Þjóðviljinn - 15.11.1966, Síða 3
Þriðjudagur K. nðvember 1966 — ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA 3
Endurreisnin á italíu mun taka árutugi
*sw. ' .ys
Viisjált ástand eftir skærur
á mörkum ísraels og Jórdans
Ísraelsmenn fóru yfir landamærin á sunnudaginn og
sprengdu í loft upp fjörutíu hús í jórdönskum bæ
RÓtyl 14/11 — Flóðin á Ítalíu hafa valdið varanlegum skemmdum á tveim af fegurstu og sögu-
merkustu borgum Ítalíu. Flórens og Feneyjum. Bandarískur listfræðingur, prófessor Frederick Hartt,
sagði í dag f Róm að undirstöður m'argra sögufrægustu bygginga í þessum borgum hefðu látið
undan í flóðunum og það myndi sennilega taka tvo áratugi að gera við þær skemmdir sem orðið
hafa á byggingum og listaverkum, svo fremi sem yfirleitt verði við þær gert. A.m.k. 1885 lista-
verk hafa orðið fyrir skemmdum, sagði prófessor Hartt. — Myndin er tekin í kjallara Þjóðbóka-
safnsins í Flórens þar sem flæddi yfir hundruð verðmætra bóka og handrita. Fjórir munkar frá
klaustrinu í Grottaferata, sérfróðir um viðgerðir á fornum bókum og handritum, eru komnir þangað.
•
Brandt ávítir sendiherra USA
fyrir íhlutun í innanríkismál
Sendiherrann sagði að fulltrúar frá V-Berlín gætu
aðeins gefið ráð um myndun nýrrar stjórnair í Bonn
TELAVIV 14/11 — Viðsjált ástand ríkir nú við landamæri
ísraels og arabaríkjanna eftir að ísraelsk hersveit fór yfir
landamærín inn í Jórdan í gær í hefndarskyni fyrir áhíaup
arabískra skemmdarverkasveita undanfarið.
Israelsmenn fóru yfir landa-1 Frásögnum af því hvernig við-
mæri Jórdans með stórskotalið j ureigninni lyktaði ber ekki sam-
og skriðdreka og herþotur voru an. báðir segjast hafa feiit
innrásarmönnunum til aðstoðar. I marga menn fyrir hinum, en
Lyng utanrikisráðherra í
heimsókn í Sovétríkjunum
MOSKVU 14/11 — John Lyng,
utanríkisráðherra Noregs, sem
kominn er til Moskvu í fimm
daga opinbera heimsókn í Sov-
étríkjunum, ræddi í dag við
Gromiko utanríkisráðherra í 2
klukkustundir. Þeir fjölluðu um
helztu alþjóðamál og þó einkum
öryggismál Evrópu og sáttmála
til að hindra útbreiðslu kjárna-
vopna, en ræddu einnig um
Vietnam. Þeir munu síðar fjalla
um sérstök sameiginleg hags-
munamál Noregs og Sovétríkj-
anna.
Sendiherra Noregs í Moskvu
hélt veizlu fjrrir utanríkisráð-
herrana í kvöld. Þar sagði Gro-
miko í ræðu að reynslan hefði
kennt Evrópuþjóðum að þær
ættu sjálfar að ráða fram úr
vandamálum sínum. Hann lýsti
ánægju sovétstjómarinnar með
góða sambúð Noregs og Sovét-
NURNBERG 14/11 — Willy Brandt borgarstjóri Vestur-Ber-
línar og leiðtogi vesturþýzkra sósíaldemókrata, ávítti í dag
á fundi með blaðamönnum í Numberg sendiherra Banda-
ríkjanna í Vestur-Þýzkalandi, George McGhee, fyrir þau
ummæli hans að fulltrúar Vestur-Berlínar á þinginu í Bonn
gætu aðeins gefið góð ráð varðandi myndun nýrrar vestur-
þýzkrar'stjórnar. en ekki tekið beinan þátt í henni.
Þessi ummæli sendiherrans
hafa vakið athygli þar senj þau
koma heim við þá afstöðu sov-
étstjórnarinnar — og stjórnar
Austur-Þýzkalands — að Vest-
ur-Berlín sé ekki hluti af vestur-
þýzka sambandslýðveldinu, held-
ur hafi bprgin sérstaka réttar-
stöðu. Fulltrúar Vestur-Berlínar
á þinginu í Bonn, sem flestir eru
sósíaldemókratar, hafa þar mál-
frelsi og tillögurétt, en ekki full-
an atkvæðisrétt.
