiður
á þeim og farinn að sjá í gegnum brögðin. Því
Sjálfstæðisflokknum hefur aldrei verið nein alvara
með baráttu gegn verðbólgunni, hún er bein af-
leiðing af stjórnarstefnunni, hún er aðferð þess
braskaralýðs sem öllu ræður í Sjálfstæðisflokkn-
um til að auðgast' og flytja til verðmæti í þjóðfé-
laginu. Og hvað með hinn stjómarflokkinn, Al-
þýðuflokkinn? Það eru nú tvö ár frá því ráðherra
hans Gylfi Þ. Gíslason lýsti því hátíðlega yfir, að
í viðurkenningarskyni við hóflega samninga
verkalýðshreyfingarinnar yrði ríkisstjómin að
beita verðlagseftirliti og öllum hugsanlegum ráð-
um til að forðast verðhækkanaöldu sem rændi
verkamenn árangri samninganna. Hverjar urðu
efndir þessara loforða? Hafi Alþýðuflokkurinn
viljað efna það, hefur hann ekki getað það í' stjórn-
arsamvinnunni við Sjálfstæðisflokkinn; það Hefur
raunar ekki heyrzt að Alþýðuflokkurinn hafi hót-
að að slíta stjórnarsamstarfinu af þeim sökum,
enda ekki í húfi bankastjóraembætti á Akureyri.
V/’firlýsingar ráðherra Sjálfstæðisflókksins og Al-
þýðuflokksins um vilja þeirra til að lækna
verðbólgumeinið hafa verið og eru einskær lodd-
araleikur; um það er átta ára reynsla ólygnust.
Hitt er staðreyndin, að allt hefur mátt hækka —
nema kaupið, að dómi stjórnarflokkanna, hækka
skefjalaust og langt fram úr öllu lagi. Kaup-
mönnum og hvers konar bröskurum hefur verið
gefið algjört frelsi til álagningar og gróða, sjálft
ríkisvaldið og borgarstjórn Reykjavíkur æst verð-
hækkanaeldinn. í mesta góðæri íslandssögunnar
hefur dáðlaus ríkisstjórn stýrt íslenzkum atvinnu-
vegum í hinn mesta vanda. Engin ríkisstjóm á
íslandi hefur haft jafngóð skilyrði til að stjórna,
og leggst þar á eitt góðæríð og langur stjórnartími.
Árangurinn blasir nú við og reynslutíminn er
sannarlega orðinn nógu langur. Ráðherratrúðarn-
ir hafa bókstaflega gengið sér til húðar með lodd-
anahrögð sín. — s.
HjálpiS börnunum i Viefnam
Hue er enn dimm sem nóttin
□ Grein eftir ítölsku blaðakonuna Henriette
Bidouze, sem birtist í tímaritinu „Women of the
Worid“ 15. apríl 1966 stíluð til bama S-Vietnam.
— (í»ýdd og stytt).
Litlu börn í Suðrinu.
Ég get séð ykkur fyrir mér,
þar sem þið eruð að klifra í
kókoshnetupálmúnum, tínandi
ávexti með sætri Ijúffengri
mjólk. ,
Ég sé ykkur gæta í friði
stóru buffalóanna eða hlaupa
um í sólinni á ströndum Thuan
An, Qui Nhon og Vung Tau,
gimsteinum suðurstrandarinn-
ar.
Leifturmyndir þess friðar og
þeirrar hamingju, sem þið
eigið skilið, eins og öll önn-
ur börn í heiminum.
En í dag er hræðilegt stríð.
Buffalóinn, sem venjulega er
svo friðsamur, er orðinn banda-
maður ykkar við varnir þorp-
anna. J>annig að óvinurinn
hefur sagt: „í þessu landi eru
buffalóarnir kommúnistar.“
Á kókospálmaekrunum tínið
þið stóru laufin til að þekja
felustaði.
Lestu þetta: í þorpinu Tan-
Giang í héraðinu Binh-Dinh
voru 50 varnarlausir íbúar
myrtir 22. desember 1965.
„Þeir" hálshjuggu fullorðna
fóikið eftir að hafa sundur-
limað og brennt bömin fyrir
augum foreldránna.
. 5. og 6. janúar 1966 brenndu
amerískar herdeildir þorpið
Vinh-Phuong til grunna, 16 km.
frá Da-Nang.
