Þjóðviljinn - 07.06.1967, Qupperneq 10
JO SÍÐA ÞJÓÐVTLJINN — Miövifcudagur 7. júwí ÍÖSZ.
P.N. HUBBARD
BROTHÆTT
GLER
16
en gatan sem ég ök eftir og
beygðd snöggt inn á milli trjánna.
Ég sá afturendann á Morrisnum
á beygjunni og hann hvarf sýn-
um um leið. Ég hemlaði, skrens-
aði tii í lausamölinni á vegbrún-
inni. Ég bakkaði, beygði inn á
afleggjarann, ók eftir beygjunni
eins hratt og ég þorði, og þótt
ótrúlegt megi virðast kom ég
aftur að vegarskiptum. Báðar
götumar sýndust eins. Hvorug
var merkt. Ég stanzaði við vega-
mótin. Hvergi var neitt að sjá
nema gráleit tré, of þétt >g
Iemjandi hvert annað með dauf-
grænu lautfi. Það var engin vís-
bending um hvora leiðina skyldi
halda.
Ég vissi ekki enn hver var í
Morrisnum. Ég bakkaði dálítið
ólundarlega frá vegamótunum,
sneri við og ók að því sem kalla
miátti þjóðveg að vissu marki.
Ég vissi að minnsta kosti hvert
hann lá. Til Grane. En mér fannst
tilgangsiaust fyrir mig að fara
þangað. Ég beygði til vinstri og
héit til baka sömu leið 02 ég
hafði komið. Ég ók hægt of var
að velta ýmsu fyrir mér.
Á fyrsta skikkanlega beina
kaflanum þaut dökkgrænn Morr-
is 1000 framhjá mér. Vangasvip-
urinn var auðþekktur. í þetta
sinn fiautaði ég og hélt hend-
inni á flautunni. Morrisinn ók
upp að vegarbnininni og stanz-
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistoía
Steinu og Dódó
Laugav 18. III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMI 33-968
aði. Ég stanzaði fyrir aftan hann,
fór út úr bílnum og gekk að
Morrisnum. Claudia horfði útum
gluggann með kurteislegum
spumarsvip. En svo gerbreyttist
andlitið á henni. Þótt ég verði
hundrað ára og vitlausari með
hverju ári þá mun ég alltaftrúa
því að henni hafi þcjtt gaman að
sjá mig.
Hún sagði: — Hvað ert þú að
gera hér?
Ég sagði hvert ert þú að fara?
og við sögðum þetta bæði upp í
annað.
Við biðum þess baeði að hitt
svaraði. Ég beið lengur en hún.
— Dunstreet, sagði hún.
Það var bersýnilega rétt. —
Hvaðan ertu að koma? sagði ág.
Hún sendi mér heillandi bros
úr ekilsætinu. Ef dj'rnar hefðu
verið opnar hefði ég kysst hana
meðan hún var enn að brosa.
— Dunstreet, sagði hún.
— Bara að döla?
— Já, einmitt. Það þaut í
skóginum í kringum okkur. Him-
inninn var heiður yfir mjóum
veginum. Á þessum tíma dags
fvrir viku eða svo hafði næstum
verið komið rökkur, en nú var
aðeins kuldaleg dagsbirta. Hún
endurtók spumingu sina: —
Hvað ert þú að gera hér?
— Bara að svipast um. Átt
þú þennan bíl?
Hún kinkaði kolli og brosti
enn. Ég sagði: — Ég reyndi að
ná í þig í morgun. Um hádegis-
leytið. En þú varst ekki heima.
— Alveg rétt. Ég var hjá
frænku minni-
Ég sagði Hka: — Og þú líka?
En henni var fyllsta alvara, og
hún varð steinhissa á orðum
mínum.
Hún sagði: — Ég líka hvað?
— Frænkur, sagði ég.
— Ekki frænkur. Frænka. Ég
annast hana að nokkru leyti.
— Ég vona að það sé rík
frænka.
— Já, það er hún reyndar.
Hún leit framhjá mér á kvalin
trén.
— Finnst þér ekki hálfömur-
legt hér?
Ég sagði: — Strönd Græna-
lands.
— Já, ég veit- En við erum
hér með tvo bíla. Annar þeirra
eða báðir ættu að geta komið
okkur aftur til Dunstreet.