NATO-þingmenn
á fundí í París
PARlS 14/11 — Þingmenn frá
aðildarríkjum Atlanzhafsbanda-
íagsins eru nú staddir i Panis
á árlegum fundi sínum þar. I
þetta sinn, í fyrsta skipti í 12
ár bauð enginn franskur ráð-
herra þá velkomna þangað og
reyndar' mætti enginn af ráð-
herrum de Gaulle á fundinum.
Johnson skorsnn
á mortrun
WASHINGTON 14/11 — Johnson
forseti mun leggjast á flotaspít-
alann í Bethesda í Maryland á
miðvikudag. en þar er ætlunin
að gerðar verði á honum tvær
skurðaðgerðir. önnur vegna æxl-
is í hálsi, hin vegna hauls sem
stafar frá uppskurðinum sem
gerður var á honum í fyrra.
Brandt sagði að.það skipti öllu
máli að sendimenn Bandamanna
gæfu mönnum ekki ástæðu til
að ætla að þeir hlutuðust til um
frelsi sambandsþingsins til að
taka eitt sínar ákvarðanir. Full-
trúar Vestur-Berlínar hefðu full-
an rétt til að taka þátt í kjöri
forsætisráðherra, á sama hátt og
þeir hefðu atkvæðisrétt þegar
forseti sambandslýðveldisins væri
kosinn.
— Það er skiljanlegt, sagði
Brandt, að vissir fulltrúar
Bandamanna telji sig hafa sér-
stök tengsl við fulltrúa þeirrar
stefnu í málum Þýzkalands sem
hefur brugðizt, en þeir ættu þó
ekki að gera ríkisstjórnum sjálfra
sin og samvinnunni við Vestur-
Þýzkaland í framtíðinni bjarnar-
greiða.
Vantrú á Kiesinger
Brandt sagði annars að það
myndi koma honum mjög á ó-
vart ef Kiesinger forsætisráð-
herraefni Kristilegra demókrata,
myndi takast i þessari viku að
komast að samkomulagi við ann-
anhvorn stjórnarandstöðuflokk-
inn um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar. Hann minntist sérstak-
lega á þau ummæli Kiesingers
í gær *að i slíkri stjórn myndi
hann undir öllum kringumstæð-
um hafa með leiðtoga Kristilegra
í Bajern, Franz-Josef Strauss.
Brandt sagði að það myndi enn
torvelda Kiesinger stjórnarmynd-
unina
Brandt mun ræða við Kiesing-
er á morgun og á fimmtudag við
leiðtoga Frjálsra demókrata, Er-
ich Mende. Á sunnudaginn verða
kosningar i Bajern og er tal-
ið víst að stjórnarkreppan leysist
ekki fyrr en að þeim afstöðnum.
Margir sósíaldemókratar eru
sagðir tortryggnir í garð Kiesing-
ers vegna fortíðar hans og þá
sérstaklega afstöðu hans í stjórn-
artið nazista, en hann gekk í
nazistaflokkinn strax við valda-
töku nazista, var í honum til
striðsloka og starfaði í utanrík-
isráðuneytinu í Berlín á stríðs-
árunum.
En þrátt fyrir þetta og um-
mæli Brandts sem áður voru rak-
in telja þó margir að stjórnar-
kreppan muni leysast með sam-
vinnu sósíaldemókrata og Kristi-
legra.
ríkjanna og von um aukin sam-
skipti þeirra á öllum sviðum.
Lyng sagði m.a. að sögulegar
og landfræðilegar aðstæður
hefðu leitt til þess að Sovétrík-
in og Noregur hefðu orðið aðil-
ar að sitt hvoru hernaðarbanda-
laginu, en þróun mála í fram-
tíðinni myndi ekki vera undir
því komin fyrst og fremst, held-
ur frekar undir afstöðu hverr-
ar þjóðar um sig til þeirra
miklu vandamála sem leysa yrði
til að greiða fyrir varanlegum
friði í Evrópu og á Atlanzsvæð-
sjálfir hafa misst fáa. ísraels-
menn hörfuðu heim aftur þegar
vopnahlésnefnd Sameinuðu þjóð-
anna skarst í leikinn.
Þótt innrás hafi verið gerð f
Jórdan er talið í Israel, að sögn
fréttaritara Reuters, að tilgang-
ur hennar hafi verið sá að vara
Sýrlendinga við afleiðingum þess
að haldið sé ófram að senda
skemrndarverkamenn inn í Isra-
el frá arabaríkjunum. Stjóm Is-
raels heldur því fram að sýr-
lenzka stjómin standi fyrirþeim
árásum, einnig þeim sem gerðar,
hafa verið frá Jordan. Eshkol,
forsætisráðherra itrekaði þá á-
sökun í garð Sýrlendinga í gær-
kvöld.
