Þjóðviljinn - 17.01.1967, Qupperneq 3
Þriðjudagur 17. janúar 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
MkM f ® M f r r M Jk Menningarbyltingin í Kína
Nyjar loftarasir voru gerðar Bændur varaðir við
á skotmörk í nágrenni Hanoi andstæðíngum Maos
Óstaðfestar fregnir um að Bandaríkin hafi takmarkað loftárásirnar
vegna boðskapar sem borizt hafi frá Kína fyrir milligöngu Frakka
SAIGON og WASHINGTON 16/1 — Bandarískar sprengjuflugvél-
ar gerðu aftur í dag árásir á skotmörk í Hanoi-héraði, í næsta ná-
grenni borgarinnar. Voru þetta fyrstu árásirnar á nágrenni Hanoi síð-
an í desember, en þá hafði hvað eftir annað verið ráðizt á úthverfi
borgarinnar. Fimm árásir voru gerðar í dag á svæði umhverfis Hanoi
sem var um 50 km að þvermáli.
Skýjað var yfir Hanoihéraði en
flugvélarnar steyptu sér gegnum
skýin og vörpuðu sprengjum m.a.
á hina miklu olíubirgðastöð í Ha
Gia, aðeins 22 km fyrir norðan
Hanoi. Fyrir vestan borgina réð-
ust þotur af gerðinni F-105 á
flugskeytapalla um 24 km frá
Brasilía flytnr
inn meira magn
af saltfiski
RIO DE JANEIRO 16/1 — Frétta-
maður NTB í Rio de Janeiro seg-
ir að innflutningur á saltfiski til
héraðanna í Norður-Brasiliu hafi
verið óvenju mikill á árinu sem
leið og stafi sú aukning af bvi
að aðflutningsgj öld hafi verið
felld niður. Mest kom af saltfiski
frá Spáni, síðan Frakklandi,
Danmörku og Noregi.
568 þúsund eru nú
atvinnulausir
NtlRNBERG 16/1 — Fjöldi at-
vinnuleysingja í Vestur-Þýzka-
landi var 15. janúar orðinn 563
þúsund, eða 206 þúsundum fleiri
en á sama tíma í fyrra. Búizt
hefur verið við að tala atvinnu-
leysingja í Vestur-Þýzkalandi
verði komin upp í um 700 000 í
vor.
Frú Kennedy og
Manchester ásátt
NEW YORK 16/1 — Sættir hafa
tekizt með þeim Jacqueline
Kennedy og rithöfundinum Wiili-
am Manchester um birtingu á
bók Manchesters um morðið á
Kennedy, „Dauði forseta", og
hefur málshöfðun á hendur
Manchester og forleggjara hans
verið tekin aftur. Manchester
mun hafa samþykkt að felldir
verði úr bókinni þeir kaflar sem
Kennedy-fjölskyldan hefur haft
út á að setja.
Morðingi Khiders
enn á ferðinni?
MADRID 16/1 — Maður nokkur
sem sagður er líkjast mjög þeim
sem skaut alsírska stjórnarand-
stæðinginn Mohammed Khidder
til bana á götu í Madrid fyrir
skömmu skaut í gærkvöld á lög-
reglumann sem ætlaði að hand-
taka hann, særði hann hættu-
lega, en komst sjálfur .undan.
Mesta heræfing
í V-Þýzkalandi
MARBURG 16/1 — Fimmtíu
þúsund vesturþýzkir hermenn
hófu í morgun mestu heræfing-
ar sem haldnar hafa verið í
Vestur-Þýzkalandi eftir seinni
heimsstyriöldina- Auk vestur-
þýzku hermannanna taka þátt í
æfingunum hersveitir frá Banda-
ríkjunum. Frakklrindi Belgíu og
Höllandi.
borginni. Bandaríkjamenn segjast
hafa eyðilagt einn pallinn og
laskað annan.
