Þjóðviljinn - 15.11.1966, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 15.11.1966, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 15. nóvember 1966 — 21. áigangur — 261. tölublað. Stjórnmálaályktun Sósíalistaflokksins □ Athygli lesenda skal vakin á því að stjórnmálaályktun sú, sem sam- □ þykkt var á 15. þingi Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokks- □ ins á dögunum er birt í heild á 6, síðu blaðsins í dag. Lœkkun brœSslusildarverSsins frá 16. nóv. ósvifin kjaraskerSing Sjómannafundur á Reyiarfirói í ’ Síldvéiðisjómenn á Austurlandi stefna skipum^ sínum til Reyðarfjarðar í dag og hefst þar sjó- mannafundur um hagsmunamálin, einkum þó síld- arverðið, kl. 2 síðdegis. Á miðnætti í nótt lækkar verðið á síld í bræðslu fyrir austan og norðan úr kr. 1,37 í kr. 1,20, sam- kvæmt ákvörðun Jónasar Haralz og tveggja full- trúa eigenda síldarverksmiðjanna í yfirnefnd verð- lagsráðs sjávarútvegsins, og er það ön'nur lækkun bræðslusíldarverðsins í haust. Sjómenn telja það beina ósvífni að ráðast með þessum hætti á kjör þeirra og er almenn óánægja á síldveiðiflotanum. Telja margir sjómenn fráleitt að halda áfram veiðum eftir nýju síldarverðslækk- unina. Fyrir nokkru kusu sjómenn sex manna nefnd, þrjá úr hópi yfirmanna og þrjá úr hópi háseta síldveiðiskipa til að treysta samstöðu sjómanna um hagsmunamálin og undirbúa almennan sjómanna- fund. Hafa þeir ákveðið að halda fundinn í dag á Reyðarfirði eins og fyrr segir og m.a. boðið á hann fulltrúum sjómanna í verðlagsráði, Jóni Sig- urðssyni formanni Sjómannafélags Reykjavíkur, Tryggva Helgasyni formanni Sjómannafélags Ak- ureyrar og Guðmundi H. Oddssyni frá samtökum skipstjóra og stýrimanna. Boðun fundarins á Reyðarfirði hefur þegar vakið mikla athygli og mun fylgzt með ákvörðunum sjómanna um allt land. yinnuveitendasambandið lét undan síga: Samkomulag náðist loks í Búrfells- deilunni í gær eftir 7 mánaða þóf SURTSEYJ- ARGOSIÐ 3JA ÁRA í dag heldur Surtsey upp á þriggja ára afmæli sitt en gos- ið hófst að morgni 14. nóv. 1963 og morguninn eftir hafði eyja skotið upp kollinum. Og enn heldur áfram að gjósa í Surtsey svo að ekki er séð fyr- ir endann á þessu mikla gosi enn. í tilefni afmaelisins birtum við mynd sem Landmælingar ís- lands tóku af Surtsey í síðasta mánuði og sýnir hún vel hvern- ig eyjan lítur út í dag. ISAFIRÐI, 14/11 — S.l. laugar- dag lögðu tveir menn af stað frá Súgandafirði til ísafjarðarog Mjélkursamlagið á Djúpavogi brann Um kl. 4 í fyrrinótt kom upp eldur í mjólkursamlagshúsinu á Djúpavogi og brann húsið til kaldra kola og allt sem í því var. Hvasst var á norðan og var kaupfélagshúsið sem stendur nærri mjólkursamlaginu í mik- illi hættu en þó tókst að verja það. Húsið sem brann var elzta hús á Djúpavogi, 169 ára gam- alt timburhús og gekk það áð- ur undir nafninu Síbería. ■ Um kl. 7 í gærkvöld tókust loks samningar í Búrfellsdeilunni eftir fengu þeir bíl með sig úr Súg- andafirði eins langt og bílfært var og eins höfðu þeir p>antað bíl á móti sér frá ísafirði en ætluðu að ganga yfir háheiðamar, þ.e. hluta af Botnsheiði og Breiðdalsheiði, sem er rösklega klukkutíma gangur í góðu færi. Færi var fremur slæmt og gafst annar mannanna upp eftir nokkra göngu og lagðist fyrir í snjóinn en hinn fór úr frakkan- um og breiddi yfir hann en héit síðan áfram göngunni og komst í sæluhús Slysavamafélagsins á Breiðdalsheiði og hringdi þaðan til Isafjarðar eftir hjálp. Hjálparsveit skáta á ísafiröi brá skjótt við og hélt á vettvang. Var farið að skefla yfir mann- inn er skátarnir fundu hann og var hann mjög illa haldinn. stöðuga samningafundi um helgina. Verður sam- komulagið lagt fyrir Gáfu þeir honum heitt að drekka og færðu hann í skjólföt og fluttu hann síðan í sjúkrahúsið á ísafirði -þar sem hann liggur nú. Er hann eitthvað kailinn en líðan hans annars orðin sæmi- leg. Var hann mjög illa útbúinn til göngu, í nælonskyrtu, stutt- um nærbuxum og venjulegum götuskóm og auk þess búinn að týna öðrum þeirra er skótarnir fundu hann. Áf hinúm manninum er það að segja, að bílstjórarnir sem komu á móti þeim félögum frá Isa- firöi fundu hann í skýlinu á Breiðdalsheiði og fór með hann til Isafjarðar og varð honum ekkert meint af volkinu. Menn þessir voru ekki frá Súganda- firði, heldur höfðu þeir verið þar gestkomandi. — H.