Þjóðviljinn - 23.11.1966, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 23.11.1966, Qupperneq 4
4 SlÐA — PJÓÐVILJINN — Mi&vitoadagur 23. nóvember 1966. iirinn Ritstjórar: Ivar H, Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritetjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson. Sími 17-600 (5 línur). Askriftasrverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa- eöluverð kr. 7.00. Skipulagsbreyting rpáum mun dyljast að skipulag Alþýðusambands- ins er orðinn óskapnaður sem hlýtur að tor- torvelda eðlilega starfsemi samtakanna og draga úr áhrifamæ'tti verkalýðshreyfingarinnar í þjóðfé- laginu. Sízt skortir á að menn hafi séð þessa van- kanta og viljað laga þá. En til allra breytinga á lögum sambandsins þarf að tveir af hverjum þrem- ur fulltrúum á sambandsþingi greiði þeim atkvæði. Sá meirihluti hefur ekki fengizt til breytinga á •lögum og skipulagi sambandsins undanfarið og átundum komið opinskátt fram, að þar hefur ekki fyrst og fremst verið að ræða um mat á lagabreýf- ingunum eða nauðsyn þeirra, heldur hefur minni- hluti þings viljað hafa málin að kaupeyri til að tryggja sér sæti í stjórn Alþýðusambandsins. Þann- ig hefur Alþýðusambandið setið uppi allt of lengi með skipulag sem allir eru raunar orðnir sammála um að sé óhæft. Enn er megingrundvöllur þess bein aðild verkalýðsfélaga að sambandinu, svo sem eðlilegt var á fyrstu áratugunum meðan félögin voru fá og flest fámenn. En auk þess hafa nú hlot- ið beina aðild að Alþýðusambandinu landssambönd með þúsundir félagsmanna. Önnur landssambönd sérgreina hafa risið upp síðustu árin, Verkamanna- samband íslands, Málm- og skipasmiðasamband- ið og Samband byggingamanna, sem ekki eru í neinum skipulagstengslum við Alþýðusamband ís- lands. Á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörð- um starfa fjórðungssambönd Alþýðusambandsins og fulltrúaráð víða í kaupstöðum. Verkaskipting er að verða meira og minna óljós milli stofnana verkalýðshreyfingarinnar. Þær eru flestar í svelti vegna lítilla tekna og brýn þörf að f jármunir þeirra og starfsfólk nýtist sem bezt, en miklar líkur eru til að svo yrði með betra skipulagi og nákvæmari verkaskiptingu. TVju eru komnar fram á Alþýðusambandsþingi til- ' lögur um skipulagsmálin, sem miða að því að leysa þennan vanda heildarskipulags verkalýðs- hreyfingarinnar, og hafa til þess þau vinnubrögð að aukaþing á næsta hausti gangi endanlega frá þessum áfanga í skipulagsmálum verkalýðshreyf- ingarinnar. í þeim tillögum er byggt á fyrri sam- þykktum Alþýðusambandsþinga og þeirri þróun sem orðin er, þannig að gert er ráð fyrir að Alþýðu- sambandið verði samtök landssambanda, sér- greinasambanda, og öllum verkalýðssamtökum fengin staða og verkefni innan heildarsamtakanna. Hér er ekki fyrirhuguð sú róttæka breyting á sjálf- um grunneiningum verkalýðshreyfingarinnar, verkalýðsfélögunum, sem nefndin frá 1956 hafði lagt til og Alþýðusambandsþing raunar samþykkt sem meginreglu, en ljóst er að flutningsmenn til- lagnanna á þinginu nú telja ekki fært að fara lengra í þessum áfanga. Enn er ekki vitað hvort samstaða fæst á þinginu um tillögurnar sem nægi til að koma þeim fram og atriði í þeim óráðin, en hitt mUn flestra mál, að takist vel til um samþykkt þeirra og framkvæmd. er íslenzk verkalýðshreyf- ing ólíkt betur á vegi stödd í skipulagsmálum og færari að gegna hlutverki sínu í nútímaþjóðfélagi. — s. Tekst samstaða á þingi A.S.I. um nýju skipulagstillögurnar? Útdráttur úr framsöguræðu Eðvarðs