Þjóðviljinn - 15.11.1966, Síða 9
Þriðjudagur 15- nóvetnber 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA 0
Bmðafúi § skipum og varnir
Framhald af 4, 1 síðu.
ekki mikið pláss og er þyngd
þess„,eitthvað nálægt 200 kg-,
svo að fjórir menn geta auð-
veldlega borið það á milli sín
og kbmið því fyrir.
Tæki þetta vinnur þannig, að
það dregur til sín rakann úr
viðnum- Það sogar inn £ sig
volgt rakamettað loft, kælir
það niður og breytir um leið
rakanum f vatn sem rennur
frá tækinu gegnum gúmmí-
slöngu og . var í þessu tilfelli
veitt niður í gegnum botn báts-
ins í stáfltunnu sem stóð undir
stjómborðssíðunni. Eftir að
loftið er laust við rakann
streymir það aftur frá tækinu
og vinnur að þurrkun vi/arins.
Já, þama stóð tækið sem ég
sagði frá hér í þættinum fyrir
rúmu ári og var farið að vinna
um borð í íslenzkum fiskibát
og hafði verið í gangi 1 viku
tíma. Allan þennan tíma hafði
tækið. dregið út úr viðum báts-
ins að meðaltali 1 lítra af vatni
á klukkustund og á því virtist
ékkert lát, því að við mælingu
kom í ljós' að ennþá var sem
næst 30% rakí ú vidnuin.
Þama í lestinni var ég
kynntur fyrir hinum nórska
trjávörusérfræðing sem feng-
inn Var hingað á sl. vori og
ég sagði frá hér ffamar £ þætt-
inum. Hann var nú kominn
hingað aftur til að vera við
þessar tilraunir hér. , Ég lagði
fyrir sérfrasðinginn ýmsar
spumingar sem -hann leysti úr
fljótt og vel- Hann sagði að
miklu auðveldara væri að losa
furuna við rakann', á þennan
hátt heldur en eikina. Hann
sagði að £ Noregi hefði sams-
konar tæki og þetta- dregíð út
fjóra litara af vatni á klukku-
stund úr viði furubáts- Þá
sagði hann að þetta væri allt
auðveldara að sumarlagi i
sæmilegum lofthita, þv£ að á
þessum árstima leiðir blautur
viður bátsins kuldann inn.
Hann sagðist vera búinn að
skoða nókkra fiskibáta hér' úr
tré og það væri yfirleitt ein-
kenni á þeim að þeir væru illa
loftræstir á milli innklæðing-
gegn honum \
ar' og byrðings og mun verr,
heldur en norskir bátar sem
hann hefur rannsakað.
Eg spurði um álit hans á þvf
að nota furu til skipasmiða.
Hann sagði að furan væri gott
s k i paism í ðaefn i ef hún væri
góð og mjög auðveld £ öllu
viðhaldi.
Hann sagði að flestir þeir
trébátar sem hann hefði séð
hér, væru smíðaðir úr , rauðeik,
hjin væri . miklu verri og lé-
legri heldur en hvit eikin,
enda talsVert miklu ódýrari-
Hann sagðist telja rauðeik ekki
gptt smíðaefni, nema með þvi
að þurrka hana fyrst mjög
vel, ,en gegnvæta sfðan úr fúa-
vamarefni. Á þann eina hátt
væri hægt að gera hana að
góðu skipasmfðaefni, ekki öðru
vísi.
Þessi norski viðarsérfræðing-
ur sagði að hér væri notaður
alltof blautur viður f skip,
bæði við nýsmfði og viðgerðir
á bátum og taldi að af því gæti
stafað mikil hætta, sérstgklega
gagnvart bráðafúanum. Þá
sagði hann mér að sérstaklega
væri hættulegt að loka rakann
inni f viðnum, t-d. með máln-
ingu.
Mér var það straoc ljóst þeg-
ar ég fór að tala við þennan
Norðmann, að hér ,var kominn
maður sem, gat veitt mikla
fræðslu á sviði trjávörutegunda
og eins f því hvernig bezt væri
htegt að verjast bráðafúanum,
þesSum mikla Vágesti sem hef-
ur valdið sfvaxandi tjóni hér á
íslenzkúm fiskibátum á liðnum
árum og þó aldrei meira tjóni
heldur en á sl- ári, þegar skað-
inn komst upp í 45 miljónir kr.
