Þjóðviljinn - 15.11.1966, Side 12
1.
Happdrætti Þjóðviljans 1966 hefur
verið hleypt af stokkunum.
O Velunnarar blaðsins fá nú uto þess-
ar mundir senda happdrættismiða
svo sem undanfarin ár.
O Tilvera Þjóðviljans er háð þeim
'*• framlögum, er stuðningsmenn
blaðsins inna af hendi í formi
kaupa á happdrættismiðum.
í happdrættinu eru tveir aðalvinn-
ingar, Moskwitsch bifreiðir — ár-
gerð 1967.
5.
Bregið verður 23. desember næst-
komandi.
Tekið er við skilum á Skólavörðu-
stíg 19 á afgreiðslu Þjóðviljans. —
Sími 17-500.
H Það eru vinsamleg tilmæli okkar,
•• að allir þeir, sem möguleika hafa
geri skil nú þegar.
TRYGGJUM ÚTKOMU ÞJÓÐVILJANS
Átii ekki fyrir
fari heim og
stal reiðhjóli
Á laugardagskvöldið var Hafn-
firðingur einn að skemmta sér í
Reykjavík og gleymdi sér í
glaum og gleði þar til hann stóð
uppi auralaus og allvel við skál.
Hann átti semsé ekki fyrir fari
suður í Hafnarfjörð og ákvað
að ganga heim. Þegar komið var
upp í Öskjuhlíð var maðurinn
tekinn að þreytast en kom þá
auga á reiðhjól og gerði sér lít-
ið fyrir og hjólaði niður brekk-
una. Hann komst þó ekki lengra
en að Nesti því þar biðu hans
lögregluþjónar sem óku honum
inn í Síðumúla.
Múlavegur tepptur vegna snjóflóðahættu
Þridjudagur 15. nóvember 1966 — 31. árgangur — 261. tölublað-
Félag róttækra stúdenta
Fjölþætt vetrar-
starf að hef jast
Harðnr árekstnr
í Hafnsrfirði -
Allharður árekstur varð á
Reykjavíkurvegi á móts við
Hverfisgötu í fyrrinótt. AmerísK-
«r sexmanna-bíll og Daf, báðir
með G-númerum rákust á og
skemmdust mikið, hliðin fór úr
þeim síðarnefnda. Tveir farþegar
vwru í hvorum bíl, en sakaði
engan.
Uppúr kl. 12 á sunnudagskvöld-
ið varð einnig árekstur í Amar-
nesbrekku. Straetisvagn sem var
á leið frá Rvík til Hafnarfjarðar
nakst á fóiksbíl frá Hafnarfirði
og skemmdust báðir bilamir
töluvert. Margir farþegar voru í
strætisvagninum en enginn hlaut
alvarleg meiðsli.
■
Flytur fyrirlestra
við Háskéla ísl.
Prófessor Giinther Beitzke frá
háskólanum í Bonn kemurhing-
að til lands í dag og mun dvelj-
ast hér nokkra daga í boði Há-
skóla íslands.
Fíéfeaspr Beitzke mun flytja
tvo fyrirlestra meðan hann dvel-
ur hér. Sá fyrri verður fluttur
á mcdrguii, miðvikudag 16. nóv-
ember kl. 17.30, og nefnist hann
Þróun þýzks sifjaréttar eftir
setningu Bonnstjómarskrárinn-
ar.
Síðari fyrirlesturinn verður
fluttur föstudag 18. nóvember
kl. 17.30, og nefnist hann Hin
nýja þýzka löggjöf um fjármál
hjóna og erfðarétt maka.
Báðir fyrirlestrarnir verða
fluttir í I. kennslustofu og er
öHum heimill aðgangur.
(Prá Háskóla íslands).
Fundur Blaða-
mannafélafsins
Blaðamannafélag íslands held-
ur félagsfund á morgun, mið-
ýikudaginn 16. nóvember, kl. 4
s,d. Fundarefni: Kjaramálin. —
Félagar fjölmennið. — Fundar-
staður auglýstur á morgun.
Stjórnin.
Nýja Ieiðin frá Dalvík til Ólafsfjarðar, Múlavegur, er nú lokuð vegna snjóflóðahættu. Öefur veg-
urinn verið lokaður um nokkurt skeið vegna mikillar snjókomu en verður opnaður jafnskjótt og
snjóflóðahættan er liðin hjá. Myndin er tekin af Múlaveginum fyrlr skömmu.
