Þjóðviljinn - 24.08.1967, Síða 12
Frakkar heita
Quebec-búum
aukinni aðstoð
PARÍS 23/8 — Franska stjórn-
in ætlar að stórauka tæknilega
og efnahagslega aðstoð við Que-
bec-fylki í Kanada til þess að
„hjálpa frönskum Kanadamönn-
um til að varðveita og þroska
persónuleika sinn“ eins og kom-
izt er að orði í yfirlýsingu upp-
lýsingamálaráðherra Frakka um
málið.
Vitað er að forsætisráðherra
Quebec, Johnson, ræddi við de
Gaulle í maímánuði m. a. um
möguleika á því að koma á
loft gerfihnetti sem gerði Que-
becbúum kleift að horfa á
franskt sjónvarp — átti þetta
að vera eitt af mörgum atrið-
um í menningarlegrj samvinnu
Frakka beggja vegna Atlanzhafs.
Viðbótin í sjónvarpinu:
FræBsluefni, nýr framhaUs-
myndaþáttur og löng kvikmynd
■ Um mánaðamótin hefst sex daga dagskráin í sjón-
varpinu, verður þá bætt við tveim útsendingardögum,
þriðjudögum og laugardögum, en fimmtudagurinn verður
áfram sjónvarpslaus dagur. Ákveðin er nú dagskrá nýju
sjónvarpsdaganna í megindráttum og verður þriðjudagur-
inn helgaður fræðsluefni, en á laugardögum verða íþróttir,
endurtekið efni og um kvöldið löng kvikmynd og nýr fram-
haldsmyndaflokkur.
Kostar hurðin
750 þúsund
krénur?
Endurbætur fara nú fram
á anddyri Alþingishússins.
Hefur meðal annars verið
skipt um hurð. Þar er nú
komin koparslegin eikar-
hurð og ganga sögur um
að hún muni kosta upp-
sett 750 þúsund krónur.
Þjóðviljinn hafði sam-
band við Friðjón Sigurðs-
son, skrifstofustjóra Al-
þingis í gær og kvað hann
kostnaðinn af þessum
breytingum og endurbót-
um ekki liggja fyrir ennþá.
Ekki vildi hann staðfesta
verðið á eikarhurðinni
góðu.
Þá er líka á döfinni að
setja upp sjálfvirka sím-
stöð fyrir Alþingishúsið,
og komu tækin til landsins
síðastliðið vor. Er nú ver-
ið að vinna við uppsetn-
ingu á þeim og verður
hægt að ná sambandi við
Alþingishúsið, Þórshamar
og Kirkjustræti 12 í gegn-
um sjálfvirkt kerfi næsta
vetur.
^ Sjónvarpað verður í fyrsta
sinni á laugardegi 2. september
n.k., en dagskrá laugardaganna
verður þannig, að því er segir í
frétt sem blaðinu hefur borizt
frá Sjönvarpinu, að kl. 17 — 19
verður flutt íþróttaefni og end-
urtekið efni. M.a. verða sýndir
þættir úr beztu knattspyrnu-
kappleikjum í Bretlandi. Enn-
fremur verður kvölddagskrá á
Iaugardögum og verður fyrst
um sinn fluttur framhalds-
myndaflokkurinn „Jóa Jóns’'
(Mrs. Thursday) og löng kvik-
mynd, en þessi laugardagskvik-
mynd verður síðan endurtekiná
miðvikudagskvöldum. Fyrsta
laugardagskvöldið verður til
dæmis sýnd kvikmyndin ,,Synd-
irnar sjö“ með Alec Guinness.
Á þriðjudögum verður ein-
göngu sjónvarpað fræðsluefni.
Fyrsta þriðjudaginn í septemtoer
verður dagskráin t.d. sem hér
segir: Erlend málefni, erlend
kvikmynd um heimkynni poka-
dýrsins, íslenzkur fræðsluþáttur
í umsjá Guðmundar Sigvalda-
sonar jarðefnafræðings og fyrsti
þáttur í nýjum myndaflokki um
sögu fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Síðar í haust hefst tungumála-
kennsla á þriðjudögum og ým-
is'legt annað fræðsluefni.
