Þjóðviljinn - 24.08.1967, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.08.1967, Síða 1
LESIÐ ÚR NÝRRI SKÁLDSÖGU Það er í kvöld sem Ingimar Erlendur les upp í félags- heimili ÆFR í Tjamargötu 20. Ingimar mun lesa úr nýrri skáldsögu er hann hefur ný- lega lokið við. Nafn hennar er Íslandsvísa en ekki íslands- vísur, eins og misprentaðist i blaðinu í gser. Félagsheimilið er opnað kl. 8,30. Upplesturinn hefst klukkan 9. j Sælgæti á eld j : ■ r mm• i bonð i Firðinum | • ■ ■ Lögreglan í Hafnarfirði i '• gerði í fyrradag upptækt : j aUmikið af sleikibrjóst- ■ í sykri sem var þar til sölu j : víða í verzlunum. Sam- j • kvæmt reglugerð sem gild- i j ir þar í bænum er sala á i ; slíkum varningi óheimil, j ; vegna sóðaskapar og óholl- ■ >; ustu sem fylgir. Brjóst- ■ • sykurinn sem gerður var : i upptækur var borinn á : eld í sorphaugunum. ! Talsvert hefur borið á ■ ' því að undanförnu, að ■ i sleikjubrjóstsykur væri til : j sölu í verzlunum hér í ! j Reykjavik. Mun ekkert j : vera í reglugerð borgar- j j innar, sem bannar þessa j j sölu, og geta reykvísk börn : i því sleikt óþverrann hvert j j út úr öðru að vild. ■ ■ t ■ •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Afleiðingar sendi- ráðsbrunans Síða E8var8 SigurSsson, formacSur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, sfaðfesfin Meginatríði Búrfellssamninganna og Straums víkursamninga eru hin sömu ■ Vinnuveitendasambandið hefur enn reynt með^ nýrri „yfirlýsingu“ að þyrla upp ryki varðandi Straumsvíkurdeiluna. ■ Að því gefna tilefni hefur Eðvarð Sigurðsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, stað- fest í viðtali við Þjóðviljann að rétt sé það sam segir í yfirlýsingu Verkamannafélagsins Hlífar, að samningarnir sem gerðir voru við hina þýzku verktaka í Straumsvík „voru í meginatriðum sniðnir eftir samningum þeim, sem Vinnuveit- endasamband íslands og Fosskraft s.f. höfðu sam- þykkt að gilda skyldu við Búrfellsvirkjun“. Foss- kraft er aðili að Vinnuveitendasambandinu. Olíumöl lögð á göt- urnar á Sauðárkróki SAUÐÁRKRÓKI 23/8 — Fyrir- tækid Véltæikni hf. í Reykjavík vinnur nú hér á vegum bæjar- ins ad þvi að blanda olíumöl fyrir varanlega gatnagerð hér. Ætlunin er að blanda oníumál á 3 km götukafla innan bœjar, og mun Véltækni annast lagn- ingu hennar nú í sumar á Aðai- götu og Kirkjutorg, en afgang- ur af blöndunni verður geymdur til nassta sumars og verður unn- ið að undirbúningi í haust og vetur að frekari lagningu á ol- íumölinni næsta sumar. í sumar hefur verið unnið hér að hafnargerð, og nú þessa dagana er verið að renna niður stálþili við enda hafnargarðsins. Menn og tæki frá vitamólaskrif- stofunni annast þetta verk á- samt nokkrum heimamönnum. A sl. vetri lét vitamálaskrifstofan vinna teikningar að varanlegri höfn hér, og eru þær fram- kvæmdir sem nú standa yfir fyrsti áfangi, sem unnið er eftir þeim teikningum. Á næsta vori er von á að dýpkunars'kipið Hákur komi hingað til að vinna að dýpkun hafnarinnar. Verður uppmokst- urinn notaður til uppfylllingar framan við brekkuna og hér fæst þá 80 metra breitt athafna- Framhald á 9. síðu. Vegna ummælanna um Búr- Keyptir 20 Volvo-vagnar Borgarráð samþykkti á fundi sínum í fyrradag að kaupa 20 straetisvagnagrindur af Voivo-gerð og jafnframt að semja við Sameinuðu bílasmiðjuna um yfirbyggingu þeirra. Frestað var ákvörðun um frekari vagnakaup, en stjórnir Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar og Strætisvagna Reykjavíkur höfðu lagt til við borgarráð að alls yrðu keyptir nú til borgarinnar 38 nýir strætisvagnar. fellssamningana spurði blaðið Eðvarð Sigurðsson, formann Verkamannafélagsins Dagsbrún- ar, hvað hann vildi segja um fulllyrðingar Vinnuveitendasam- bandsins um það mál. Eðvarð svaraði: Um þetta segir það eitt í yfirlýsingu Verkamannafélags- ins Hlífar, að samningarnir sem fclagið gerði í vor við hina þýzku vcrktaka í Straumsvík „voru i mcginatriðum