Olvmpíuskákmótið:
Island gerði jafn-
tefii við Rúmeníu
■ Biðskákum úr 7. umferð Olympíuskákmótsins milli ís-
lands og Sovétrikjanna lyktaði svo að Tal vann Inga og
Polugajevskí vann Gunnar og sigruðu Sovétrikin því ísland
með 3:1. í 8. Umferð töpuðu íslendingar fyrir Spánverjum,<j
Wi: Wi- Friðrik gerði jafntefli við Medina, Ingi jafn-1
tefli við Menvielle, Guðmundur Slgurjónsson jafntefli við j
Franco en Guðmundur Pálmason tapaði fyrir Calvo. Í 9. i
umferð tefldu íslendingar við Rúmena. Guðmundur Sig-
urjónsson vann Driemer en skákir Friðriks við Gheorgriu,
Inga við Ciocáltea urðu jafntefli en Guðmundur Pálmason
tapaði fyrir Ghitescu. Skildu löndin því jöfn.
xvn mammi
olimpiada mundial de
AJEDREZ
LAHAMNACUBA Od“Novl966
Skélatónleikar hjá Sinfón-
íuhljómsveitinni á morgun
Úrslit í 7. umferö urðu * að
öðru leyti þessi: Ungverjaland
31/2 — Kúba%. Tékkóslóvakía
2V2 — Júgóslavía 1%. Argentína
2V2 — Búlgaría 1 Vi. Frá öðrum
úrslitum í 7. umferð var skýrt
í sunnudagsblaðinu. Þá varð
biðskákin milli Ungverjalands
og Bandaríkjanna úr 6. umferð
jafntefli (2:2).
Urslit í 8. umferð: Sovétríkin
2V2 — A-Þýzkaland 1 Vi. Argen-
tína 2 — Tékkóslóvakía 2. Rúm-
enía 2V2 — Búlgaría 1%. Ung-
verjaland 3V2 — Danmörk %.
Júgóslavía 2V2 — Bandaríkir* 1%.
Noregur 2V2 — Kúba 1%.
Urslit í '9. umferð: Bandaríkin
3 — Argentína 1. Sovétríkin 2
— Ungverjaland 2. Búlgaría 3
— Tékkóslóvakía 1. Danmörk
2V2 — Noregur 1%. Júgóslavía
2V2 — Kúba 1%. A-Þýzkaland
3 — Spánn' 1.
Staðan að loknum 9 umferðum:
1. Sovétríkin 24 og 4 skáknmó-
Iokið, 2. Bandaríkin 23*/2 4
ólokið, 3. Júgóslavía 2214. 4- j
Ungverjaland 22, 5. Búlgaría 20'/2, j
6.—7. Argentína 20, 6.—7. Tékkó- j
slóvakía 20, 8. Rúmenía 1914,- 9.
A-Þýzkaland 15, 10. Danmörk
I4V2. 11. Island 14, 12. Spánn
131/,, 13. Noregur 1014, 14. Kúba
8V2.
I gærkvöld áttu Bandaríkin og
Sovétríkin að tefla skákir sínar
úr 2. umferð.
1 10. umferð tefla Isiending-
ar við A-Þjóðverja-
Bifreið brann á
Akureyri
Seint á laugardaginn Kvikn-
aði í bifreið af gerðinni Taunus
17 frá ’63 sem stóð við slipp-
stöðina á Akureyri og brann
bifreiðin að mestu leyti. Benz-
íntankur hennar lak og er tal-
ið að kviknað hafi í út frá síg-
arettu sem maður einn kastaði
frá sér rétt hjá bifreiðinni.
Á miðvikudaginn, 16. nóvemb-
cr, verða aðrir tónleikar D-
flokksins kl. 2 í Háskólabíói. D-
flokkurinn er, eins og áður hef-
ur verið frá skýrt, fýrir skóla-
fólk á aldrinum 16 til 21 árs, en
vitanlega er öllu áhugafólki
heimill aðgangur á meðan hús-
rúm leyfir. Verkefnaval á tón-
leikum þessu miðar sérstaklega
að því að kynna og rekja hin
ýmsu stílbrögð í hljómsveitar-
tónlist frá upphafi til okkar
tíma.
Fyrstu tónleikamir í D-flokkn-
um fluttu verk frá „renaissanee"
og „barokk" tímanum. Á þess-
um næstu tónleikum verða ein-
göngu flutt klassísk verk, þ.é.a.
s. frá síðari helmingi 18. aldar
og fram yfir aldarhótin 1800.