Fulltrúi Jórdans hjá SÞ hefúr
vakið athygli öryggisráðsins á
hinu viðsjárverða ástandi við
Landamæri Israels, og herar far-
ið þess á leit að ráðið geri þegar
ráðstafanir til að koma í veg fyrir
að Israelsmenn géri fleiri slíkar
árásir á Jórdan sem þá í gær.
Það sem af er þessu ári hafa
26 árekstrar orðið á landamær-
um Israels og Sýrlands, 15 á
landamærum Israels og Jórdans
og 2 á landamærum Israels og
Libanons.
Ji/lynd af „hinum morðingja
Kennedys birt i tímariti?
■ v
Kosygin til
Bretlands
eftir áramót
LONDON 14/11 — Tilkynnt var
opinberlega í London í dag að
Kosygin, forsætisráðherra Sov-
étrikjanna, myndi koma þangað
í opinbera heimsókn í febrúar
n.k.
Þá verða liðin nærri því 11
ár síðan sovézkur stjórnarleið-
togi kom til Bretlands. Búlganín
forsætisráðherra og Krústjof
flokksritari komu þangað sam-
an í apríl 1956. Stjómarleiðtog-
ar Bretlands hafa síðan oftar
en einu sinni farið til Moskvu,
Wilson forsætiisráðherra síðast í
júlí sl. Kosygin er væntanlegur
til London 6. febriiar.
NEW YORK 14/11 — Bandaríska
mánaðarritið „Esquire“ sem út
kemur á morgun birtir mynd
sem blaðið telur að geti verið af
manni sem miðar skotvopni á
bíl Kennedys forseta í Dallas 22.
nóvember 1963, þegar Kennedy
var skotinn til bana.
Tímaritið segir að svo virðist
sem maðurinn sem á myndinni
virðist miða skotvopni hallist
fram á bíl sem lágt hefur verið
við grasbalann sem bílalest for-
setans ók framhjá einmitt þegar
morðið átti sér stað. Myndin
er stækkuð úr 8 mm filmu sem
maður nokkur í Dallas tók
myndir á þegar' Kennedy kom til
borgarinnar. Warren-nefndin
birti á sínum tíma sex myndir
af þessari filmu. Nefndin komst
sem kunnugt að þeirri niður-
stöðu að Lee Harvey Osvald hefði
verið morðingi Kennedys og verið
einn að verki. Aðrir hafa hald-
ið því fram að bandamenn fqr-
setans hafi hlotið að vera tveir.
„Esquire" birtir einnig viðtal
við mann sem var í sex metra
háum tumi bak við grasbalann
þegar morðið var framið. Maður
þessi, Lee E. Bowers, tel-
ur miklar líkur á að myndin sé
af „hinum morðingj anum"
Bowers er einn af mörgum
sjónarvottum og vitnum í morð-
málinu sem ekki eru lengur í
tölu lifenda. Hann beið bana i
bílslysi í ágúst s.l. og „Esquire"
telur ástæðu til að geta þess að
engir sjónarvottar að slysínu
hafi gefið sig fram.
Sllvkof ¥il! láta halda
alþjóðahino kommúnista
Gagnrýndi á flokksþingi í Sofia afstöðu Kína
sem torveldi aðstoð við vietnömsku þjóðina
SOFIA 14/11 — Todor Sjivkof, forsætisráðherra Búlgaríu
og ritari kommúnistaflokksins, lagði til í dag' í ræðu á
þingi flokksins í Sofia, að haldið yrði alþ'jóðaþing kommún-
ist^flokkanna.
Sjivkof sakaði leiðtoga kín-
verskra kommúnista um að
stofna til sundrungar innan
hinnar kommúnistísku hreyfing-
ar og um að koma í veg fyrir
sameiginlega aðstoð sósíalist-
ísku landanna við vietnömsku
þjóðina.
Á þinginu eru gestir frá 70
kommúnista- og verklýðsflokk-
um. Brespéf aðalritari er fyrir
sovézku nefndinni. Engir full-
trúar eru frá flokkum Kína og
Albaníu. í ræðu sinni sagði
Sjivkof að Búlgarar váeru reiðu-
búnir til að auka viðskipti sín
og bæta efnahagssamvinnu sína
við öll rikin á Balkanskaga, og
eru þau ummæli túlkuð sem
sáttaboð til Albana.
Hann ítrekaði að Búlgarar
myndu veita Vietnömum alla þá
aðstoð sem þeir mættu í bar-
áttu þeirra við hina bandarísku
heimsvaldastefnu, en sagði að
stefna friðsamlegrar sambúðar
hefði tekið að bera ávöxt í bætt
um samskiptum við ýms auð-
valdsríki og nefndi sérstaklega
Framhald á 2. síðu.
{gníineníal
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó bg
hálku.
•
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN M
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
»