Ég andvarpaði. — Það verða
víst að vera báðir. Þú ekur á
undan. Ég elti,
— Þú ert viss um að þú getir
fylgt eftir?
— Svo framarlega sem ég fæ
ekki hjartaslag eða bíllinn vél-
arbilim. Beyndu bara. Hún
kinkaði kolli og ég gekk aftur
að bílnum mínum. Hún kveikti
á láguljósunum og' ók af stað
eftir þröngum, bugðóttum veg-
inum milli trjánna sem nú stóðu
í ‘hálfrökkri Ég elti rauðu díl-
ana eins og hálfdáleiddur. Það
virtist aðeins andartak bar til
við komum að vegamótunum
þar sem skiltið benti til baka
til Grane.
Rétt áður en við komum að
Cartery afleggjaranum datt mér
nokkuð í hug. Ég flautaði þrisv-
ar. Hún hægði á sér og ég ók
framhjá henni og að vegárbrún-
inni- Ég gekk til baka og sagði:
— Hvað segirðu um humar?
— Ekki í kvöld. Ég get það
ekki. Ég ætla að gefa þér drykk
með hraði og svo verðurðu að
fara aítur á Fleur-de-Lys-
Ég hallaði mér enn fram á
bíllinn. — Á morgun? sagði ég.
— Ég býst við því, En eigum
við nú ekki að halda áfram.
Ég fór aftur inn í bílinn minn
og var ekki fyrr setztur en hún
var komin framhjá mér í átt-
ina til Dunstreet. 1 annað sinn
tapaði ég af henni við götu-
vitann og þegar ég stanzaði í
neðra Vesturstræti vár græni
Morrisinn ekki þar. Ég fór upp
og reyndi dymar. Þær voru
lokaðar, en andartaki síðar
heyrði ég hana hlaupa upp stig-
ann á eftir mér.
Athyglisverða ölglasið stóð
enn í allri sinni dýrð á arin-
hillunni miðri, en þetta kvöld
létum við það vera í friði. Hún
gaf mér drykk í venjulegu
glasi, og ég lagði það frá mér
og tók utanum hana. Ég var
búinn að gleyma því Hvemig
ilmur var af henni. Hún sagði:
— Hvað seiðir þig til Dun-
street?
— Þú, sagði ég. Ég hvíslaði
það inn í hárið á henni.
Hún hörfaði' frá mér og leit
íramaní mig. — Ég og hvað
ar^xað?
— Púkinn sem rekur m;g áfram.
Púkinn rekur mig og seiðkonan
lokkar mig, svo að ég er varnar-
laus.
Hún sagði: — En nú verðurðu
áð fára- Helltu í þig drykknum
og hypjaðu þig.
— Á morgun?
— Allt í lagi. Klukkan sex.
Héma. Ég tæmdi glasið mitt og
fór.
Áttundi kafli.
Ég lauk við fyrsta tebollann
minn og starði upp í loftið. Ég
tók eftir bvi að vindinn hafði
lægt, en eftir var einhver keim-
ur af hausti í loftinu, sem ég
fann meira að segja þar sem ég
lá í rúminu.
Ef Claudia hafði verið að
fara til Grane, hugsaði ég, þá
var timi til kominn að ég færi
þangað. Þetta táknaði ekki að
ákvörðun gærdagsins um að
beygja til vinstri en ekki hægri
hefði verið röng- Þá hafði ég
ekki vitað með vissu að hún
hefði verið í dökkgræna Morr-
isnum. Og mér fannst líka sem
það hefði staðið á sama hvaða
leið ég hefði farið eftir að ég
sneri viö hjá vegamótunum,
áður en langt liði hefði Morr-
isinn þotið framhjá mér og
Claudia hefði setið í honum
og brosað til mín og rekið aUar
aðrar hugsanir úr huga mér.
Það var hins vegar staðreynd
að Claudia hafði beygt inn á
Grane afleggjarann og ég trúði
þvi ekki að vegurinn lægi neitt
annað- Hvað sem leið stignum
til hægri, þá -hlaut stígurinn til
vinstri að minnsta kosti að
liggja aftur út á Graneveginn,
því að annars hefði hún naum-
ast verið búin að ná mér svo
fljótlega eftir að ég hætti eftir-
förinni.
