Þjóðviljinn - 13.12.1966, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 13.12.1966, Blaðsíða 12
/ i i Bréf miðstjárnar ASÍ tíl ríkis- stjérsmrinnar um kaupgjaldsmálin \ „Miðstjórn Alþýðusambands íslands sendir hæstvirtri rík- isstjóm hér með ályktun þá um kjaramál, sem 30. þing Al- þýðusambandsins samþykkti. I ályktun þessari er í sjö töluliðum gerð grein fyrir þeim þjóðfélagsaðgerðum, sem gera eigi mögulegar þær kjara- bætur, sem verkalýðshreyfing- in nú leggur höfuðáherzlu á að ná fram, nefnilega stytt- ingu vinnutímans án skerð- ingar'tekna og aukningu kaup- máttar með dagvinnu einni saman. Þá vekjum vér sérstaka at- hygli á, að auknar ráðstöf- unartekjur verkafólks em nú að miklu leyti fengnar með lengdum vinnutíma og greiðsi- um umfram almenna kjara- samninga, en aðeins að minni- hluta með hsekkun kaups samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga og launabótum vegna styttingar dagvinnu- tima. Nú eru blikur á lofti um, að atvinnulífið kunni aðdrag- ast saman í vaxandi mæli, en slíkt mundi samkvæmt fram- ansögðu geta valdið stórfelldri skerðingu á lífskjörum vinnu- stéttanna. Með tilliti til þess leggur verkalýðshreyfingin þunga á- herzlu á, að í komandi samn- ingum verði raungildi heild- artekna tryggt þótt tekjur af yfirvinnu kynnu að skerðast. Síðast en ekki sízt er í á- lyktuninni skýlaus yfirlýsing um stuðning verkalýðssamtak- anna við sérhverjar raunhæf- ar aðgerðir, er varanlega geti dregið úr dýrtíð og verð- bólgu, stjrrki grundvöll höf- uðatvinnuveganna og tryggi launþegum réttláta hlutdeild í þjóðartekjum. Er þetta staö- festing á margyfirlýstri stefnu verkalýðssamtakanna í dýr- tíðarmálum. En ekkert er fjær sanni, en að verkalýðshreyfingin leggi með þessu blessun sfna yfir sýndartilburði og yfirbreiðslu- aðferðir, sem ekki gxápa á sjálfu verðbólguvandamálinu. heldur miðast við það eittað halda skráðri vísitölu í skefj- um á yfirborðinu. Við slíkum vinnubrögðum í þessu erfiða þjóðfélagsvanda- máli varar verkalýðshreyfing- in alvarlega og tekur afstöðu gegn hverskonar haldlausum kákráðstöfunum. verði reyndin sú um fram- kvæmd á frumvarpi ríkis- stjórnarinnar tii laga um heimild til verðstöðvunar, ng því fáist ekki breytt í raun- hæfara horf, með þeirri af- leiðingu, að dýrtíðin verði ekki stöðvuð, lýsir verkalýðs- hreyfingin ábyrgðinni af því á hendur ríkisstjóminni einni saman". Steingrimur á sýningunni í gær. Myndin heitir „Borgin grætur“ og er útsýni úr glugga á háhýsi í Austurbrún þar sem hann bjó um t.ima. AIls seldust við opnunina í gær 12 mjmdir af þeim 59 sem eru til sölu óg var þetta ein hin fyrsta sem keypt var. Og það var ekki Matthías Moggaritstjóri sem keypti hana þrátt fyrir skyldleikann við borgina sem hló. Steingrímur Sigurðsson opn- aði málverkasýningu J gær Steingrímur Sigurðsson opn- aði málverkasýningu í Boga- sainum í gær og er þá hlut- verkum skipt; hingað til hef- ur Steingrímur látið sér nægja að skrifa um myndlist og listamenn, lengst af í Líf og list sællar minningar, en á síðari árum hefur hann starfað sem blaðamaður víð Vísi, og hefur það ekki ver- ið í hámælum að hann fengist við þessa iðju sjálfur, En það kemur reyndgr í ljós við eft- irgrennslan að hann hefur málað meira og minna í nærri tuttugu ár. — Eruð þið bræðurnir búnir að skipta