Þjóðviljinn - 30.10.1966, Page 5
Sunnudagur 30. október 1906 — ÞJÖÐVTLJINN — SlÐA
Frá einum eftirminnileg-asta landsleiknum í iþróttahöllinni nýju í Laugardal í fyrravetur. íslenzka landsliðið í handknattleik
leikur þarna við heimsmeistarana frá Rúmeníu. —• (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
HandknattleiksþingiS:
Um síðustu helgi hélt Hand-
kjjattleikssamband ÍSlands árs-
þiijg sitt og fór það fram í í-
þróttamiðstöðiijni í Laugardal.
Nokkuð yfir 30 fulltrúar voru
á þinginu frá 6 sambandsaðil-
u»i.
Ásbjöm Sigurjónsson flutti
skýrslu stjómarinnar, sem var
alllöng og ýtarleg og gaf til
kynná að stjómin hefur verið
starfsöm á iiðnu starfsári og
haft mörg járn í eldinum. Seg-
ir þar frá þeim nefndum sem
st^rfa við hlið stjórnarinnar og.
eru ekki svo" fáar, og var þeim
þakkað fyrir góð störf í þágu
handknattleiksins. Það leynir
sér ekki að Handknattleikssam-
bandið er orðið dálítiðstórveldi,
sem góðu heilli virðist fyrst og
fremst nota aðstöðu sína til þess
að þroska handknattleiksfólkið
og beitir til þess námskeiðum,
samskiptum við góð, erlend lið.
kennslu og skipulegum mótum
íyrir þátttakendur í handknatt-
, leiknum.
Það kemur einnig fram í
skýrslunni, að stjórnin heldur
Éóðu sgmbandi við önnur er-
lend sambönd qg tekur þátt í
ráðstefnum um mál hiandknatt-
leiksins, sem er því að sjálf-
sögðu nauðsyn og handknatt-
léiknum í heild.
í skýrslunni segir frá því, að
um landsléiki á liðnu starfsári,
og hefur þar verið mikið um
-að véra og frammistaða yfir-
leitt mjög góð. Þá er og getið
heimsókna og utanfara ein-
stakra félaga, og ber þar mest
á þátttökurini í Evrópukeppti-
inni.
í skýrslunni segir frá þvíað
fjórir dómarar hafi verið út-
nefndir sem millirikjadómarar
1966 og 1967, en þeir eru: Hann-
es Þ. Sigurðssm, Valur Bene-
diktsson, Magnús Pétursson os
Karl Jóhannsson.
íþr'óttahöllin
1 skýrslunni er kafli um í-
þróttahöllina og þann stórvið-
burð er htSn var tekin í notk-
un. Segir þar m.a.: — Þótt
m^rgar íþróttagreiftar bindi
miklar vonir við tilkofnu húss-
ins, er þó engin önnur fþrótta-
grein sem hefur eins brýna
þörf fyrir það eins og hand-
knattleikurinn. Það sýndu
handknattleiksmenn lfka í verki
með sínu mikla átaki við smfði
hússins, er nauðsyn krafði.
Við viljum hér með óska f-
þróttasamtökunum til hamingju
með húsið og þakka þeim og
Reykjavíkurborg og öðrum, sem
að þessari byggingu 'hafa stað-
ið.
Þá er kafli um útvarp og
sjónvarp, og er þess getið að
ekki hafi enn verið ftamið unt
greiðslur fyrir útvarp eða sjón-
varp, og hvorugt fengið leyfi til
upptöku ennþá. Þar segir en~-
fremur orðrétt: „Reynsla er
fengin fyrir þvf að aðsókn að
þeim leikjum, sem útvarpað er
frá var nokkru minni, og nú
þegar sjónvarpið er komið má
búast við enn meiri áhrifum
frá því hvað aðsókn snertir.“
Getið er þess að handknatt-
leikur hafi nú endanlega verið
samþykktur sem Olympíuíþrótt,
og verður keppnisgrein í Mun-
chen 1972.
