Þjóðviljinn - 15.04.1967, Qupperneq 10
Er kominn samdráttur í verzlunina?
□ Enginn vaii er á því,
að kaupgreta er nú minnk-
andi hjá mörgum reykvísk-
um heimilum, sagði Ingi Sig-
urðsson, verzlunarstjóri yfir
heimilistækjum hjá Dráttar-
vélum h.f. í Hafnarstræti 23.
Dauf sala hefur verið hjá
okkur í vetur á öllum stærri
rafmagnstækjum, — er kosta
frá 15 þúsund til 20 þúsund
krónur og hygg ég að kolleg-
ar mínir hafi sömu sögu að
segja, — viðurkenna raunar
minnkandi sölu í vetur.
Sumir vilja kenna þetta
sjónvarpsfjárfestingu heimil-
anna og þekki ég raunar
ungan mann, — er stofnaði
heimili í haust og lét sjón-
varpið ganga fyrir ísskápnum
og ryksugunni, — kannski
ekki af því að hann persónu-
lega sjálfur væri svona æst-
ur í sjónvarp heldur heimta
allar barnapíur sjónvarp og
hjónin langaði einstaka sinn-
um út í vetur.
En þetta er ekki orsökin.
— heldur er hún minnkandi
kaupgeta almennt hjá reyk-
vískum heimilum og snöggt-
um minni aukavinna almennt
hjá kvenfólkinu. Margar hús-
mæður, sem hafa unnið úti
hálfs dags vinnu í frystihúsi
eða verksmiðjuiðnaði eru oft
að safna sér fyrir hlut eins
og saumavél eða rafmagns-
tæki og hafa þær sjálfar
komið á vettvang og samið
um afborganir og þessháttar.
Þessar konur hef ég ekki
séð í vetur í minni verzlun.
í gærdag hitti ég úrsmið.
— sem hefur rekið gjafabúð
fyrir fermingar undanfarin
ár, — hann kvartaði yfir
miklu daufari sölu hjá sér
borið saman við undanfar-
andi ár og fólk keypti heldur
ekki eins dýra muni og áður
til fermingargjafa.
Nei, — það er áberandi
minnkandi kaupgeta hjá fólki
og víða má sjá samdráttar-
einkenni, — sagði Ingi, — þá
hefur þetta ekki síður áhrif
á sölu vefnaðarvöru og mat-
vöru í búðum.
Sýna Toyota Corolla
í Húskólabíói í Jag
Verkfræðingafélagið styður
óskir BHM um samningsrétt
SigurvegararniT úr Laugalækjarskóla ásamt Guðmundi Magnússyni skólastjóra og Bjarka Elíassyni
yfirlögre gluþ jóni.
Bandalagi háskólamanna barst
nýlega eftirfarandi ályktun frá
stjóm Verkfræðingafélags ís-
lands:
,,Stjórn Verkfræðingafélags ts-
lamds og fulltrúar félagsins í
Bandalagi háskólamanna telja
núverandi ástand í samningarétt-
armálum háskólamenntaðra
manna með öllu óviðunandi og
lýsa eindregruum stuðningi við
óskir Bandalags háskólamanna
um samningsrétt því til handa
fyrir háskólamenn í opinberri
þjónustu.
Við ákvörðun kjara opinberra
starfsmanna á undanfömum ár-
um hefur Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja ekki tekizt að
halda á málstað háskólamanna á
viðunandi hátt.
Stjórn Verkfræðingafélags ís-
lands beinir þeim ákveðnu til-
mælum til stjómar Bandalags
háskólamanna, að hún beiti sér
af aleffl'i fyrir nauðsynlegum
breytingum á lögum nr. 55/W62
um kjanasamninga opinberra
starfsmanna."
(Fréttati lkynnin g frá Banda-
lagi háskólamanna).
Sl. þriðjudag fór fram verð-
launaafhending í spurninga-
keppni skólabarna um umferð-
armál. 1 keppninni tóku þátt
börn úr 12 ára bekkjardeildum
barnaskólanna í Reykjavík og
lauk henni með sigri Laugar-
lækjarskóla. Þetta er í annað
skíptið sem spumingakeppni fcr
fram, en í fyrra sigraði Eaugar-
nesskólinn.
