Þjóðviljinn - 30.10.1966, Page 9
Sunnudagur 30. oktober 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SfÐA 0
ÞjóBviljinn jwjátía árn
THEÓDÓRA THORODDSEN gaf nýju bladi nafn Þjóðviljans,
blaðs Skúla Thoroddsens, sem stofnað var fyrir réttum 80 árum, 1886.
Framhald 'a£ 7. síðu.
ur í atvinnumálum okkar á
síðasta aldarfjórðungi, um
þjóðartekj urnar, hversu háar
þær eru, um bílaeign okkar og
utanferðir, ókkar keypta sum-
arauka. Að sjálfsögðu er þetta
allt með miklum ágætum. En
á þessum sama aldarfjórðungi
höfum við einnig beðið stór-
ósigra, kannski þá mestu í
sögu íslancjs. Vér höfum misst
dýrmætan hluta af sjálfstæði
voru með ráðild að hernaðar-
bandalagi, . hleypt erlendum
her inn í íandið og leigt það
undir hers'töðvar. í kjölfar
þessarar herinnrásar: blóðhrá
fjðlmiðlunarmenning, sniðin við
hæfi og smekk amerískra sol-
dáta, og að síðustu eru allar
gáttir opnaðar innstreymi er-
lends auðmagns, sem á fáum
árum verður ofjarl okkar
vesölu borgarastéttar. í sáma
mund og við höfum verið að
afhenda útlendum aðilum
hluta af jlandi okkar og lands-
nytjum höfum við beðið tjón
á sálu1 okkar, misst okkar
gamla fátæka stolt, lotið að
erlendri ölmusu. Því miður
héfur átumeinið ekki aðeins
lágzt á örfáa einstaklinga. Það
glefur þegar um sig meðal
fjlöldans og breiðist út dag
hyem. Þjóðviljinn hefur kallað
þétta átumem „hemám hug-
ans“.
iUpphaf alls þessa var hinn
sgkleysislegi Keflavíkursamn-
iijgur 1946. Þjóðviljinn sagði
þáð þá þegar fyrir, að af hon-
ujn mundi leiða stærri tíðindi.
Hann varð sannspár þá sem
oftar. í meira en aldarfjórð-
uhg hefur ÞjóðVrljnn orðið að
hfelga meginefni blaðsins sjálf-
stæði lands og þjóðar. Um
langa stund mæltist Þjóðvilj-
inn einn við í þessu máli, sem
varðaði þó hvern einasta ís-
lending. En hin einmana bar-
átta blaðsins vakti þó áð lok-
um aðra af svefni og margir,
sem af flokkslegum ástæðum
vildu ekki láta bendla sig við
Þjóðvi’.jann, skipuðu sér til
baráttu gegn hættunni af her-
náminu. í sögu Þjóðviljans
mun ef til vill þeirra kafla
lengst . verða minnzt, sem
bundnir eru vörnum íslenzks
sjálfstæðis og íslenzkrar menn-
ingar. Lesendum Þjóðviljans
munu seint gleymast . hinar
skörpu og efnisríku ádeilu-
greinar, sem blaðið birti gegn
alúmínsamningnum. Að inn-
taki og formi eiga þær greinar
sér enga hliðstæðu í íslenzkri
blaðamennsku, hvorki fyrr eða
síðar.
Þótt Þjóðviljinn sé ekki ýkja
gamalt blað hefur ævi hans
verið viðburðarík og storma-
söm, enda sjálfur gustmikilL
Vort íslenzka stórblað, Morg-
unblaðið kallar Þjóðviljann
venjulega „sorpblaðið". Það
er furðulegt heiti á blaði,
sem að flestra dómi er
prúðmannlegast skrifað allra
íslenzkra dagblaða. í ann-
an stað, fer það ekki oft
með ósannindi, þótt finnast
kunni einstaka svartir blettir
á tungu þess. Nafngift Morg-
unblaðsins stafar af bældri
vanmáttugri reiði. Það er
raunar engin furða. Því svíður
undan vendi Þjóðviljans. Það
er ógaman að vera ritstjóri
Morgunblaðsins og eiga von á
kurteislegri hirtingu á hverj-
um morgnL Enda gengur sú
saga staflaust .í Reykjavík, að
helzta tilhlakk Morgunblaðs-
ritstjóranna sé sumarfrí Þjóð-
viljaritstjórans.