um starf eða hvað? Örlygur skrifar bók eftir bók og þú ert farinn að mála. — Ekki alveg nýlega. Ég hef fengizt við þetta í nærri tuttugu ár, byrjaði þegar ég skrifaði sem mest um myndlist, elzta myndin hér er síðan 1947 „’Bakkus eins og hann var‘\ Annars er megnið af þessu málað í sumar og haust. — Hvernig stendur á því að þú heldur sýningu einmitt núna, eftir öll' þessi ár og hefur ekki sýnt áður? f — Jú, ég hef sýnt áður. Átti einu sinni 'tvær myndir á sýn- ingu Félags frístundamálara, það hafa ví?t fáir séð þá sýningu. En frómt frá sagt þá ætlaði ég að koma út bók núna með við- tölum, en var ekki í nógu góðu skapi til slíks. Svo var ég að bíða eftir svari frá ríkinu hvort það keypti af mér hús á Laug- arvatni og meðan ég beið hafði ég ekki annað að gera, svo segja má að það sé ríkið sem hafi örv- að mig til dáða. Mér leið afar vel meðan ég vkr að þessu. — Þú hefur ekki einskorðað þig við neina eina stefnu í list- inni, málar bæði natúralistískt og abstrakt. — Já. ég get ieyft mér þetta, því ég er ekki atvinnumálari. Myndirnar eru breytilegar,, frá ýmsum tímabilum, ég geri venju- lega 4—5 í einu, og það fer eftir viðgangsefninu hvaða stíl ég vel og hvaða form. — Þær eru Jitlar myndirnar, þó flestir máli nú stærri og stærri myndir. Þú hefur kannski haft þær í þessári stærð með tilliti til sýningar hér í Bogasaln- um? — Já, þetta ér ágætur sýning- arsalur, en ég hef valið mér þessa stærð því hún lætur mér vel. Það er líka dýrt að mála stórar myndir . . . Heyrðu, rammarnir eru merkilegir. Það er hvorki meira né minna en sjálfurborg- arstjórinn í Hveragerði Herbert Jónsson sem hefur smíðað þá. — Og hvað tekur nú við. hætt- irðu í blaðamennsku og helgar þig málaralistinni? — Nei, NEI! Ég er fyrir þó nokkru byrjaður á Vísi aftur og hef ekki snert við mynd síðan. Sýningin verður opin fram á sunnudagskvöld, kl. 2—10 dag- lega og eru flestar myndimar, 59 að tölu, til sölu, sumar þó í einkaeign. Auk þess sýnir Stein- grímur nokkra „muni“: galdra- lamþa, disk, vasa og litla kerl- ingu. * Peng Sen iátinn svara til saka á nýjum fjöldafundi? PEKING 12/12 — Haldinn var enn einn fjöldafundur í Peking í dag, að þessu sinni á helzta leikvángi borgarinnar og munu um 100.000 manns hafa verið þar. Erlendir fréttamenn fengu ekki aðgang að fundinum og gátu því ekki sagt neitt með vissu frá því sem þar hafði gerzt, en þeir segja að orðrómur hafi gengið um að ætlunin hafi verið að láta Peng Sén, fyrrverandi borgarstjóra í Peking, sem varð Valtyr Guðmunds* son sýslumaður Suður-Múlasýslu Um sýslumannsembættið í S- Múlasýslú, sem auglýst hafði verið laust til umsóknar, var einn umsækjandi, Valtýr Guð- mundsson, fulltrúi við sýslu- mannsembættið. Forseti Islands hefur hinn 5. þm. veitt Valtý Guðmundssyni embættið frá 1. janúar n.k. að telja. (Frá dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu). Helgaraflinn sam- tals 10.775 lestir Hagstætt veiðiveður var á síld- armiðunum .fyrir Austurlandi um helgina og var heildaraflinn þessa tvo sólarhringa 10.775 lestir. Frá laugardagsmorgni til sunnudags- morguns fengu 38 skip 5560 1. og frá sunnudagsmorgni til mánudagsmorguns fengu 37 skip 5215 lestir. einna fyrstur að lúta í lægra haldi fyrir rauðu varðliðunum, svara til saka. Fundurinn stóð í sex klukkustundir. ifm helgina