Þjóðviljinn - 16.03.1967, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 16.03.1967, Blaðsíða 1
» Edward Heath er væntanlegur hingaB ínótt Fimmtudagur 16. marz 1967 — 32. árgangur — 63. tölublað. Heath verður heiðursgestur á pressuballi Blaðamannafélagsins á föstudagskvöld, og flytur þar ræðu. Þá mun hann flytja fyr- irlestur á laugardaginn klukk- an 4 síðdegis. Nefnir hann fyrir- lesturinn: Hin nýja Evrópa. ÖIl- um er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Á föstudagsmorgun ki. 11.15 gengur Heath á fund forseta fs- lands og að viðræðum þeirra loknum sýna forsetar Alþingis honum Alþingishúsið. Rétt fyrir hádegið heimsækir hann Bjama Benediktsson for- saetisráðherra og kl. 12.30 ræðir hann við Emil Jónsson, utanrík- isráðherra. Kl. 4 ó föstudag mætir Heath á blaðamannafundi sem verður á heimili brezka sendiherrans hér, Halford Mac Leod, en hjá honum býr Heath meðan hann dvelur hér. Um kvöldið er Pressuballið og hefur verið vandað til þess svo sem kostur var á. Verða um 300 géstir í Súlnasalnum. I<S>- ■■■•■■«■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Svik íhaldsins í hitaveitumátiiin íbúa Breiðhotts og Fomwgs Væntanlegir íbúar hins nýja Breiðholtshverfis eiga ekki von á sameiginlegri kyndistöð á vegum Hitaveit- unnar samkvæmt niðurstöð- um borgarráðsfundar í fyrra- dag. Hins vegar verður kom- ið upp kyndistöð fyrir hið nýja Fossvogshverfi en íhald- ið felldi þá tillögu Guðmund- ar Vigfússonar að hún skyldi rekin á sama grundvelli og þjónusta hennar seld sama verði og önnur fjarhitun Hita- veitunnar. Er byggjendum þar þó ætlað að g jiða heim- æðagjöld fyrirfram og öll á þessu ári. Guðmundur Vigfússon lagði einnig til að reist yrði og : rekin af Hitaveitunni kyndi- stöð fyrir hið nýja Breiðholts- hverfi og þjónusta hennar seld á almennu verði Hita- veitunnar. Þessa tillögu felldi íhaldsmeirihlutinn í borgar- ráði en með henni greiddu atkvæði Guðmundur Vigfús- son og Kristján Benedikts- son. íhaldið er þannig ákveð- ið í að svíkja öll sín loforð um hitaveitu eða kyndistöð í Breiðholtshverfi og íbúum Fossvogshverfis er ætlað að greiða 30—40% hærra verð fyrir fjarhitun frá kyndistöð þar en Hitaveitan tekur af öðrum notendum í borginni. Hér er ætlun íhaldsins að leggja þungan bagga á herð- ar væntanlegra íbúa beggja þes'sara hverfa. Sér-kyndiað- staða fyrir hverja einstaka íbúð í Breiðholtshverfi kost- ar samkvæmt áætlun hita- veitustjóra ekki undir 50 þúsund krónum í stofnkostn- aði og er búið að samþykkja þar mörg hús án þess að gert sé ,ráð fyrir sérkyndingu og reykháfi. íbúum Fossvogs- hverfis er svo ætlað að búa við 30—40% hærri kynding- arkostnað en öðrum notend- um Hitaveitunnar. Þessi afstaða íhaldsins' er svo furðuleg og uppgjöf þess í hitaveitumálum svo alger að hún' mún vekja almenna undrun og án efa hörð mót- mæli þeirra sem hlut eiga að máli. Ákvörðun borgarráðs í hita- veitumálum þessara hverfa verður eitt aðalumræðuefnið á borgarstjórnarfundi sem j hefst í dag kl. 5 síðdegis. Vill Alþingi veita stuðning tillögum Ú Þunts til luusnar Vietnamstríðinu? Þingsályktunartillaga þriggja Alþýðu- bandalagsmanna til umræðu í gær □ íslendingar hefðu átt vegna sögu sinnar og skilnings á heimsmálum að rista Bandaríkjunum níð fyrir árásarstyrjöldina í Víetnam, sagði Einar Olgeirsson á Alþingi í gær. Hann bætti við að því miður væri þess ekki að vænta að Alþingi ætti nægan siðferðisþrótt til að rísa upp og fordæma þá glæpsamlegu árás, en rétt væri að samúð með víetnömsku þjóðinni í raunum hennar kæmi einn- ig fram úr ræðustól Alþingis. □ Hann og félagar háns í þingflokki Alþýðu- bandalagsins hefðu þó ekki flutt tillögu um for- dæmingu á framferði Bandaríkjanna, heldur ein- ungis tillögu um að Alþingi lýsi stuðningi við fram komnar tillögur