Þjóðviljinn - 10.12.1966, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 10. desember 1966.
Sextugur:
Guðmundur Björnsson
Guðmundur Björnsson, Skúla-
götu 52. verður sextugur í dag.
Hann er fæddur að Efstugrund
undir Eyjafjöllum. 10 des. 1906.
Foreldrar hans voru Bjöm
bóndi þar Guðmundsson og
kona hans Kristjana Jónsdótt-
ir-' Var hún af þingeysku bergi
brotin, fædd að Ytri-Tungu á
Tjömesi, en fluttist ung suður
með síra Kjartani Einarssyni og
konu hans, er þau fluttu frá
Húsavfk að Holti undir Eyja-
fjöllumi Þau Björn og Kristj-
ana voru talin sæmdarhjón og
er minnzt með virðingu af
gomlum Eyfellingum.
Ekki hirði . ég að rekja ætt
Guðmundar frekar, þó þar sé
vissulega skammt upp að rekja
til ágætra manna. en nú lifa
fáir að ég hygg á ættgöfginni,
sem betur fer, ef ekki eru
aðrir verðleikar. En Guðmund-
ur hefur ávallt lifað á eigin
atgervi og hefur verið hinn nýt-
asti maður bæði til sjós og
lands- öruggur maður og
skyldurækinn í verkum sínum
og öllum athöfnum, góðgjam og
vinsæH, stefnufastur og óhvik-
trll verkalýðssinni, sem ber þá
virðingu fyrir sjálfum sér og
stétt sinni, að vilja veg hennar
sem mestan. Það hefi ég eftir
„Deild sjö“
á íslenzku
„Deild 7”, skáldsaga Valery
Tarsis, er komin út í þýðingu
Siglaugs Brynjólfssonar. — Ut-
gefandi er Almenna bókafélag-
ið. Bók þessi var fyrst gefin út
í Englandi í maí 1965 og hefnr
síðan verið þýdd á ýmis tungu-
mál. Höfundurinn kom hingað
til lands sl. sumar í boði Stúd-
entsfélags Reykjavíkur og fl.
samtaka og hélt fyrirlestra.
Guðmundi J., varaformanni
Dagsbrúnar, að Guðmundur
Björnsson sé með allra traust-
ustu félögum Dagsbrúnar og
kom mér það ekki á óvart.
Guðmundur er ódeigur mað-
ur og geiglaus, hvað sem að
höndum ber, og má sannarlega
segja um hann það sem Grim-
ur Thomsen segir í kvæði sínu
um Halldór Snorrason, að hann
sé æðhulauis og jafnhugaður-
Frábært er, með hvílíkri stiH-^
ingu og prúðmennsku Guð-
mundur tók mjög alvarlegu
sjúkdómsáfalli á síðastliðnu ári-
Hefði það flesta miðlungsmenn
bugað og brotið, en þá sést
jafnan bezt, hvað • í menn er
spunnið, er mótlæti og háska
ber að höndum. Og Guðmundur
virðist standa svo til jaínréttur
eftir og er nú sem óðast að
hressast til mikillar gleði vin-
um hans og vandamönnum.
Guðmundur er kvæntur Guð-
mundu Ágústsdóttur, ættaðri úr
Húnaþingi- Hún er framtaks-
söm og hagsýn dugnaðarkona.
Þau eiga þrjá syni, Arinbjöm
rennismið; hann er í fremstu
röð íslenzkra skákmanna. Ey-
þór húsamálari, harðduglegur
og vel kynntur- Yngstur er Ás-
mundur, sem stundar háskóla-
nám eriendis- Óhætt er að
segja, að þau Guðmundur og
kona hans hafi bamalán, því
allir eru synir þeirra sénstakir
efnismenn,.