Sigurðssonar um skipulagsmálin Málið sem mesta athygli vekur á Alþýðusambands- þingi eru nýjar tillögur um skipulagsmál sem Iagðar hafa verið fyrir þingið. I framsöguræðu á mánudag- inn gerði Eðvarð Sigurðs- sin grein fyrir þessum til- Iögum og fer hér á eftir útdráttur blaðamanns úr ræðu hans. + . I framsöguræðu sinni minnt.i Eðvarð á, að í meginatriðum hefði skipulag Alþýðusam- bandsins verið óbreytt frá stofnun þess fyrir fimmtíu ár- um, aðalreglan sú að einstök félög væru beint aðilar að sambandinu. Árið 1940 hefði þó veriðgerð sú meginbreyting á samband- inú að það var slitið úrskipu- lagstengsium við Alþýðuflokk- inn er verið höfðu allt frá 1916, og frá þeim tíma hefði Alþýðusamband íslands ein- göngu verið samband verka- lýðsfélaga. Umræður um skipulagsmal sambandsins hefðu þó haldiðá- fram, mjög oft hefðu veriðsett- ar milliþinganefndir til að fjalla um þau og nærri hvert þing rætt skipulagsmál. En tll lagabreytingá í samband-<5^ inu þurfi tvo þriðju atkvæða á sambandsþingi og muni nú æði langt frá því að sá meiri hluti hafí myndazt á þingum, svo hægt hafi verið að koma fram lagabreytingum sem varða sjálft grundvallarskipulagið. I umræðunum um skipulags- mál má segja að þáttaskil hafi orðið með nefnd áem skipuð var 1956. Sú nefnd vann mikið starf fram til þingsins 1958. Var þá gefinn út bæklingurum skipulagsmál verkalýðshreyí- ingarinnar. Alþýðusambands- þing 1958 samþykkti grundvall- arstefnuyfirlýsingu í málinu f samræmi Við tillögur nefndar- innar, án þess að þá yrðu miklar umrasður um málið. Höfuðeinkenni þeirra tillagna og stefnuyfirlýsingar, sem It- rekuð var á Alþýðusambands- þingi 1960 var að Alþýðu- sambandið skyldi byggt upp af starfsgreinasamböndurn. Jafn- framt gerði nefndin frá 1956 víðtækar tillögur og róttækar um skipuJagsmál sjálfra verka- lýðsfélaganna. Þegar hugsað var til framkvæmda voru það eink- um þær tillögur sem vöktu margvíslega mótspymu og komu upp alls konar tilfjnningamál og togstreita í því sambandi. Hitt hefur yfirleitt ekki ver- ið mikill ágreiningur um að byggja beri Alþýðusambandið upp af landssamböndum. Hins vegar hefur skipulagsmálunum á undanfömum þingum verið blandað saman við átök um forystu Alþýðusambandsins og samkomulag ekki náðst um málið. + Til þess að koma málinu ó rekspöl lagði form. ASl, Hanni- ’bal Valdimarsson í september í haust fitam í miðstjóm sam- i bandsins frumvarp að lögumog skipulagi Alþýðusambandsins. Það yrði samband byggt á land3samböndum, verkalýðsfé- lögin kysu fulltrúa á þingland- satnbandanna en þau aftur á þing Alþýðusambandsins. Miðstjóm skipaði fimm manna nefnd til að fjalla um málið, þrjá úr sínum hópi, Eðvarð Sigurðsson, Jón Snorra Þor- leifsson og Svein Gamalíelsson, og óskaði svo eftir því að Ósk- ar Hallgrímsson og Pétur Sig- urðsson tækju sæti í nefndinni. Var það gert vegna þess- að miðstjómin vildi láta reyna á það fyrir sambandsþing hvort líkur væru til þess að sam- staða gæti fengizt um skipu- lagsmálin á þessu þingi. Umræður í þessari nefnd voru allar málefnalegar og að ýmsu leyti til fyrirmyndar. Við reyndum að komast til botns i málinu og kanna hvort hægt væri að leggja tillögur fyrir þetta þing, og kom fram vilji allra nefndarmanna til að leysa málið. Nefndin var sammála um, að nú væri að ýmsu leyti betri grundvöllur en áður til að leysa málið. Margskonar ótti ogfor- dómar við breytt skipulaghafa þokað að verulegu leyti. A síðustu árum hafa orðið tii landssambönd, sérgreinasam- bönd, Verkamannasamband Is- lands, Málm- og