Húsbyggingar
Um íþróttahúsabyggingar seg-
ir orðrétt í skýrslunni:
Vegjia hins óeðlilega bygg-
ingarkostnaðar undanfarinna
ára, hefur bæjar- og sveitarié-
lögtrm ekki tekizt að byggja
eins siór og eins mörg íþrótta-
hús og æskilegt. hefði verið.
Hefur skortur á nægilega mörg-
um og stórum fþróttahúswm
verið til þess að faerri hafa
stundað íþróttir en ella, og
flokkafþróttir sem handknatt-
leikur ekki náð útbreiðslu nema
lakmarkað.
Nú hafa komið á markaðinn
erlend stálgrindahús, mjög
sterk og rúmgóð, á svo lágu
verði að fullby^gð munu þati
kosta innan við V3' þess verðs,
sem eldra byggingarfyrirkomu-
lagið kostaði. Er full ástæða
fyrir þingfulltrúa utan af landi
að koma þessum fréttum á
framfæri við viðkomandi
þróttaráð í heimahéraði, ef það
mætti verða til þess að flýta
Ásbjörn Sigurjónsson
fyrir byggingu stórra íþrótta-
húsa. N
H.S.Í. er nú að verða 10 ára
þann 11. júní 1967. Frá stofnun
og fram á þennan dag hefur
margt breytzt og flest til batn-
aðar.
Með tilkomu Íþróttahallarinn-
ar hefur fengizt löglegur völl-
ur til Iandsleikjahalds og um
leið það stórt áhorfendarými,
að fjárhagsleg.aðstaða er fyrir
hendi til að bjóða hingað bl
landskeppni og klúbbleikja.
A þessum nærri 10 árum hafa
bæði kvenna- og karlalandslið-
in getið sér þann orðstír að
vera meðal betri handknatt-
leiksþjóða heims. Karlalands-
liðið hefur unnið bæði fyrrver-
andi og núverandi heimsmeist-
ara og kvennalarjdsliðið orðið
Norðurlandameistari. Þar að
auki hafa ýmis félög farið sig-
urierðir til Evrópu og flesbar
heimsóknir erlendra félaga hafa
verið okkur hagstæðari að leiks-
lokum.
í dag höldum við 10. ársþing
H.S.l. í íþróttamiðstöðinni, þar
sem skrifstofa okkar er til húsa,
ásamt öllum hinum séx-sam-
böndunum, Í.S.Í. og íþróttasam-
tökum Reykjavíkurborgar. Þessi
skrifstofubygging hefur þegar
sýnt íi-am á nauðsyn þess að
íþróttasamtökin þurftu að íá
samastað og hefur staðarvalið
verið mjög vel heppnað.
Það er okkur ekki síður
fagnaðarefni að nú á þessu ári
vei-ða íslandsmót haldin í fyrsla
skipti í íþróttahöllinni og æf-
inga- og keppnisaðstaða er orð-
, in svo góð sem raun ber vitni.
Á slíkum tímamótum, er við
höfum fengið óskir okkar upp-
fylltar hvað allar ytri aðstæður
snertir, er sérstakt tækifæri til
þess að einbcita hug okkar að
íþróttinni sjálfri og félagsstarf-
seminni, og láta góðan árangur
komandi starfsárs verða tilþess
að staðfesta nauðsyn þessara í-
þróttamannvirkja. Til þess áð
svo megi verða þurfa allir að
leggja hönd á plóginn og ein-
mitt nú á þessu 10. starfsári
okkar skulum við einbeita okk-
ur sérstaklega að æfingu íþrótt-
arinnar.
Að loknu startsári vill stjóm
H.S.l. færa öllum samstarfs-
mönnum, leikmönnum, x'þrótta-
fréttariturum og öðrurri þeim,
sem aðstoðað hafa okkur á einn
eða annan veg, beztu þakkir
fyrir ánægjulegt samstarf á liðn-
um árum, og vona að sem flest-
ir haldi áfram að vera ungir
og glaðir í anda íþróttanna.