Guðmundur er maður hlé-
drægur, hógvær og yfirlætis-
laus eins og flestir mann-
dómsmenn. En mannkostir
hans koma æ betur í ljós, eft-
ir því sem kynnin verða lengri-
Ég vil í tilefni afmælis hans
flytja honum og konu hans
beztu árnaðaróskir, og óska
þoim langra b'fdaga og göðrár
heilsu. S. Ól.
Kynning á verknm
ións Þorlákssonar
Á morgun, sunnudaginn 11.
desémber efnir bókmennta- og
listkynninganefnd Stúdentafélags
Háskóla Islands til kynningar á
verkum Jóns Þorlákssonar frá
Bægisá. Andrés Bjömsson lektor
talar um skáldið, háskólástúdent-
ai lesa ljóð og félagar úr Stú-
dentakómum syngja og kveða
undir stjórn Jóns Þórarinssonar-
Kynningin verður í hátíðasal
Háskóla Islands og hefst klukk-
an 2.30. öllur er heimill að-
gangur.
Áttræður í dag
Þorsteinn Björnsson
Þorsteinn Björnsson fyrrver-
andi kaupmaður á Hellu á
Rangárvöllum . er áttræður í
dag. Hann er fæddur í For-
sæludalskvíslum sunnan Frið-
mundarvatns á Auðkúluheiði-
Foreldrar. hans, Bjöm Eysteins-
son og Helga Sigurgeirsdóttir,
leituðu þangað suður á heið-
arnar, er þeim þraut allt í
byggðum eftir harðindin miklu
upp úr 1890 og fjöldi lslend-
inga flýði til Ameríku. Þor-
steinn fæddist fyrsta ár þeirra
hjóna á heiðinni, og þaðan á
hann sínar æskuminningar.
Síðar varð hann umsvifamikili
bóndi suður í Holtum. unz
hann ofreyndist og gat ekki
gengið að erfiðisvinnu um all-
iangt skeið. Þá gerðist hann
kaupmaður, stofnaði verzlunina
Hellu og reisti fyrstu húsin við
Rangárbrú 1927. Þorsteinn seg-
ist sjálfur aldrei hafa verið
mjög fenginn fyrir kaup-
mennsku, jafnan hálfleiðzt sá
starfi. Allt um það efldist
mjög verzlun hans um skeið,
Engin
skil?igrein
Fyrir alþingi liggur nú
frumvarp um kristnisjóð. Til-
drögin eru þau að á undSn-
fömum árum og áratugum
hafa æði mörg prestaköll
lagzt niður sökum þess að
klerkar hafa ekki fengizt til
starfa, og hefur ríkið haft
nokkurn sparnað af þessum
samdrætti í embættiskerfi
kirkjunnar. Kristnisjóði er
ætlað að koma í veg fyrir
þennan spamað; þahgað eiga
að renna þær upphæðir sem
ríkissjóður hefur að undan-
fömu losnað við að greiða,
og er sú fúlga áætluð um
fjórar mil.iónir króna á ári.
Áður en alþingismenn á-
kveða að sólunda nýjum milj-
ónum til kirkjunnar á þess-
um verðstöðvunartímum, ættu
þeir að gera kröfu til þess
að 'biskupsembættið gerði
hreint fyrir sínum dyrum
fjárhag^lega. Liðið er nú hátt
á annað ár siðan efnt var til
Skálholtssöfnunar með ferleg-
um gný. ráðinn söfnunarstjóri
á prófessorslaunum og annað
starfsfólk, opnuð skrifstofa
og lagt í stórmikinn annan
kostnað. Tilkvnnt var að
söfnunin ætti aðeíns að
standa til ársloka 1965 og þá
yrði birt. skiiagrein. Síðan er
liðið eitt ár og skilagreinin
er ókomin enn; enginn veit
hvort ágóði varð af söfnun-
inni eða hvort hún stóð ef til
vill ekki undir tilkostnaði.
Hins vegar lenti kirkjan í
einkar hvimleiðu * stímabraki
við fjármálamenn fyrir hæsta-
rétti, en austur í Skálholti er
fjárfestingarsafn Kára B.