Miklar loftárásir höfðu verið
gerðar á Norður-Vietnam í gær
og var þá einkum ráðizt á jám-
brautir, brýr og radarstöðvar.
Samtals voru 94 loftárásir gerðar
á Norður-Vietnam i gær. Einna
mest mun tjónið hafa orðið á Vi-
et Tri-jámbrautarstöðinni 50 km
fyrir norðvestan Hanoi.
Boðskapur frá Peking?
Mikla athygli hafa vakið þau
ummæli René Dabernat, rit-
stjóra franska vikublaðsins „Par-
is-Match“, í viðtali við banda-
ríska blaðið „U.S. News and
World Report“ að Bandaríkja-
stjóm hafi borizt sá boðskapur
frá kínversku stjórninni að Kfn-
verjar myndu halda að sér hönd-
um ef Bandaríkin féllust á að
gera ekki innrás í Norður-Viet-
nam eða Kína og létu hjá líða
að gera loftárásir á stíflugarða í
Rauðárdal í Norður-Vietnam.
Dabemat sagði að þessi boð-
skapur hefði borizt til Washing-
ton fyrir milligöngu frönsku
stjómarinnar.
Embættismenn Bandaríkja-
stjómar báru á móti þvf í dag
að loftárásir á Norður-Vietnam
hefðu verið takmarkaðar vegna
boðskapar af þessu tagi. Þeir við-
urkenndu hins vegar að Banda-
ríkjastjóm hefðu á liðnu ári bor-
izt margar orðsendingar frá
„þriðja aðila“ þess 'efnis að kín-
verska stjórnin óskaði þess að
komið væri í veg fyrir beina á-
rekstra milli Bandaríkjamanna
og Kínverja út af Vietnam.
Talsmaður frönsku stjórnarinn-
ar bar einnig á móti því í dag
að hún hefði miðlað nokkrum
boðskap frá Kínverjum til
Bandaríkjamanna.
1 Washington er á það bent
að þessar orðsendingar frá
„þriðja aðila“ séu í fullu sam-
ræmi við margítrekaðar yfirlýs-
ingar Kfnverja sjálfra, þ.e. að
þeir vilji forðast stríð við Banda-
ríkin.
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í dag á
fundi með blaðamönnum að
Bandaríkin myndu ekki hætta
loftárásunum á Norður-Vietnam
f.vrr en vitað væri hver áhrif það
hefði á gang stríðsins. — Stjóm-
in f Hanoi hefur margar leiðir
til að láta okkur vita hver áhrif-
in af stöðvun loftárásanna myndii
verða, sagði hann, þegar hann
ræddi við blaðamenn að loknum
fundi í utanríkismálanefnd öld-
ungadQÍIdarinnar. Á fundinum
sem haldinn var fyrir luktum
dymm mun hafa verið fjallað
um loftárásir Bandaríkjamanna
á íbúðahverfi f Hanoi og öðrum
borgum Norður-Vietnams. Banda-
ríkjastiórn hefur jafnan neitað
því að slíkar árásir hafi verið
gerðar.
6000 f.iölskyldur flúnar
Hernaðaraðgerðum Bandaríkja-
manna í hinum svonefnda „járn-
þríhyrningi" norðvestur af Sai-
gon var haldið áfram um helg-
ina, og segjast þeir hafa fellt 41
skæruliða f viðureignum á sunnu-
dag og hafi há samtals 399 „viet-
congar“ verið felldir síðan að-
gerðirnar hófust fvrir níu dögum.
Um 6.000 bændafjölskyldur á
þessu landsvæði sem Þjóðfrels-
isfylkingin og fyrirrennarar
hennar hafa haft á valdi sinu í
tuttugu. ár hafa flúið heimkynni
sín, eftir að bandarískir hermenn
lögðu þorp þeirra í eyði, brenndu
hús þeirra til kaldra kola og
rótuðu. upp rústunum .með jarð-
ýtum. Tilkynnt hefur verið að
hvert einastá þorp á 150 ferkíló-
metra svæði muni lagt í eyði.