Um skýrsluna urðu litlarum-
ræður. Gunnlaúgur Hjálmars-
son þakkaði stjórninni íyrir vel
unnin störf, svo og landsliðs-
þjálfai-a karlanna, Karli Bene-
diktssyni, og benti á að það
væri athyglisvert að hverei
væri kostnaðarliður fyrir kaup
til Karls. Hann væri hinn sanni
áhugamaður handknattleiksins.
I
Hinsvegar vildi hann eKki
taka undir þá „lpfnjáu“ sem i
skýrslunni væri um íþróttáhöli-
ina. Þgð væri óafsakanlegt að
opna hana ekki fyrr en 1. nóv ,
það ætti að gerast í síðasta lagi
T. okt.
Valgeir Ársælsson las reikn-
inga sambandsins og skýrði þá.
Var afkoma sambandsins góð,
enda óvenjumikið um að vera
hv^xð landsleiki snertir þetta ár,
énda er það svo að ef fíand-
knattleikssambpndið aetlár sér
að hálda yprúíé^a í horfinu og
gefa hvérgi eftir verður það að
hafa mikið fé til umráða.
Þingmál
Fyrir þinginu lágu nokkur
mál, þ.á.m. pndurskoðuð . lög
fyrir sambandið og vgr ,sú hélzt
breyting að fjölgað vgr í stjórn
um tvo menn, annað var meira
samræming og * nákvæmari
kaflaskipting.
Þá kom fram þingsályktun
um þáð að skora á alla þá aðila
sem hafa með rekstur íþrótta-
húsa að geya, að sjá svo um að
íþi'Óttahúsin verði tilbúintilæf-
inga eigi síðar en 1. sept. ár
hvert,
Rúnar Bjamason fylgdi þessu
úr hlaði með stuttri ræðu. Taldi
Rúnar sorglegt til þess að viia
að slíkur dráttur skuli verða á
því að íþróttahöllin komist f
lap, svo að hægt verði að nota
hana til æfinga. Kvað Rúnar
að svipað gilti einnig um önn-
ur þáu hús sem notuð eru til
æfinga fyrir handknattleiks-
mpnn. Það hlýtur að vera eðli-
legt að aéfingar og keppnistíma-
bilið hér byrji á svipuðum tíma
og hjá öðrum þjóðum sem við
höfum samskipti við.
Af þessu höfðum við sorg-
lega reynslu nú í fyrstu heim-
sókninni á keppnistímabilinu.
Það þyrfti þvi að finna ráð til
að kippa þessu í lag, sagði Rún-
ar að lokum.
Hallsteinn Hinriksson tók
undir þessa skoðun Rúnars og
bæfti við ^að það væri furðuleg
tilhögun nve íslandsmótið byrj-
aði seint.
Við hljótum að haga okfcur
svipað og aðrar þjóðir gera. Það
er óþolandi framkvæmd aðláta
sama félag leika 2—3 leiki á
viku. Við hljótum að geta byrj-
að svipað og aðrar þjóðir, hélt
Haílsteinn áfram.
Hann gerði þvf næst fyrir-
spurn til stjórnarinnar, hvenær
Islandsmótið hæfíst á þessu
keppnistímabiii, og hvort nokk-
ur tímatakvnörk hefðu verið
sett fyrir þvf hvenær mótið
byrjaði.
Ásbjörn Sigurjónss. svaraði og
sagði að HKRR-hefði verið falið
að sjá um mótið og kvaðst vona
að það færi hið bezta fram.
Urðu um þetta nokkrar um-
ræður og fór málið f nefnd.
Var síðari daginn samþykkt
að skora á þá aðila sem hafa
íþróttahús til umráða að sjá
svo um að þau verði tilbúin
til notkunar eigi síðar en 15.
sept. ár hvert. Og varðandi
' byrjun íslandsmóta var sam-
þykkt. að stefnt verði að því að
mótið byrji 1. nóv. ár hvert.
Kemur þar til upphæð lág-
marksleigunnar fyrir kvöldið.
sem að því er skýrt hefur verið
frá er 5000 krónur. Og cftir
aðsókn að leikjum svona upp
og ofan að dæma, eru ekki
miklar lfkur til að það verði
mikið í aðra hönd . til félag-
anna sjálfra, sem að þessu
standa.