sniðnir eftir samningum þcim, sem Vinnu- veitendasamband íslands og Foss- kraft s.f. höfðu samþykkt að gilda skyldu við Búrfellsvirkj- un“, — og er það rétt. Þessir samningar eru í meg- inatriðum samhljóða. Mcginefni samninga um kaup og kjör við Búrfcllsvirkjun er í samningn- um við Vinnuvcitendasambandið. En það var eins um þá samn- ingsgcrð og samningsgerðina nú við Straumsvík að hún dróst ó- hæfilcga á langinn vegna hinn- ar ne'ikvæðu afstöðu Vinnuveit- endasambandsins. Málalokin urðu þau að samn- ingar tókust ekki við Vinnu- veitendasambandið um fram- kvæmd kaupgjaldsákvæða, held- ur varð að gera um það sér- stakt samkomulag við verktak- ann, Fosskraft, cins og gert var við þýzku vcrktakana íStraums- vík. Ef Vinnuveitendasambandið vill halda fast við þá fáránlegu fullyrðingu að samningar Verka- mannafélagsins Hlífar séu til- ræði við íslenzkt atvinnulíf, er það áreiðanlcga vel til athugun- ar jafnt fyrir verkafólk sem og atvinnurekendur liver áhrif hin ncikvæða afstaða Vinnuveitenda- sambandsins, scm alltaf kcmur í Ijós gagnvart sanngjörnum kröf- um vcrkalýðshrcyfingarinnar, hefur á íslcnzkt atvinnulíf, sagði Eðvarð. _ „Yfirlýsingin" Rétt er að gefa lesendum kost á að lesa orðrétt hin sérstæðu plögg, sem Vinnuveitendasam- bandið sendir frá sér um þess ar mundir: „Yfirlýsing frá Vinnuveitenda- sambandi lslands Vegna greinargerðar Verka- mannafélagsins Hlíf í Hafnar- firði varðandi Straumsvíkur- Framhald á 9. síðu. HARÐUR ÁREKSTUR IKJÖS ★ Snemma í gærmorgun varð árekstur á Vesturlandsvegi, skammt frá Félagsgarði I Kjós. Tvær bifreiðar, Skoda og jeppi voru að mætast, en jeppinn lenti af einhverjum orsökum á röngum vegar- helmingi, fyrir Skodanum. ★ f Skoda-bifreiðinni voru systk- ini, karlmaður ók en far- þeginn var kona. Meiddust þau bæði og voru flutt á Slysavarðstofuna. ★ 1 jeppanum voru tveir far- þegar auk ökumannsins. Far- þegarnir voru báðir fluttir á Slysavarðstofuna og hlutu þeir höfuðávcrka, bílstjórinn meiddist á fæti. ★ Báðir bílarnir skemmdust mikið og varð að fá krana- bíl til að flytja þá til borg- arinnar. — (Ejósm. Þ.H.). Voru skattkærurnar fíeiri ná en áður? Þjóðviljinn hefur fregnað, að aldrei hafi borizt jafn margar kærur til skattayfirvalda hér I Reykjavík eins og nú í sumar. Þegar kærufresti lauk um mán- aðamótin júlí og ágúst höfðum við þcgar sainband við Skatt- stofu Reykjavíkur og spurðum um kærufjölda nú í ár. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að fá þessar tölur upp- gefnar hjá embættinu, þá hefur það ekki tekizt fram að þessu. Við höfum oft fengið góð orð hjá embættinu að fá þessar töl- ur, en það er engu líkara en Skattstofa Reykjavíkur vilji halda leynd yfir kærufjöldanum og eru starfsmennirnir nú fam- ir að verða heldur stuttir í spuna, Framhald á 3. síðu. Sáttafundur í Straumsvíkur- deiíunni í gær Sáttasemjari rikisins, Torfi Hjartarson, boðaði í gær sátta- fund í Straumsvíkurdeilunni. Fundurinn hófst í Alþingishús- inu í gærkvöld kl. 8,30. Hafði sáttasemjari boðáð til fundar fulltrúa frá Verkamanna- félaginu Hlíf, verktökunum Vél- taskni og Hochtief og Vinnuveit- endasambandinu. Fundurinn stóð um klukku- tíma og mun enginn árangur hafa náðst. Sex krónu niSurgrei&sla á« hverju kílói af kartöfium ■ í dag koma á markaðinn fyrstu ís- lenzku kartöflurnar á þessu hausti og var verðið á þeim tilkynnt í gær: kr. 10,38 kílóið í smásölu miðað við sölu í 5 kg. pokum. ■ Verð til framleiðenda er 12 kr. pr. kg. og nemur niðurgreiðsla af ríkisins hálfu sex krónum á kílóið. Heildsölu- verðið í 5 kg. pokum er kr. 8,10. ■ Engin niðurgreiðsla hefur verið á kartöflunum sem fengizt hafa að und- anfömu, enda verið fluttar inn toll- frjálst ódýrar kartöflur frá útlöndum. Hefur smásöluverðið síðan í byrjun ágúst verið kr. 31,25 fyrir 5 kílóa pok- ann eða kr. 6,25 pr. kg., en fyrr í sumar 44,50 pokinn eða 8,90 kr. kílóið. t i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.