Þjóðviljinn - 20.06.1967, Page 1
Þriðjudagur 20. júní 1967 — 32. árgangur — 134. tölublað.
Kosygin ítrekar á þingi SÞ
kröfur á hendur ísraei
Síða Q
Afkomuhorfur hænda ískyggi-
legar eftir harðindin í vetur
Vorverk sein — mikill fóðurbætiskostnaður
3 ískyggilega horfir til um afkomu bænda þetta
árið, hvíla á þeim miklar skuldir eftir harðindin
í vetur og vor og alls óvíst hvernig reiðir af í
sumar, sagði Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri
í gær í viðtali við Þjóðviljann um ástand og horf-
ur í landbúnaðinum.
— Aillt heíur verio mik.lu
seinna á ferðinni nú en á með-
alári, sagði búnaðarmálast.ión,
sauðburður var víðast hvar inn-
an húss og vorverk hófust með
allra síðasta móti, en hafa geng-
ið vel seinustu daga meðan gott
veður hefur verið um land alllt.
Þetta hefur verið bændum með
dýrari vorum sem komið hafa,
beit hefur verið léleg og féð við
fulia gjöf fram í maílok og víða
lengur. Hey eru mikils til gefin
upp um land allt og hafa harð-
indin kostað mikla fóðurbætis-
gjöf.
Taldi Halldór Pálsson varia
von tiil að diikar í haust borguðu
upp útgjöld bænda í vetur og
vor, en síðasta ár var bændum
'einnig heldur óhagstaett, klaki í
jörðu fram eftir sumri, heyfeng-
ur rýr og meðaifaliþungi dilka
mun minni en undanfarin ár.
— Annað'hvort verður afurða-
verðið að hæikka eða bændur að
minnka tekjur sínar, sagði Hall-
dór.
Viðri vel héðan af í sumar,
sagði hann, getur sprettan bjarg-
azt. Það er ekiki mjög mikill
kiaki í jörðu nú, hinsvegar er kal
í túnum til stórskaða víða á
Norðurlandi, einkum í Þingeyja-
sýslunum.
Ohætt er að segja, sagði bún-
aðarmóilastjóri að lokum, að
horfúr eru ískyggiiegar fyrir
bændur. Þeir eru skuldunum
vafnir eftir erfiðan vetur og al-
veg óvíst hvemig sumrinu reiðir
af.
17. júflí-hátíoar-
höld í Reykjavík
ILLT VEÐUR spállti dagskrá
þjóðhátíðardagsins í Reykja-
vík, — var þó bjart veður
framan af eins og myndin til
vinstri ber með sér og sat
sumt litla fólkið á öxl föður
eða afa undir dagskrá barn-
anna.
ÞEGAR LEIÐ á daginn hvessti
að suðvestan með regnhryðj-
um og varð þá mörg reykvisk
fjölskylda hrakin i Laugardal.
A MVNDINNI til hægri er
kuldalega búin fjölskylda á á-
horfendahekk að horfa á sund-
keppni enda naut sú íþrótta-
grein sín bezt með tilliti til
veðurs. Á 2. síðu er fréttafrá-
sögn af hátíðahöldunum í
Reykjavík. (Ljósmyndir: Þjóð-
viljinn G. M.).
Fjölmenni við upp-
sögn MA 17. júní
— reist verður viðbygging fyrir raunvísindi
Menntaskólanum á Akureyri
var slitið á laugardaginn, 17.
júní í kirkju bæjarins. Þaðan
útskrifuðust 104 stúdentar og
var mikið fjölmenni við skóla-
uppsögnina.
Hæstu einkurm á stúdents-
prófi í MA hlaut Guðmundur
Pétursson sem var í stærðfraeði-
deild, hann hlaut einkurinina
8,91. Önnur varð Margrét Skúla-
Mústafa Barzani — leiðtogi Kúrda í írak, þjóðar sem hefur í
mörg ár barizt hetjubaráttu við ofurefli liðs, baráttu sem fáir
þekkja til — Sjá viðtal við sendifulltrúa Kiirda erlendis á baksíðu.
Bílvelta við
Gunnarshélma
1 gærmorgun um klukkan hállf-
ellefu varðslys á Suðurlandsvegi.
við Gunnarshólma. Þar var kona
ein síns liðs í bifreið og ætlaði
að aka austur í Hveragerði. Mun
hún hafa misst stjóm á bifreið-
inni með þeim afleiðingum að
bílilinn lenti út af vegarbrúninni
og fór tvær eða fleiri veltur.