Sérfræðingurinn taldi að
Ianghættulegasta rakastigið í
viði væri þegar rakinn stæði í
50%, þá væri mikil hætta á
ferðum gagnvart bráðafúa- Þá
lagði hann mikla áherzlu á
loftræstingu á milli innklæðn-
ingar á böndum og byrðings
skipsins. Innilokað loft á þess-
um stað væri mjög hættulegt
og -yki á bráðafúahættu-
Vömin gegn bráðafúanum er
sú og sú ein, að nota aðeins
vel þurran við, gegnvættan f
fúavarnarefnum til skipasmíða
og að fylgjast vel með raka-
innihaldi í viðum allra báta, en
þurrka þá svo nógu snemma
áður en rakinn f viðnum verð-
ur of mikill og setja þá fúa-
vamarefni í viðinn að nýju.
Samábyrgð Islands á fiski-
skipum hefur sýnt mjög lofs-
vert framtak á þessu sviði með
þvi að útvega hingað rakaeyð-
ingartæki til að sýna hvað
hægt er að gera og fá hingað
jafnhliða einn aí þeim sérfræð-
ingum sem fremstir standa á
þessu sviði nú í dag-
En hér má ekki staðar nema
þegar byrjunin er svo góð. Það
sem á eftir þarf að fara, er ,
þetta: ,
Það þarf að setja reglugerð
um hámarks rakainnihald í öll-
um viði sem notaður er til við-
gerða og skipasmfða hér á
landi, og það verður að gera
Skipaskoðun ríkisins kleift að
geta fylgzt með því að slíkri
reglugerð verði fylgt- Þá þarf
líka að eetja reglugerð um
skyldumælingu á rakainnihaldi
í viðum allra tréskipa hér á
landi árlega. Verði rakadnni-
hald viðarins hættulegt gagn,-
vart bráðafúa, þá á skipa-
skoðunin að geta skyldað báts-
eiganda til að láta framkvæma
þurrkun og úðun úr fúavam-
arefnum. Þessi mál þýðir ekki
að taka neinum vettlingatök-
um, hér eru ekki aðeins miklir
hagsmunir f veði,' heldur getur
líka trassaskapur á þessu sviði
valdið manntjóni.
Þegar búið er að fyrirskipa
slíkar reglur með reglugerð,
sem hefur lagagildi, þá verður |
líka að auka við starfslið
Skipaskbðunarinnar svo hún
komizt yfir verkefnið. En við
höfum góð ráð á þessu. þaö
sýna tölumar um tjónið af
völdum bráðafúans.
Að síðustu þetta: Hver drátt-
arbraut og hver skipasmiða-
stöð á Islandi verður að eign-
ast rakaeyði n gar tæk i til að
framkvæma þetta verkefni.
Stjómmúluályktun
Framhald af 6. síðu.
jafnframt að segja upp "öllum herstöðvarsamningum við
Bandaríkin.
2Reynt verði að ná sem víðtækastri samstöðu um baráttu
* fyrir óskertu forræði Islendinga á öllum sviðum efnahags-
mála og atvinnumála til þess að koma f veg fyrir að fleiri
eriendir aðilar fylgi í kjölfar svissneska alúmínhringsins og
hefja sókn fyrir því að samningsgerðinni við alúmínfélagið
verði hrundið. ’ 1 •
Q Tekin verði upp á ný sú sókn í landhelgismálum1 Sem náði
hámarki 1958 með stækkun landhelginnar í 12 'mílúr ög
stefnt að því marki að Islendingar fái óskert yfirráð yfir
fiskimiðum sínum á landgrunnssvæðinu öllu.
IV
Sósfalistar þurfa f váxandi mæli að einbeita sér að stór-
felldtcm félagslegum umbótum og.djúptækum þiæytingumjá: þíóð-
félaginu 'TSém greiði götuna fyrtr því!' markmiði senv flokkurino
stefnir að — sósíaliskum samfélagsháttum.
Sá tæknigrundvöllur sem Islendingar eiga nú yfir að ráða
gæti tryggí miklu betri lifskj'ör, ef skynsamlegri stjóm væri á
framleiðshx og atvinnulífi. Jafnframt er ljóst að það skeið hrað-
fleygrar tæknibyltingar, er við lifum á, gæti fært okkur miklu
fullkomnari tæknibúnað á ýmsum sviðum, en til þess, að sú
tæfcni komi að gagni, þarf fullkomnara skipulag.
Grundvallar- og skipulagsbreytingar á viðskiptum og fram-
leiðslu eru orönar óhjákvæmilegar. Þjóðnýting olíusölu og ýmsra
greina kaupsýslu er orðin brýn. Jafnframt þvi að ríkið taki_ að
sér rekstur æ fleiri þátta atvinnulífsins er nauðsywlegt að efla
lýðræði og sjálfsstjóm í slíkum fyrirtækjum, annarsvegar með
þátftöku starfsfólksins í stjóm stórra fyrirtækja, hins vegar
með aðhaldi frá hálfu iieytenda, til þess að vinna gegn spilling-
arhættu og tilhneigingu til skriffinnsku í slíkum rekstri.
