Þjóðviljinn - 01.12.1966, Síða 1
Fimmtudagur 1. desember 1966 — 31. árgangur — 275. tölublað.
Borgarstjornarfundur:
Fjárhagsáætlun Reykjavík-
ur til fyrri umræSu í dag
t
t
I
I
t
t
I
t
t
t
I
|
l
Þannig er frelsisstefna ríkisstjórnarinnar í framkvæmd:
Mikil hækkun áíagningar frá 1960
Hvernig hafa kaupmenn notað „frelsið“ til álagningar
sem hefur verið stefna og trúaratriði núverandi ríkis-
stjórnar, og boðað sem fagnaðarerindi í Morgunblaðinu?
Fram komu á Alþingi í fyrradag nokkur dæmi um það
hvernig kaupmenn skammta sér sjálfir álagningu vara.
og raunar líka að stefna ríkisstjórnarinnar hefur verið
framkvæmd í verðlagsráði, þar sem þess hefur verið gætt
að Alþýðubandalagið ætti engan fulltrúa.
Vörur uiidir verðlagseftirliti
í umræðunum um verðlagsmál.á Alþingi í fyrradag sagði
Lúðvík Jósepsson að ríkisstjórninni væri fullkunnugt um
að farið hefði fram allýtarleg rannsókn um breytingar á
verðlagi undanfarandi ára sem sýndu hvemig verðhækk-
anirnar hefðu gerzt. Tók hann nokkur dæmi um álagningar-
hækkanir frá 1960. sem ýmist hefðu verið leyfðar af verð-
lagsnefnd eða framkvæmdar af kaupmönnum á vörum sem
ékki eru undir verðlagseftirliti.
í HEILDSÖLU
Prjónagarn, vefnaðarvara, metravara alls konar, fatn-
aður, leðurvörur og samsvarandi vörur. Álagning 1960
9%, álagning nú 15%.
Rafmagnsrör, rafmagnsvírar o.fl. þess háttar vörur.
Álagning 1960 9,5% — nú 16%.
Rúðugler, álagning 1960 15%, — nú 19%.
Smíðajárn og smíðastál í stöngum og plötum, álagn-
ing 1960 9%, — nú 1S%.
í SMÁSÖLtJ
Gúmmístígvél, álagning 196» 15%, — nú 22%.
Allur annar skófatnaður, álagning 1960 20%, — nú27%.
Búsáhöld. borðbúnaður. eldhúsáhöld. handverkfæri.
járnvörur ýmis konar, álagning 1960 27%, — nú 35%.
Prjónavörur, vefnaðarvörur, metravara, álagning 1960
25%, — nú 40%.
4
Vörur með ,,frjálsri“ álagningn
Þetta eru ekki einstök dæmi, hækkun álagningarinnar er
yfirleitt mikil, bæði í heildsölu og smásölu. En hækkanirn-
ar verða þó enn meiri þegar kemur að vörunum sem gefn-
ar hafa verið alveg frjálsar. Nokkur dæmi:
í HEILDSÖLU
Niðursoðnir ávextir, þurrkaðir ávextir, kex o.fl. Álagn-
ing 1960 7,5%, nú í framkvaemd 18,3%.
Hreinlætisvörur og snyrtivörur. álagning 1960 9,5%,
nú orðin 23,3%.
Ytri fatnaður kvenna. Álagning 1960 9,5%, en er nú
14,2%.
Ytri fatnaður karla, unglinga og bama, álagning 1960
8,5%, er nú 15,7%.
Sokkar og leistar o.fl. þess háttar, álagning 1960 8%,
er'hú 19,2%.
Ýmis konar fatnaður kvenna, álagning 1960 9%, er
nú 22,3%.
í SMÁSÖLU
Ytri fatnaður kvenna, álagning 1960 27%, er nú 41,4%.
Ýmis konar annar fatnaður kvenna, álagning 1960
25%, er nú. 39,2%.
Sokkar og leistar, álagning 1969 24%, er nú 42,1%.
Vinnufatnaður og úlpur, álagning 1960 20%, er nú
32,9%.
Þannig skammta kaupmenn sér sjálfir í „frjálsræðinu"!
I
■ Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1967 verð-
ur til fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar síðdegis í dag,
en síðari umræða og endanleg afgreiðsla verður væntanlega
að hálfum mánuði liðnum.
!
En það eru fleiri mál á dag-
skrá borgarstjórnarfundarins í
dag en fjárhagsáætlunin, fund-
argerðir nefnda og ráða, fyrir-
spurnir og tillögur. Má því gera
ráð fyrir að teygist mjög úr
fundinum og hann standi jafnvel
fram á nótt.
Meðal tillagnanna sem fyrir
fundinum liggja eru fjórar til-
lögur borgarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins um ýmis mál.
Þetta eru tillögumar:
+ um að hraðað verði fram-
kvæmdum við byggingu Borg-
arsjúkrahússins nýja í Foss-
vogi.
•4r um byggingu dagheimilis
fyrir Árbæjarhverfi og tveggja
f jöiskylduheimila,.
um byggingu skóla fyrir hiA
nýja Breiðholtshverfi, og
•4r um afgjaid nokkurra borgar-
fyrirtækja, þ.e. að hætt skuli
skattlagningu Rafmagnsveitu,
Hitaveitu og Vatnsveitu og
jafnframt sé athugaðir mögu-
leikar á Iækkun á gjaldskrám
a.m.k. tveggja fyrrnefndu fyr-
irtækjanna.
