Þjóðviljinn - 08.11.1966, Blaðsíða 6
g SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 8. nóvember 1966.
Rætt við fulltrúa á 15. flokksþs
□ Þjóðviljinn notaði tækifærið um síðustu helgi
meðan 15. þing Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins stóð yfir hér í Reykjavík
til að ræða við nokkra þingfulltrúa utan af
landi.
□ Viðtöl við sex fulltrúa birtast hér á síðunni.
Dauft tónlistarlíf á Akureyri
— Ekki veit ég hvað það ætti
að vera, segir Soffía Guð-
mundsdóttir, ein af þrem full-
trúum fr' Akureyri, þegar við
innum hana frétta að norðan.
— Það er þá helzt þessi
glæsilegi fundur sem Akureyr-
ardeild MFÍK hélt með Söru
Lidman að Bjargi um fyrri
helgi. Salurinn var fullskipað-
ur og hún fékk prýðilegar und-
irtektir, talaði um Vietnam,
sýndi kvikmynd þaðan og las
að lokum upp kvæði. Við töld-
um það afar mikinn ávinning
að fá hana norður.
— f>ú kennir við tónlistar-
skólann. Eru Akureyringar
miklir áhugamenn um tónlist?
— Það er mikil aðsókn að
tónlistarskólanum, en ef ég á
að segja eins og er, þá finnst
mér tónlistarlífið heldur dauft.
Við höfum að vísu tónlistarfé-
lag sem heldur fjóra tónleika
á ári, en það ætti að vera hægt
að halda miklu lleiri tónleika
og fá fleiri listamenn til að
koma norður með þeim góðu
samgöngum sem við eigum við
að búa
í bænum eru annars starf-
• andi karlakórar og mikill áhugi
hjá lúðrasveitinni um þessar
mundir, þeir hafa ráðið sér
tékkneskan stjórnanda og
gafnað styrktarfélögum og
hyggja á tónleikahald. Tónlist-
arskólinn er að fá nýtt hús-
næði, flytur þangað sem Amts-
Höfnin dýpkuð og stækkuð
Þá spurðum við frétta Sig-
urð Geirsson, trésmið frá Höfn
í Homafirði.
— Það er nóg að gera i
Höfn. Fjórir bátar eru á síld-
veiðum og aðrir fjórir hafa
stundað humarveiðar. Auk þess
var einn bátur á trolli ogsigidi
hann með aflann til Englands.
Aðalatvinnan er því nýting
aflans, aðallega humarsins.
Talsvert er einnig um bygg-
ingar og eru 9 eða 10 íbúðar-
hús í smíðum. Fyrir mánuði
siðan var tekin i notkun fyrsta
álma nýs hótels í þorpinu. Ætl-
unin er að ljúka við hótelið é
næsta ári og verða þar 30
herbergi. Það sakar ekki að geta
þess að nafn hótelsins er Hótel
Höfn.
1 sumar var hafizt handa um
að stækka höfnina og dýpka
og er fyrri áfanga þeirra fram-
kvæmda nú lokið. Og ekki má
gleyma guðshúsinu, nýiega var
vígð 200 ferm. kirkja ,í Höfn,
áður þurftum við að fara inn
í Nesjahrepp ef við ætluðum i
kirkju.
Samgöngumar eru sæmilega
góðar, búið er að brúa flestar
árnar. I sumar var byrjað á
brú yfir Jökulsá á Breiða-
merkursandi og verður hún
fullgerð næsta sumar. Þar með
er kominn bílvegur í öræfin.
Við höfum ágæta aðstöðu fyr-
Afkrnna með lukaru móti
Björgvin Salómonsson skóla-
stjóri að Ketilsstöðum í Dyr-
hólahreppi talar eins og sveita-
mannj sæmir og byrjar á að
segja frá tíðarfari og skepnu-
höldum.