Fréttasendingar verða ekki
fyrst um sinn á þriðjudögum og
laugardögum, en hefjast
þegar lokið er þjálfun nýs starfs-
liðs hjá Sjónvarpinu.
Dráttarbrantin
fuilgerö í haust
★ í Neskaupstað hefur í
sumar verið unnið að gerð
dráttarbrautar. Hefur að
undanförnu verið unnið að
undirbyggingu brautarinn-
ar úti í sjónum og er því
verki að ljúka, en í næsta
mánuði verður gengið frá
öðrum hlutum brautarinn-
ar. Mun dráttarbrautin
væntanlega taka til starfa
um mánaðamótin okt-nóv.
★ Þessi rómantiska mynd
er tekin í þoku við höfn-
ina í Norðfirði fyrir
skemmstu og sjást á henni
til vinstri framkvæmdir
við dráttarbrautina, mastr-
ið er á fleka sem notaður
er við undirbygginguna.
Staurarnir sem mávarnir
hafa tyllt sér á eru leifar
af gamalli bryggju. (Ljós-
mynd Þjóðv. vh.).
Fimmtudagur 24. ágúst 1967 — 32. árgangur — 188. tölublað.
Sýning á þvotta- og sauma-
vélum að Hallveigarstöðum
Þeir sem hafa í hyggju að
kaupa saumavél eða þvottavél fá
um næstu helgi gott tækifæri til
að skoða og bera saman hinar
ýmsu tegundir þessara véla, sem
hér eru á markaðnum, á sýn-
ingu sem haldin verður í húsi
kvennasamtakanna, Hallveigar-
stöðum við Túngötu.
Sýning þessi er haldin á veg-
um Káupmannasamtakanna og
annast eitt aðildarfélag þeirra,
Félag raftækjasala allan undir-
búning, en 14 fyrirtæki taka
þátt í sýningunni og sýna alls
um 30 gerðir þvottavélla og 8
tegundir saumavéla. Fulltrúar
hvers fyrirtækis verða á sýning-
unni og veita allar upplýsingar
um tækin, notkun þeirra, hæfni
verð og fleira. Mikail Franzson
auglýsingateiknari hefur haft
umsjón með uppsetningu sýn-
ingai’innar.
Konur víðsvegar að af land-
Landsþing Kven-
félagasambands
Íslands
f dag hefst hér í Reykjavík
landsþing Kvenréttindasam-
bands Xslands. Verður þingið
sett í Neskirkju kl. lo árdegis
í dag.
inu sitja þessa dagana lands-
fund Kvenfélagasambands fs-
lands, en efnt er til sýningar-
innar í beinu sambandi við þann
fund og verður hún opnuð ann-
að kvöld. Á laugardag kl. 5
verður sýningin opnuð almenn-
ingi og opin sunnudag kl. 10 —
10, mánudag kl. 2 — 10 og leng-
ur ef þörf gerist. Aðgangur er
ókeypis.
Landsleikurinn ísland — Danmörk
Danir unnu íslendinga 14:2
Leikurinn reiðarslag fyrir íslenzka kn attspyrnu
Danir unnu Islendinga í lands-
leiknum í knattspyrnu í gær-
kvöld með 14 mörkum gegn
tveimur!
Stjórn luns Smiths
herðir á apartheid
Tíu síldarskip
með 2780 lestir
Dágott veður var fyrri sól-
arhring á síldarmiðumum, sem
voru á svipuðum slóðum og
undanfarna daga. Lítið gerðist
fram eftir degi í fyrradag, en
þegar líða tók á kvöldið fór að
glæðast og fengu þá nokkurskip
góða veiði.
Mörg skip eru á leið til lands.
Haförninn lestaði í gær við Jan
Mayen.
Samtals tilkynntu 10 skip um
afla, 2780 lestir.
