Þjóðviljinn - 08.11.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 8. nóvember 1966.
Nokkrir fulltrúa á þingi Sambands by ggángamanna.
(Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Þing Sambands bygginga-
manna haldið um helgina
Benedikt Davíðsson var kjörinn formaður sambandsins
Eins og frá var skýrt í Þjóðviljanum á sunnudaginn hélt
Samband byggingamanna þing sitt hér í Reykjavík um
helgina. Þingið samþykkti ályktanir um kjaramál, iðn-
fræðslu- og byggingamál og um skipulagsmál og næstu
verkefni samtakanna og verður þeirra getið nánar hér í
blaðinu síðar. Fráfarandi formaður sambandsins, Bolli A.
Óiafsson, húsgagnasm’iður baðst eindregið undan endurkjöri
og var Benedikt Davíðsson trésmiður kjörinn formaður
sambandsins naesta kjörtímabil.
formanns voru 'eftir-
taldir menn kjörnir í fram-
kvæmdastjóm i sambandsins:
Varafórmaður. Kristján Guð-
laugsson málari, ritari Bolli A..
Ólafsson húsgagnasmiður, vara-
ritari Jón Snorri Þorleifsson
trésmiður og gjaldkeri Þcrsteinn
Þórðarson bólstrari.
I sambandSstjóm auk fram-
kvæmdanefndar vom kjömir
Ólafur E. Guðmundsson hús-
gagnasmiður, Magnús
sen málari, Sigurjón Pétursson
trésm,. Leifur Jónsson bólstr-
ari, Sigurður . Ingimundarson
húsgagnasmiður og Snær Karls-
son trésmiður. <í>
Varamenn í framkvæmda-
stjórn vom kjömir: Guð-
mundur Helgason trésmiður,
Láms Bjamfreðsson málari,
Rúnar Ágústsson málari, Eyj-
ólfur Axelsson húsgagnasmiður
og Jóhann Elíassan bólstrari.
Varamenn í sambandsstjóm
vom kosnir: Páll R. Magnús-
son trésmiður, Símon Konráðs-
son málari, Ottó Malmberg
húsgagnasmiður, Erlendur Guð-
mundsson trésmiður, Halldór
Ólafsson bólstrari og Kristján
G. Jónasson trésmiður. Endur-
skoðendur vóm kjömir Ásberg
Pálsson og Finnbogi Haukur
Sigurjónsson.
Eitt nýtt félag var tekiðinn
í sambandið á þinginu: Bygg-
ingamannafélagið Árvakur á
Húsavík og era' sambandsfé-
lögin þá orðin 6 að tölu.
lækkaríkr. 120
I gær barst Þjóðviljanum
svohljóðandi fréttatilkynning
frá Verðlagsráði sjávarútvegs-
Á fundi yfíméfndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins, þann 5. þ-
m. var ákveðið, að lágmarks-
verð á síld ; í bræðslu veiddri
norðan og austanlands skuli
vera óbreytt, þ-e.- kr. 1,37 hvert
kg. frá 6- til 15. nóvember að
báðum dögum meðtöldum.
Á tímabilinu 16. nóvember ti)
31. desember skal lágmarks-
verðið vera kr- 1,20 hvert kg.
Verðákvörðunin var gerð með
atkvæðum oddamanns og full-
't'rúa síldarkaupenda gegn at-
kvæðum fulltrúa sfídarseljenda
í nefndinni-
f yfirnefndinni áttu sæti.:
Jónss H. Haralz, forstjóri
Efnahagsstofnunarinnar, sem
var oddamaðúr nefndarinnar,
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri, Siglufírði og Vésteinn
Guðmundsson, framkvæmdastj.,
Hjalteyri, fulltrúar síldairkaup-
enda og Guðmundur Jömnds-
son framkvæmdastj., Reykjavík
og Tryggvi Helgason, formaður
Sjómannafélags Akureyrar, fu}l-
trúar síldarseljenda í nefndinni.
