Þjóðviljinn - 02.11.1966, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJTNN — Miðvikudagur 2. nóvember 1966.
Gekk fjörutíu
þús. kílómetra
Alexei Polikarpof, sextíu
og sjö ára gamall Rússi, hef-
ur að líkindum gengið meir
en aðrir menn um ævina.
Hann var sex ár á spásser-
ingu um Sovétríkin og gekk
um fjörutíu búsund kílómetra
og sleit tuttugu pörum af
skóm meðan á þessu stóð.
Polikarpof hóf rölt sitt
þegar hann komst á ellilaun
og var þá heldur lélegur til
heilsu; nú er hann hinsvegar
hinn brattasti. Upphaflega
aetlaði hann að ganga svo sem
tíu þúsund km, en þegarhann
heyrði vorið 1961 um geim-
flug Gagarins ákvað hann að
fara sömu vegalengd á jOrtfu
niðri, eða sem svarar einum
hring umhverfis miðbaug.
Polikarpof kveðst hafa
gengið 132 miljónir skrefa *g
farið um hundnað og þrjá-
tíu stærri borgir og óteljancB
þorp. Að sjálfsögðu ætlw
hann að skrifa bók um ferð-
ir sínar.
Anglia minnist 25 ára af-
mæ/is sins i byrjun desmber
Fyrsti skemmtifundur á vetr-
ardagskrá Félagsins Anglia var
haldinn í Sigtúni hinn 7. okt.
sl- Var samkvæmt venju jafn-
framt um aðalfund að ræða.
Fráfarandi formaður Þor-
steinn Hannesson, gaf skýrslu
um störf stjómarinnar á liðnu
starfsáii og þakkaði meðstjóm-
endum og félagsmönnum á-
nægjulegt samstarf á formanns-
tímabili sínu. Þökkuðu fundar-
menn Þorsteini og fráfarandi
stjórn v’el unnin störf.
Við stjómarkjör var Brian
Holt, aðalræðismaður, einróma
kjörinn fopnaður- Er hér um
nokkur tímamót að ræðai í sögu
félagsins, þar sem Brian Holt
er fyrsti formaður „Anglia".
sem ekki er af íslenzkum upp-
runa. Aðrir í stjóm voru kjöm-
ir Már Elísson, ritari, Ralph
Hannan, gjaldkeri og þeir Har-
aldur Á- Sigurðsson, Donald
Brander, Guðni Guðmundsson,
Valgárð Ölafsson og Heimir
Áskelsson, meðstjómendur. For-
maður skemmtinefndar var
kosinn Leo Monroe.
Að loknum aðalfundarstörf-
um hófust skemmtiatriði. Ruth
Little Magnússon söng brezk
þjóðlög við afbragðs undirtekt-
ir áheyrenda- Oltfma og Karna-
bær sýndu nýjasta tízkuklæðn-
aðinn undir stjórn Colin Porter.
Auk þess voru getraunir, leik-
ir, þögglauppboð, happdrætti og
dams- Húsfyllir var og skemmtu
menn sér hið bezta. Nýkjörinn
formaður sleit hófinu, þakkaði
félagsmönnum sér auðsýnt
traust og minnti á 45 árá af-
mæli félagsins sem er 2. des.
n k. Undirbúningur að veglegu
afmælishófi er í fullum gangi.
(Frá Anglia).
Dýr-
(keyptar gjafir
Ruddaleg ummæli Morgun-
blaðsins um sænsku skáld-
konuna Söru Lidman eru ekki
aðeins til marks um kunn-
áttuleysi í mannasiðum; ráða-
menn blaðsins vita fullvel af
reynslúnni að býsna margir
glúpna jafnan fyrir ofstæk-
inu. Sú vitneskja hefur rétt
einu sinni ásannazt, eftir að
vararektor Háskóla íslands.
Halldór Halldórsson prófess-
or. hefur bannað Stúdentafé-
lagi Háskólans að bjóða Söru
Lidman til fundar í húsakynn-
um skólans. Sá atburður er
margfalt , alvarlegri en þótt
einhver blaðamaður Morgun-
blaðsins flíki andlegum óþrif-
um sfnum á almannafæri.