Nýja stú-
dentablaðið
Nýja stúdentablaðið kemur öt
í dag, en útgefandi þess er Fé-
lág róttækra stúdenta. Blaðið
hefst með inngangi frá ritnefnd-
inni, þar sem fjallað er um
kosningar í Háskólanum. Thor
Vilhjálmsson á grein, sem hann
nefnir „Andlegt frelsi og Há-
skóli íslands". Svavar Gestsson
stud. jur. skrifar greinina „Er
öflun þekkingar forréttindi á Is-
landi?“ Þá er Halldórs þáttur.
Halldórssonar, þar sem rakinner
ferill þess manns í sambandi við
heimsókn Söru Lidman hingaðtil
lands og fræg er orðin. Sagt
er frá vetrarstarfi Félags rót-
tækra stúdenta og lög þess birt,
en á baksíðu er þáttur, sem
kallaður er „Vestantórur“. Kvæði
eru eftir Friðrik Guðna og Bar-
áttufúsa: Tileinkun og Helvítis
auðvaldið.
Samkomulag náiist
/ sjónvargtsdeilunni
I gær náðist samkomulag i
deilu 8 tæknimanna sjónvarps-
ins við ríkissjóð. Eftirfarandi
frétt frá uræddum tækni
mönnum barst blaðinu i gær-
íslendingar koma ekki fram sem fullvalda
þjód nema breyta framkvæmd utanríkismála
Guðmundur í. Guðmundsson lýstur ósannindamaður
■ Fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðmundur í. Guðmundsson, var lýstur
ósannindamaður á fundi Alþingis í gær, og haft við orð að krefjast þess að
Alþingi skipi rannsöknamefnd til að rannsaka móðgandi ummæli sem
núverandi u’tanríkisráðherra hafði eftir Guðmundi um þingmenn þá, sem
setið hafa í utanríkismálanefnd þingsins á undanfömum ámm.
■ Ólafur Jóhannesson, Einar Olgeirsson og Þórarinn Þórarinsson kröfðust
þess eindregið á fundi sameinaðs þings í gær að breytingar yrðu á fram-
kvæmd utanríkismála, og utanríkismálanefnd þingsins höfð þar með í ráð-
um og ákvörðunum.
..Samkomulag hefur náðst um
launakjör 8 taeknimanna sjón-
varpsins. Er samkomulagið gert
á grundvelli þeirra tillagna, sem
launamálanefnd ríkisins gerði. A
hinn bóginn hefur fjármála-
ráðuneytið með bréfi dags. 30.
nóvember heitið að beita sér
fyrir því að launamál umræddra
tæknimanna verði tekin tilraeki-
legrar athugunar við undirbún-
ing næstu kjarasamninga við
ríkisstarfsmenn.“
Hér mun vera um nókkrar
hækkanir að ræða, en þó ekki
eins og tæknimennimir fóm
fram á. Kemur þvi ekki til stöðv-
ur.ar sjónvarpsins að sinni.
Hans G, Andersen lelti
*
i
Á fundi sameinaðs þings f
gaer var mest rætt um þingsá-
lyktunartillögu Framsóknarþing-
manna um rétt Islendinga til
landgrunnsins, og var það fram-
hald fyrri umræðu. Utanríkis-
málaráðherra Emil Jónsson lagð-
ist gegn tillögunni sem fjallar
um að Alþingi kjósi sjö manna
nefnd til að vinna ásamt ríkis-
stjórninni að því að afla viður-
kenningar á rétti íslands til
landgrunnsins. Ráðherrann skýrði
hinsvegar frá að ríkisstjómin
hefði ráðið Hans G. Andersen
ambassador í Osló til að rann-
saka málið, „biologiskt, efna-
hagslega og lagalega“.
Það var við umræður um þetia
mál, sem spunnust nokkrar al-
mennar umræður um meðferð
utanríkismála, sem vikið er að í
annarri frétt. — Umræðunni var
1 frestað.
1 , umræðum um þingsálykt-
wnartilíögur um landgrunnsmál
átaldi Ólafur Jóhannesson að
ekki skyldi að jafnaði lögð
fyrir utanríkismálanefnd þings-
ins mál er varða stefnu ríkis-
stjómarinnar í þeim málum og
þar á meðal afstaða Islands á
þingi Sameinuðu þjóðanna.
í svari játaði Emil Jónsson
utanríkisráðherra að þetta væri
rétt og þyrfti að breytast og
vildi hann fyrir sitt leyti að
þvi vinna. En ástæðan væri sú
að fyrrverandi utanríkisráð-
herra hefði talið sig verða svo
fyrir barðinu á utanríkismála-
nefnd að hann gæti ekki hafí
við hana eðlileg samskipti og
hefðu nefndarmenn rofið trúnað
HandrítasjóBurínn var afhentur 7 gær
Ilandritasjóðurinn sem ýmis félagasamtök höfðu f^rgöngu um að safnað var fyrir li árum, var af-
hentur menntamálaráðherra í gær við athöfn í Ráðherrabústaðnum- Það var Páll Ásgeir Tryggva-
son sem afhenti gjafabréfið fyrir hönd framkvæmdanefndar söfnunarinnar. Viðstaddur var m. a. for-
seti Islands hr- Ásgeir Ásgeirsson, sem sést hér á myndinni ásamt Páli Ásgeiri Tryggvasyni (til
Framhald á 2. síðu. i'instri) og Gylfa Þ. Gíslasyni menntamálaráðherra. — (Ljósm- Þjóðv- A- K.l. — S»iá frétt á m síðu.