— Síðasta mánuð hefur verið
einmunatíð, en vorið kom seint
og fé er því allt þó nokkuð
rýrara en í fyrra. Bændur háfa
orðið að skera niður með meira
móti vegna hinna miklu hey-
skaða sem þeir urðu fyrir í
rokinu í sumar og er þvi
þeirra afkoma með lakara móti
nú, þegar árferðið bsetist ofaná
stjómarfarið.
— Nú er hætt við að inn-
heimta mjólkurskattinn.
— Já, þeir þorðu ekki ann-
að vegna almennrar óánægju
og mótmæla bænda, — nú og
svo eru líka kosningar fram-
undan!
— Fækkar fólki í sveitinni?
— Jú, heldur hefur sigið á ó-
gæfuhlið í þeim efnum. Margar
jarðir hafa lagzt i yði og á-
búendum fækkað í Mýrdaln-
um í heild. í Vík hefur heldur
fjölgað. En þarna var þéttbýlt
og þröngt og það eru litlu jarð-
irnar sem ekki hafa byggzt
þegar eldri ábúendur hafa
hætt. Það er ákaflega erfitt
fyrir ungt fólk að taka við ef
það á að koma upp bústofni og
öllu öðru af eigin rammleik og
getur ekki tekið við af foreldr-
unum.
— Fær það ekki þennan svo-
kallaða nýbýlastyrk?
— Jú, en það er eins og
dropi í hafið miðað við allt það
sem þarf til, að koma upp
þannig búi að hægt sé að lifa
á þvi.
Flestir vinnu hjá MF og
Björgvin Salómonsson
— Hvernig gengur nýja
skólabyggingin?
— íbúð skólastjóra er nú til-
búin að heita má og skólinn
sjálfur að verða tilbúinn undir
tréverk. Þetta verður mikill
munur fró því sem er, við er-
um nú i gömlu skólahúsi, sem
reist var um síðustu aldamót
og hefur að vísu verið lagfært,
en er orðið algerlega úrelt og
öll aðstaða er ófullnægjandi.
Þetta er helmangönguskóli,
nemendur alls 34 og er þeim
ekið daglega í og úr skólanum.
Skólinn er fyrir Mýrdalinn ut-
an Víkur; þar er annar skóli.
Tvísýnt um sjávurátveginn
Soffía Guðmundsdóttir
bókasafnið er núna, en bóka-
safnsbygging er í smíðum. Með-
an verið er að ljúka þeirri
byggingu, verðum við í sam-
býli, bókasafnið á efri og-tón-
listarskólinn á neðri hæð. Ég
býst við að þeir bókasafns-
menn séu þegar famir að kvíða
hávaðanum.
Siguröur Geirsson
ir félagsstarfsemi, eigum til-
tölulega nýtt félagsheimili;
Sindrabæ þar sem haldnareru
kvikmyndasýningar, dansleikir
og sýningar ieikfélagsins, en
það sýnir yfirleitt 1—2 leikrit
á hverjum vetri.
Karl Sigurbergsson sjómaður
í Keflavík hefur þetta aðsegja;
— Sjósókn er mjðg iítil i
Keflavík eins og er. í sumar
voru allir smærri bátar á drag-
nót, og trolli, en afli var ákaf-
lega misjafn. Stærri bátamir
ern allir á síld og þe’m hefur
gengið upp og ofan eins og
gengur. 1 heild má segja að
það sé ákaflega lítil framtíð
í sjávarútvegi þar eins og ann-
arsstaðar að óbreyttum aðstæð-
um.
Frystihúsin hafa flestöll ver-
ið í gangi í sumar vegna drag-
nótaaflans, en þó eru þessdaémi
að fiski sé ekið alia leið frá
Ölafsvík til Keflavíkur til
vinnslu. tJt frá þessu hiýtur
svo að vakna sú spuming,
hvort ekki sé eitthvað bogið
við það verð, sem sjómennim-
ir fá fyrir aflann, fyrst svona
vinnubrögð borga sig. Einnig
má geta þess að sárasjaidgæft
er að borgað sé rétt verð fyr-
ir aflann á þessum veiðum.
