Þjóðviljinn - 25.10.1966, Side 8

Þjóðviljinn - 25.10.1966, Side 8
3 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 25. október 1966. vvX ■ : sœm 'i >'*"/'ý 4 A< ", iiwifcgiaÉiíiiiiii /■■■.■> ■r; -s r . > v.yf {.Wfl rií'ÍSÍÍS®' v/Xv ' :'?:Í$:5Í5$:$ ' ,#X»- ^ Fyrirsvarsmaður fjölskyldu greiðir fullt fargjaid - aðrir fjölskylduiiðar hálft Kynnið yður hin nýju fjölskyldufargjöid Flugfélagsins, sem gilda frá 1. nóv- ember til 31. marz Allar nánari upplýsingar.veita Flugfélagið og ferðaskrif Skógrækarfélag Rykjavíkur 20 ára Framhald af 12.,siðu. nú orðið 7,65 m hátt og telst það allgóður vöxtur. Mikið var gróð- ursett í stöðirmi af skjólbeltum og limgerði í upphafi og hefur það gert alla ræktun mun auð- veldari, sagði Einar. 25% plantn- anna fer í garðrækt í Reykjavík og nágrenni, en hitt heíur farið til Heiðmerkur og til skógrækt- arfélaga úti á landi. Til ákóg- ræktai** eru algengustu tegundir bergfura, birki, sitk^greni =og rauðgreni, en til garðræktar víði- tegundir ýmsar, einkum viðjan, sem er notuð í skjól, ^birki og reyniviður. Ræktun Heiðmérkur Höfuðverkefni Skógræktarfé- lags Reykjavíkur auk rekstrar uppeldisstöðvarinnar í Fossvogi, hefur verið starfið í Heiðmörk, en þar var fyrsti reiturinn frið- aður 1948 eftir talsvert undir- búningsstarf sem Skógræktarfé- lag íslands hefur unnið. Það ár voru girtir af 1350 hektarar lands á Heiðmörk og næsta sum- ar lagðir vegir um þetta iand. 1950 var Heiðmörk hátíðlega vígð og þá hófst sjálf gróðursetn- ingin. Fengu þá alls 55 félög í Reykjavík hvert sinn reit til gróðursetningar og var gerður samningur við þau til 20 ára um skógræktarstörf á þessum lönd- um sínum- Hafa félögin sýnt mikinn áhuga og haldið reitum sínum vel við, þótt starf sjálf- boðaliða hafi dvínað síðustu ár- in, en frá 1953 hefur Vinnuskóli Reykjavíkur séð um mest alla gróðursetningu á Heiðmörk. Árið 1950 voru gróðursettar 51 þúsund plöntur í Heiðmörk, en mest hefur gróðursetningin kom- izt upp í 218 þús. á ári, og sam- tals hafa verið settar þar nið- ur 2.374.247 trjáplöntur á 18 ár- um. Rannsökuð hafa verið «afföll á nokkrum svæðum og reyndust þau hvergi meiri en 15% og á köflum svo til engin. Heiðmörk hefur áldrei átt að verða nytjaskógur, heldur er fyrst og fremst hugsað sem frið- land fyrir Reykvikinga, þar sem þeir geta notið þess að eyða fögr- um sumardögum úti í náttúr- unni. Hefur þetta verið mjög vel þegið og umferð um landið allt- af farið Vaxandi með hverju sumri og var umferð inn á Heið- mörk talin í júlí og ágúst sl. sumar að meðaltali 175 bílar á dag. Til Heiðmerkur taldist 1948 Hólmsland, Elliðavatnsheiði og Vatnsendaland, en 1957 og 58 var bætt við Heiðmörk Vífils- staðahlíð og Garðatorfulandi, og 1965 það sem eftir var af Elliða- vatnslandi og þar með taldir Rauðhólar. Eru nú alls innan girðingar Heiðmerkur 2510 hekt- arar lands og girðingarlengdin er 33 km. Af trjátegundum hefur sitkagrenið dafnað einna bezt og er komið upp í 3 metra hæð, rauðgrenið og bergfuran eru um. 2 m og birkið víða um 2 V2 metri. Þá hefur friðunin og áburðar- dreifing haft þau áhrif að allur gróður hefur tekið miklum