Þjóðviljinn - 16.03.1967, Blaðsíða 9
1967 — ÞJÖÐVIUINN — SlÐA 0
Ein mistök afhundrað
Framhald af 7. síðu.
um að hjálpa þeim niður í loft-
varnabyrgin. „Hlauptu sjálf, ég
er dauðans matur, hvort eð
er“, sagði kona, sem hjúkrun-
arkona var að bjarga. En
hjúkrunarkonan bar hana út
á bakinu. Hún var drepin á
leiðinni, en sjúklingurinn lifði
nokkra daga. Vanfær kona
missti fóstur í byrginu. Sjón
að sjá, hvernig umhorfs var
eftir árásina! Eða manneskjur,
sem emjuðu undir rústunum!
Við komum þeim sjúkling-
um, sem lifðu, í verkamanna-
búðir í grenndinni og gengum
til þeirra á daginn. Fólk gaf
okkur mat og nauðsynjar. Á
nóttunni leituðum við í rúst-
unum, leituðum að áhöldum og
skýrslum, Fátt var nýtilegt.
Allt röntgenkerfið var eyðilagt.
Svo var það eina nótt, þegar
við vorum að grafa og leita,
að þeir gerðu hálftíma árás.
Þá köstuðu þeir 50 og 100 kílóa
sprengjum hér og þar á svæð-
ið kringum rústirnar. Þá voru
þrír drepnir og nokkrir særð-
ir.
Vopnin, sem þeir nota, bera
alltaf vott um, hvaðvþeir ætla
sér, hvort þeir ætla að eyða
húsum eða drepa menn. Þeir
komu einu sinni 21. ágúst. Þá
skutu þeir bara smákúlum og
„letihundum“. Þessir letihund-
ar eru baukar, fullir af högl-
um. sem tvístrast þegar bauk-
urinn springur. Þau drepa
sjaldan strax. Þau smjúga hér
og þar inn í líkamann og valda
seigdrepandi þjáningum. Það er
erfitt að gera eins marga
skurði og þarf, og erfitt að
finna höglin. En, sem sagt,
deyja fæstir samstundis.
Byrgin. okkar eru ágæt. En
fjöldi deyr vegna þess, að enga
hjálp er að fá. Venjuleg botn-
langabólga getur dregið til
dauða, ef sjúkrahúsið og lækn-
irinn eru úr sögunni. Þeir eru
búnir að jafna við jörðu 40
stór sjúkrahús og um 60 lítil(*
Barnaheimili fara sömu leið.
Fyrst vorum við alltaf að
mótmæla. En við sáum, að það
var alveg þýðingarlaust að
finna að svona glæpum. Banda-
ríkjamenn afgreiða málið: Mis-
tök! segja þeir.
Þegar við heyrum þetta orð,
hljómar það eins og eitthvað
hafi verið gert í meinlausu ó-
gáti. til dæmis, að maður hafi
gripið hatt, sem annar átti. Það
er nú ljóta smámunasemin, að
við skulum vera að nöldra um
svona mistök. En okkur finnst
nú eyðilegging hundrað svona
sjúkrahúsa ekki bætt þó að
Bandaríkjamenn endurtaki orð-
ið mistök hundrað sinnum.
En þar sem það erum við
sem verðum fyrir þessu,
þykir nóg að segja sem svo, að
við lítum einstrengingslega á
hlutina og reynum bara að gera
heiðarlegan tilgang Bandaríkja-
hers tortryggilegan —
Rödd hans skelfur, og hon-
um vöknar um augu. „Fyrir-
géfið“, segir hann og gengur
frá okkur. Sólin er að setjast,
fagurrauð. í kringum okkur
eru rústir og viðurstyggð.
Froskarnir gjamma lágt. Hér
eiga engin orð við.
Við Pham göngum hægt á
eftir lækninum. Hann hefur lot-
ið niður og leitar að einhverju. 1
Við förum til hans. Hann er
orðinn rólegur og mildur á
svipinn og réttir úr sér með
nokkur blóm í hendinni. Stein-
lögð stétt er hér óskemmd við
litla tjörn. Þarna hefur þotið
upp illgresi.
„Sjúklingarnir áttú blómabeð,
hver deild sinn reit, og það var
keppni um, hver væri falleg-
astur.
Ekki datt mér í hug, að blóm
ættu eftir að vaxa upp - úr
þessari hörmung," sagði hann.
„En sjáðu bara“.