Samkomulag hafði orðið um
bað í Verðlagsráðinu, að heim-
ild til þess að gréiða 22 aur-
um lægra verð fyrir hvert kg.
síldar í flutningaskip skuli gilda
áfram og að flutningasjóður
sfídveiðiskipa skuli starfa á-
fram eftir sömu reglum og gilt
hafa síðan 1. október.
Þá varð einnig samkomulag í
Verðlagsráðinu um að fram-
lengja gildandi lágmarksverð á
síld til söltunar norðan- og
austanlands til áramóta.
Eindregið fylgi
• Á fundi neðri deildar Alþing-
is í gær kom til fyrstu um-
ræðu fmmvarp þeirra Einars
Olgeirssonar og Geirs Gunn-
arssonar um aðstoð ríkisinsvið
rekstur og byggingu almennra
bamaheimila og um fóstru-
skóla. I framsöguræðu sinni
benti Einar m.a. á að fjalmenn
samtök kvenna hefðu lýst ein-
dregnu fylgi • sínu við frum-
varpið, m.a. Kvenréttindafélag
íslands, Bandalag kvehna í R-
vík og Menningar- og friðar-
samtök íslenzkra kvenna. —
Frumvarpinu var að umræð-
unni lokinni vísað til 2. um-
ræðu og nefndar.
í efri deild urðu nokkrar
umræður um framvarpið um
almannavamir og Gils Guð-
mundsson mælti fyrir fmm-
varpi* sínu um listamannalaun
og Listasjóð.
Leiðrétting
Hægt hefði verið að skilja á
Þjóðviljanum á sunnudaginn, að
Vatnsendabúið hefði bmnnið til
grunna. Þetta er ekki rétt.
Hið rétta er að það brann í-
búðarhús á Vatnsendahæð og
kemur búinu sem slíku ekkert
við eins og raunar kom fram í
fréttinnisjálfri
PASSlUSÁLMARNIR
1666-1966
Á þessu ári eru liðnar réttar þrjár aldir síðan Passíu-
sálmar sr. Hallgríms Péturssonar voru prentaðir fyrsta
sinni — á Hólum 1666. f tilefni þessa efnlr Landsbóka-
safn íslands til sýningar I lestrarsal safnsins. Meðal þess,
sem þar er sýnt, er eiginhandarrit sr. Hallgríms að
sálmunum, það er hann sendi Ragnheiði Brynjólfsdóttur
í Skálholt 1661. Handritið er meðal mestu kjörgripa Lánds-
bókasafns. Þá er komið fyrir í sýningarborðum nokkrum
Passíusáimahandritum frá 17du,- 18du og 19du öid, sumum
listavel skrifuðum og skreyttum. — Hér getur að líta fyrstu
prentuðu sálmana og allar útgáfur þeirra fram á 19du öld
og hinar merkustu yngri útgáfur, ennfremur þýðinjjar
sálmanna, m.a. á kínversku. — Loks er dregið fram nokk-
urt sýnishorn þess, sem ritað hefur verið um Passíusálmana
sérstaklega.
Sýningin í lestrarsal Landsbókasafns stendur til næstu
helgar. Saiurinn er opinn kl. 10—12, 13—19 og 20—22
hvern virkan dag. t
(T?r'ó T .onrlcKnlrQC'vfní Tc*l onrlc'^
Harður árekstur
Ur ungu Passíusálmahandriti. Handritið er skrifað
1883. — Lbs. 2034, 8vo.
Mjög harður árekstur varð á
mótum Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar klukkan rúmlega
þrjú á sunnudag milli vömbif-
reiðar sem var á leið norður
yfir gatnamótin með fólksbíl í
drætti og fólksbifreiðar á leið
upp Miklubrautina. Kastaðist
síðarnefnda bifreiðin upp á
eyju á miðri götunni og þar á
umferðarmerki. Hlutu ökumenn
beggja bifreiðanna áverka og
vom fluttir á SlysayarðÁofuna,
annar slasaður talsvert á höfði.
Báðir bílamir em talsvert mik-
ið skemmdir, sá þriðji, sem var
í drætti, laskaðist ekki.