Heigasonar fjármálamanns
geymt í rammlæstu turnher-
bergi og hefur enginn lykil að
því nema biskupinn; jafnvel
klerkurinn á staðnum fær
ekki að líta í bók sér til hug-
arhægðar á skammdegiskvöld-
um.
Það er bæði siðferðileg og
lagaleg skylda að gerð sé
grein fyrir söfnunarfé, jafn-
vél þótt biskupsskrifstofan
eigi í hlut. En er ef til vill
erfitt að telja söfnuninni lok-
ið fyrr en búið er að skatt-
leggja ríkið í nýjan kristni-
sjóð?
Ekiki
í leyndum
í umræðum á þingi um
kristnisjóð hélt Einar Olgeirs-
son bráðskemmtilega ræðu
og vék m.a. að heiðingjatrú-
boðinu i Kaupmannahöfn.
Morgunblaðið greinir frá því
að Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra hafi þá risið til
andmæla og sagt m. a.: „Ég
hef oft komið til Hafnar og
þá hef ég svo til alltaf rekizt
á séra Jónas Gíslason á ílug-
vellinum, og er hann þá ýmist
að taka á móti eða fylgja
sjúkum til flugvallarins. Við
vitum, að til Hafnar leita
margir fársjúkir, og það starf
sem séra Jónas vinnurþar er
ómetanlegt“. Skal þessi vitn-
isburður forsætisráðherrans
sízt dreginn í efa, enda hafa
hliðstæðar frásagnir ásamt
myndum verið reglulegt og
næsta fyrirferðamikið efni í
Morgunblaðinu um langt
skeið. Er svo að sjá sem
Hafnarprestur festi takmark-
aðan trúnað á orð fjallræð-
unnar: „En þegar þú gefur
ölmusu, þá viti vinstri hönd
þín ekki hvað hægri hönd þín
gjörir, til þess' að ölmusa þin
sé í leyndum, og faðir þinn,
sem sér í leyndum, mun end-
urgjalda þér.“ Hitt munu
margir mæla að nær hefði
verið að ráða hjúkrunarliða
eða lækni til þess að liðsinna
sjúkum íslendingum í Kaup-
mannahöfn en prest.
En það er á allra vitorði að
embættið í Kaupmannahöfn
stafaði hvorki af umhyggju
fyrir sjúku fólki né sálarheill
heiðingja. Jónas Gíslason hef-
ur tvívegis sótt um prests-
embætti í Reykjavík, í bæði'
skiptin var allri kosningavél
Sjálfstæðisflokksins beitt í
hans þágu, og Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra
hafði sig sjálfur mjög í
frammi. Þessi harkalega póli-
tíska íhlutun um prestskosn-
ingar hafði þó öfug áhrif; Jón-
as Gíslason féll í bæði skiptin.
Þá var var gripið til þess ráðs
að stofna í Kaupmannahöfn
dýrasta prestsembætti í sögu
þjóðarinnar og veita Jónasi
það án þess að aðrir prestar
hefðu leyfi til að sækja. Vafa-
laust er það embætti hugsað
sem stökkpallur til frama hér-
lendis þótt síðar verði; að
minnsta kosti benda hinar si
endurteknu og vafalaust
sönnu frásagnir Um líknsenu
séra Jónasar til þess, að hanr
telji tryggara að láta sér ekki
nægja þá umbtm efna sem
fást mun hjá föðurnum í
leyndum. — Artistri.
og hann gerðist éin helzti
brautryðjandi Rangæinga í
verzlunar- og flutningamálum-
Þorsteinn er mikill greiðamað-
ur, rak mikla lánsverzlun, þótti
ekki harðdrægur við innheimt-
ur og tapaði\ eignum sinum í
kreppunni. Árið 1935 seldi hann
kaupfélaginu Þór verzlun sjna,
en gerðist bóndi á Selsundi,
öðrum efsta bæ Rangárvalla.