Það er sagt að við lifum á
dögum blaðadauðans. Erlendis
falla þau hvert af öðru eins
og lauf á haustdegi. Einkum
virðast sjálfstæð verkalýðsblöð
vera í mikilli lífshættu og sum
raunar þegar dauð. Ég hef
lúmskan grun um, að Þjóð-
viljinn hafi óftar en einu sinni
á þrjátíu ára ævi sinni staðið
andspænis dauðanum. En hann
lifir enn og megi hann lifa um
alla framtíð! Kreppukynslóð
íslenzkrar alþýðu ól hann og
kom honum til þroska. Það
yrði þá höfuðhneyksli, ef sú
kynslóð, sem hefur hærri „af-
notatekjur" en nokkur önnur
í sögu íslands léti hann verða
blaðadauða' nútímans að bráð.
Væri ekki nær að styrkja
hann svo að hann yrði 12 síður
á. hverjum degi? Væri ekki
nær að gleðja afmælisbarnið
okkar með slíku framlagi og
auka ánægju sjálfra okkar um
leið? Þjóðviljinn hefur í þrjá-
tíu ár skipað í íslenzkri þlaða-
mermsku þann sess, sem yrði
vandfylltur. Það yrði íslenzkri
stjórnmálabaráttu og íslenzkri
menningu illa bætanlegt tjón,
ef hann þyrfti að draga saman
seglin.
Um leið og ég lýk þessú
spjalli vil ég þakk.a Þjóðvilj-
anum fyrir óttalausa baráttu í
þjónustu hins góða málstaðar,
og persónulega fyrir samvist-
irnar á liðnum árum.
j. Vinnufatabúðin
\
1 Amerískar
■{< ■ :
i sport-
j blússur -
j allar
! stærðir
Vinnufatabúðin
Laugavegj 76.
Jarðarför mannsins míns
KRISTJÁNS EIRÍKSSONAR,
trésmiðs frá Siglufirði, '
sem andaðist laugardaginn 23. okt. sl. fer fram frá Foss-
vogskapellu þriðjudaginn 1. nóv. kl. 10,30 f.h. Athöfninni
verður útvarpað. . *
F.h. barna, tengdabarna. barnabarna og systkina
Sigrrún Sigurðardóttir.
Cgníineníal
SNJÓ-
HJÓLBARÐAR
með eða án nagla
undir bilinn
Gúmmí-
vinnustofan hf.
Skiphoiti 35, sfmi 31055
Smurt brauð
Snittur
við Óðinstorg.
Sími 20-4-90.
Opið alla virka daga frá
kl. 8-22 nema laugardaga
frá kL 8-16.
■ Unnið með full-
■ komnnm nýtízku
■ vélum.
Fljót og góð afgreið.sla.
HJÓLBARÐA-
VIÐGERÐIN
Reykjaviknrvegi 56,
Hafnarfirði, sími 51963.
Hófadynur
Bókin, sem béðið er
eftir, verður mánuði
síðbúnari en áætlað
var.
LITBRÁ h.f.
Saumavélaviðgrerðir
Ljósmyndavéla-
viðgerðir
- FLJÓT AFGREIÐSLA -
SYLGJA
Laufásvegi 19 (bakhús)
Sími 12656.
BRAUÐHUSIÐ
SNACK BAR
Laugavegi H6
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUR
•*
Sími: 24631
TRIUMPH
undirfatnaður
í fjölbreyttu
úrvali.
ELFUR
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-10L
FRAMLEIÐUM
ÁKLÆÐI
á allar tegundir bfla
OTUR
Hringbraut 12L
Sími 10659.
BRl ÐGESTONE
HJÓLB ARÐAR
K)
Laugavegi 38.
Snorrabraut 38.
KRYDDRASPIÐ
FÆST i NJESÍU
Síaukin- sala
sannargæðin.
B:RI DGESTONE
veitir aukið
öryggi í akstri.
BRI DGESTONE
ávallt fyrirliggiandi.
GÓÐ bJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðtr
BÚÐ
Blaðdreifing
Blaðburðarböm óskast í
eftirtalin hverfi:
Framnesveg,
Vesturgötu
Tjarnargötu
Miðbæ
Laugaveg
Gerðin.
Þjúðvfljinn — Sími 17500
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Srmi 17-9-84
BlLA
LÖKK
Grunnur
Fyilir
Sparsl
Þynnir
Bón.
4 '
4