Hann ryður illgresinu til
hliðar og garðablómin koma í
ljós, lítil og kyrkingsleg, en
sjálfum sér lík þó. Sverðlilja,
sem ekki hefur getað rétt úr
sér, er samt sprungin út. Fag-
urrauð blómklukka! Hann slít-.
ur hana upp, hagræðir yesæld-
arlegum blómunum réttir mér
vöndinn. Bros hans er góð-
látlegt, eíns og þegar ég hitti
hann fyrr 1 kvöld og lét mér
detta í hug, að hann hefði
gleymt s.tríðinu.
„Illgresið breiðir úr sér
núna til óþrifa. En það hefur
ekki yfirhöndina til lengdar",
segir hann. Hann brosir. En
nú sé ég það á svipnum, að
hann man gjörla. að það ér
stríð.
(Þýtt úr sænska sam-
vinnuritinu VI)
<£>-
Skákþing fsiands
*) Þessar tölur áttu við í
fyrra, þegar þetta er ritað.
Framhald af 12. síðu.
sú nýbreytni að þessu sinni að
fyrri umferðin verður látin
hefjast kl. 11 f.h. en sú síðari
kl. 7 að kvöldi (kl. 19) og stend-
ur hver umferð fjóra tíma. Er
þetta m.a. gert til þess að örva
aðsókn áhorfenda að mótinu en
það er von Skáksambandsins að
skákáhugamenn fjölmenni á mót-
ið og styrki sambandið með því
til húsakaupa sinna.
Dagskrá mótsins verður ann-
ars sem hér segir: Sunnudaginn
19. marz: 1. og 2. umferð, 20.
marz: 3. og 4. umferð, 21. marz:
biðskákir, 22. marz: 5. og 6.
umferð, 23. marz (skírdag): 7.
umferð og biðskákir, 24. marz
(föstudaginn langa): 8. og 9.
umferð, 25. marz: biðskákir og
10. umferð. Þann dag verður og
haldinn aðalfundur Skáksam-
bandsins. 26. marz (páskadag):
biðskákir og 11. umferð, 27. marz:
biðskákir og Hraðskákmót ís-
lands. Hefst það kl. 2 e:h.
Að þessu sinni verður keppt
um verðlaunabikara í þrem
flokkum skákþingsins. Borgar-
smiðjan 'í Kópavogi hefur gefið
veglegan bikar til að keppa um
í landsliðsflokki og Verzlunar-
bankinn hefur gefið bikar til að
keppa um í meistaraflokki. Eru
þessir bikarar báðir nýir og
keppt um þá nú í fyrsta sinn.
Verða þetta farandgripir. Þá gaf
Þjóðviljinn fyrir nokkrum árum
bikar til að keppa um í ung-
lingaflokki og er það einnig
farandgripur.
Rögnvaldur
Framhald af 12. síðu.
Pálsson. Þetta verk hef ég einu
sinni lgikið hér á íslandi og
var það fyrir tveimur árum.
— Hljómleikaferðin mun
standa yfir 10.—24. apríl n.k,
sagði Rögnvaldur að lokum.
Maður fáll í sjó
Það slys varð í gærmorgun
kl. rúmlega ellefu að maður frá
Húsavík, Áki Baldvinsson, féll í
sjóinn niður undan Tollbúðinni í
Reykjavík. Fimm lögreglumenn
fóru á staðinn og fór einn þeirra
í sjóinn á eftir manninum og
náði Áka upp með aðstoð ann-
arra logreglumanna. Voru þegar
hafnar lífgunartilraunir á mann-
inum og þeim haldið áfram í
sjúkrabílnum á leiðinni í Slysa-
varðstofuna. Var manninum
þarna bjargað úr lífsháska og
mun líðan hans vera sæmileg
eftir atvikum.
.Tarðarför mannsins míns
JÓNS BJÖRGVINS JÓNSSONAR sundlaugarvarðar,
Hólmgarði 38,
fer fram föstudaginn 17. marz kl. 10,30 f.h. frá Foss-
vogskap'ellu. — Jarðarförínni verður útvarpað.
Kristín Einarsdóttir.
Börn, tengdaböm, barnabörn,
barnabamabörn og bróðir.
Framhald af 7. siðu.
Þjóðleikhúsinu á' s.l. 3 árum
og nú síðast í barnaleiknum
Galdrakarlinn í Oz. Fay Wern-
er er mjög dugandi kennari
og hefur hlotið lofsamlega
dóma fyrir þá dansa, sem hún
hefur æft og samið fyrir ýms-
ar sýningar hjá Þjóðleikhúsinu
að undanförnu.