4.000. menn úr landgönguliði
flotans. luku í dag. aðgerðum á
óshólmum Mekongfljóts sem stað-
ið hafa í tíu daga. 1 þessum að-
gerðum tóku þátt sveitir úr bæ.ði
flug-, land- og sjóher Banda-
ríkjanna. Sagt er að samtals hafi
21 skæruliði verið felldur, en 14
verið teknir höndum.
TOKIO 16/1 — Japanska fréttastofan Kyodo segir' að leiðtogar kín-
verskra kommúnista hafi í dag hvatt 500 miljónir bænda landsins til
að vera á verði gagnvart tilraunum flokksstarfsmanna sem andvígir
séu Mao Tsetung til að valda truflunum á framleiðslunni.
Fréttamaður Kyodo í Peking
segir að á veggblöðum sem fest
hafa verið þar upp og sögð eru
gefin út af miðstjórn flokksins
hafi verið skýrt frá því að
valdamenn í flokknum hafi hvatt
landbúnaðarverkamenn til að
hverfa aftur til borganna til að
bera þsr fram óskynsamlegar
kröfur um kjarabætur og frétta-
ritarirn bætir við að talið sé
að með ,,valdamönnum“ sé átt
við starfsmenn flokksins sem
styðji Liú Sjaosji forseta og Teng
Hsiaoping, aðalritara flokksins.
Japsnska fréttastofan segir að
áskoruninni sem birt vár í dag
sé beint til þeirra miljóna kín-
verskra borgarbúa sem á seinni
árum hafa farið út í sveitimar
til framleiðslustarfa- Þeir hafi
Kurt Georg Kiesinger:
jr
Oskir Breta um aðild geta
valdið miklum deilum i EBE
BONN 16/11 — Kurt Georg Kie-
singer, forsætisráðherra Vestur-
Þýzkalands, sem kom heim í dag
frá París þar sem hann ræddi
um helgina við de Gaulle for-
seta, sagði við heimkomuna að
miklar deilur gætu komið upp
í Efnahagsbandalagi Evrópu ef
de Gaulle héldi áfram eindreg-
inni andstöðu sinni við aðild
Breta að bandalaginu. Þau um-
mæli þykja gefa til kynna að
de Gaulle hsfi ítrekað þá and-
stöðu í viðræðunum við Kiesing-
er-
Kiesinger sagði að de Gaulle
væri tortrygginn á alla utan-
ríkisstefnu Breta. Ef Bretar færu
nú formlega fram á að þeir
yrðu teknir í EBE, gæti and-
staða Frakka við aðild þeirra
haft. í för með sér hörð átök
innan bandalagsins-
ftalska stjórnin heitir Bretum
stuðningi
Wilson, forsætisráðherra Breta,
ræddi í dag í Róm f þrjár klst.
við Moro, forsætisráðherra Italíu.
Italska stjórnin hefur heitið
Bretum fyllsta stuðningi ef beir
sækja um unntöku í EBE
verið hvattir til að vera kyrrir
úti í sveitunum þar til miðstjórn-
in hafi kynnt sér hag þeirra og
vandamál-
Sagt var í veggblöðum að
landeigendur, ríkir bændur og
andbyltingarmenn hefðu í hyggju
að valda truflunum í atvinnu-
lífinu til þess að grafa undan
menningarbyltingunni.