Sökktu re'ðhjél-
um í Tjörnina
Aðfaraótt sunnudagsins var
kært til lögreglunnar undan
mönnum sem vom með ærsl og
ólæti í miðbænum- Tóku þeir m.
a. reiðhjól og hentu í Tjörnina
og hvolfdu úr ö.skutunnum- Lög-
reglan náði í einn piltanna og
setti inn, hinir hlupu. 1
Kært fyrir árás
Aðfaranótt sunnudagsins var
hringt til lögreglunnar út af há-
vaðasömum erjum sem þrir menn
áttu í á Nóatúni á móts við verzl-
unina Búslóð og kærði einn
þeirra hina fyrir líkamsárás.
Lögreglan hirti mennina sem
voru drukknir og geymdi í Síðu-
múla það sem eftir var nætur,
en sá sem þóttist hafa orðið
fyrir árásinni hefur ekki ^ gefið
sig fram síðan til að gefa rann-
sóknarlögreglunni skýrslu um
málið'
Þjéfurinn féstisf
Rétt eftir klukkan eitt aðfara-
nótt sunnudagsins reyndi maður
að brjótast inn um kjallaraglugga
hjá Herrafatabúðinni á Lauga-
vegi 27. Þama em jámrimlar
fyrir gluggum og nokkuð bröngt
og kom eigandi verzlunarinnar
að manninum þar sem hann
stóð fastur í glugganum, komst
hvörki út né inn og vom fæt-
umir úti, en höfuðið inni. Lög-
reglunni tókst að losa manninn
og tók hann síðan í geymslu.
Tillaga þingmanna Alþýðubandalagsins:
Hraðai v _
íslenzka
■ Fjórir þingmenn Alþýðubandalagsins lögðu í
gær fram tillögu til þingsályktunar um að hrað-
að verði framkvæmdum við uppbyggingu ís-
lenzks sjónvarpskerfis.
Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjómina að hlutast til um
að gerðar verði nýjar fram-
kvæmdaáætlanir um uppbygg-
ingu íslenzks sjónvarpskerfis,
er miði að því að sjónvarpið
nái til alls þorra landsmanna
eigi síðar en á árinu 1968 og
að eigi síðar en á árinu 1969
• verði að fullu lokið þeim
framkvæmdum, sem sjónvarps-
nefnd gerði ráð fyrir að lokið
yrði á 5—7 ámm. Jafnframt
—-------------------------
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS
Á fimmtudag verður dregið í 11. flókki. — 2.500 vinningar að fjárhæð 7.500 krónur
Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja.
Siappdrætti Háskóla Íslands
2 á 500.000 kr. 1.000.000 kr
2 á 100.000 kr. 200.000 kr
160 á 10.000 kr.
332 á 5.000 kr.
2.000 á 1.500 kr.
Aukavinningar:
4 á 10.000 kr.
2.500
1.600.000 kr
1.660.000 kr.
3.000.000 kr.
40.000 kr.
7.500.000 kr.
hlutist ríkisstjórnin til um, að
Ríkisútvarpinu verði gert.fjáí-
hagslega kleift að byggja upp
sjónvarpskerfið á hinum til-
skilda tíma“.
Flutningsmenn, þeir Björn
Jónsson, Lúðvík Jósepssón,
Hannibal Valdimarsson og
Ragnar Arnalds, segja í grein-
argerð fyrir þingsájyktunartil-
lögunni m.a. að því verði ekki
með nokkm móti .unað af •-
búum dreifbýlissvæða landsins,
að langvarandi mispunur eigi
sér stað, þegar um . er að ræða
svo mikilvæga starfsemi sém
rekstur sjónvarps hlýtur að
verða í mörgu tilliti. Enn síð-
ur verði slíkri mismunun eftir
búsetu unað, þegar haft er í
huga, að þeir sem nú njóta
sjónvarpsins fyrstir Og einir,
eiga mun fleiri og betri kosta
1 völ í menningarlegum efnum
og að því er snentir aðstöðu
til skemmtanalífs en hinir,.sem
ætlað er að bíða, 'rjafnvel ár-
um saman, eftir jáfnrétti við
íbúa þéttbýlissvæðanna á þessu
sviði.