Þar bjó hann, unz Hekla gaus,
að hann fluttist til Hafnarfjarð-
ar. Þar hefur hann m.a- ann-
azt innheimtu og dreifingu
blaða og bóka fyrir ýmis fyr-
irtæki. Þjóðviljinn naut at-
orku hans um skeið og sendir
honum og fjölskyldu hans sínar
beztu árnaðaróskir.
S/óvenskt
ævintýrí
Bókaútgáfan Þjálfi hefur gef-
ið út snotra bamabók sem heit-
ir Lindin góða.
Ema Starovasnik, júgóslav-
nesk skáldkona, hefur 'fært í
letur ævintýri úr heimahögum
sínum í Slóveníu. Myndir gerði
Ive Subic, en Hallgrímur Sæ-
mundsson kennari þýddi úr
esperanto.
ÞVOTTUR
Tökum frágangsþvott
og blautþvott.
Fljót og góð afgreiðsla
Nýja þvottahúsið,
Ránargötu 50.
Sími 22916.
t...
Saumavé!aviðg:erðir
Ljósmyndavéla-
Yiðgerðir
h'LJOT AFGREIÐSLA
SYL.GJA
Laufásvegi 19 (bakhús)
Sími 12656.
-
Verk fyrír
íslenika ÁlfélagiB hf.
... ’■>
Þau íslenzk fyrirtæki sem viija taka að sér eftir-
talin verkefni við byggingu álverksmiðjunnar í
Straumsvík:
mótasmíði, steypu- og múrvinnu,
gatna- og holræsagerð,
blikksmíði og þakklæðningar,
jámsmíði,
hita- og hreinlætislagnir,
pípulagnir,
glugga-, hurða- og innréttingasmíði,
eru vinsamlegast beðin að tilkynna það skriflega
á ensku eða þýzku til
Schweizerische Aluminium AG
Postfach
8048 Zurich, Switzerland.
Fyrirtækjunum verða send eyðublöð með fyrir-'
spumum til útfyllingar. Ennfremur verða gefnar
nánari upplýsingar, ef óskað er.
Jarðvinna í Straumsvík' hefst í febrúar 1967 og er
reiknað með, að bygging og frágangur verksmiðj-
unnar taki rúmlega 2 ár.
MuniB JóhmarkaBinn
í Blómaskálanum við Nýbýlaveg og
Blómabúðinni, Laugavegi 63.
MIKIÐ ÚRVAL.
Blómaskálinn.
Jóiahreingerningnr
Kústar, burstar, þveglar,
fötur, balar, þvottaföt,
þvottakörfur, hreinlætisvörur,
strauborð, tröppur.
SBNDUM HEIM.
Hafnarstræti 21, Rvík. — Sími 1-33-36.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Keykjavík o.fl. fer fram.g
nauðungaruppboð að Síðumúla 20 hér í borg, mánu-
daginn 19. desember n.k. kl. m síðdegis og verða
þar seldar eftirtaldar bifreiðir;
R-2882 R-3221 R-3746 R-3969 R-4162 R-4532 R-4877
R-7029 R-8224 R-8737 R-10525 R10569 R-11219
R-11792 R-12152 R-12985 R-13468 R13629 R-13894
R-14392 R-14699 R-14857 R-15014 R-15124 R-15598
R-15845 R-16077 R-16734 R-1677R R-i,<jR98 R-17402
X-1304 Y-795.
Ennfremur verða seldar eftirtaidar oskrásettar bif-
reiðir: Opel Kapitan, 1958, fólksbifreið árg. 1964,
Mercedes Benz, fólksb. 1962, Mercedes Benz 220,
1960, Opel Caravan 1958, Opel Record 1957. 10
sendiferðabifreiðir, Ford Taunus 1958, alm.bifreið
(17 m.) 1958, Mercedes Benz 17 m almenníngsbif-
reið og hús á vörubifreið.
Greiðsla fari fram við hamarshöge
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.