fram- förum, líka á melum þar sem áður sást varla stingandi strá. Skcnimtifundur í kvöld minnist Skógræktarfé- lag Reykjavíkur afmælis síns með skemmti- og fræðslufundi í Tjarnarbúð, þar flytur formaður ávarp, sýndar verða litskugga- myndir frá Heiðmörk og norskur gestur félagsins, Kristian Bjor búfræðidoktor flytur erindi með myndum, sem íjallar um búfjár- beit í skóglendi. Síðan verður dansað. í stjórn félagsins eru nú Guð- mundur Marteinsson formaður, Ingólfur Davíðsson ritari, Jón Helgason' gjaldkeri, Sveinbjöm Jónsson og Lárus Blöndal með- stjórnendur. Banaslys Framhald af 1. síðu. sveigt enn meira til hægri og lenti beint framan á vörubíln- um. Þarna er enginn vegur til hægri og er ekki vitað hvers vegna Jóhann heitinn beýgði, en þess til getið að hann hafi skyndilega fengið aðsvif. Þóra heitin lézt samstundis við áreksturinn, en Jóhann var fluttur mikið slasaður á Lands- spítalann þar sem hann lézt skömmu síðar. Annað barna- barnanna, 10 ára stúlka slasað- ist eitthvað, þó ekki alvarlega, og var flutt á Slysavarðstofuna, en hitt, 8 ára drengur, slapp ó- meitt. Rannsóknarlögregluna vantaði í fyrstu vitni að árekstrinum, en kona sem ók í bíl um 50 metrum á eftir Volksvagninum, gaf sig fram í gær og virðist framburður hennar staðfesta frásögn ökumanns vörubílsins, en hún segir Volksvagninn hafa ekið eðlilegum akstri frá Mikla- torgi á um 30 km hraða, en síðan allt í einu sveigt yfir til hægri. Ræða Einars Framhald af 1. síðu- tæki á þessum vandamálum af nægilegri festu; þessir tveir flokkar hefðu hvað eftir annað gjarna tekið höndum saman um ríkisstjórn til að halda strikinu áfram. En aldrei hefði þó heildsölum og bröskurum verið gefinn eins laus taumurinn og undanfarandi fimm ár, með þeim afleiðingum að nú væri hættulega grafið undan fran^leiðsluatvinnuvegum þjóðarinnar, einkum sjávarút- vegi og iðnaði. Gengið er fallið Fyrir aðgerðir þessarar ríkis- stjórnar er gengið fallið, sagði Einar Olgeirsson, og hann kvað rétt að Alþing krefði efnahags- ráðunauta ríkisstjórnarinnar sagna um það hvört þeir teldu að fært væri að stöðva verðlag- ið með því gengi sem er í dag. Það væri því fals og fgluleikur þegar nú sé talað við verkalýðs- hreyfinguna um stöðvun; þar væri einungis hugsuð stöðvun fram yfir kosningar, en þá verði gengið fellt, líka í skráningunnL Hér er aðeins drepið á örfá atriði þessarar ýtarlegu raeðu og verður nánar vikið að henni síðar. Að ræðu Éinars lokinni tók Sigurvin Einarsson til máls, en ráðherrar höfðu ekkert til mál- anna að leggja. Var frumvarpinu vísað til 2. umræðu og fjárhagsnefndar með samhljóða atkvæðum. Nauðgunarmálið Rannsókn í máli vamarliðs- mannanna. fjögurra sem kærðir voru fyrir meinta nauðgun á 16 ára stúlku úr Reykjavík stendur enn yfir og fara fram samprófan- ir í málinu þessa dagana. Háfa tveir þeirra viðurkennt að hafa átt mök við stúlkuna í bifreið uppi við Geitháls, en segja það hafa verið með vilja hennar. Rannsókn í málinu lýkur vænt- anlega í síðari hluta vikunnar, að því er fulltrúi lögreglustjór- ans á Keflavíkurflugvelli sagði Þjóðviljanum í gær. Vinnuslys Sl. laugardag varð það slys í Þarlákshöfn er starfsmenn hjá Fosskraft voru að vinna við að færa til þung búnt af steypu- styrktarjárni á vagni, að eitt járnbúntið féll niður af vagnin- um og^varð einn mannanna und- ir því og mjaðmargrindarbrotn- aði. Var hann fluttur í Lands- spítalann. Er hann Ný-Sjálend- ingur, 25 ára að aldri. NÝJUNG FLUGFÉLAGSINS - 50% AFSLÁTTUR AF FLUG- FARGJÖLDUM TIL SKANDINAVIU FYRIR FJÖLSKYLDUNA útvarplð 13.15 Við vinnuna. 