Eg drakk annan tebolla. Eg
bi-aut heilann um hvernig á því
stæði að brugg sem ég myndi
aldrei láta ofaní mig heima hjá
mér, væri gómsætt og jafnvel
notalega hressandi í hótelher-
bergi í bakhliðinni á Fleur-de-
Lys klukkan hálfátta að morgni.
Ég komst að þeirri niðurstöðu
áð það væri vegna þess að ég
hefði ekki búið það til sjólfur.
Ég velti því fyrir mér hvort
Daphne lagaði te handa Davíð
á morgnana og reyndi að gera
mér hana í hugarlund þegar
hún fæi'ði honum bakkann í
vattstungnum morgunslopp. Ekki
svo að skilja að hún þyrfti neitt
vatt. Enda var trúlegast að hann
færði henni teki. Morgunslopp-
ur Claudiu væri trúlega dökk-
ur og mattur og með rennilás
upp í háls. Ég átti að hitta
Claudiu þetta kvöld klukkan sex.
Ef til vill myndi ég líka hitta
morgunsloppinn hennar i fyll-
ingu tímans. Vonin á alls staðar
rétt á sér og voninni fylgir eftir-
vænting. Ég fór fram úr og
byrjaði að klæða mig.
Ég beygði inn á Grane af-
leggjarann klukkan rúmlega
hálfellefu og ók áfram í skeyt-
ingarleysi þangað til ég kom
að veginum sem lá til hægri
og mér sást næstum yfir eins
og daginn áður. Við nánari at-
hugun var þetta naumast annað
en bil milli trjánna. Ég gat bó
gengið úr skugga um eitt. Ég
bakkaði, beygði inn á stíginn
og fór leiðina til vinstri. Þetta
var varla annað en malbikaður
slóði og eins og ég hélt þá lá
hann í stórum sveig í áttina
að Grane veginum- Ég var kom-
inn nokkurn spöl þegar ég mundi
eða þóttist muna að ég hefði
heyrt í bíl á veginum bakvið
mig eftir að ég beygði útaf hon-
um. Enda hlaut jafnvel einhver
að fara eftir Grane veginum.
Ef einhver átti heima í Grane,
hvað svo sem þar var að finna,
þá þurftu íhúarnir trúlega á
brauði og kjöti að halda. Nema
þeir slátruðu sjálfir í matinn
handa sér og íklæddust skinn-
unum, sem virtist alls ekki 6-
hugsandi. Andartaki síðar lá
stígurinn út á ögn breiðari götu
sem ætti sennilega að vera veg-
urinn til Grane en hafði engin
auðkenni af neinu tagi. Miðað
við gærdaginn þá gat það kom-
ið heim. Ef Glaudia hefði ekið
hér með fullum hraða og beygt
síðan til baka til vinstri sömu
leið þá hefði hún sennilega náð
mér einmitt þar sem hún gerði.
Auðvitað gæti, ég gert einmitt
SKOTTA
— Þetta er barnapian- Krakkdnn lokaði mig 001
Terylene buxur
og gallabuxur- í öllum stærðum. — Póstsendum.
Athugið okkar lága verð.
Ó.L Traðarkotssundi 3
(móti Þjóðleikhúsinu) — Sími 23169.
Látið stilla bílinn fyrir vorið
Önnumst hjóla-. Ijósa- og mótorstiliingar. Skiptum um
kerti. platínur Ijósasamlokur o.fl — Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32. sími 13100.
ATHUGIÐ
Getum bætt við okkur klæðningum og við- •
gerðum á bólstruðum húsgögnum. — Góðir
og vanir fagmenn.
Húsgagnav. Þorsteins Sigurðss
Grettisgötu 13. — Simi 14-0-99.
4920 Sprengingin hefur bókstaflega tætt „Tramontana“ í súhdur.
Allt liggur hvað innan um annað: jám, viður og aðrir hlutir.
Það er því erfitt verk að skoða skipið Dg mikil hætta á að
festast, svo Þórður vill ekki víkja frá Angélique ef eitthvað
skyldi koma fyrir hana. — Af þilfarinu fylgjast þau hin með
loftbólunum sem stíga upp á yfirborðið og ljósblossunum frá
myndavélinni. — Þórður og Angélique synda inn í vélarýmið
og finna þar koparplötu sem tekur af aHan vafa um hvaða skip
þetta er. Nafnið „Tramontana" er grafið á hana.
HAZE AIROSOL hrelnsar andrúmsloftið á svipstundn