Þjóðviljinn - 23.11.1966, Síða 1

Þjóðviljinn - 23.11.1966, Síða 1
UNNIÐ AÐ LAUSN FISKSÖLUMÁLA ■ Þjóðviljinn reyndi í gær að fá fregnir af fisksölumál- um bæjarins, en eins og kunnugt er gáfu fisksalar stjórnarvöldunum frest þangað til í gær að gera eitthvað raunhæft 1 málinu, en hugðust hefja sölustöðv- un í 'dag að öðrum kosti. Blaðinu tókst ekki að ná sambandi við Þórhall Ás- geirsson ráðuneytisstjóra i gær, en hann mun bá hafa verið að vinna að lausn málsins. ■ Jón Guðmundsson for- maður Fisksalafélagsins sagði hinsvegar í örstuttu símtali við blaðið að sér væri ekki kunnugt um neina lausn ennþá, en vissi að unnið væri að henni. Vildi hann ekkert segja um málið að svo stöddu, en tók fram að fisksalar myndu ekki hefja sölustöðvun í dag að svo komnu máli. < .;<■ ■< Ý/ýs&úý&Æ. 30. þingið samþykkir einróma útgáf u tímarits og stofnun verkalýðsskóla Á MYNDINNI TI VINSTRI eru Kristján Jónsson frá Sjómanna- félagi Haínarfjarðar- Helga Kröyer og Björg Jóhannsdóttir frá Starfsstúlknafé’aginu Sókn- Á MYNDINNI TIL HÆORI eru Jón Ragnarsson, hárskerí, Ágúst Kristjánsson, pípulagr.ingarmaður, Magnús Stephensen, málari, Benedikt Davíðsson og Jón Sorri Þorleifsson frá Trésmiðafclaginu. ■ Almennir fundir á Al- þýðusambandsþingi hófust að nýju í Lídó Él, 4 í gær og komu mörg mál til umræðu og nokkur til afgreiðslu. ■ Meðal þeirra mála sem þingið afgreiddi á síðdegis- fundinum var ályktun fræðslunefndar sem sam- þykkt var einróma. Felur hún í sér samþykkt um reglulega útgáfu tímarits sambandsins Vinnunnar. og að komið verði á fót verka- lýðsskóla sem Alþýðusam- sambandsþing telur að styrkja eigi ríflega af opin- beru fé. Fjallar samþykktin ennfremur um orlofsheimili alþýðusamtakanna og nýt- ingu þeirra, fagnað er sam- Mesti síldarafli sem einn bátur hefur fengið: Gísli Arni er nú kominn mei 11.405 lestír frá því í vor - Samkvæmt bátaskyrslu Fiski- félags Islands voru 27 skip kom in með yfir 6000 lestir síldar um síðustu helgi og er Gísli Ámi langaflahæstur með 11-405 lestir sem mun vera algert aflamet á síldveiðum hér við land og þótt víðar væri leitað. Annars er röð efstu skipanna þessi. Gísli Árni RE 11.405 Jón Kjartansson SU 9-520 Jón, Garðar GK 8-568 Þórður Jónasson EA 7.729 .Dagfari' ÞH 7-714 Lómur KE 7.379 Ingiber Ólafsson II- GK 7.252 Helga Guðmundsd. BA 7.051 Haunes Hafstein EA 6-979 Sig- Bjarnason EÁ 6.901 01. Magnússon EA 6.886 Stormur á miðun- um o? envin veiði Stormur hefur verið á síldar- miðunum siðan í fyrradag og engin skip úti. Samtals tilkynntu 15 skip um afla frá því í fyrri- nótt, alls 665 iestir. Akurey RE 30 lestir, Hafrún IS 200, Snæfell EA 40, Ársæll Sig- urðsson GK 90, Sigurey EA 30, Asbjörn RE 15, Helgi Flóvents- son ÞH 50, .Þorleifur OF ^O, Reykjanes GK 20, Elliði GXs. 40, Framnes IS 30, Sólrún IS 30, Náttfari ÞH 30, Þrymur BA 10, Akraborg EA 30. Þorsteinn RE 6-832 Arnar RE 6-294 getað samið hugmyndaríkan og Seley SU 6.812 Snæfell EA 6-242 fagran óskalista, en taldi það Ásbjöm RE 6.727 Gullver NS 6.184 ekki rétt því það mundi aðeins Bjartur NK 6-708 Heimir SU 6.135 ergja menn á næsta þingi að siá Jörundur III. RE 6-688 Reykjaborg RE 6-093 ekkert af því í framkvæmd. Barði NK 6.588 Guðm. Péturs IS 6.049 I samþykktum undanfarinna Jörundur II. RE 6-525 örn RE 8.025 þinga em fjölmargar merkar til- Öskar Halldórss. RE 6.428 Gullberg NS 6-016 Framhald á 3. síðu. starfi SÍS og ASÍ um bréfa- skóla, og tónskólum alþýðu. Þá er lagt fyrir miðstjórn að vinna að listkynningu og list- flutningi í verkalýðsfélögum og á vinnustöðvum og afráðið að kjósa þriggja manna fræðslunefnd til að fara með þau mál ásamt sambands- stjórn. Framsögumaður fræðslunefnd-: ar var Stefán Ögmundsson og, sagði hann m.a.: Fræðslunefnd sú, sem nú var skipuð varð sam-mála um að tak- marka tillögur sínar við einstök verkefni, sem hún telur brýna nauðsyn bera til að unnið verði að og unnt sé að hrinda í fram- kvaemd. Hún hefði að sjálfsögðu Verklýðsflokkarnir fengu meiríhluta á danska þjóðþinginu SF tvöfaldaði þingmannatölu sína og tryggði þannig meirihiutann KAUPMANNAHÖFN 22/11 — Úrslitin í þingkosningunum í Danmörku í dag urðu mikill sigur fyrir Sósíalistíska al- þýðuflokkinn (SF) sem tvöfaldaði þingmannatölu sína úr 10 í 20 og tryggði þannig verklýðsflokkunum meirihluta á þjóðþingi Dana 1 fyrsta sinn, enda þótt sósíaldemókratar töpuðu nokkru fylgi og sennilega 7 þingsætum. Borgara- flokkarnir sem gert höfðu sér vonir um að ná meirihluta biðu mikinn ósigur, bæði Vinstri og fhaldsflokkurinn töpuðu fylgi, en hins vegar unnu Róttækir og Frjálslyndi miðflokk- urinn á. Óháðir (íhaldsmenn) misstu alla þingmenn sína. A Kíettur hf. segir upp öllu starfsfólki verksmiðjanna 1 gær og fyrradag fengu allir starfsmenn síldarverk- smiðjanna á Kletti og í örfir- isey bréf, þar sem þeim er sagt upp störfum með mánað- ar fresti. Ástæða fyrir þessum uppsögnum er ekki tilgreind i plagginu, en það fyrirheií fylgdi að starfSmennimir skyldu sitja fyrir ef úr rætt- ist. • Hinsvegar höfðu forráða- menn fyrirtækisins orð á þvi að hér réðu fjárhagsörðugleik- ar, hráefnaskortur og óáran Með öðrum orðum: allskonar. Viðreisn. Ekki hefur verið mikið að gera i verksmiðjunum síðast- liðinn mánuð og var vinnu- tíminn kominn niður í venju- lega 8 tíma hjá öllum fjöldan- um. Að því er blaði'ð hefur kom- izt næst hafa einu-ngis fjórir menn ekki fengið. uppsagnar- bréf, tveir hjá hvorri verk- smiðju og þá sennilegast verkstjórarnir. Þjóðviljinn snéri sér í gær tii Jónasar Jónassonar fram- kvæmdastjóra síldarverk- smiðjanna og spurði hann hverju þessar uppsagnir sættu. Hvað hann fyrirtækið tilneytt, þar sem það hefði aðeins fengið tvo slatta af síld und- anfarna tvo mánuði og litlar Iíkur á auknu hráefni, auk þess sem verðfallið ylli mikl- um fjárhagsörðugleikum. Hjá verksmiðjunum báðu-, munu vinna um 50 fastráðnii menn og ennþá fleiri þegar niikið berst að af hráefni, Mikil óánægja ríkir hjá mönnum vegna þessara upp- sagna og þykjast þeir njóta heldur lítils atvinnuöryggis. Hafa þeir við orð að nú sé tækifærið, með lausa samn- inga, að muna atvinnurckend- um þetta við samningaborðið og knýja fram aukið öryggi. Þá vekur það og athygli að uppsagnirnar skuli fara fram einmitt núna, því að með því móti losnar verksmiðjustjórnin við að greiða þeim jóladagana. Aksel Larsen, formaður SF sagði í viðtali við danska útvarp- ið i nótt, þegar úrslitin voru kunn í meginatriðum, að sigur flokks haVis hefði orðið enn meiri en hann hefði gert sér vonir um, þótt hann hefði haft mikla trú á að hann myndi bæta við sig bæði kjörfylgi og þingmönnum. Höfuðniðurstaða kosninganna væri hið mikla fylgistap borgara- flokkanna, sem hefði haft í för með sér að nú hefðu verklýðs- flokkamir í fyrsta sinn fengið meirihluta á danska þjóðþinginu. Larsen kvað það hafa komið sér á óvart hve mikið fylgistap sósíaldemókrata varð, en það hefði þó orðið minna en fylgis- aukning SF og það hefði gert gæfumuninn. Jens Otto Krag forsætisráð- herra fór ekki dult með það að úrslitin hefðu valdið honum von- brigðum, flokkur hans hefði tap- að urn 3,5 prósent atkvæða og 6— 7 þingsætum. Hins vegar sýndu úrslitin að samvinna Vinstri flokksins og Ihaldsflokksins hefði beðið algert skipbrot og tilraun þeirra til að ná borgaraIegumv ' Framhald á 3. síðu. I

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.