Raufarhöfn: Héðinn ÞH 320,
Fífill GK 370, Kristján Valgeir
NS 300, Magnús NK 260, Sæfaxi
II NK 210, Sveinn Sveinbjöms-
son NK 270, Loftur Baldvinsson
EA 200, Sólrún IS 200, Jón
Kjartansson SU 370, Seley SU
280.
SALISBURY 23/8. Minnihluta-
stjórn hvítra manna í Ródesíu
hefur tekið saman lagafrumvarp
sem heimilar hvitum mönnum
í landinu að þvinga þeldökka
menn til að yfirgefa heimili sín
á svæðum þar sem hvítir menn
eru í meirihluta.
Kjami þessarar lagasetningar
er fólginn í því að hægt er að
reka þeldökkar fjölskyldur frá
heimilum sínum ef að nægilegur
fjöldi hvítra nágranna þeirraósk-
ar þess. Þær eiga að fá bætur
fyrir þau hús sem þau yfirgefa
en fá ekki rétt til að mótmæla
brottflutningi á neinn hátt.
Stjómin leggur fram þetta
frumvarp vegna þess að húseign-
ir hafa fallið í verði þar sem
Indverjar hafa flutt inn á svæði
þar sem áður bjuggu aðeins
hvítir menn- Blökkumönnum hef-
ur þegar verið bannað að búa
á svokölluðum „hvítum svæð-
um“.
Um leið berast fréttir um auk-
in átök við blakka skæruliða í
Ródesíu við landamæri Zambíu.
Það liggur við að manni fall-
ist algjörlega hendur við þessi
úrslit. Að landsleikur skuli vinn-
ast með 14 mörkum gegn 2, það
er án efa heimsmet sem seint
verður slegið. Hvað á að segja?
Það er nákvæmlega ekkert sem
afsakar svona nokkuð. Hvað
segja forustumenn íslenzkra
knattspyrnumála? Hvað segir
sú nafntogaða Landsliðsnefnd?
Ætli veizluföngin hafi smakkazt
þeim vel eftir leikinn í gærkvöld
tða coctail-glösin reynzt þeim
þung þegar skálað var fyrir
sigri Dana? Ég veit það ekki,
en það er aðeins eitt sem lands-
liðsnefnd getur gert, og reyndar
knattspyrnuforustan öll: SEGJA
AF SÉR.
Samkvæmt frásögn útvarps-
ins komu mörkin sem hér seg-
ir:
Á 3. mínútu skorar John Ol-
sen fyrsta mark Dana. Finn
Laudrup skorar 2:o á 7. mín.,
Kersten Bjerre skorar úr víta-
spyrnu á 14. minútu, 3:0s Ulrik
Le Fevre skorar 4:0 á 16. mín-
útu, stuttu síðar skorar Laud-
rup 5:0, og á síðustu mín. fyrri
hálfleiks skorar John Olsen 6:0.
Þannig stóð í hálfleik.
Helgi Númason skoraði fyrra
mark íslands á elleftu mínútu
síðari hálfleiks, 6:1, Le
Fevre skorar 7:1 á 13. mín.
Laudrup skorar 8:1 á 15. mín. og
9:1 á 17. mín. Hermann Gunn-
arsson skoraði svo 9:2 á sömu
mínútu. Á 20. mínútu skora
Danir svo 10:2 og 11:2 kemur á
25. mín. Þremur mínútum seinna
koma svo 12:2, á 38. mín skorar
Bjerre 13:2 og síðasta markið
kom svo á 41. mínútu. S or.
Nígsríustjórn
staðfestir vopna-
kaup frá Sovét
LAGOS 23/8 — Sambandsstjórn-
in í Nígeríu hefur nú staðfest
opinberlega að hún hafi keypt
vopn í Sovétríkjunum. Segir
hún að hér hafi verið um
venjulega verzlun að ræða og
vopnin greidd út í hönd. Um
leið fróbiður stjómin sig skrif-
um um pólitíska þýðingu þess-
ara vopnakaupa og vill bersýni-
lega forðast að borgarastyxjöldin
í Nígeríu verði hluti af átö'kum
austurs og vesturs.