Á það hefur áður verið
bent hér í biaðinu að ráða-
menn háskólans hafa marg-
sinnis misnotað aðstöðu sína
með því að ljá húsakynni
æðstu menntastofnunar lands-
manna, sameignar allrar þjóð-
arinnar, undir áróðursfundi
og ráðstéfnuf í þágu Atlanz-
hafsbandalagsins. En þá tekur
fyrst í hnúkana ef fylgja á
eftir slíkri misnotkun í þágu
afla utan skólans með því að
takmarka fundafrelsi háskóla-
stúdenta sjálfra, ef háskóla-
rektor og háskólaráð ætla að
fara að hlutast til um það
hvaða málefni stúdentar megi
ræða óg hvernig þeir megi
ræða þau. Slík takmörkun
væri óhugsandi í nokkru ná-
grannalandi okkar. Einmitt
atburðirnir í Víetnam hafa
orðið stúdentum austan hafs
og vestan mjög hugstæðir;
stúdentar hafa hvarvetna haft
verulega forustu í opinberum
umræðum um þau mál; þessi
hefur ekki sízt orðið raunin
í bandarískum háskólum þar
■ Um síðustu helgi voru liðin 10 ár síðan körfu-
knattleiksdeild KR var stofnuð. Má því segja að
raunverulega verði um afmælisleik að ræða, þeg-
ar KR-ingar mæta Evrópumeisturunum Simm-
enthal frá Ítalíu í fyrri leik Evrópubikarkeppn-
ar hér í Laugardalshöllinni eftir tæpar þrjár vik-
ur, föstudaginn 18. nóvember nk.
Evrópumeistararnir Simmen-
thal leika við KR 18. þ.m:
Stofnfundur ..körfuknattleiks-
deildar KR Tar haldinn 30.
okt. 1956 og voru stofnendur 15
áhugasamir piltar. Á fundi
næsta dag var samþykkt að
hefja æfingar fyrir kvenfólk
en mikill áhugi var þá hjá
kveníólki á körfuknattleik.
Þetta reyndist mjög happa-
ar kvennaflokkar eru starfandi
hjá deildinni.
Sigrar og töp
Fyrsta opinbera mótið, sem
KR tekur þátt í, er 5. íslands-
mótið 1956, en það mót var
endurtekið í des. vegna kæru
honum tók Helgi Sigurðss., er
þjálfaði ýmsa flokka til 1962.
Árið 1960 tekur við þjálfun
eldri flokka Þórir Arinbjarn-
arson. Á eftir Þóri kemur
Ólafur Thorlacius og þjálfaði
hann Mfl., 1. og 2. fl. karla
frá ísl.-móti 1962 til Rvíkur-
móts 1963. Um vorið 1964
KÖRFUKNATTLEIKSLIÐ KR: Frenrri röð frá vinstri: Brynjóifur Maríusson, Ami Ragnarss., Krist-
ján Ragnarsson/ Helgi Agústsson, Þorvaldur Blöndal. Aftari röð: Gunnar Gunnarsson, þjálfari, öm
Jóhannsson, Stefán Haiigrímsson, Agúst Svafarsson, Skúli Isleifsson John Fenger.
drjúgt spor, því að auk þess’
að færa deildinni fyrsta sigur
■ kappmóti, þ.e. II. fl. kvenna
í íslandsmeistaramótinu 1960,
b'. hefur það og sýnt sig, að
aldrei er félagslífið betra og
einingin meiri en einmitt þeg-
sem stúdentar og prófessorar
hafa haldið fleiri og stærri
fundi um Vietnam. í skólum
sínum en um nokkurt mál
annað. Þess hefur ekki heyrzt
getið að ráðamenn háskóla
vestanhafs hafi reynt að tak-
marka þvílík fundahöld með
valdboði; þeir bera meiri
virðingu fyrir menntastofnun-
um sínum en svo að þeir
sláist í félagsskap með ótínd-
um ritsóðum.