höfðu verið fest upp veggblöð í Peking með nýi- úm árásum á Peng Sén og var þess þar krafizt m.a. að hann yrði neyddur til að standa fyrir máli sínu og svara þeirri á- kæru að hann hefði unnið gegn stefnu Mao Tsetungs. í öðrum veggblöðum var frá því skýrt að varðliðar hefðu handtekið Peng fyrr í mánuðinum. Enginn veit með vissu hvar hann er niður kominn, eðc hvort hann hefur verið handtekinn og þá af hverjum. Þriðjudagur 13. desember 1966 — 31. árgangur 285. tölublaó. Viðurkennt í Saigon: 829bandarískar fiugvéiar skotnar niður í Vietnam SAIGON 12/12 — Bandarísk? herstjórnin í Saigon skýrði frá því í dag að samtals hefðu 829 flugvélar hennar verið skotnar Lokað fyrir oliuleiðslur DAMASKUS 12/12 — Lolftð var í dag fyrir olíuleiðslur félags- ins Iraq Petroleum Company um Sýrland til hafnarborgarinnar Banias ó strönd Miðjarðarhafs, Sýrlenzka stjórnin tók leiðslu og aðrar eignir félagsins í Sýr- landi eignarnámi fyrir fjórum dögum.’ 'y Sýrlenzka stjórnin hefur kraf- izt þess að olíufélagið hækki stór- lega greiðslur sínar fyrir að fá að flytja olíuna yfir Sýrland. Um 26 miljónir lesta af olíu hafa árlega 'farið um Banias, en ein- ar 15 miljónir lestir um höfn- ir.a Tripoli í Libanon, en stjórn Libanons hefur. boðað að hún rouni einnig krefjast hæ^rkunar á greiðslum IPC ef félagið verður við kröfum Sýrlendinga. IPC er sameign Shell og BP franskra og bandarískra olíufé- laga. Sinfóníutónleikar haldnir á morgun A morgun, miðvikudag, held- ur Sinfóníuhljómsveit Islands a- fram a-ð kynna fyrir skólaæsk- unni stílsögu hljómsveitartónlist- ar frá upphafi til okkar tíma. Tónleikarnir verfta kl. 14 í Há- skólabíói. Að þessu sinni verður róman- tísk hljómsveitartónlist kynnt. Fluttur verður forleikur að óp- erunni „Frískyttan" eftir Weber, en sú ópera ruddi rómantíkinni braut í Þýzkalandi með sínum almennu vinsseldum, og þar að auki varð hún fyrirmynd siðari rómantískra óperuhöfunda. Þó leikur hljómsveitin þætti úr „fantastísku sinfóníunni" eftir Berlioz. Þessi sinfónía varð einnig áhrifamikil fyxirmynd fyrir franskri rómantík í tónlist. Þar lagðist margt á eitt með aö gera sinfóníuna fólki eftirminni- lega, hún var nýstárleg og öfga- full, hún flutti rómantíska sögu og hið rómantíska líferni höi- undarins var víðfrægt og um- talað. Þá verður fluttur þáttur úr e-moll píanókonsert Chopins, en konsertar voru auk litríkra ópera og 'sinfónískra verka, ein helztu viðfangsefni rómantísku tónskáldanna. Einleikari verð- ur Rögnvaldur Sigurjónsson, en stjórnandi Bohdan Wodiczko. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn, og verður skólafólk á aldrinum 16 til ?1 árs látið ganga fyrir, en annars er öllum heimill aðgangur. niður yfir Norður- og Suður-Vi- etnam. Síðan í ágúst 1964 hefðu 445 flugvélar og 4 þyrlur verið skotnar niður yfir Norður-Viet- nam, en skæruliðar Þjóðfrelsis- fylkingarinnar í Suður-Vietnam hefðu skotið niður 141 flugvél og 236 þyrlur. Við þessar tölur bætist allur sá mikli fjöldi flugvéla sem eyðilagðar hafa verið á jörðu niðri- í Suður-Vietnam, stundum margir tugir í einni árás skæru- liða, og einnig þær flugvélar sem farizt hafa „vegna vélarbilunar" eða af öðrum ástæðum. Talsmaður bandarísku her- stjórnarinnar sagði í dag að Norður-Vietnamar beittu nú æ fleiri MIG-þotum í loftvörnum sínum. Gert