Þessi áskorun frá miðstjórn-
inni er talin staðfesta það sem
Sjú Enlæ forsætisráðherra hafði
gefið í skyn í ræðu á laugardag-
inn, að menningarbyltingin væri
nú að færast út í sveitirnar. Sjú
hafði einnig sagt að á þessu ári
myndi „stéttabaráttan" enn fara
harðnandi. Svo virðist sem þátt-
ur ungmenna og námsmanna í
byltingunni fari nú minnkandi,
en við þeim taki verkamenn í
iðnaðinum. Tímarit kommúnista-
flokksins, „Rauði fáninn“. sagði
í dag að forstjórar fyrirtækja
sem hefðu gert sig seka um
skyssur yrðu að beygja sig fyr-
ir gagnrýni fólksins. Að öðrum
kosti myndu þeir bíða algeran
ósigur- Þeir ættu að vera ó-
hræddir við að viðurkenna af-
glöp sin- Þeir ættu ekkert á
hættu ef þeir gerðu það og bættu
ráð sitt.
Fréttaritari AFP í Kanton seg-
ir að rauðir varðliðar streymi
stöðugt inn í borgina. Á fjölda-
fundi sem þar var haldinn var
farið hörðum orðum um Tao Sjú
áróðursstjóra, sem va<r, ,qipp af
frumkvöðlum menningarbylting-
arinnar, en hefur síðar verið
sakaður um andstöðu við stefnu
Maos. Á veggblöðum í Kanton
er hónum gefið að sök að hvetja
til sátta milli stéttanna, látai í
Ijós stuðning við kapítalismann
og hafa gengið í lið með þeim
Liu forseta 00 Ten» flokksrit-
Citroen DS 19 — Bíll botualdarínnar
Framhjóladrif, 85—100 hestafla orka. 170 km hámarkshraði. —
Vökva- og loftfjöðrun, sem tali i er sú fullkomnasta í gervöll-
um bílaiðnaðinum. Hægt að hæ’ika hann og lækka, jafnvel á
fullri ferð. Heldur alltaf sömu æð, hvort fleiri eða færri eru í
honum. Diskabremsur. Tvöfal bremsukerfi. Vökvastýri. —
Vökvaskipting án kúplingar. — Fróðlegt er að sjá hvað bíla-
gagnrýnendur heimsblaðanna hafa sagt um hann:
HOLLAND: „Citroen DS er á margan hátt í far-
arbroddi og bíllinn er búinn að sitja einn að
tæknilegum ágætum í mörg ár. Að vísu eru bæði
Mercedes Benz og Rolls Royce að kaupa at
Citroen leyfi til þess að hafa vökva- og loft-
fiöðrunina. Enda mun óhætt að segja, að enn-
þá hefur ekki verið fundin ADTffT^**
upp fullkomnari fjöðrun.“
ÞVZKALAND: „Bíllinn er framúrskarandi ðr-
uggur og hegðun hans á 160 km hraða staðfestiT
það. Það mun varla unnt að finna bil, sem betur
liggur á vegi. Á slæmum vegum, þar sem aka
verður flestum bílum með gætni, líður Citroen
yfir holumar eins og fljúg-
andi teppi“.
DIE#WELT
CITROEN-umboðið SÖLFELL HF. — Skúlagötu 63 — Sími 17966.
BANDARÍKIN: „Hvernig þessi bíll ligg-
ur á vegi, er hlutur sem maður hættir
aldrei að undrast. Við reyndum ýmis-
legt sem hefði getað virzt vonlaust, en
alltaf stóð hann sig. Maður veit ekki
fyrr en maður er farinn að leita uppi
sportbíla til þess að keppa við . . . Ann-
ars eru heildaráhrifin af Citroen DS 19
þau. að þar er framúrskarandi þægileg-
ur lúxusbíll. Fótarýmið er mjög gott.
ekki sízt að aftan og er til jafns við
hina stærstu, amerisku bíla. Það hlýtur
að vera óhugsandi að fá fyrir þetta
verð nokkurn lúxusbi'
til jafns við Citroen"
CAR^ORIVER
Kjötbúö Suðurvers tilkynnir:
Tökum að okkur veizlur, kalt borð, smurt brauð,
snittur, kokteilsnittur og brauðtertur.
KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, horni Stigahlíðar og
Hamrahlíðar. - Sími 35645. - Geymið auglýsineuna.