Þjóðviljinn - 20.06.1967, Qupperneq 2
2 sfMC — JwŒrmð’BEt— SaægwfeigBr 20. jsuí ksx
;------------------------------------
17. júní-hátfðahöldin fóru vel fram
— illt veður spillti jió ánægjunni
■ Suðvestan hvassviðri og regnaustur setti svip sinn á
þjóðhátíðardag Reykvíkinga, — sérstaklega þegar líða
tók á daginn og reyndist þetta hörku útivist á köflum
fyrir reykvískar fjölskyldur í Laugardalnum.
■ Tólf þúsund manns sóttu hátíðahöldin inn í
Laugardal um daginn og fóru þau vel fram eftir ástæðum
og nær fimm þúsund unglingar voru á unglingadansleik
um kvöldið f íþróttahöllinni, — fór sá dansleikur vel
fram og tæmdist húsið á sjö mínútum í lokin klukkan eitt.
Heil-
steyptur
Ég las í lýsingu á einhverj-
um frambjóðanda fyrir kosn-
ingar (gott ef það var ekki
lýsing á sjálfum mér) að þeir
menn vaeru sælir sem Iifðu
í hvít-svartri veröld og væru
aldrei í neinum vafa um rétt
og rangt, en mér sýnist það
mikið vafamál að þessi sælu-
kenning standist. Einn er sá
fslendingur sem greinilega Jif-
ir í þvílíkri veröld, Bergur
Sigurbjörnsson ábyrgðarmað-
ur „Frjálsrar þjóðar“. Aldrei
stendur hann hikandi and-
spænis neinu vandamáli; allt
það sem hann segir og gerir
er rétt (jafnvel þótt það sé
sannanlega rangt); allt sem
andstæðingar hans segja og
gerá er rangt (jafnvel 1-ótt
það sé sannanlega rétt). Allt
siðferðilegt mat hans er í
samræmi við þessa einföldu
mælikvarða; hann segir i síð-
asta blaði sínu að það sé
drengilegt af frambjóðanda
úti á landi að hlutast til um
kosningar í Reykjavík en ó-
drengilegt af frambjóðanda
í Reykjavík að afþakka því-
líka íhlutun. En jafnvel þótt
öll vandamál leysist þannig
á afar einfaldan hátt fer því
fjarri að ábyrgðarmaður
„Frjálsrar þjóðar“ sé sæll.
Öll skrif hans fyrir kosning-
ar báru vott um svo heil-
steypta geðvonzku að á henni
fannst hvergi sprunga. Og eft-
ir kosningar, þar sem fram-
bjóðandi Bergs hélt velli á af-
dráttarlausan hátt, fer því
mjög fjarri að ábyrgðarmað-
urinn sé glaður; hann er geð-
verri en nokkru sinni fyrr og
verður þá ekki lengra til jafn-
að. Sú veröld sem Bergur t-lg-
urbjömsson lifir í er vissu-
lega einföld, en hún er greini-
lega ekkert sæluríki; engum
öðrum manni getur þótt eft-
irsóknarvert að lifa í þvílíku
hugarástandi.
Einn
í heiminum
f einni af greinum þeim
sem ábyrgðarmaður , Frjálsr-
ar þjóðar“ skrifar eftir kosn-
ingar talar hann um „þá
kjósendur í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, sem hlýddu fyr-
irmælum frá Einari, Olgeirs-
sjmi og kusu ihaldið í því
skyni að reyna að fella Bjöm
Jónsson-, sem þó tókst ekki“.
Hér er um að ræða rógburð
sem er ekki aðeins tilhæíu-
laús, heldur í beinni and-
stöðu við veruleikann sjálf-
an. En þótt slíku sé lýst yf-
ir, og þótt fram væru bornar
óvefengjanlegar sannanir, hef-
ur það að sjálfsöigðu engin á-
hrif á Berg Sigurbjörnsson;
hann mun halda áfram stað-
hæfingum sínum til eilífðar-
nóns. Tilvera hans er ekki að-
eins hvít-svört geðvonzka,
hún hefur engin tengsl við
veröld annarra manna, sjálf-
an veruleikann. Það sem
verður mælt og vegið og
sannað kemur Bergi Sigur-
björnssyni ekkert við; hann
lifir í einkaveröld sinni án
tengsla við þann heim þar
sem við hin erum að
amla. Þegar ábyrgðarmaður
„Frjálsrar þjóðar" skrifar
sjálfsævisögu sína eftir
nokkra áratugi ætti hann að
velja henni heiti eftir al-
kunnri bamabókj Bergur var
einn í heiminum. — Austri.