Afstaða vararektors háskól-
ans hlýtur þó að vera til
marks um einhverskonar
hræðslugæði gagnvart Banda-
ríkjunum. Þakkarávörp ráða-
manna háskólans vegna
bandarísks gjafafjár hafa ver-
ið svo undirdánug að vakið
hefur furðu; einusinni tíund-
aði rektor meira að segja á
þáskólahátíð að stofnunin
hefði fengið að gjöf frá
bandaríska sendiherranum eitt
eintak af bók sem fékkst í
öllum bókaverzlunum og
kostaði nokkur hundruð
króna. Víst er gott að fá
gjafir, en við erum það vel
efnum búnir að við þurfum
ekki að lúta að öðru en jafn-
virðisviðskiptum á því sviði.
Og þá eru gjafir dýrkeyptar
ef fyrir þær á að fórna frelsi
stúdenta til urriræðna og ó-
háðrar leitar að staðreyndum.
— Austri.
og hafnaði Mfl. KR í 6. og
neðsta sæti. í 5 leikjum skor-
aði liðið 91 stig, en fékk á sig
163. Mfl. karla tekur þátt í
ísl.-móti 1957, 1958 og Rvíkur-^.
móti 1957. Allstaðar hafnar
hann í neðsta sæti. Leggst hann
þar með niður, og er ekkert
keppt í þessum flokki þar til í
ísl.-móti 1962. - 2.fl. karla hef-
ur tekið þátt í öllum mótum
frá ísl. móti 1959 og 3. fl.
karla frá Rvíkur móti 1959, en
það er sá flokkur sem flesta
sigra hefur fært deildinni. 4.
fl. karla hefur deildin átt frá
því keppni var tekin upp í
þeim flokki eða ísl. móti 1959,
að undanteknu Rvíkur móti
1960.
Meistaraflokk kvenna átti
deildin frá 1957 til 1960, þá
frá 1962—1963 og síðan til
dagsins í dag. 2. fl. kvenna
hefur ætíð fylgt í kjölfar
meistaraflokks kvenna.
Fyrsta stjórn deildarinnar
var þannig skipuð: Pétur
Rögnvaldsson form., Sigurður
P. Gíslason varaform., Her-
mann Hallgrímsson gjaldkeri,
Helgi Sigurðsson ritari.
Formenn hafa verið:
1956— ’57: Pétur Rögnvaldsson.
1957— ’58: Sigurður P. Gíslas.
1958— ’59: Gunnhildur Snorrad.
1959— ’64: Helgi Sigurðsson.
1964— ’65: Halldór Sigurðsson.
1965— ’66: Þráinn Scheving.
Margir þjálfarar
Að þjálfaramálum hafa eins
og gefur að skilja margir unn-
ið. Ber þar fyrstan að nefna
Benedikt Jakobsson og er það
skemmtileg tilviljun að hann
skuli nú, 10 árum síðar, sjá
um þjálfarastörf hjá deildinni
fyrir Evrópukeppnina. Við af
komu til deildárinnar fyrir at-
beina Boga Þorsteinssonar
form. KKÍ bandarískur þjálf-
4&ri af Keflavíkurflugvelli
Th. Robinson. Þjátfaði hann
Mfl. og 1. ,fl. þar til í marz
19«5 þá tók við Phil Benáing
radartæknifr. einnig af Kefla-
víkurflugvelli. Var hann hjá
deildinni til desember 1965. í
jan. ’66 kom Thomas Curren
til deildarinnar, og hefur hann
nú nýlega hætt störfum. Þess-
um 3 þjálfurum á deildin að
þakka velgengni Mfl. síðustu
3 árin fyrst og fremst, að öðr-
um undangengnum þjálfurum
ólö*uðum. Auk þessara þjálf-
ara hafa svo eldri meðlimir
éBfldarinnar, s.s. Jón Otti Ól-
afsson, tekíð að sér þjálfun
yngri flokka.