Þetta eru aðeins tvær stað-
reyndir af mörgum, sem vitn-
eskja hefur fengizt um, þegar
þetta er skrifað. En glæpirnir,
sem framdir hafa verið í landi
ykkar eru óteljandi. Á fyrstu
10' mánuðum ársins 1965 voru
7.859 konur og börn drepin.
Þegar við tölum um ykkur,
litlu börn í suðrinu, verður
rödd Nguyen Thi Tho, form.
kvennasamtaka þjóðfrelsis-
hreyfingar S-Vietnam skærari:
„Við erum eins og allar aðrar
konur í heiminum. Við elsk-
um börnin okkar, eiginmenn.
land okkar og frið“.
Alþjóðleg barnahjálparhreyf-
ing „Mans World“ sendi, í sam-
ráði við bandarísk yfirvöld, tvo
meðlimi sína til Saigon, þar
sem frétzt hafði gegnum Rauða
krossinn „að særðir og illa
brenndir, þar á meðal fjöldi
óbreyttra borgara og barna
lægju á yfirfullum spítölum
S-Vietnam“. Annar þeirra var
heimskunnur skurðlæknir og
heimsóttu -þeir fyrst og fremst
spítala. Eftirfarandi klausur
eru teknar úr skýrslu þeirra
félaga, sem þeir birtu á blaða-
mannafundi í Genf, að lokinni
för sinni.
„Spítalar Kýs-„stjórnarinnar“
líkjast hélzt hjálparstöðvum í
fremstu víglínu. Fórnarlömb-
um napalms- og fosfórssprengja
og alls kyns annarra vopna er
hrúgað saman þremur og fjór-
um í rúmi í hita og ólykt. Eng-
------------------------------«>
Unglingakeppni Sovétrík-
in gegn Nor&urlöndunum
Dagana 27. og 28. ágúst síð-
astliðinn fór fram í Stokk-
hólmi unglingakeppni í skák á
15 borðum milli Rússlands og
sameinaðs liðs Norðurlanda, að
Daiimörk undanskilinni. í Norð-
urlandaliðinu voru fjórir ís-
lendingar, þeir Guðm. Sigur-
jónsson, Jón Hálfdanarson,
Haukur Angantýsson, sem allir
eru þekktir landsliðsmenn, svo
og Akureyringurinn Þorgeir
Steingrímsson. Tefld var tvö-
föld umferð og sigruðu Rúss-
ar með miklum yfirburðum,
hlutu 23 vinninga gegn 7. Guð-
mundur tefldi á 1. borði og
hlaut 114 vinning, sem er ágætt
afrek. Jón tapaði báðum sín-
um skákum. Haukur vann aðra
en tapaði hinni, og Þorgeir
gerði aðra jafntefli, en tapaði
' hinni.
Við skulum nú líta á vinn-
ingsskák Hauks, en hann tefldi
hana mjög örugglega og vel. ^
Leikir svarts hafa verið mjög 23. He2 —
eðlilegir, en spurningin er, Snotrari vinningsleið var hér
hvort ekki hefði verið betra 27. Rdxe6! Bxe6 28. Rxe6, Hxe6
að leika 17. — , Rc4. 29. Bxd5.
18. Re2 Bxf2t 27. — e5
19. Hxf2 b5 28. Rxc6 Dxc6
20. b4 Rc6 29. Dxc4! —
Til greina kom 20. —, Rc4 21. Skiptir upp í unnið endatafl.
axb5, Rxd2' 22. Dxd2, axb5 23. 29. — dxc4
P.d4 ásamt Rb3-c5 með betra 30. Bxc6 Hxc6
tafM á hvítt. 1 31. fxe5 Kf7
21. c3 bxa4 32. Hal Hbb6
22. Hxa4 f6? 33. He4 fxe5
Betra vai 22. —, a5 23. bxa5 34. Hxe5 Hd6
(Ekki dugar 23. b5, Ra7 24. 35. Hnt Kg7
Rd4, Bd7 og b5-peðið fellur). 36. He7t Kg6
23. —, Rxa5 24. Rd4 með vand- 37. He8 Be6
metinni stöðu,- 38. Re4 Hc6
23. exffi gxf6 39. Hf6t Kg7
24. Rb3 Rd6 40. He7t Kg8
25. Red4 Rc4 41. Rg5 Bd5
26. Rc5 Hd6 42. Hf5 Hd6
Skárra var 26. —. Rxd4 þótt 43. Rxh7 — og svartur
hvítur ætti einnig að vinna eft- gafst upp.
ir það. Bragi Kristjánsson.
in hreinlætistæki, ekkert loft-
ræstingakerfi. Flugurnar setj-
ast í opin brunasárin, því að
engin brunasmyrsl, bómull eða
gasbindi eru til — á sárin er
bara borið venjulegt vaselín.