skipasmiða- sambandið og Samband bygg- ingamanna, auk þeirra sem fyrir voru. Svo er komið að i slikum landssamböndum eru nú um 22 þúsund félagsmenn inn- an Alþýðusambandsins eða um tveir þriðju allra félagsman ia sambandsins. Aðrir hóparhugsa sér einnig til hreyfings, bóka- gerðarmenn og fleiri. Þessi þróun er orðin staðreynd sem blasir við. Þá er hitt líka augljóst að sum landssamböndin, Lands- samband ísl. verzlunarmanna, Landssamband vörubifreiðar- stjóra, Sjómannasamband. Is- lands, eru aðilar að Albýðu- sambandinu og kjósa beint á þing þess. Nýju landssamböndin eru hinsvegar ekki í neinuvn skipulagstengslum við Alþýðu- sambandið. Augljóst er að öil þessi landssambönd ættu að hafa eina og sömu réttarstöðu í heildarsamtökunum. Þá hafa þær breytingar orðið á nokkrum stöðum að almennu verkamannafélögin og verka- kvennafélögin hafa sameinazt. Og þar sem sameining þeirra félaga hefur ekki farið fram hefur tekizt miklu nánara og betra samstarf með þeim en áður var. Þannig hefur þok- azt til aukins samstarfs á mörg- um sviðum og í étt ti! nýs skipulags. I skipulagsnefndinni sem miðstjómin skipaði komu fram ýmsar hugmyndir um einstaka þætti skipulagsmálanna. Að þeim tillögum sem fram eru bomar hér á þinginu standa fjórir nefndarmanna. Sveinn Gamalíelsson hefur í nefnd- inni.og í miðstjóm gerzttals-_ maður annars skipulags í megr indráttum, hugsar sér byggingu Alþýðusambandsins á allt öðr- um grundvelli, að það verði byggt upp af_ héraðasambönd- um. Við fjórir byggjui^i hins vegar á samþykktum fyrri AI- þýðusambandsþinga, þar sem haldið er starfsgreinagrundvell- inum. ★ Þjóðfélagið íslenzka hefur gerbreytzt á undanförnum ára- tugum, og það mætti kallast kraftaverk ef hið gamla skipu- lag Alþýðusambandsins þyrfti ekki breytinga við. Við höfurn dregizt afturúr atvinnuþróun- inni, þróuninni í tækni og samgöngumálum síðustu ára- tuga. Þetta er ein meginástæðan til þess að fólk einstakra starfs- greina hefur talið þörf að skapa sér annan vettvang en Alþýðu- sambandsþing til að koma sam- an og ræða hagsmunamál sín, enda er nú verkaskipting í þjóðfélaginu orðin miklu meiri en áður. I tilíögunum sem lagðar erj fyrir þingið er því slegið föstu að Alþýðusambandið skuli byggt upp af landssamböndum. Þar er að sjálfsögðu átt við sam- böndin sem fyrir eni og gert ráð fyrir að ný verði stofnuð, t.d. bókagetðarfélögin og ef til vill Iðjufélögin myndi sín sam- bönd. Niðurröðun félaga í sambönd yrði að sjálfsögðu háð vilja félaganna sjálfra, þó gert sé ráð fyrir að öll sjómanna- félög gangi í Sjómannasam- bandið, verkamannafélög í Verkamannasambandið, geta ris- ið vandamál hjá litlum félög- um sem eru bæði fyrir verka- menn og sjómenn. Engar tillög- ur verða gerðar um að tæta fé- lög i sundur, heldur verður að finna eitthvert form fyrirsam- band slíkra félaga við lands- samböndin, ef til vill gæti deildaskipting eins og höfð er t.d. á Akranesi verið leiðin. Samt er gert ráð fyrir í tillög- um nefndarinnar að einstök fé- lög geti áfram verið beinir að- ilar að Alþýðusamb'andinu ef svo stendur á að þau geti ekki verið í landssambandi. Framhald á 7. síðu. EINKAUMBOÐSALI FYRIR LEVIS STRAUSS &CO. _____________VDMNOIFAirAGŒlRÐ SSDLAMÍDS % HVER VAR AÐ TALA UM lEHI'S STA PREST HEFUR VARANLEG BUXMABROT? VARANLEG BUXNABROT SPYRJIÐ EFTIR lEI/l'S'STfl-PREST'BUXUM. FYRIRLIGGANDI í ÖLLUM STÆRÐUM OG FJÖLBREYTTU LITAVALI, LEVIS STRAUSS. UPPHAFSMENN NÝTÍZKU VINNUFATNAÐAR,

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.