Keppnin var þrískipt og fór
fyrsti hluti hennar fram 5. des-
ember. Þá voru lagðar 15 spurn-
ingar um umferðarmál fyrir öll
böm í 12 ára bekkjadeildum, sem
börnin svöruðu skriflega. Til
miðhluta keppninnar mætti
skólalið frá hverjum skóla skip-
að þeim nemendum, sem bezt
höfðu staðið sig í fyrsta hluta.
Lauk þeirri keppni með sigri
Laugarlækjarskóla og Melaskóla,
sem síðan kepptu til úrslita. Var
úrslitakeppninni útvarpað í
bamatíma ríkisútvarpsins, 19.
marz, og lauk henni með sigri
Laiugalækjarskólans.
Verðlaunaafhending fór fram
a þriðjudaginn á sal Laugarlækj-
arskóla, að viðstöddum skóla-
stjóra, kennurum og nemendum
skólans. Egill Gestsson, deildar-
stjóri, afhenti fyrirliða skóla-
sveitarinnar fagran farandbikar,
sem samstarfsnefnd bifreiða-
tryggingafélaganna hefur gefið,
ásamt öðrum minni bikor til
eignar. Bjarki Elíasson, yfirlög-
reglixþjónn, flutti við þetta tæki-
færi ávarp og afhenti skólanum
viðurkenningarskjal fyrir góða
frammistöðu frá lögreglustjóran-
um í Reykjavík. Auk Bjarka og
Egils voru viðstaddir verðlauna-
afhendinguna: Ámundur Matthí-
asson, lögregluvarðstjóri, sem
hefur með höndum umferðar-
fræðslu í skólum, Sverrir Guð-
mundsson, aðst. yfirlögreglu-
þjónn, og Pétur Sveinbjamarson,
fulltrúi umferðarnefndar Rvíkur.
Guðmundur Magnússon, skóla-
stjóri, flutti að lokum ávarp,
þakkaði gestum komuna og
kvaðst vona að keppni þessi færi
fram aftur á næsta ári og yrði
einn þáttur f þeirri viðleitni um-
ferðarnefndar og lögreglunnar að
auka umferðarfræðslu í skólum
A. Isjkof talar um sovézk-
an sjávarútveg annað kvöld
■ Sjávarútvegsmálaráðherra Sovétríkjanna, A. ísjkof, sem nú
er staddur hér í boði Eggerts G. Þorsteinssonar ráðherra, talar
nm sovézkan sjávarútveg og svarar fyrirspurnum á kaffikvöldi
sem MÍR gengst fyrir í Sigtúni annað kvöld, sunnudag kl. 2(L3fl.
■ MÍR-félagar og allir þeir sem áhuga hafa á þessum málum
eru yelkomnir. — Túlkað verður á islenzku.
Tvö slys
Það slys varð á Skólabraut 9
á Seltjamamesi í gær að 15 ára
drengur, sem var að reyna að
opna stífan glugga, rak höndina
gegnum rúðuna og skarst illa.
Annar maður meiddist á fingr-
um er hann festist í hringhurð
útidyranna á Skúlagötu 4, þar
sem útvarpið er til húsa.
Flytur erindi um
vatnafiska í Noregi
ræktun og veiðar
Framkvæmdiastjóri Norska
stangveiðisambandsins Knut Rom
verður hér á ferð í Reykjavík 18
og 19. þessa mánaðiar og mun
flytja erindi um ræktun og veíð-
ar vatnafiska í Noregi þriðju-
dagskvöldið 18. apríl kl. 20.30 i
Snorrabúð Hótel Loftleiða.
Þá mun hann ednnig sýna
kvikmyndir um veiðar í Noregi.
Her Þjóðfrelsis-
h reyf ingarinnar
aldrei öflugri
WASHINGTON 14/4 — Banda-
ríska varnarmálaráðuneytið
heldur því fram að her sá, sem
Þjóðfrelsishreyfingin í Suður-Vi-
etnam hefur á að skipa hafi
aldrei verið fjölmennari en nú,
þótt hún hafi, skv. sömu heim-
ild misst 600 þús. manns á
sex árum. Bandaríkjamenn segja
að þeir berjist nú við 287 þús.
manna lið en í fyrra hafi það
verið 230 þúsund.