Ú Þants, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um lausn Víetnamstríðsins. Hermansson hér íboði róttækra stúdenta Í gærdag kom hingað til lands með flug-vél Flugfélags íslands, H. C. Hermansson, formaður sænska kommúnistaflokksins. Mun hann dvelja hér í nokkra daga í boði Félags róttækra stúdenta og er myndin hér að ofan tekin er fulltrúar félags- ins, Ragnar Arnalds og Ólafur Einarsson bjóða Hermansson vel- kominn. ' Carl Henrik Hermansson er faeddur 14. desember 1917 í Sundvall. Hann lauk prófi í hagfræði frá . háskólanum í Stokkhólmi 1941. í skóla vár hann meðlimur í samtökum ungra jafnaðármanna og síðar félagi í stúdentafélaginu Clarté. Hann gekk i sænska Kommún- istaflokkinn árið 1941 og starf- aði við Ny Dag. SAS og Fí fljúga á leiðinni Norðurlönd - Fœreyjer Skandinavíska flugfélagið SAS hefur ákveðið að nýta réttindi sín á áætlunarflugleiðinni Norð- urlönd : Færeyjar. Hefur SAS komið að máli við FÍ og óskað eftir samstarfi um þetta flug sem FÍ hefur fallizt á. Mun FÍ eftir sem áður fljúga milli ís- lands og Færeyja og Færeyja og Skotlands. f NTB frétt frá Kaupmanna- höfn í gær sagði um þetta mál að færeyska flugfélagið, Faroe Airways hvers aðaleigeridur eru danskir, geti átt von á því að rekstursgrundvöllur þess verði að engu gerður. Félagið hafi í rúm þrjú ár haldið uppi áætl- unarflugi milli Færeyja og Kaupmannahafnar og renni leyfi félagsins til þessa flugs út 1. april n.k. Dönsk flugmálayfir- völd fjalli um þá ósk Færey- inganna að fá leyfið fram- lengt. en SAS hafi nú farið fram á að ndta áðurnefnda heimild til flugsins. Þess má geta að Faroe Airways fékk leyfið upphaflega vegna þess að SAS hafði ekki áhuga á því. Mál þetta hefur nú verið rætt við landsstjómina í Færeyjum. Síðan 1946 hefur Hermansson átt sæti í miðstjórn og fram- kvæmdanefnd sænska Kommún- istaflokksins og á árunum 1946 —57 var hann ritstjóri fræði- rits flokksins „Vár Tid“. 1953— 61 var hann ritari útbreiðslu- mála flokks'ins. Árið 1959 varð hann aðalritstjóri Ny Dag og kjörinn var hann á þing 1962. Hermansson hefur verið for- maður sænska Kommúnista- flokksins síðan 5. janúar 1964. Umræðufundur um hetlbrigðismáí í kvöld kl, 20.15 efna Stúd- entafélag Háskóla Islands og Stúdentafélag Reykjavíkur sam- eiginlega til almenns umræðu- fundar í Sigtúni um heilbrigðis- mál,- stjómsýslu, framkvæmdir og þróun. Framsögumenn eru Ámi Bjömsson læknir, Ásmund- ur Brekkan lœknir og Jóhann Hafstein heilbrigðismálaráöherra. Að loknum framsöguræðum verða frjálsar umræður. Eru all- ir velkomnir á fundinn meðan húsrúm leyfir. Bygging hensmtankanna verði stöðvuð Áskorun frá íbúum í nágrenninu lögð fram í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar Eins og kom fram í grcin eft- ir Gísla Jónsson, rafveitustjóra f Hafnarfirði, í Þjóðviljanum í fyrradag, hafa nær allir íbúar á Hvaleyrarholti í HafnarfirSi og ýmsir fleiri undirritað áskorun til bæjarstjómar um að Olíufé- laginu h.f. verði synjað um Ieyfi f KVÖLD flytur Haukur Helga- son síðara erindi' sitt um þróun kapítaliskra framleiðsluhátta eft- ir 1930. Þá les Þorsteinn skáld frá Hamri ný frumsamin Ijóð. Félagar fjölmennið. — Æ.FJl. til að reisa fleiri bensíngeyma í birgðastöð sinni á Hvaleyrar- holti, Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í fyrradag var á- skorun þessi iögð fram undirrit- uð af nær 400 manns, og fylgdi henni ítarleg greinargerð frá Gisla Jónssyni. Þegar Olíufélagið h.f. fékk á sínum tíma að reisa birgðastöð á Hvaleyrariholti, var þar lítil sem engin þyggð, en samt sem éður var mikil andstaða gegn því að reistir yrðu benzmgeymasr svo nærri bæmrm, og affifcr sén- fræðingar um brunamál töldu það mjög varhugavert. . Nú er risin byggð allt í kringum stöð- ina, þar sem eru 6 stórir bens- íntankar