Hlaut konan áverka á höfði og
var flutt á Landakotsspítala.
Bifreiðin skemmdist mikið.
Bát hvolfdi
Seint á föstudagskvöldjð barst
lögreglunni í Reykjaví'k tilkynn-
ing um að litlum báti hefði
hvolft framan við Loftsbryggju. I
bátnum voru tveir drengir, 15 og
16 ára gamlir. Bátnum hvolfdi sa
50 metra frá landi og var
drengjunum bjargað'og þeirfiutt-
ir í Slysavarðstofuna. Þeir voru
talsvert þjakaðir eftir volkið.
Kvöldskemmtun G-listans
Kosningastjórn Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík efnir til kvöldskemmtunar fyrir starfsfólk
G-listans við alþingiskosningamar 11. júní sl.
Skemmtunin verður haldin í Sigtúni. Nánar
auglýst í blaðinu á morgun.
dóttir í máladeild með 8,76. Þau
eru þæði frá Akureyri.
Hæstu einkunn yfir skólann
hlaut Alda Möller frá Siglufirði,
hún fékk 9,53 upp úr 5. bekk
stærðfræðideildar.
Samkvæmt upplýsingum Stein-
dórs Steindórssonar, setts skóla-
meistara, var óvenju margt við
skólaslitin svo að varla var nóg
rúm í kirkjunni sem er þó
stærsti samkomustaður bæj ar-
ins, 25 ára og 10 ára stúdentar
færðu skólanum gjafir og fluttu
ávörp.
Fyrirhugað er að hefja á
næstunni byggingu húss fyrir
ravmvisindi við MA og er nú
leitað tilboða í verkið. Viðbygg-
ingin verður i svipuðum stíl
og nýbygging MR við Lækjar-
götu og álíka stór. Er gert ráð
fyrir að þar verði 8 kennslustof-
ur með öllum búnaði og að í
kjallara verði samkomusalur,
fundaherbergi og fleira.
14 bráðubirgðalög á 8 árum
\
gegn hagsmunum launþega
Eins og Þjóðviljinn var bú-
inn að benda á lét ríikisstjóm-
. in það akki dragast lengi fram
yfir kosningar að banna verk-
fail farmanna með bráða-
birgðalögum og eru það önn-
ur bráðaþirgðalögin á þessu
vori og hin 14. í röðinni, að
þvi er Þjóðviljanum telst til,
sem riikisstjóm núverandi
stjórnarflokkar setja frá þvi
þeir toku völdin í landinu
1959 til þess að banna ■ verk-
föOl eða á annan hátt að hafa
bein éhrif á kjör launastétt-
anna í landinu og bænda.
Afrekaskrá ríkisstj. Sjálf-
stæðisf'lofeksins og Alþýðu-
flokiksins á þessu sviði sl.
tæplega |8 ár lítur þannig út:
1959: 15. desember: Bráða-
birgðalög um Framleiðslu-
ráð landbúnhðarins. verð-
sikráningu og fleira.
1960: 5. júll: Bráðabirgðalög
vegna vinnustöðvunar flug-
manna.
1961: 6. júní: Bráðabirgðaiög
vegna stöðvunar millilanda-
flugs.
1961: 4. ágúst: Bráðabirgðalög
um nýtt gengi íslenzku
krónunnar.
1961: 30. september: Bráða-
vbirgðalög urn framlenginigu
samninga lækna og sjúkra-
samlaga.
1962: 2. maí: Bráðabirgðalög
um hámarksþóikmm fyrir
verkfræðistörf.
1962: 24. júní: Bráðaibirgðalög
til „lausnar" sfldveiðideMu.
1963: 17. ágúst: Bráðabirgða-
lög um „lausn“ á kjaradeilu
verkfræðinga.
1964: 10. september: Bráða-
birgðalög um Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins o.fl.
1965: 24. júní: Bráðabirgðalög
um verðjöfnunar- og flutn-
ingasjóð sildveiða 1965. —
Komu ekki til framkvæmda.
1965: 11. september: Bráða-
birgðalög um verðlagningu
landbúnaðarvara.
1966: 15. júlí: Bráðabirgðalög
um „lausn“ þjónadeilunnar.
1967: 10. maí: Bráðabirgðalög
um að banna verkfalil lyfja-
fræðinga.
1967: 16. júní: Bráðabirgðalög
um „lausn“ farmannadeil-
unner.
1