Fisksalar í Reykjavík keppast
um að yfirborga. Á línuveið-
unum er heldur ekki farið eft-
ir venjulegum hlutaskiptum,
heldur fá landmenn vissaupp-
hæð fyrir hvert beitt bjóð og
sjómenn visst fyrir róðurinn.
Nú hefur því heyrzt fleygt að
stöðva eigi síldveiðamar fyrir
austan. Þá verður vandséð
hvað stóru bátamir eiga til
brágðs að taka.
Sjómenn l Keflavík líta með
ugg til framtíðarinnar, einkum
með tilliti til þess. að nú eru
uppi háværar raddir um að
hleypa togurunum inn í land-
helgina. Auðvitað verður að
gera eitthvað íjrrir togaraút-
gerðina, en rýmkun landhelg-
innar fyrir þá er síður en svo
nokkur framtíðarlausn, auk þess
sem hún eykur á vanda smá-
bátaútgerðarinnar.
Ástandið er ekki gott í at-
vinnumálunum eins og er. Að
vísu er talsvert um byggingar,
en í þeim er ofþennsla að því
leytinu til, að byggðin hefur
þanist út um holt og grundir
miklu meira en þörf hefði ver-
ið á, ef hófs hefði verið gætt
í framkvæmdum. Segja má að
ekkert sé byggt nema lúxus-
villur. Þetta eykur að sjálf-
sögðu á allan vanda og kostn-
að við gatnagerð, holræsa og
Karl Sigurbcrgsson
vatnslagnir og allt það. Eittaí
því brýnasta, sem þarf að gera
er að sveitarfélögin á Suður-
nesjum komi sér saman um
samræmdar aðgerðir f þessum'
málum til hagræðis fyrir alla
aðila.
Það er alltaf verið að dútla
eitthvað smávegis við lands-
höfnina í Njarðvíkum, en minna
gert fyrir Keflavíkurhöfn. Hún
er nú orðin alltof lítil. Aðvisu'®'
er hún sæmileg fyrir smábát-
ana, en slæm fyrir þá stærri.
Þar að auki er þetta útflutn-
ingshöfn fyrir öll byggðarlög
þar syrða.
Þá erfalltof þröngt í öllurh
skólum, en verið er að byggja
við barnaskólann. Annars er
það svo að í byggðarlagi, sem
vex eins ört og Keflavík, kall-
ar margt að í einu og ekki er
hægt að sinna hverju verkefni
fyrir sig eins og vert væri.
f sambandi við það sem ég
sagði um samvinnu sveitarfé-
laganna hér að framan, má
geta þess að í Keflavík er eini
gagnfræðaskólinn á öllu þessu
svæði og er notaður af hinum
kauptúnunum eftir þvi sem
hægt er og sama er að segja
um sjúkrahúsið.
Þegar leitað var til Þór-
mundar Guðmundssonar þing-
fulltrúa frá Selfossi sagðist
hann vera lokaður inni á bíla-
verkstæði alla daga og auk
þess væri Selfoss eini staðurinn
á landinu þar sem ekkert gerð-
ist, en þó hafði hann þetta að
segja þegar spumingar voru
lagðar fyrir hann:
— Það eru litlar sveiflur (
atvinnulífinu á staðnum, lang-
flestir vinna við Mjólkurbú
Flóamanna og Kaupfélag Ár-
nesinga.
Einnig vinna margir í bygg-
ingavinnu; 30—40 fbúarhús eru
í smíðum á Selfossi. Bærinn
þenst ört út og útheimtir það
þenslu á hreppsvinnunni t. d.
gatnagerð- 1 sumar var mai-
bikaður kafli af Austurvegi,
sem liggur í gegnum bæinn og
einnig hluti af Eyrarvegi, en
hann liggur niður að Eyrar-
bakka.
Hingað til hefur aðeins verið
bamaskóli á Selfossi en nú er
verið að byggja stóran gagn-
fræðasskóla og er hann orðinn
fokheldur. Hinsvegar gengur
hægt með sjúkrahúsmálin.