Kemui- svo einnig til athug-
unar ieiga fyrir stærri leiki,
og með tilliti til starfsemi fé-
laganna virðist eðlilegt að sefct
verði þar hámarksleiga fyrir
leikkvöld. Til gamans má geta
þess að Handknattleikssam-
þandið varð að gréiða 548 þús.
kr. í sambandi við landsleik-
ina s§m fram fóru í íþróttahús-
inu. Hæsta upphæðin, sem greidd
vpr éftir eitt kvöld, var rúmar 100
þúsundir. Þetta var ekkertrætt
á þessu ársþingi handknatt-
leiksmanna. Það skal ráunar
viðurkennt að þessi mál eru
þannig í dálítilli úlfakreppuað
því leyti að eðlilega væri það
Handknattleiksráð Reykjarfkur
sem ætti fvrir hönd handknatt-
leiksins að setja fram vissar
óskir um tilhögun á þessu, og
önnur íþróttaráð sem hlut eiga
að máli einnig, eða sameigin-
iega. Þessar óskir verða svo
að fara beina leið til íþrótta-
bandalags Reykjavíkur, sem á
ef til vill ekki svo gott með
að hlusta á slikar óskir og
sýna þeim velvilja, því að ÍBR
er einn eigandi hallarinnar, að
visu ekki stór, en eigandi samt
Það gerir málið vafalaust flókn-
ara og erfiðara viðfangs, en
eigi að síður virðist nauðsynlegt
að taka þetta mál upp ogvirð-
ist sem þetta handknattleiks-
þing ,hefði átt að taka þaöupgvu
og koma fram með þó ekki
væri annað en ákveðna og til-
tekna viljayfirlýsingu fyrir hönd
handknattlefksfélaganria.
*
Stjórnarkjör
Asbjöm Sigurjónsson var
endurkjörinn form. HSÍ fyrir
næsta ár og með honum í stjóm
■ voru Kosnir þeir Rúnar Bjama-
son, Axel Knarsson, Axel Sig-
urðsson, Valgeir Ársælsson, Jón
Ásgeirssom og Einar Mathiesen.
Bjöm Ólafsson baðst undan
endurkosningu, en hann hefur
setið í stjóm sambandsins í
nokkur ár. Í varastjóm voru
kosnir þeir Magnús V. Féturs-
son, Bjöm Bjömsson og Jón
Kristjánsson. Í íþróttadómstól
sambandsins vom kjömir þeir:
Haukur Bjamason, Rúnar
Bjamason og Hafsteinn Guð-
mundsson. Endurskoðendur voru
kosnir: Kristján Friðsteinsson
og Valur Benediktsson.
Síðari fundardaginn barst
1 fregnin um andlát Erlings Páls-
sonar og minntist Ásbjöm
Sigurjónsson hans með nokkr-
um orðúm og bað fundarmenn
að rísa úr sætum sínum til
heiðurs hinum látna.
Hermann Guðmundsson flutti
kveðjur frá íþróttasambandi Is-
lands.
Þingforsetar voru Axel Ein-
arsson og Jón Guðmundsson
og aðalritari Sveinn Ragnarss.
— Frímann.
Fjármál
Nokkrar umræður urðu um
fjármál, þar sem var rætt um
skiptingu tekna af mótum. Var
ákvéðið að skipta handknatt-
leiksmótum f þrjá hópa, sem
hver hefði sínar tekjur, þann-
ig að fyrsta deildin er sér,
önnur deildin einnig, og svo
mót annarna flokka sér
Hinsvegar var ekki rætt um
það nýja viðhorf, sem skapazt
hefur í sambandi við tilkomu
íþróttahallarinnar, og þá leigu-
skilmála sem j>ar eru settir
fram fyrir leiki sem þar fara
fram f húsinu. Það virðist þó
vera mál sem sannarlega snert-
ir handknattleikinn í heild.
iÍAFÞÓR ÓUVMUNPSm
Skólavörfiustíg 36
______Súni 23970.____
INNHEIMTA
lÖaFRÆQl&TðtiP