Eins og fyrr getur verður
frumsýning á þessum fjórum
ballettum í Lindarbæ. Tveir
eru í klassískum stíl og tveir
eru nútímaballettar. Sá fyrsti
heitir „Kærasta í hverri höfn“
saminn við tónlist eftir Malo-
olm Arnold, þá kemur „Stúlk-
án sem grætur“ við tónlist eftir
Paul Hindemith, „Silkiborð-
arnir“ við tónlist eftir Jacques
Ibert og „Pípuhatturinn" sam-
inn við tónlist eftir Don Gilles.
Undirleik annast kvintett,
en í honum eru hljóðfæraleik-
arar úr Sinfóníuhljómsveit ís-
lands. Hljóðfæraleikarar eru
Gunnar Egilsson, Símon Hunt,
David Ince, Kristján Stephen-
sen og Sigurður Markússon.
Auk þess leikur Kvintettinn
tónlist milli ballettatriða m.a.
hljómlist éftir Mozart og Haydn.
SKIPAUTGCRÐ KIKISINS
M/s ' ESJA -
fer vestur um land til Akureyrax
miðvikudaginn 22. þ.m. kl. 17,00.
Vörumóttaka á fimmtudag og
föstudag til Patreksf jarðar,
Tálknafjarðar, Bíldudals, Þing-
eyrar, Flateyrar, Suðureyrar,
ísaf j., Sigluf j. og Akureyrar. Far-
miðar seldir á mánudag.
SkólavarSustíg 36
símt 23970.
INNHEIMTA
LÖOFXÆei&TÖM?
Kaupið
Minningarkort
Slysavarnafélags
tslands
Viðgerdir
á skinn- og
rúskinnsfatnaði.
Góð þjónusta.
Leðurverkstæði
Úlfars Atlasonar.
Bröttugöiu 3 B
Simi 24-6-78.
Jón Finnsson
'iæstaréttarlögmaðui
Sölvhólsgötu 4.
(Sambandshúsinu III. hæð)
símar 23338 og 12343
ÍBÚÐA
BYGGJENDUR
Smíði á
INNIHURÐUM
hefur verið
sérgrein okkar
um árabil
Kynnið yður
VERÐ
GÆ3ÐI
AFGREIÐSLU
FREST
Hamborgarar
Franskar kartöflur
Bacon og egg
Smurt brauð og
snittur
smArakaffi
Laugavegi 178.
Sími 34780.
Grillsteiktir
KJÚKLINGAR
SMARAKAFFI
Laufavegi 178.
Sími 34780.
SIGURÐUR
ELÍ AS SON %
Auðbrekku 52 - 54,
Kópavogi,
sími 41380 og 41381
Gerið við bílana
ykkar sjálf
— Við sköpum aðstöðuna
Bílaþjónustan
Auðbre1-' 53 Sími 40145.
Kópavogi
SERVIETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Halldór Kristinsson
gullsmiður. Óðinsgötu 4
Sími 16979.
S Æ N G U R
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar, eigum dún- og fið-
urheld ver og gæsadúns-
sængur og kodda af ýms-
úm stærðum
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstig 3. Síml 18740.
(örfá skref frá Laugavegi)
SÍMASTÓLL
Fallegúr - vandaður
Húsgagnaverzlun
AXELS
EYJÓLFSSONAR
Skipholti 7. Sími 10117
Auglýsið f
Þjóðviljanum
SMURSTOÐIN
Kópavogshálsi
Sími 41991
Opin frá kl. 8—18.
A föstudögnm kl. 8—20.
ir ☆ ☆
HEFUR ALLAR
algengustu smurolíuteg-
undir fyrir diesel- og
benzfnvélar.
Sængurfatnaður
— Hvítur og mislitur —
ÆÐARDONSSÆNGUR
GÆSADÚNSSÆNGUR
DRALONSÆNGUR
★
SÆNGURVER
LÖK
KODDAVER
fciíðin
Yfií*
Skólavörðustíg 21.
Laugavegi 38.
Skólavörðustíg 13
Snorrabraut 38.
Þýzku kven- og
unglingabuxurnar
marg eftirspurðu
eru komnar.
Stærðir 36—44
Mjög vönduð og
falleg vara.
*
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannar gæðin.
B Rl DG ESTO NE
veitir aukið
öryggi í akstri.
BRI DGESTONE
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.L
Brautarholti 8
Sími 17-9-84
FRAMLEIÐUM
ÁKLÆÐI
a ailar tegundir bfla.
OTUR
Hringbraut 121.
Sími 10659. '
V5 lR 'VúxruxTátt óezt
RM