14.40 Við sem heima sitjum. Vinnubrögð í Versölum'. 15-00 Miðdegisútvarp. Lúðra- sveit háskólans í Michigam léikur marsa eftir Sousa. di Stefano syngur lög frá Nap- óli. N. Riddle og hljómsveit hans leika lagasyrpu. Phil Harris, Jan Peerce, Jane Powell, R- Merrill, kór og hljómsv. flytja lög eftir Lorn- er og Loewe. 16^00 Síðdegis'útvarp. Banda- rískir hljóðfaeraleikarar flytja Kadensa eftir Leif Þórarins- sc»; G. Shuller stjómar. K. Erik' Wéleh leikur á orgel Stenogramm eftir Bo Nils- són. Hljómsveit kanadíska útvarpsms og Hátíðarkórjnn í Toronto flytja Sálmasinfón- íuna eftir Stravinsky; höf. stjómar- 16.40 Htvarpssaga bamanna: Ingi og Edda leysa vandann eftir Þóri Guðbergsson, Höf- lés (1). 17.05 Framburðarkennsla í dönsku og ensku í tengslum við bréfaskóla Sambands ísl- samvinnufélaga og Alþýðu- sambands íslands. 17-20 Þingfréttir. Tónleikar. 19.30 Skáld 19. aldar: Guðm- Friðjónsson. Jóhannes úr Kötlum les úr kvæðum skáldsins. Óskar Halldórsson námsstjóri flytur forspjall. 19-50 Lög unga fólksins- Berg- ur Guðnason kynnir. 20.30 Útvarpssagan: Fiski- mennimir eftir Hans Kirk. Sögnlok. 21.30 Víðsjá: Þáttur um menn og menntir. 21-45 Einleikssvíta nr. 1 fyrir sélló eftir Bach. Starker i;leikur. 22.00 Staðhæfingar og stað- reyndir. Ámi Gunnarsson fréttamaður talar um morðið á Kennedy forseta Banda- rfkjanna- 22.20 Ballettmúsik eftir Mink- us, Drigo og Auber- Sinfón- íusveit Lundúna leikur; R. Bonynge stjómar. 22.55 Á hljóðbergi. Bjöm Th- Bjömsson listfræðingur velur efnið bg kynnir: Sjálfsmynd: Úr bréfum Vincents van Gogh. Flytjendur: Lee J- Cóbb og Martin Gabel. Flutn- ingi stjómar Lou Hazam. Atti að hefja leit í gær kl. 16,20 tilkynnti Tryggvi Einarsson í Miðdal til lögreglunnar í Reykjavík að þartgað héfði komið rjúprtaskytta óg sagt að tveir félagar sínir vásru týndir uppi á heiði. Var í skyndi kallað á leitarflokka og vóru þeir í þann «veginn að leggja af stað ér týndu rjúpna- skyttumar tvær komu til byggða heilar á húfi. Eldur í bifreið Síðdégis i gær var slökkvi- liðið í Reykjavík hvatt að Haga- rrtel 12 en þar hafði komið upp eldur í bifreið inni í bílskúr. Tókst fljótléga að slökkva eld- inn en bíllinn skemmdi^t mik- ið. Vifni vantar í gærmorgun var ekið harka- lega aftan á bifreiðina R-12295, sem er fólksbifreið af Citroen- gerð, annaðhvort á stæði við Gnoðarvog 84 eða við Tónabíó. Er bifreiðin mikið skemmd að aftan, en eigandi hennar tók eftir skemmdunum þegar hann kom úr mat og veit ekki á hvor- um staðnum keyrt hefur verið á bílinn. Em þeir sem vitni kunna að hafa orðið að árekstrinum beðnir að tala við rannsóknar- lögregluna. \ t l i 0 I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.