Um leið er þvi haldið fram
að tekið hafi verið fyrir liðs-
auka frá Norður-Vietnam suður
á bóginn. Þetta þýðir að Þjóð-
frelsishreyfingin hefur náð betri
árangri en áður í því að safna
liði í Suður-Vietnam, að því er
Bandaríkjamenn telja.
Stjórn Starfsmannafélags
ríkisstofnana sjálfkjörin
Tryggvi Sigurbjörnsson kjörinn formaður félagsins
□ Þjóðviljanum barst í
gasr fréttatilkynning frá
Starfsmannafélagi ríkisstofn-
ana um stjórnarkjör í félag-
inu. Varð listi trúnaðar-
mannaráðs sjálfkjörinn þar
eð fleiri tillögur bárust ekki.
Er þetta í fyrsta skipti um
áraþil sem ekki er kosið um
stjóm félagsins því fylgis-
menn ríkisstjórnarinnar inn-
an félagsins hafa lagt á það
ofurkapp að ná yfirráðum í
félaginu — en árangurslaust
og virðast þeir nú hreinlega
hafa gefizt upp. Formanna-
skipti verða nú í félaginu og
tekur Tryggvi Sigurbjörnsson
við af Sverri Júlíussyni sem
verið hefur formaður und-
anfarin ár.
Fréttatálkyniningin um stjórn-
arkjörið er svohljóðandi:
Á trúnaðannannaráðsfundi sem
Meiddist
Tryggvi Sigurbjörnsson
haldinn var í Starfsmannafélagi
ríkisstofnana 31. marz 1967, var
gengið frá tillögum um stjórnar-
menn í kjöri á aðalfundi félags-
ins 1967. Með fundi þessum rann
út frestur til að skila tillögum.
Tillaga trúnaðarmannaráðs var
svohljóðandi:
Formaður: Tryggvi Sigurbjarn-
arson, Rafmagmsveitur ríkisins.
Meðstjómendur:
Einar Ölafsson, Áfengis- og
Tóbaksverzlun ríkisins, Gunnar
Bjarnason. Þjóðleikhúsið, Helgi
Eiríksson, Skipaútgerð ríkisins,
Páll Bergþórsson, Veðurstofa Is-
lands, Sigurður Ö. Helgaspn,
Tollstjóraskrifstofa, Þórhallur
Bjamason, Kleppsspítalinn.
Varastjórn:
Hulda Einarsdóttir, Landsspít-
alinn, Sverrir Júlíusson, Raforku-
málaskrifstofa, Þorvaldur Steina-
son, Kópavogshæli.
Þar sem ekki komu fram til-
lögur um fleiri en kjósa átti,
teljast framangreindir sjálfkjöm-
ir samkvæmt 10. gr. félagslaga.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn í samkomubúsinu Lído,
þriðjudaginn 25. apríl og hefst
hann kl. 20 e.h.
Forráðamenn Japönsku bif-
reiðasölunnar boðuðu fréttamenn
á fund sinn í gær í Háskólabíói,
til að kynna fyrir þeim nýja bif-
reið frá Toyotaverksmiðjunum
í Japan. Bifreið þessi „Toyota
CorolIa“ var fyrst kynnt á bif-
reiðasýningu í Tókíó í október
s.I. og vakti þá þegar mikla at-
hygli, enda hafði lengi verið
búizt við nýrri bifreið frá Toy-
ota.
Bifreiðin, sem sýnd er í Há-
skólabíói er sú fyrsta sinnar teg-
undar í Evrópu. Orri Vigfússon,
framkvæmdastjóri Japönsku bif-
reiðasölunnar skýrði frá því, að
um þessar mundir væru tvö ár
liðin frá því að fyrstu Toyota
bifreiðamar komu til landsine,
en tala þeirra er nú hátt á þriðja
hundrað.