Bretar hafa hikað við að
senda vopn til samtoandsstjórn-
arinnar, hinsvegar eru bandarísk
olíufélög grunuð um stuðning
við uppreisnarmenn í A-Nígeriu,
sem nú hafa stofnað ríkið Biafra
og lagt þar að auki undir sig
miðvesturhémð landsins.
Frá Benin, höfuðbprg miðvest-
urhéraðanna berast þær fregnir
að liklega fari menn þar að
dæmi þeirra í Biafra og lýsi yfir
stofnun nýs ríkis.
1 síðustu fréttum frá Nígeríu
segir, að hermönnum frá Biafra
hafi mistekizt að ráðast óvænt
á Lagos með því að fara yfir
torsóttar mýrar. Hafi um 303
Biafra-hermenn fadlið í viður-
eigninni.
Boðið í kynnis-
ferð til Sovét
Vilhjálmi Þ. Gíslasyni út-
varpsstjóra og Pétri Guðfinns-
syni framkvæmdastjóra sjón-
varpsins, hefur verið boðið til
nokkurra daga kynnisferðar
til Sovétríkjanna.
Héldu þeir utan í gær og
munu dveljast í Sovétrikjun-
um í rúma viku og kynna sér
útvarps- og sjónvarpsrekstur
þar í landi. Það eru sovézk
stjórnarvöld sem fyrir boðinu
standa.
A ðskilnaðarhreyfíng risin á
Orkneyjum og Hjaltlandi?
KIRKWALL 23/8 — Spjö'ld með
kröfum um að Orkneyjar og
Hjaltland segi sig úr Iögum v.ið
Stóna-Bretland og sameinist
Danmörku hafa verið fest upp
undanfarna daga í bæjunum
Kirkwall og Stromnes.
Á slíkum spjöldum stendur
m.a.: Orkneyjar farast undir
brezkri stjóm — sameinumst
Danmörku aftur strax. — Hjalf-
land og Orkneyjar voru hluti af
dansk-norska ríkinu allt til árs-
ins 1486, en þá gengu þær til
skozku krúnunnar sem hluti af
heimanmund sem gefinn var með
norskri konungsdóttur. örnefni
eru flest norræn á eyjum þess-
um og enska sú sem töluð er
þar, er að ýmsu leyti sérstæð.
Atvinnulif hefur verið mjög
eymdarlegt í eyjunum undan-
fama áratugi og fóftfcið hefur
fiúið þaðan. i
Kaupa kjötið í smásölu
Skipverji á einum af tog-
urum Bæjarútgerðar Reykja-
víkur leit inn á ritstjórn
blaðsins á dögunum og mælti
eitthvað á þessa leið:
— Það hefur verið mikið
ritað og rætt um bága rekst-
ursafkomu BÚR — og það að
vonum. Við sém á skipunum
vinnum verðum þess iðulega
varir að fullrar hagsýni er
ekki alltaf gætt í rekstrinum.
Eitt lítið dæmi er það að
kosturinn í skipin skuli að
verulegu leyti keyptur í smá-
sölu með margfaldri álagn-
ingu.
Við Þjóðviljamenn bárum
þetta undir Jón Ásgeirsson,
innkaupastjóra hjá Bæjarút-
gerð Reykjavíkur, og taldi
hann þetta ekki allskostar
rétt.
— Við kaupum allt í heild-
sölu, sem við getum af kost-
inum, sagði hann.
— Kaupið þið kjöt í heild-
sölu?
— Nei, kjöt er ekki keypt
i heildsölu. Við skiptum við
Kjötbúðina Borg og Slátur-
félag Suðurlands og fáum
ekki slík kjör.
— Er hvergi hægt að kaupa
kjöt í heildsölu?
— Ekki svo mér sé kunn-
ugt um. Einu sinni stóð til
að kaupa allt kjöt í einu lagi
að haustinu til og geyma það
■'iðan í frystihúsi. Þetta
komst nú aldrei í framkvæmd.
Það stóð í okkur að snara
kaupverðinu út á einu bretti.
Síðan höfum við keypt kjöt
í smásölu, sagði Jón að lok-
um.
i