Þjóðviljinn - 17.03.1967, Síða 7

Þjóðviljinn - 17.03.1967, Síða 7
Föstudagur 17. marz 1967 — ÞJÖÐVIUINN — SÍÐA J □ Julius\ Nyerere, forseti Tanzaniu, er einn þeirra afrískra stjórnmála- manna sem hvað mestrar virðingar nýt- ur bæði í álfunni og um heim allan. Stjórn hans hefur náð verulegum ár- angri í að bæta hag þessa fátæka lands og Nyerere hefur gert merkilega til- raun til að samhæfa lýðræðislegt fram- tak í stjórnmálum einsflokkgkerfi. □ í síðasta mánuði vakti Nyererer mikla athygli með því að gera grein fyrir því hvernig hann ætli að fram- kvæma „afrískan sósíalisma“ — með svonefndri Arusha-yfirlýsingu. Um leið ákvað hann að þjóðnýta alla banka í landinu svo og inn- og útflutningsfyr- irtæki. Vestræn fyrirtæki, sem hafa haft tögl og hagldir í efnahagslífi Tanz- aníu, eru mjög uggandi um sinn hag, og heyrst hafa hótanir um að kalla á brot.t erlent starfslið í landinu og gera stjórn. landsins á annan hátt lífið leitt. Það er ekki í fyrsta sinn að slíkt gerist' Tanzanía hefur áður orðið fyrir því að efnahagsaðstoð við landið væri tak- mörkuð fyrir sakir sjálfst.æðrar stefnu Nyereres í utanríkismálum. — Um þessa hluti ræðir forsetinn í eftirfar- andi viðtali við bandarískan blaða- mann, Peter Webb. Julius Nyererc forseti — Bankastarfsmenn í höfuðborg Tanzaníu fanga þjóðnýtingu. V ■" . ■ Nyerere, forseti Tanzaníu, segír frá áformum sínum um afrískan sósíalisma Það skiptir mestu að gleyma ekki um hvað er barizt í Stjórnpallar efnahagslífsins Sp: Af hverju ákváöuð þér að hrinda í framkvæmd stór- felldum þjóðnýtingaráformum einmitt nú? Sv: Við höfum verið of ó- ákveðnir áður fyrr, of reikulir í ráði. Við höfum talað um að stjóm okkar vildi hafa virkt eftirlit með helztu. framleiðslu- taekjum en um leið höfum við hvatt til einkaframtaks- Fram að þessu höfum við ekki gert grein fyrir því hvemig við teljum að þessi mismunandi eignaform skuli sterfa. Með Arusha-yfirlýsingunni verður þessi skipting á milli félags- eignar og einkaeignarétfcar Ijós, og eftir að hún hafði verið birt var bezt að láta raunhæfar að- gerðir fylgja fljótt á eftir til að taka fyrir óvissu og vanga- veltur. Sp: Þér segið að þér viljið erlenda fjárfestingu frá einka- Yngstu nemendur Þýzkalands - 1 bænum Duisburg ganga yngstu nemendur Þýzkalands i skóla, sjö stúlkur og sex drengir, þriggja eða fjögurra ára að aldri. Frá því um síðustu áramot hafa þessir smáu lestrarhestar komið, í tilraunaskóla þennan þrisvar í vikuA Þar leika þaa sér saman og syngja — og leika sér þá um leið að bók- stöfum eins og hverju öðru leikfangi. Bókstafimir eru tíu sentí- metrar á hæð og dregnir með rauðum lit á hvítar pappa- töflur. Kennarinn segir að aðilum. Hvemig getur þetta komíð heim við þann yfirgrips- mikla lista yfir fyrirtæki sem stjóm Tanzaníu ætlar að þjóð- nýta? Sv: Ég held ekki að sá listi sé eins yfirgripsmikill og þér viljið vera láta. Ef að þér fær- uð um Dar es Salaam kæmuð þér auga á mjög mörg fyrir- tæki sem ekki hefur verið hreyft við. Við höfum tekið það sem brezkir sósíalisfcar kölluðu á síuum tíma „stjórn- palla efnahagslífsins“. En það er mjög mikið eftir samt. Ef útlendingarnir fara Sp: Hvernig ætlið þið að reka þjóðnýttu fyrirtækin ef erlent starfslið við þau heldur heim? Sv: Við lendum þá í erfið- leikum. En svipuð spuming var lögð fyrir okkur þegar við öðl- uðumst sjálfstæði: „Hvernig þriggja og fjögurra ára gamlir. börnunum gangi furðu vel ac', læra að þekkja með þessu móti ekki aðeins einföldustu orð heldur og allflóknar sam- setningar. Upphafsmaður að þessari til- raun, sem er hin fyrsta sinn- ar tegundar í Vestur-Þýzka- landi, er Karlheinz Walter Hann ætlar að reyna að færa sönnur á það sem sálfræði- prófessoramir Lúckert og Cor- ell hafa haldið fram í ritum sínum. En Lúckert segir á einum stað: „Börn geta lært að lesa löngu áður en þau hafa náð eiginlegum skóla- ætlið þið að stjóma landinu ,ef allir brezkir ebættismenn fara heim?