og að mihlum hluta geymt þar flugvélabensín. Er bví naumast umdeilanlegt að af þessu stafar stórkostleg hætta fyrir íbúana þama, og er hin brýnasta nauðsyn að bensín- geymamir verði fjarlægðir úr byggð í Hafnarfirði. Nú hefur það hins vegar gerzt aíð bæjarráð hefur fyrir sitt Jeyti 'leyft, að byggðir verði tveir bensíngeymar til viðbótar í stöð- inni. og eru framkvæmdir þegar hafnar, þótt ekki liggi fyrir end- anlegt samþykki brunaeftirlits. Það er því að vonum að íbúar £ nágrenni við bensínstööina rísa nú upp og mótmæla því að auk- in sé sú hætta, að þarna verði stórkostlegt slys. Verður fróðlegt að sjá hvort meirihluti bæjar- stjómar Hafnarfjarðar treystir sér til að taka á sig þá ábyrgð að hunza þessa sjálfsögðu kröfu íbúanna um að lágmarksöryggis þeirra sé gætt. Þingsályktunartillagan sem þrír þingmenn Alþýðubandalags- ins, Ein^fr, Gils Guðmundsson og Ragnar Arnalds fluttu snemma á þessu þingi kom loks til um- ræðu á fundi Sameinaðs þings í gær. Hún er þannig: „Alþingi ályktar að lýsa yf- ir samþykki sínu við tillögur U Þants, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, til lausn- ar á styrjöldinni í Vietnam. En þær eru þessar: 1. Að Bandaríkin hætti loft- árásum sinum á Norður- Vietnam. 2. Að styrjaldaraðilar í Suð- ur-Vietnam dragi úr hern- aðaraðgerðum sínum. 3. Að Þjóðfrelsishreyfing S- Vietnams verði viðurkennd- ur samningsaðili og allir aðilar fallist á að setjast að samningaborði. Felur Alþingi rikisstjórninni að framfylgja þessari sam- þykkt á alþjóðavettvangi, m.a. tilkynna hana á þingi Sam- einuðu þjóðanna.“ Einar lauk framsöguræðu sinni á þá leið að minna á að þessar tillögur hefðu hlotið góðar und- irtektir á Norðurlöndum, m.a. hefði forsætisráðherra Dana lýst sig fylgjandi þeim. Einnig hér á landi hefðu margar slíkar • radd- ir komið fram, m.a. í ritstjórn- argrein stjórnarblaðsins Vísis. Hvar sem þessar tillögur hafa verið ræddar hefur þeim verið vel tekið, sagði Einar m.a. Við álítum að Alþingi íslendinga eigi að taka undir þessar tillögur. Það er hið minnsta sem við get- um gert til að stuðla að því að binda endi á hræðilega styrj- öld og til þess að gefa þjóð, sem hefur orðið að reyna annað eins og Víetnamþjóðin, tækifæri til þess að útkljá sjálf innan- landsmál sín og ráða sjálf hvernig hún hagar stjórnarfari sínn. ★ 7>/2 miljón kr. tii að drepa hvern skæruliða í alllöngu máli rakti Einar sögu Víetnamþjóðarinnar og þá emkum síðasta kafla þeirrar sögn. þjóðfrelsisbaráttuna, til- Framhald á 3. síðu. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ðsvífinn dómur Einar Bragi dæmdur í sektir og 1 gær var kveðinn upp dómur I Hæstarétti í rriál- inu Einar Bragi Sigurðsson, Kristján Jóhannesson, Sig- urjón Þorbergsson, Stefán Pálsson og Haraldur Henr- ýsson gegn Lárusi Jóhann- essyni, og gagnsök. 1 borgardómi Rvikur hafði Einar Bragi verið dæmdur til að greiða Lár- usi Jóhannessyni miskabæt- ur að upphæð kr. 75.000.— vegna skrifa í vikublaðið Frjálsri þjóð. Gagnáfrýj- andi gerði m.a. þær kröfur fyrir Hæstarétti að staðfest yrðu ákvæði héraðsdóms um ómerkingu ummæla, að refsing aðaláfrýjanda Ein- ars Braga yrði þyngd og honum gert að greiða gagnáfrýjanda miskabætur allt að 500.000.— kr. ásamt vöxtum. í dómi Hæstaréttar eru ummælin dæmd ómerk, Einar Bragi Sigurðsson dæmdur til að greiða 7.500 kr. í ríkissjóð og gagná- frýjanda Lárusi Jóhannes- syni í fébætur 40 þús. kr. ásamt vöxtum og ennfrem- ur 7 þús. kr. í birtingar- kostnað. Einar Bragi Sig- urðsson greiði gagnáfrýj- anda málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti 35 þús. kr. Nú er gagnasöfnun einn- ig lokið i 6 málum fyrir bæjarþingi Reykjavíkur er Lárus Jóhannesson höfðar vegna ummæla í Frjálsri þjóð. )

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.