Þjóðviljinn - 20.06.1967, Page 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðj
udagur 20. júní 1967.
Otgefandi:
Sósialistaflokk-
Saimelningarflokkur alþýðt
urinn.
Ritstjórar: Ivar H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður &uðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson-
Auglýsingastj.: Sigurður' T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiðttr Bergmann
Ritstjórn, afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðust 19.
Simi 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Samningsrétturmn
pyrir kosningar sagði Þjóðviljinn í grein uim verk-
fall yfirmanna á farskipumum að eflaust yrði'
það eitt fyrsta verk stjórnarflokkanna,. ef þeir
héldu meirihluta sínum eftir kosningar, að bánna
verkfallið og skipa kjaramálum farmanna með
valdboði. Þessi 'spádómur hefur nú rætzt, og raun-
ar þurfti enga sérstaka glöggskyggni til þess að sjá
þá atburði fyrir. Viðreisnarstjómin hefur gefið
út fleiri bráðabirgðalög en nokkur önnur íslenzk
ríkisstjóm, og tilgangurinn með flestum þeim til-
skipunum hefur verið sá að binda endi á verkföll.
íhlutunin hefur ævinlega verið á eina lund; hún
hefur beinzt gegn launamönnum og ráðið málum
til lykta í samræmi við afstöðu atvinnurekenda.
Með þessum síendurteknu íhlutunum er ríkis-
stjórnin smátt og smátt að grafa undan raun-
verulegum samningsrétti launamanna á íslandi.
Því aðeins er um að ræða frjálsa samninga launa-
manna og atvinnurekenda, að báðir aðilar séu
jafnréttháir, beri hliðstæða ábyrgð og verði báðir
að leggja sig í framkróka til að leysa vandann. Ef
vitað er fyrirfram að ríkisstjórnin muni leysa kjara-
deilu með valdboði eru frjálsir samningar úr sög-
unni í verki, þótt öll form séu haldin; sáaðili sem
hefur hag áf valdboðinu bíður aðeins átekta og legg-
ur ekkert af mörkum. OgvaldboðríkisstjórnarSjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokksins hafa ævinlega
verið atvinnurekendum í hag. Þess vegna eru þeir
gersamlega hættir að skeyta um aðstæður og rök-
semdir og sanngirni — þeir bíða aðeins eftir lögun-
um. Jafnvel einföld vandamál sem lausn hefði
fundizt á án verkfalla við venjulegar aðstæður
reyrast nú í harðan hnút, vegna þess að atvinnu-
rekendur vita að þeir þurfa ekkert að leggja af
mörkum. Þessi afstaða ríkisstjórnarinnar leiöir því
sjálfkrafa til þess að ágreiningur um deilumál
breytist í vinnustöðvun, en síðan er tjónið af vinnu-
stöðvuninni notað sem röksemd fyrir íhlutuninni.
^lþýðusamtökin hljóta að líta þessa þróun m'jög
alvarlegum augum, og það er raunar fyrir löngu
orðið óhjákvæmilegt að heildarsamtökin leggi á
ráðin um aðgerðir til þess að tryggja raunveruleg-
an samningsrétt. Þar er ekki aðeins um að ræða
þá launamenn sem fylgt hafa stjórnarandstöðunni
að málum, heldur alla verklýðssinna hvar í flokki
sem þeir standa. Það hlýtur að vera sérstakt um-
hugsunarefni fyrir Alþýðuflokksmenn í samtök-
um launafólks að ríkisvaldið er þannig notað í sí-
vaxandi mæli til að grafa undan samningsréttin-
um og að ráðherrar Alþýðuflokksins skuli æ o’fán
í æ taka á sig ábyrgð af þvílíkri valdbeitingu, nú
síðast Eggert G. Þorsteinsson sem áður var for-
ustumaður í verklýðssamtökunum. Það er raunar
til marks um vamlíðan, að fyrirsögn Alþýðublaðs-
ins á fréttinni uim nauðungarlögin hljóðaði svo:
„Verkfallinu er lokið“! En vanlíðan hrekkur
skammt; hú þurfa allir þeir sem annt er um sam-
tök launamanna og réttindi þeirra að taka höndum
saman. — m.
Kosnlngasvikum
var mótmælt
SEOUL 15/6 — Lögreglan hand-
tók í Seoul í dag 525 stúdenta af
um 15.000 sem fóru í kröfu-
göngu í höfuöborg Suður-Kóreu
í dag til að mótmaala kosninga-
svikium sem þeir teilja að hafi
verið beitt í bingkosningum í
landinu í síðustu viku.