“. Við sögðum þá, að okkur mundi þykja það leitt, en að þessi spuming kæmi ekki sjálfstæðismálinu við. Það sama á við nú. Okkur þætti þaðmjög leitt ef allt erlent starfslið og sérfræðingar ákvæðu að fara úr landi. En það hefur ekki áhrif á þá ákvörðun okkar, að það sé rétt að þjóðnýta. Kínverskar hugmyndir? Sp: 1 Arusha-yfirlýsingunni má heyra bergmál af kenning- um Maó Tse-tungs, einkum að því er varðar þá áherzlu sem lögð er á að menn eigi að „hjálpa sér sjálfir“ — og svo er bent á að þið kallið æsku- lýðshreyfinguna ykkar „Græna varðliðið“. Eruð þér hrifinn af tilraunum Kínverja í þjóðfé- lagsmálum? Sv: Hvers vegna skyldi ég þroska“. Og Correll bætir við: „Lestrarkennsla skólanna get- ur_ verið jafnvel skaðleg". í skólanum í Duisburg er farið eftir þeim aðferðum sem Lúckert mælir með — leik að spjöldnjm með stórum stöfum — en Correll gerir hinsvegar ráð fyrir því að notaðar séu dýrar kennsluvélar. Skóla- stjórinn vonast tiil að geta með þessari tilraun lagt fram sæmilegan skerf til uppeldis- vísindanna, en þar er nú mjög spurt um allt sem mælir með og á móti þvi að börn byrji lestrarnánj kornung. nota góða hugmynd aðeins af því, að kínverskir kommúnist- ar urðu fyrstir til að nota hana? Og reyndar byrjuðum við á áætlunum okkar um sjálfshjálp árið 1962 — áður en nokkur okkar hafði heim- sótt Kína. En maður þarf ekki að vera kommúnisti til að sjá að Kínverjar geta kennt okkur margt að því er varðar efna- hagslega þróun; sú staðreynd að þeir hafa annað pólitfekt kerfi ep við kemur því máli ekki við. Að því er varðar „Græna varðliðiö“ þá varð sú nafngift til í spaugi ... Þér þurfið ekki að óttast að hún verði til þess, að agalausir ung- lingar setji landið á annan endann. Sp: Þér talið um að landið eigi að vera sjálfu sér nóg, en mun landbúnaður Tanzaníu geta séð ykkur fyrir nógum af- urðum þegar tekjurnar hafa aukizt? Sv: Það að við ætlum að vera sjálfum okkur nógir þýð- ir ekki að við hættum að þró- ast .... Við ætlum að gera landbúnaðinn fjölhæfari- Og við höfum ekki sagt að við ætlum ekki að byggja upp iðnað hve- nær sem við getum — og með erlendri aðstoð ef við getum fengið hana. En við verðum að horfast í augu við stað- reyndir .... Ég get ekki veifað sprota og látið til verða iðn- fyrirtæki, eða þótt ekki væri nema þá reynslu í verzlun og tækni, sem gerir kleyft að koma þeim fljótlega á fót. Ekki get ég heldur veifað sprota og látið. öll auðug þ.ióð- félög heimsins senda okkur alla þá peninga og alla þá þekkingu sem við þyrftum til að gjörbreyta atvinnulífi okk- ar. Ríku löndin hafa snúið baki við okkur Sp: En getur Tanzamía dreg- ið sjálft sig upp á hárinu ef ríkið snýr baki við hinum þró- uðu iðnaðarlöndum? Sv: Við höfum ekki orðið til að snúa baki við þróuðum iðn- aðarlöndum — þau hafa snúið baki við þróunarlöndunum. Bandaríkin veita Afríku minni aðstoð á þessu ári en nokkru sinni fyrr. Hvort við getum „togað sjálfa okkur upp á hár- inu“ eða ekki þá er það Ijóst að við getum ekki komizt á- fram með öðrum hætti. Það verður erfitt og árangur verð- ur ekki skjótfenginn. En okk- ur mun takast það samt. Sp: Að hvaða leyti er áætl- unin um erlenda hjálp til Af- riku ábótavant nú? Er hjálp þessi of lítil, eða er henni ekki beint í réttan farveg? Sv: Hún er alltof lítil. Og gleymum ekki annarri stað- reynd: Verulegur hluti þessar- // Þai er leikur a5 læra" ar ,.hjálpar“ er ekki í alltof miklum tengslum við raun- verulegar áætlanir um fram- farir. Mjög oft fer þessi að,- stoð til að hressa upp á valtar stjórnir sem hjálparveitandi hefur mætur á — og sturfdum eru forsendur aðstoðarinnar enn