Ekkert hjúkrunarlið. — Og
þetta ástand samfærðumst
við um að ríkti á mörgum
spítölum alls staðar í landinu".
„Lítill sex eða sjö ára gam-
all drengur fylgdi okkur með
augunum. Líkami hans var all-
ur skaðbrenndur, svo að skein
í kjötið, og án nokkurra sára-
binda. Augun voru full af
sjíelfingu og þjáningu, og
fylgdu okkur auðsjáanlega í
bæn um að við tækjum hann
burt. Hvergi á líkama hans
var að finna spor af hjúkrun.
— Það voru tugir og aftur
tugir lítilla Vietnambarna eins
og þessa drengs í spítölunum,
sem við heimsóttum“.
„í Hue, t.d., er lítil forstofa
í aðalspítalanum, þar sem eru
tíu rúm, hvert innan um ann-
að, þakin brfenndum börnum,
sem engin smyrsl hafa fengið
á sárin. Læknirinn þar sárbað
um lyf. Engin lyf höfðu kom-
ið allan október (’65) og í nóv-
ember skrifaði hann: „Hue er
enn dímm sem nóttin".
Fulltrúar „Man’s World“
söfnuðu nægum peningum til
hjúkrunar og uppskurðar á um
400 þessara barna í Evrópu,
þeirra sem alvarlegast voru
brennd .og sem þeir höfðu
séð kveljast „í helvíti spítala
Suður-Vietnam”. í bréfi til
Johnsons Bandaríkjaforseta
báðu þeir um lán á einni eða
tveimur flugvélum til að flytja
þessa særðu líkami til Evr-
óp.u. Svarið til „Mans World“,
skrifað af Mr. Chester L.
Cooper í nafni Mr. Johnsons
var NEI. Það var í lagi að
taka við lyfjum á staðnum
„handa fórnarlömbum komm-
únista“, en „til að fyrirbyggja
allan misskilning, endurtek ég,
að hernaðartækjum okkar er
alls ekki ætlað að flytja slík-
an flutning".
Hvemig hefðum við líka
augnablik get'að trúað á slfk-
ar mannlegar aðgerðir, þegar
við sáum með eigin augum í
Norðrinu afleiðingar endur-
tekinna sprengjuárása á skóla
og spítala, þótt *á þökum spit-
alanna eins og allra annarra
spítala í heimi — sé rauði
krossmn mjög greinilega mál-
Framhald á 5. síðu.
-----------------------------
Hvitt: Haukur Angantýsson
Svart: V. Lilein.
— Sikileyjarvöm. —
1. e4 c5
2. Rf3 . e6
3. Rc3 Rc6
4. d4 exd4
5. Rxd4 d6
6. Be3 Rf6
7. Be2 Be7
8. 9-0 0-0
9. Rb3 —
Eðlilegri leikur er 9. f4.
9. — a6
10. a4 b6
11. f4 Dc7
12. Bf3 Hb8
13. De2 Ra5!
Nú er komin upp sama staðan
og í skákinni Unzieker-Pach-
mann, Olympíumótinu 1958.
Þar varð framhaldið: 14. Hadl,
Rc4 15. Bcl,.b5 16. axb5, axb5
17. Df2, b4 18. Re2, e5 með
betri stöðu fyrir svart. Hauk-
ur velur hins vegar aðra leið,
sem kemur i veg fyrir Rc4.
14. Rd2 Hd8
15. Bf2 —
Þessi leikur virðist einkenni-
legur við fyrstu sýn, en svart-
ur hótaði d5 og d4.
15. — d5
16. e5 Re8
16. —, Rd7 dugar ekki vegna !
17. Bxd5!
13. Dd3 Be5 I
ný mynztur#fleiri litir
Krakkamir velja sér sjálfir dralonpeysur frá Heklu, enda eru þær ákjósanlegar skóla-
peysur. Þær eru slitsterkar, litekta, hlaupa ekki, og auðveldar í þvötti. Úrval af fallegum
litum og mynztrum á börn og fullorðna.
HEKLA, Akureyri