er ráð fyrir að Norð- ur-Vietnam hafi nú til umráða 75 MIG-þotur Bandaríkjamenn segjast ekki hafa sannanir fyrir öðru en að vietnamskir flugmenn fljúgi þessum þotum. Ástæðan til þess að þotunum fer stöðugt fjölgandi muni vera sú að æ fleiri vietnamskir flugmenn séu þjálfaðir til að stjórna þeim. Sovétríkin seaija við Olivetti MOSKVU 12/12 — Fulltrúar Oli- vettiverksmiðjanna, eins helzta iðnfyrirtækis Ítalíu, hófu í dag samningaviðræður við fulltrúa sovétstjórnarinnar um byggingu tveggja stórra verksmiðjá i Sov- étríkjunum, sem eiga að fram- leiða skrifstofu- og reiknivélar, fjarskiptatæki o.s.frv. Tass- fréttastofan gaf í skyn í dag að enginn vafi væri á að samningar myndu takast. Gluggahreinsari féll úr stiga Um kl. 2 í gærdag varð slys við Hafnarhúsið. Fullorðinn maður var þar í háum stiga að hreinsa rúður en stiginn rann og maðurinn féll niður úr allmik- illi hæð. Maðurinn, Ásgeir Ás- geirsson, var fluttur á Slysa- varðstofuna og þaðan á Landa- kotsspítala en ókunnugt er um meiðsli hans. Rannsóknarlög- reglunni og öryggiseftirlitinu var tilkynnt um slysið. Sýndarfrumvarp ríkisstjórnarinnar leysir ekki vanda atvinnuveganna , I umræðum á alþingi í gær kom glöggt fram að hið svonefnda verðstöðvunarfrumvarp ríkisstjórn- arinnar er fjarri því að vera einhver allsherjar- lausn á vanda efnahagslífsins í „viðreisnar“öng- þveitinu, eins og stjórnarflokkarnir vilja vera láta. 1 umræðtmum um verðstöðv- unarmál á Alþingi í gær sagði Lúðvík Jósepsson að sér hefði skilizt á | f jármálaráðherra og viðskiptamálaráðherra, þar sem þessi mál hefðu verið rædd, að kæmi til þess að styrkja þyrfti bátaútveginn, togaraútgerðina og fiskvinnslustöðvarnar meira á ár- inu 1967 en á þessu ári, yrði það ekki gert nema með nýjum álögum. Nú væri hins vegarlýst yfir, að þurfi að koma til nýrra álagna sé grundvöllur verð- stöðvunar brostinn. Spurði Lúð- vík Bjama Benediktsson hvort þetta væri einnig hans sjónar- mið. Og hvort hann eða aðrir í ríkisstjórninni létu sér til hugar koma að ekki þyrfti meiri fjár- framlög á næsta ári en þessu tf ætti að halda þessum mikilvægu framléiðslugreinum í fullum rekstri. \ Kvaðst Lúðvík ekki' efastum að ættu þessar atvinnugreinar að ganga eðlilega þyrftu þær að fá stóraukinn stuðning a.m.k. bátarnir og togaramir, og nú virt- ist Ijóst að ríkisstjómin teldi ekki fært að nota til þess tekjuafgang þéssa árs á fjár- lögum. □ Bréf A.S.Í. Hannibal Valdimarsson ræddi frumvarpið og taldi það alltof óákveðið og þyrfti breytinga við sem fælust í brejdingartillögu Alþýðubandalagsins. Hann lýsti afstöðu Alþýðusambandsins til verðstöðvunarmála og kjaramála við undangengna samninga og las bréf miðstjórnarinnar til ríkisstjórnarinnar sem birt er i þessu sama blaði. Spurði hann að lokum hvort stjómin myndi fara gengislækkunarleið, ef verðstöðvun brygðist. □ Forsætisráðherra í misvindi Bjarni Benediktsson hliðraði sér hjá að svara beint spumingu Lúðvíks, en sagði aðeins að kæmi upp sá vandi að bátar, togarar og fiskvinnslustöðvar þyrftu meiri stuðning á naesta ári jrrði að taka allt málið til nýrrar athugunar og rejma að ráða fram úr því án ]>ess að skaða framkvæmd verðstöðvun- arinn. Harm endurtók fyrri játn- ingar um trú sx'na á fullt frjáls- Framhald á 2. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.