Toyota Corolla er í flokki
„fastback“ bifreiða og er tveggja
dyra. Vélin er 4 strokka vatns-
kæld toppventlavél 1077 cc með
yfirliggjandi kna'stás og 5 höfuð-
legum. Framleiðir hún 60 hö.
við 6000 snúninga og er há-
markshraði 140 km. á klst. Mesta
lengd er 3.85, breidd 1.48 m og
hæð 1.38 m. Hæð frá jörðu und-
ir lægsta punkt er 17 cm. Bif-
reiðin vegur 710 kg. og hlutfallið
við afköst vélar 60 hö verður
því aðeins 11,8 kg. pr. ha, sem
þykir mjög hagstætt í þessum
stærðarflokki bifreiða. Skipting
er í gólfi, 4 gírar áfram og gír-
kassinn fullkomlega samhæfður.
Hámarkshraði í 3. gír er 105
Börnin i Laugalækjarskólanum sigruðu
í árekstri
Harður árekstur va>rð um kl.
hálfsex í gærkvöld á mótum
Reykjanesvegar og Laugateigs
með þeim afleiðingum að öku-
maður annarrar bifreiðarinnar
meiddist og var fluttur á slysa-
varðstofuna og bíll hans stór-
skemmdist.
km. á klst. Benzíneyðsla er 7,7
1. á 100 km.
Þrátt fyrir iítil utanmál, er
bifreiðin rúmgóð að innan. Fram-
sætin enx aðskilin, fullkomlega
stillanleg og er hægt að leggja
þaiu þannig aftur, að rúmt svefn-
pláss skapast fyrir tvo. Við
smíði bifreiðarinnar hefur á-
herzla verið lögð á einangrun
og er m.a. þrefalt gölf í henni
og hún öll klædd að innan, þykk
teppi á gólfum, og flestir málm-
hlutir fóðraðir. Sveifarás með
fimm höfuðlegum og yfirliggj-
andi knastés dregur mjög úr
hávaða vélarinnar. Gluggar eru
stórir og útsýni gott úr öllum
bílnum.
Samkvæmt upplýsingum Orra
Vigfússonar verða fyrstu Corolla
bifreiðamar til afgreiðslu hér á
júlí og er verð þeirra áætlað
um 169.000 00 kr. Toyota Corolla
verður til sýnis í Háskólábíói
ásamt Toyota ©rown 2300 og
Toyota Corona nú yfir helgina.
Ritstjórasklpti
aS ÍbréttaMalí»u
I gærdag voru tilkynnt rit-
stjóraskipti að tþróttablaðimi _1
hádegisverðarboði stjómar l.S.L
og var fráfarandi ritstjórum
þakkað gott starf og verðandi rit-
stjóra fyigt úr hiaði með bless-
unarorðum.
Hafði Gísli HaJldórsson, for-
seti Í.S.Í. orð fyrir þeim félög-
um, enda er sambandið útgef-
andi að ritireu.
Siðastiliðiin. fjögur ár hafa þerr
Hallur Símonarson og öm Eiðs-
son ritstýrt Iþróttablaðinu og er
lokablað þeirra félaga nýútkomið
— myndarlegt að vöxtum — 92
síður og jafnframt 1. tbl. á árinu
Fyrsta tölublað á hverju ári
gegnir nú hlutverki Árbókar og
em þar birtar tölulegar skýrslur
um árangur í einstökum þrótta-
greinum á árinu á undan.
Þá er 2. tbl. á þessu ári einn-
ig komið út og er það fyrsta
blað nýja ritstjórans, — Þórðar
B Sigurðssonar, hins lands-
kunna fþróttamanns. Fjallar það
um 55 ára afmæli f.S.f. og
skíðaíþróttir og lofar góðu um
| framhald ritsins í höndum hams.
Blaðstjóm er skráð hin samn:
Þorsteinn Einarsson, Benedikt
Jakobsson og Sigurg. Guðmunds-
son, og minntist forseti f.S.t.
hins skyndilega fráfalls Bene-
dikts Jakobssonar á dögunum og
risu viðstaddir úr sætum í virð-
ingarskyni við minningu hins
látna.
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdef gh
00
IT-
co
ia
v
co
IM
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guffmundsson
Guðjón Jóhannsson
24. DhS