Ó. stjórn Vinnuveitenda- sambands íslands í dag og starfsfólkið við Búr- fellsvirkjunina á morg- un, miðvikudag, og stendur verkfallið sem hófst við Búrfell í gær- morgun áfram í dag. Þórir Daníelsson framkvstj. Verkamannasambandsins sagði Þjóðvilj anum í gærkvöld að ekki væri hægt að skýra frá efni samkomulagsins fyrr en það hefði verið lagt fyrir deiluaðila til samþykktar. Samningaviðræður hófust um miðjan maí í vor og hafa því staðið yfir með nokkrum hléum í sjö mánuði enda hefur Vinnu- veitendasambandið staðið gegn öllu samkomulagi eftir megni, þótt það hafi mú loks látið und- an síga. Mun verktakinn hafa orðið fyrir miklu tjóni vegna þessarar þrákelkni Vinmiveit- endasambandsins og verkið taf- izt talsvert af þessum sökum. Samningaviðræðurnar um helgina hófust með fundi á laug- ardaginn er stóð frá kl. 14-20.30. Fundur hófst að nýju kl. 14 á sunnudaginn og stóð hann til kl. 2 eftir miðnætti í fyrrinótt. Loks hófst þriðji fundurinn kl. 17 í gær og lauk honum kl. 19 í gærkvöld eins og áður sagði með samkomulagi. Frá efni samninganna verður sagt hér í blaðinu þegar þeir hafa verið lagðir fyrir deiluað- ila. ,Kæri lygari' frum- sýndur í fyrrakvöld Á sunnudagskvöldið frum- sýndi Þjóðleikhúsið leikritið „Kæri lygari“ eftir Jerome Kil- ty í þýðingu Bjarna Benedikts- sonar frá Hofteigi. Leikstjóri er Gerda Ring frá Osló en leik- endur aðeins tveir: Herdís Þor- valdsdóttir og Rúrik Haralds- son. Leiknum var vel tekið á frumsýningu. — Leikdómur Ás- geirs Hjartarsonar birtist hér í blaðinu einhvern næstu daga. Maður var hætt kominn á Breiðdalsheiði 14 ára aldur lágrhark v7ð drátfarvéla- akstur ★ Xveir þingmenn Alþýðu- bandalagsins, Einar Ol- geirsson og Geir Gunnars- son, flytja á Alþingi frum- varp um eftirfarandi breyt- ingu á umferðarlögunum: ★ Við 28. gr. í stað síðasta málsliðar 1. málsgr. komi: Þeir únglingar, sem náð hafa 14 ára aldri, mega þó án ökuleyfis aka dráttar- vél þegar hún er notuð við jarðyrkju- eða heyskapar- storf utan alfaravegar. Vf- irbyggt skýli skal vera á slíkum dráttarvélum. ★ í greinargerð segja flutn- ingsmenn m.a.: ★ i,Sá málsliður, sem hér er lagt til að breyta, hljóðar nú svo: „Eigi þarf öku- skírteini til aksturs drátt- arvéla, þegar þær eru not- aðar við jarðyrkjustörf ut- an alfaravegár.“ Sam- kvæmt umferðarlögum eru því nú engin takmörk fyrir þvi, hve ungir þeir ung- lingar eða börn mega vera sem stýra dráttarvélum ut- an alfaravegar. Þegar umferðarlögin voru til umræðu á Alþingi 1957 —58, var flutt af hálfu Al- þýðubandalagsins breyt- ingartillaga um, að ung- lingar skyldu hafa náð 14 ára aldri til þess að mega stýra dráttarvél utan al- faravegar. Sú tillaga var kolfelld. Dauðaslys á unglingum og börnum af völdum drátt- arvéla verða æ tíðari. Þetta frv. miðar að því að tak- marka rétt unglinga til þess að stýra dráttarvélum utan alfaravegar við 14 ára ald- ur, Jafnframt er sett það skilyrði, að skýli sé á slík- um dráttarvélum, því að það dregur úr slysahætt- unni.“ Hamrafellið með bilaða vél á rek; suður af Eyium Sl. föstudag bilaði aðalvél ol- iuflutningaskipsins Hamrafells er það var /statt um 100 sjómíl- ur suður af Vestmannaeyjum á leið til Reykjavíkur með olíu- farm frá Rúmeníu. Um helgina og í gær var unnið að viðgerð á vélinni en mikill sjór á þess- um slóðum hefur torveldað mjög allar athafnir. Var viðgerð enn ekki lokið í gærkvöld en vonir stóðu til að vélin kæmist aftur í gang í nótt eða með morgninum. Er skipið á reki en ekki talið í neinni hættu og heldur það áfpam för sinni til Reykjavíkur strax og tekizt hef- ur að gera við vélbilunina. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.