Bjart veður var með -ól-
skinsglömpum á köflum fyrri
hluta dags hér i borginni með
stinningskalda að suðvestan og
kveikti vonir hjá allmörgum,
að hann myndi hanga ' þurr
fram eftir deginum, en veður-
spámenn láta ekki að sér hæða
og stóðst veðurspáin fyllilega
síðari hluta dags með ausandi
regnveðri og suðvestan hvass-
viðri, — gerðist þá fljótt nokk-
uð þunnskipað á útihátíðahöld-
unum inni í Laug^rdal.
Drápa utan dagskrár
• .Tvær snotrar athafnir voru
í miðborginni fyrir hádegi og
reyndust fámennar og nutu þó
sólskins og skýjaíars, — blóm-
sveigur var lagður á leiði Jóns
forseta í gamla kirkjugarðin-
um af varaforseta borgarstjórn-
ar og annar blómsveigur lagð-
ur að styttu Jóns forseta á
Austurvelli af forseta íslenzka
lýðveldisins og að viðstöddum
forsætisráðherra, — skeði þá
óvæntur atburður utan dag-
skrár — er Jóhannes Kjarval,
listmálari steig fram og flutti
þessum tveimur persónum eða
þrem drápu mikla, — var dráp-
an nokkuð þung og myrk á
köflum, — var flutningur
hressilegur og drengilegur eins
eins og vænta má af Kjarval.
Sussað á vikublöð
Talið er að tólf þúsund
manns hafi hlustað á ræðu
forsætisráðherra á íþróttaleik-
vanginum í Laugardal, —
nokkurrar vanstillingar gætti í
ræðu forsætisráðherra eftir ný-
liðnar kosningar eins og vænta
má og þótti sumum óþarfi, að
forsætisráðherra væri að sussa
á viss vikublöð hér í borginni,
— óþarflega miklu púðri eytt
á slíkri stundu, — þó> að líkur
séu á því, að eitt þeirra hafi
leitt hluta af fylgi íhaldsins,
— svonefnt Gunnars Thorodd-
senslið yfir til Alþýðuflokksins.
Oft hljóta þeir mesta umbun,
— er eiga hana sízt skilið, —
mætti kannski segja um Al-
þýðuflokkinn í nýliðnum kosn-
ingum.
Hurfu á nokkrum
sekúndum
Dagskrá fyrir börnin fór
fram af svölum fyrir ofan and-
dyri íþróttahallarinnar og
skemmti litla fólkið sér með
Framhatd á 9 síðu.
Fjallkonan var að þessu sinni Sigríður Þorvaldsdóttir, leikkona,
og sést hér ganga inn á hátíðarsvæðið með hópinn sinn. —
(Ljósmynd Þjóðviljinn A. K.)
Tilboð óskast í að byggja hús fyrir Hand-
ritastofnun og Háskóla íslands. <
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
Skilatrygging kr. 3000.
Tilkynning
Borgarráð hefur ákveðið að auglýsa eftir umsókn-
um þeirra, er óská að koma til greina, þegar ráð-
stafað er.íbúðum í borgarbyggingum, sem borgiar-
sjóður kaupir, samkvæmt forkaupsrétti sínum.
íbúðir þessar eru; 1. Bústaðahverfi (Bústaðavegur,
Grensásvegur, Hólmgarður og Hæðargarður). II.
Raðhúsahverfi (Ásgarður, Réttarholtsvegur og
Tunguvegur). III. Gnoðarvogshverfi (Gnoðarvog-
ur). IV. Grensásvegur. V. Skálagerði. VI. Álftamýri.
Það sem seljandi hefur lagt fram til að f-ullgera
íbúð sína, er við sölu metið og þá f járhæð verður
væntanlegur kaupandi að greiða að fullu, svo og
þa'nn hluta af láni er íbúðinni fylgir og seljandi
- hefur greitt þegar kaupin gerast, með hækkun
skv. byggingarvísitölu.
Kaupverðið þarf að greiða um leið og gengið er
frá kaupum.
Nánari upplýsingar fást h'já húsnæðisfulltrúa í
skrifstofu félags- og framfærslumála, Pósthússtræti
9, 4. hæð. Viðt. kl. 10—12.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
RADI^KÖTE
Radionette-
Aðaistræti 1
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
Bátabylgjur
tækin eru byggð
fyrir hin erfiðustu
skilyrði
ÁRS ÁBYRGÐ
Látið stilla bílinn
önnumsl hjóla- Ijósa- og mótorstillingar Skiptum um
kerti. platínur Ijósasamlokur o.fl - Örugg þjónusta
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32. síml 13100
Kennarar
Tvær kennarastöður við Barnaskóla Borgamess
eru lausar til umsóknar.
Einnig ein kennarastaða við Gagnfræðáskóla
Borgamess.
Umsóknarf’restur til 15. ''júlí n.k.
Upplýsingar gefur skólastjórinn, ‘Sigurþór Hall-
dórsson.
Skólanefnd.