Evrópukeppnin
Nú í byrjun 10. starfsársins
sigraði KR í fyrsta sinni í bik-
arkeppni KKÍ en keppt er úm
fagran bikar gefinn af Sam-
vinnutryggingum.
í annað sinn tekur deildin
þátt í Evrópubikarkeppni
meistaraliða í körfuknattleík,
og koma hingað til la dsips. í
‘ næsta mánuði evrópumeistár-
arnir Simmenthal frá Ítalíu.
Er ráðgert að fyrri leikur
liðanna fari fram í íþróttahöll-
inni í Laugardal föstudagihn
18. nóvember, sem fyrr var
sagt, en siðari leikur í Milano
miðvikudaginn 23. nóvem-
ber n.k.
Á undan leiknum þann 18.
nóvember er ráKgerður leikur
milli tveggja gagnfræðaskóla í
Reykjavík.
Ráðgert er að deildin sendi
í komandi Reykjavíkurmót lið
frá öllum flokkum og sýnir
það hve mikil gróska er ríkj-
andi hjá deildinni.
Neytendasamtökin hefja
könnun á vörum og þjónustu
Neytendasamtökin . eru nú að
hefja víðtæka könnun varðandi
reynslu neytenda af ýmsum
varanlegum neyzluvörum og þá
sérstaklega af þeirri þjónustu,
sem veitt er í sambandi við
þær. Mun því fyrsta könnun
Neytendasamtakanna af þessu
tagi verða kölluð þjónustukönn-
un, enda þótt spurt verði um
ma<rgt fleira varðandi þau
tæki, sem rétt héfur þótt að
taka fyrst til athugunar. En
þau eru: sjálfvirkar þvottavél-
ar, ísskápar, ryksugur og sjón-
varpstæki.
Neytendasamtökunum er bezt
kunnugt um það, hversu slæleg
þjónusta er veitt oft á tíðum
varðandi jafndýr og mikilvaég
tæki fyrir heimilin. Hefur ver-
ið leitað til þeirra í þúsundurp
tilfella, frá því er þau opnuðu
skrifstofu sína fyrir 13 árum,
en með aukinni tækjaeign
landsmanna hefur umkvörtun-
um vegna lélegrar eða jafnvel
engrar þjónustu, sérstaklega
vegna viðgerða farið ört fjölg-
andi- Telur stjóm Neytendasam-
takanna brýna nauðsyn á því
að mál þessi verði tekin til
meðferðar á breiðum grund-
velli og reynt að ráða bót á á-
standi, sem að ýmsu leyti má
telja til ófremdar. Sá er og
megintilgangur þessarar könn-
unar.
Eyðublöð til útfyllingar verða
send til 5-6000 manns af öllum
stéttum um land allt- Þarnn hóp
mynda félagsmenn Neytenda-
samtakanna og verður eyðu-
blaðið í Neytendablaðinu sem
kemur út 5. nóvember. Verður
það sent öllum þeim, sem eru
félagsmenn miðað við þann
dag. Neytendasamtökin eru öll-
um opin, t)g þeir sem innritast
fyrir 5. nóv. n.k- munu fá könn-
unarblaðið ásamt ýmsum fleiri
ritum.
Helztu spumingarnar,
sem ber að svara,
Helztu spumingarnar skulu
birtar hér, svo að fólk geti
þegar ftarið að velta þeim fyr-
ir sér, enda verður aðeins vika
gefin til að svara þeimogsenda
eyðublaðið til baka- Þær eru
þessar: Tegund tækis — Ein-
kennisstafir eða árgerð (model)
— Framleiðslunúmer — Hvar
keypt? — Hvenær? — Verð —
Reynsla (ágæt — góð — sæmi-
leg — léleg) — Hafa bilanir
orðið og hve oft? — Viðgerðar-
kostnaður — Revnsla af við-
gerðarþjónustu (t.d. skjót eða
sein viðbrögð seljanda, efndir
Framhald á .7. s:'3u.
t
V