Jafnhliða tækni- og skipulagsbreytingum, þurfa að verða stór-
felldar félagslegar og menningarlegar umbætur: Fullkomnar al-
þýðutryggingar og alhliða heilbrigðisþjónusta, efnahagslegt jafnrétt.i
til tnenntunar o.s.frv. Enn hafa ekki fengizt jafn sjálfsagðar um-
bætur og ókeypis sjúkrahúsvist, þjóðnýting lyfjasölu, námslaun
við framhaldsnám o.s.frv. Stórlega þarf að efla þann þátt þjóð-
lífsins sem sér almenningi fyrir sameigiwlegri þjónustu: byggingar-
lóðum, húsnæði, skólum, samgöngutækjum, bamaheiilum, leikvöll-
um, menningarmiðstöðvum, íþróttamannvirkjum o.s.frv. Sámvinwu
og sameign fólksins þarf í sífelldu að efla á öllum sviðum at-
vinnu- og verzlunarmála.
Flokkurinn þarf, stig af stigi að benda landsmönnum á ný
og: ný viðfangsefni til' úrlausnar í andá sósíalismans — sýna
almenningi fram á gagnsemi þeirra og fyilkja þjóðinni til bar-
át|u fyrir framkvæmd þeirra. ,
1 allri þessari baráttu verður flokkurinn að kosta kapps um
að; ;auka skilning og þroska fjöldans, sem er eitt megin-skilyrði
þess að takast megi að skapa sósíalistískt mannfélag sameigriar,
iýðstjómar, félagslegs öryggis og réttlætis.
AÐALFUNDUR
Sáiarrannsóknaríéiags íslands verður haldinn í dag
þriðjudaginn 15. nóvember 1966 kl. 20.30 að Sigtúni
(Sjálfstæðishúsið).
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf.
2. Guðmundur Einarsson verkfræðingur flytur er-
indi: Rannsóknir í sambandi við Éndurholdgun-
arkenninguna.
3. Hljómlist.
Stjómin. , ;
----- ----------------------------------
ve iL / nga h ús iÖ
ASKUK
RÝÐÖR
YÐUR
SMURT
BRAUD
& SNITTUR
RSKUK
suðurlandsbraut 14
sími 88550
@nlinenlal
Önnumst allar viðgorðir &
dráttarvélahjólbörðum
Sendum um allt land
Gúmmíviimusfofan h,f.
Skipholti 35 — Reykjavík
Sfmi 31055
Viðgerðir
á skinn- og
rúskinnsfatnaði.
Góð þjónusta.
Leðurverkstæði
Úlfars Atlasonar.
Brötugötu 3 B.
Sími 24-6-78.
Smurt brauð
Snittur
við Oðinstorg.
Sími 20-4-90.
Vélritun
Símar:
20880 og 34757.
ÞVOTTU R
Tökum frágangsþvott
og blautþvott.
Fljót og góS afgreiðsla
Nýja þvottahúsið,
Ránargötu 50.
Sími 22916.
Pússningarsandur
Vikurplötur
Einangrunarplast
Seljum allar gerðir af
pússningarsandi heim-
fluttum og blásnufn fnn
Þurrkaðar vikurplötur •
og einangrunarplast
Sandsalan við
Elliðavog s.f. k
Elliðavogi 115. Simi 30120
Guðjón Sfyrkársson
hæstaréttarlögmaður
AUSTURSTRÆTI 6
Sími 18354
BRAUÐHUSID
SNACK BAR
Laugavegi 126.
SMIJRT BRAUÐ *
SNITTUR f
BRAUÐTERTUR
rVprt ý f**vrpnrrt.-ú \rsfr. í'.mV
Simi: 24631
TRIUMPH
undirfatnaður
í fjölbreyttu
úrvali.
ELFUR
Laugavegi 38.
Snorrabraut 38.
BlL A
LÖKK
Grunnur
Fyllir
Sparsl
Þynnir
Bón.
EINKAUMBOÐ
ASGEIR 0LAFSSON heildv
Vonarstræti 12. Sími 11675.
SÍMASTÓLL
Fallegur - vandaður
' Verð kr 4.300.00.
Húsgagnavérzlun
AXELS
EYJÖLFSSONAR
Skipholtl 7. Siml 10117.
KENNSLA OG
TILSÖGN
I latínu, þýzku,
ensku, hollenzku,
frönsku.
Sveinn Pálsson
Sími 19925.
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannar-gæðin.
BRI DGESTONE
veitir aukið
öryggi í akstri.
BRI DGESTONE
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sími 17^9-84
Saumavélaviðgerðir
Ljósmyndavéla-
viðgerðir
- FLJÓT AFGREIÐSLA -
SYLGJA
Laufásvegi 19 (bakhús)
Sími 12656.
Simi 19443.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
ICtlf*f£f