Merrén-ferða-
styrkurinn er
en n í
linskólinn fær kennslutæki
að gjöf frá Trabantumbúðinu
Iðnskólinn í Reykjavík fékk
nýlega að gjöf góðan grip frá
Trabantverksmiðjunum í Aust-
ur-Þýzkalandi og umboði þeirra
hér á landi. Er þetta Trabant-
vél ásamt gírkassa og drifi. var
gripur þessi til sýnis á vöru-
sýningunni í sýningarhöllinni í
Laugardal fyrir skeipmstu x og
vakti þar mikla athygli. Vélin
og drifkerfið er allt sundur-
skorið og er hægt að sjá ná-
kvæmlega hvernig tvígengisvél
vinnur og færir aflið út í hjól-
in. Er þetta fyrsta sýnishomið
af þessu tagi sem Trabantverk-,
smiðjurnar hafa smíðað.
Giinter .-Schneider, sölustjóri
Trabantverksmiðjarjna, afhenti
gjöfina, en. Þór Sandholt skóla-
Stjóri veitti henni viðtöku fyr-
ir. hönd . Iðnskólans. Einnig • voru
þar viðstaddir W. Baumann,
verzlunarfulltrúi Þýzka alþýðu-
lýðveldisins á íslandi, Ingvar
Helgason, umþoðsmaður Trab-
antverksmiðjhnna, og Jón Sæ-
tran, yfirkennari við Iðnskólann.
Þór Sandholt færði gefendum
þakkir og kvað gjöfina kær-
komna, mundi hún koma að
góðum notum sem kennslutæki
og kæmi sér einkar vel fyrir
skólann að eignást slíkan grip
nú á þessum tímamótum þegar
verið er að auka verulega verk-
lega kennslu í skólanum.
Þjóðviljinn náði tali af Gún-
ter Schneider sölustjóra og
sagðist hann hafa gott samband
við umboðsmanninn hér á landi,
Ingvar Helgason, og væri mjög
Samningur
við Kana
Hinn 5. júní sl. var gerð"jr
samningur miili ríkisstjórna
Bandaríkjanna og Islands um
kaup á bandarískum landbún-
aðarvörum með Ipnskjörum.
Samninginn undirrituðu Karl
P. Rolvaag, sendiherra Banda-
ríkjanna,.og Emil Jónsson, ut-
anríkis ráðherra.
Samningar um kaup á banda-
rískum landibúnaðarvörum hafa
verið gerðir árlega við Banda-
ríkjastjóm síðan 1957. 1 nýja
samningnum, sem gildir fyrir
árið 1967, er gert ráð fyrir
kaupum á hveiti og tóbaki.
Samningurinn er að fjárhæð
1.252.000 dollarar, sem er jaf.n-
virði um 54 miljón króna. Vöru-'
kaupin eru með beim kjörum,
að 30 prósent greiðist fljótlega í
dollurum en 70 prósent er lán
til 10 ára með 41/, prósent
vöxtum. I ár er samningsupp-
hæðin mikilu lægri en í fyrra,
þar sem maís er ekki lengur
keyptur frá Bandarikjunum
með slíkurn lánskjörum.
Lánsfé, sem fengizt hefur mcð
þessum hætti, hefur undanfar-
ín ár verið til varið til ýmissa
innlendra framlkivæmda.
ánægður með þau samskipti.
Hér væru nú um 600 Trabant-
bílar á götunum, og hefði hann
sjálfur fengið staðfest meðan
hann hefði dvalizt hér að Trab-
ant væri þekkt bílategund á ís-
landi og væri stöðugt að vinna
sér álit hér sem annars staðar.
Trabant væri einn ódýrasti bíll-
inn á markaðnum og væri þó
fyllilega samkeppnisfær við aðr-
ar gerðir minni bíla hvað snerti
útlit og vélaútbúnað, enda
myndi hann henta sérlega vel
við allar aðstæður á fslandi.
Trabantverksmiðjurnar flytja
nú út til 15 landa og er Trab-
antinn víðast hvar ódýrasti bíll-
inn á markaðnum og vinnur sér
stöðugt betra orð.
Myndin er tekin í sýningar-
höllinni í Laugardal við afhend-
ingu á gjöfinni til Iðnskólans.
Vinstra megin við vélina eru
G. Schneider og W. Baumann
en gegnt þeim eru: Jón Sætran
(talið frá hægri), Þór Sandholt
og Ingvar Helgason. — (Ljósm.
Þjóðv. Hj. G.).
Dr. Bo Ákerrén, læknir
Svíþjóð, og kona hans, r
kynntu íslenzkum stjórnvöld-
um á sínum tíma, að þau hefðu
í hyggju að bjóða árlega frám
nokkra fjárhæð sem ferða-
styrk handa íslendingi, er ósk-
aði að fara til náms á Norður-
löndum. Hefur styrkurinn ver-
ið veitur fimm sinnum, í fyrsta
skipti vorið 1962.