Sjúkrahúsið er ófullnægjandi og
er hugmyndin að byggja fjórð-
ungssjúkrahús en framkvæmd-
ir eru ekki hafnar enn.
Þeð verðirr að teljast frekar
dauft yfir félagslífinu. Ung-
Þórmundur Guðmundsson
mennafélagið hef ur aðallega
starfað að íþróttum enda hef-
ur það tii umráða bæði gras-
völl og malarvöll og hefúr
Guðmundur Guðmundsson þjálf-
að þar margan efnilegan knatt-
spymumanninn.
Frekar litið er um atvinnu
Sveinbjörn Þórðarson frá
Ölafsvík er fulltrúi á flokks-
þingi Sósíalistaflokksins. Hóhn’
segir okkur fréttir úr sínu
byggðarlagi:
— Það aflaðist sæmilega (
dragnótina í sumar en lítið i
október. Átta bátar stunduðu
þessar veiðar. Trillubátamir
voru á handfæraveiðum ogvar
sæmilegur afli hjá þeim i vor,
en fór síðan minnkandi. 1 haust
er einn 14 tonna bátur á línu
og hefur fengið reytingsafla.
Dragnótabátarnir em að und-
irbúa sig á línuveiðar þessa
dagana.
Annars er frekar lítið um
atvinnu. 1 frystihúsinu hefur
ekki verið unnið nema dag-
vinna sl. mánuð. Nokkuð er
um íbúðabyggingar. 6 hús em
langt komin og verið er að
undirbúa gmnna að 2 eða 3
í, viðbót. Ennfremur er unnið
að hafnargerðinni. Kerin eru
steypt inni í Grundarfirði, en
verða síðan flutt út eftir. Þá
er verið að byggja ofan á
fiskverkunarstöð Hróa hf., sem
er eign Víglundar Jónssonar.
Um höfnina má segja aðhún
sé orðin viðunandi nema í
norðanátt. Skjólgarðurinn er
ekki orðinn nógu langur til
að skýla fyrir þeirri átt.
Félagslífið er í daufara lagi.
Oftast hefur verið einhverleik-
starfsemi á haustin, en núhef-
Svcinnbjöm Þórðarson
ur hún líka brugðizt, vegna
þess að formaður leikfélagsins
er á síldveiðum fyrir austan.
Samgöngur um héraðið em
góðar og í sumar var ýtt upp
í ^vókallaða Bervík, sem er
ein af útvíkum.
Styrkur til að rannsaka áhrif
fjölmiðlunartœk;a
í fyrra hlutu íslendingar tvo
styrki á vegum UNESCO, ann-
an til að láta skrá íslenzk hand-
rit í erlendum bókasöfnum og
hefur Jónas Kristjánsson skjala-
vörður unnið að skráningu ís-
lenzkra handrita í norskum
söfnum að undqnförnu en ætl-
unin er að skrá einnig handrit
í sænskum, brezkum og þýzk-
um söfnum a.m.k. Nam styrkur
þessi 4000 dollurum. Hinn styrk-
urinn var veittur til að þýða
og gefa út á íslcnzku upplýs-
ingarit um UNESCO.
A þinginu í ár sækja íslend-
ingar alls um 6 styrki frá UN-
ESCO. í fyrsta lagi framhalds-
styrk til handritaskráningar. Þá
sækja þeir um styrki til endur-
skoðunar á skólamálum, til
menntunaú æskulýðfileiðtoga, til
verndar og vörzlu dýrmætra
safngripa og um ferðastyrki til
listamanna. Loks sækja íslend-
ingar um styrk til rannsóknar
á áhrifum fjölmiðlunartækia og
þá sjónvarps sérstaklega- Mikill
áhugi er hjá UNESCO á slík-
um rannsóknum og; aðstaða t.il
þeirra hér á landi talin. mjög
heppileg og því líklegt að við
fenejum bann stvrk oe áfram-
fáum þennan styrk og áframhald-
andi styrk til handritaskráningar.
I
k