Þar má heyra, hvemig sónatan
þróast á sviði hljómsveitartón-
listar upp í sinfóníuna og klass-
íska konsertinn. Fluttir , verða
þættir úr verkum, sjaldheyrð-
um, svo sem Sinfóníu fyrir tvær
hljómsveitir eftir Johann Chris-
tian Bach, en á sínum tíma þótti
hann bera af föður sínum Jó-
■ Félag róttækra stúdenta er að hef ja vetrarstarfið. Á mið-
vikudag kemur umræðuhópur um leiklist saman. í fyrsta
skipti í Tjarnarbúð uppi. Fundurinn hefst klukkan níu
og verður rætt um leikritið Næst skal ég syngja fyrir þig,
sem nú er sýnt í Lindarbæ. 'Umræðuhópur um ný viðhorf
í sósíalisma kem,ur saman á fyrsta fund á fimmtudags-
kvöld og verður þar rætt um framkvæmd sósíalisma í
Sovétríkjunum. Nokkrir stúdentar hefja umræðuna um
kosti og galla þjóðskipulags í Sovétríkjunum. Þessi fundur
verður einnig haldinn í Tjamarbúð uppi og hefst kl. níu.
Drög að starfsáætlun voru sam-
þykkt og í stjórn voru kosnir
Magnús Jónsson formaður, Kafn
Guðmundsson ritari, Ölafur Ein-
arsson gjaldkeri og meðstjórn-
endur Jón Sigurðsson og Jóharm
Bergmann.
Nýja stúdentablaðið á að koma
út 1. desember og er Rafn Guð-
mundsson ritstjóri þess.
Höfuðatriði í starfi félagsins á
vetri komandi verða ofangreind-
ir umræðuhópar sem eiga að
koma regluiega saman.
Stúdentar eru hvattir til að
láta skrá sig til þátttöku í um-
ræðuhópunum. Leiklistarhópn-
um stjórna- Þórhallur Sigurðs-
son, Sigríður Sigurðardóttir o@
Magnús Jónsson. Bókmennta-
hópnum þeir Bjami Ólafsson,
Böðvar Guðmundsson og Jón
Sigurðsson og til þátttöku íum-
ræðuhópnum um sósíalisma geta
menn látið skrá sig hjá Svavari
Gestssyni, Ragnari Amalds, Öl-
afi Einarssyni og Jóhanni Berg-
mann.
Þriðji umrasðuhópurinn rseðir
um samtímabókmenntir og verð-
ur fyrst rætt um skáldsögurnar
Orgelsmiðjan, Borgarlíf ogSvört
messa og jafnframt rætt um
undirtektir þær sem skáldsög-
umar hlutu er þær komu út í
fyrrahaust.
Aðalfundur félagsins varhald-
inn fyrir skömmu og auk venju-
legra aðalfundarstarfa flutti Jón
Böðvarsson frásögn af nokkrum
þáttum í starfi félagsins á liðn-
um árum, Júníus Kristinsson
ræddi um hin nýju viðhorf eftir
kosningasigur B-listans í Háskóla-
anum. Þá voru félaginu sett ný
lög.
hanni Sebastian. Vitanlega verð-
ijr einnig fluttur sinfóníuþátt-
ur eftir „föður sinfóníunnar"
eins og Haydn hefur oft verið
kallaður. Þá verður leikinn til-
brigðaþáttur úr Concertante sin-
fóníu Mozarts, fyrir blásara-
kvartett og hljómsveit, þáttur
úr fyrsta píanókonsert Beethov-
ens, en einleikari þar verður
Anría Áslaug Ragnarsdóttir.
Anna hefur áður komið fram á
skólatónleikum Sinfóníuhljóm-
«veitgrinnar og vakti verðskuld-
aða hrifningu jafnaldra sinna,
er á hlýddu. Tónleikunum lýkur
með Scherzói • úr 7. sinfóníu
Beethovens.
Skólatónleikunum fyrir yngra
skólafólk úr bamaskólunum
verður haldið áfram á fimmtu-
daginn kl. 10.30 og kl. 2.30, og
daginn eftir, föstudaginn 18.
nóvember kl. 2.30. Þar verða
fluttir „Barnaleikir" eftir Bi-
zet, þáttur úr konsert fyrir 2
fiðlur og hljómsveit eftir Bach,
en einleikararnir verða tveir
ungir nemendur úr Tónlistar-
Framhald á 2. síðu.
j Manns saknað f rá
Stokkseyri frá
því á laugardag
I gær og fyrradag hefur
staðið yfir víðtæk leit að 66
ára gömlum manni, Guð-
mundi Guðmundssyni frá
Hausthúsum á Stokkseyri.
Guðmundur sást síðast kl.
9,30 á laugardagskvöldið.
Sjálfboðaliðar frá Stokks-
eyri, Eyrarbakka og Sel-
fossi leituðu á Stokkseyri,
austur og vestur með sjó
og/ í öllum Selfosshreppi.
Þá leituðu Hjálparsveitir
skáta frá Reykjavík og
Hafnarfirði í fyrradag og
fram eftir nóttu en lcitin
hafði ekki borið árangur
þegar síðast fréttist.
HAPPDRÆTTI ÞJÓOVILJANS 1966