Ákerrén-ferðastyrkurinn nem-
ur að þessu sinni eitt þúsund
•sænskum krónum. Þeir, sem
kynnu að vilja sækja um hann,
skulu senda umsókn til mennta-
málaráðuneytisins, stjómar-
ráðshúsinu við Lækjartorg,
fyrir 10. júlí n.k. í umsókn
skal greina, hvaða nám um-
sækjandi hyggst stunda og
hvar á Norðurlöndum. Upplýs-
ingar um náms- og starfsferil
fylgi, svo og staðfest aifrit
prófskírteina og meðmæli.
Umsóknareyðublöð fást í
menntamálaráðuneytinu.
/Frá menntamála-
ráðuneytinu).
Islands í mal og júní 1967
í maí og júní hafa eftirtaldir
stúdentar lokið prófum við
Háskóla íslands:
Embættispróf í guðfræði:
Halldór Gunnarsson.
Embættispróf í læknisfræði:
Ásgeir Jónsson
Einar H. Jónmundsson
Eyjólfur Þ. Haraldsson
Eyþór H. Stefánsson
Guðmundur Elíasson
Guðmundur Sigurðsson
Guðný Daníelsdóttir
Gunnlaugur B. Geirsson
Gunnsteinn Gunnarsson
Hlöður Freyr Bjamason
Kristján A. Eyjólfsson
Magnús Skúlason
Þórður Harðarson
Þorvarður Brynjólfsson.
Kandídatspróf í tannlækn-
ingum:
Egill Jacobsen
Guðni M. Óskarsson
Gunnar Benediktsson
Ingjaldur Bogason
Pétur H. Ólafsson
Ragnheiður Hansdóttir
Sigurður Bjamason
Sigurður L. Viggósson
. ■/ ,
Embættispróf í lögfræði:
Ásgeir Thoroddsen
Björn Pálsson
Garðar Gíslason
Gísli Sigurkarlsson
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
• Jakob Ragnar Möller
Jakob Þórir Möller
Kristján Torfason
Ólafur B. Árnason
Ólafur H. Ragnarsson
Þorv. Reinhold Kristjánsson
Sigurður Hafsteiii.
Kandídatspróf í viðskipta-
fræðum:
Árni Ágúst Gunnarsson
Baldur Árnason
Guðmundur Guðbjarnason
Hálfdán O. Guðmundsson
Kristján Össur Jónasson
Pétur Jónsson
Pétur H. Snæland
Steinar Höskuldsson
Sveinn Gústafsson
Þorbjörn R. Guðjónsson
Kandídatspróf í isienzkum
fræðum:
Eysteinn Sigurðsson
Páll Bjamason.
B. A.-próf:
Anna Kristjánsdóttir
Björn Þorsteinsson
Eiður S. Guðnason
Einar Hjaltested
Elín Norðdahl Banine
Elísabet S. Guttormsdóttir
Guðmundur M. Oddsson
Guðni Þór Stefánsson
Hrafnhildur K. Jónsdóttir
Jón Ágústsson
Kristrún Eymundsdóttir
Óskar Ingimarsson
Pálína Jónsdóttir
Páll Ingólfsson
Sigrún Klara Hannesdóttir
Snorri Þór Jóhannesson
Sverrir Hólmarsson
Valdimar Valdimarsson
Þór Valtýsson
Þorsteinn M. Marínósson.
Fyrrj hluti verkfræði:
Gísli Viggósson
Guðbrandur Steinþórsson
Gunnar H. Jóbannesson
Halldór Friðgeirssoii
Hreinn Frímannsson
Níels Indriðason
Ólafur Erlingsson
Ragnar Ragnarsson
Sveinn Snæland
Tómas Tómasson
Þóra R. Ásgeirsdóttír
Þórður Ó. Búason.
í Reykjavík í gær
Hin árlega prestastefna er
haldin hér í Reykjavik dag-
ana 19.-21. júní.
Hún hófst með messu í Dóm-
kirkjunni kl. 10,30 í gær. Dr
Helge Brattgárd dómprófastur
í Linköping, prédikaði, en alt-
arisþjónustu annaðist séra Síg-
urður Torfason prófastur á
Skeggjastöðum og séra Árni
Pálsson í Söðulholti.
KI. 14 sama dag var
prestastefnan sett í kapeilu Há-
skólans og flutti þá biskupinn
ávarp og yfirditsskýrslu. KI. 15
þann dag voru prestkonur í
boði biskupsfrúarinnar á Tóm-
asarhaga 15. Kl. 16 voru t*
ið fyrir aðalmál Prestaste:
unnar: Endurskoðun Helgisii
bókarinnar. Framsögu ha
biskupinn, herra ' Sigurbjé
Einarsson. Þetta mál veri
síðan rætt í umræðuhópi
næstu daga. KI. 17.15 flutti
Helge Brattgárd, dómprófesr
fyrirlestur, sem nefndist Rái
menn Guðs gjafa. Hvað se
Biblían um það. Um kvöldið
19.30 flutti séra M'agnús Gi
mundsson Grundarfirði syi
duserindi í útvarp, Kirkjan
bömin.
Framhald á 9. síðu.