hæpnari. Ef meiri aðstoð<^. væri veitt fyrir milligöngu al- þjóðlegra stofnana, til dæmis Sameinuðu þjóðanna, þá væri erfiðara að nota hana í póli- tískum tilgangi, og aðstoðin gegndi í raun réttri hlutverki sínu: að vera hvati fyrir fram- t.akssemi í hverju landi sem hana fær. Ég veit að við erum að biðja ríku löndin um að skattleggja sjálf sig til að hjálpa okkur, qg að með því er til mikils ætlazt af mannlegum verum. Mönnum verður að skiljast að þeir eiga líka hagsmuna að gæta að því er slíka aðstoð varðar — eins og Bandaríkja- menn skildu að bað var í þágu þeirra eigni hagsmuna að hjálpa til áð rétta Evrópu við eftir stríð. Hugsjónir og hagsýni Sp: Sumir segia að þér séuð of mikill hugsjónamaður en ekki nógu hagsýnn. Teljið þér slíka gagnrýni réttmæta? Sv: Sönn hugsjónastefna á samleið með raunsæi: hér er um tvær hliðar á sömu mynt að ræða. Á annarri birtist framtíðarsýnin, markmiðið. Á hinni sjáum við leiðina að tak- markinu og hindranir á þeirri leið. Það er ekkert jákvætt við að hafa svo miklar áhyggjur af hindrunum á veginum að menn missi siónir af mark- miðinu. En það er iíká slæmt að gana áfram án þess að horfa me'ð raunsæi á þann veg sem farinn. er. Hvorttveggja getur leitt til stórslysa. Hitt er svo sögunnar að kveða á um það hvort ég sjálfur geri mig sekan um aðra hvora þessara yfirsjóna. Ég geri mitt bezta og ég held það stafi meiri hætta í heiminum í dag af því að gleyma um hvað er barizt .. Námsstyrkur frá borgarstjérn Kie! Borgarstjórnin í Kiel mun veita íslenzkum stúdent styrk ■til námsdvalar við háskólann þar í borg næsfca vetur. Styrkurinn nemur DM 350,— á mánuði í tíu mánuði til dval- ar í Kiel 1. október 1967 til 31. júlí 1968, auk þess sem kennslu- gjöld eru gefin eftir. Um styrk þennan geta sótt allir stúdentar, sem hafa stund- að háskólanám í a.m.k- þrjú misseri í guðfræði, lögfræði, hagíræði, læknisfræði. málvís- indum, náttúruvísindum, heim- speki, sagnfræði og landbúnað- arvísindum. Ef styrkhafi óskar eftir því, verður honum komið fyrir í stúdentagarði, þar sem fæði og húsnæði kosfcar um DM 200,^- á mánuði. Styrkhafi skail vera kominn til háskólans eigi síðar en 15. okt. 1967 til undirbúnings und- ir námið, en kennsla hefst 1. nóvember- Umsæk.jendur verða að hafa nægilega kunnáttu í þýzkú. Umsóknir um styrk þennan skal senda skrifstofu Háskóla Islands eigi síðar en L maí n.k. Umsóknum skulu fylgja vott- orð a.m.k. tveggja manna um námsástundun og 'námsárangur og a.m.k. eins manns, sem er persónulega kunnugur umsækj- anda. I TÓNLEIKAR Fiðluleikarinn André Gran- at og Árni Kristjánsson héldu tónleika á vegurn Tónlistar- ■ félagsins í Austurbæjarbíói j mánudaginn 13. marz. Efnis- j skráin var ærig fjölþreytt Sólósónata í g-moll eftir j Bach Sónata í Es dúr op. 12 j nr. 3 eftir Beethoven, La j Campanella eftir Paganini og ýmsir aðrir gamalkunnir • fiðluslagarar. ■ Granat er enginn afburða- ; snillingur, en hann er þokka : legur fiðluleikari, hæverskur, j stundum nokkuð aðlaðandi í túlkun sinni, og flutningur S hans oft viðkunnanlegur. j .Tækni hans bregst ekki oft, j tónn hans er geðslegur en s , ekki á neinn hátt frábær. S Granat skortir persónulegan S blæ, leikur hans er flatur, j túlkun hans óspennandi og j langt frá því að vera fersk. í höndum hans varð t.d. Havanaise eftir Saint-Saens j ósköp venjuleg kaffihúsa- músík, hvergi örlaði á þeim munaðarfulla léttleika sem þarf til að gera þetta verk j áheyrilegt. Granat ■ ■ * Árni Kristjánsson spilaði ■ samvizkusamlega á píanóið, * eVi túlkun hans var dauf og ; blæbrigðasnauð. Bezta atriðið á þessum tón- : leikum vorw þrír gullfallegir • rammungverskir dansar eftir ■ Kodaly. prýðilega spilaðir. j ■ Atli Heimir Sveinsson. j

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.