Þjóðviljinn - 25.08.1967, Side 8

Þjóðviljinn - 25.08.1967, Side 8
g SlÐA — ÞJÚÐVILJINN — Föstudagur 25. ágúst 1062. CHRISTOPHER LANDON: Handan við gröf og dauða 14 stofuskápnum. Nú fyrst skildi ég hvað undir þeim bjó- Eftir matinn spiluðum við á spil. Það var póker og ég varð þess fljótlega var, að faðir 0‘ Neil var ágætur pókerspilari. Ég var vanur að standa mig sæmi- lega í flestum spilum, en innan klukkustundar hafði hann unnið af mér tvö pund, þótt lágt væri lagt undir, og álíka mikið af Colins og Lois. Þá gerðist dálítið einkennilegt — að minnsta kosti þótti mér það einkennilegt þá. Klukkan var orðdn um það bil hálfellefu og mig var farið að syfja eftir alla útiveruna um daginn. Colin var að taka saman spilin og nú lagði hann þau allt £ anu frá sér án þess að gefa. — Ég held það sé rétt að við hættum núna, sagði hann rólega- — Eruð þér tilbúinn, faðir? Presturinn kvað svo vera og það varð vandræðaleg þögn og þau litu fjrrst hvert á annað og síðan á mig. Loks sagði Lois: — Væri þér sama þótt þú færir fram í eldhúsið svolitla stund, Harry? Faðir O‘Nei'1 ætlar að biðja fyrir okkur og á eftir ætl- ar hann að taka okkur til skrifta. Þetta virtist dálíið hlálegt eftir alla þessa drykkju og spila- mennsku. En það var reyndar iausnarorðið sem ég þurfti. — % vi TIZH W EFNI / SMÁVÖRUR TÍZKUHNAPPAR Hárgreiðslan Hárgreiöslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav. 18. III. hæö (lyfta) Sími 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SlMl 33-968 Allt í lagi, en ég held að ég fari beint í rúmið ef ykkur er sama. Ég er orðinn mjög syfjaður. Ég kvaddi öll með handabandi og gekk síðan til dyra. Colin fylgdi mér fram í anddyrið- — Ég gleymdi dálitlu, Sleði, sagði hann kæruleysislega og gékk í áttina að vinnustofu sinni. Ég var mjög þreyttur og í þetta skipti tókst mér að sofna undir eins. Ég heyrði ekki einu sinni þegar hin gengu til náða. Ég vaknaði allt í einu. Nóttin var kyrr og þrúgandi og inn um opinn gluggann féll tunglsljósið og myndaði ferhyrning á gólf- inu. En það var eitthvað annað — skyndilegt hugboð um návist einhvers í herberginu. Kofinn vár frammi við dyr- Ég sneri mér þangað og leit ósjálfrátt á sjálflýsandi úrið mitt og sá að klukkan var hálftvö; síðan leit ég að dyrunum og kom auga á eitthvað ljóst og hreyfingarlaust handan við ljóferhyrninginn. Ósjálfrátt hrópaði ég: — Hver er þar? Og svo var eins og þetta ljósleita færi að þokast inn í tunglsljósið. Það var Lois. Hún var í náttkjól einum fata og sem snöggvast hélt ég að hún væri að ganga í svefni. — Dois. Hvað í ósköpunum —? Hún svaraði ekki strax. Hún stóð á miðju gólfi og hún sýnd- ist skjálfa og ég vissi að það var ekki af kulda. Svo hvíslaði hún hásri röddu: — Ö, Harry, hjálpaðu mér. Mig langar bara til að vera hjá þér .... smá- stund. Ég hef verið svo einmana. Þú getur ekki gert þér í hugar- lund hvað þessir tveir dagar hafa verið mér mikils virði. Það er enginn hér sem ég get talað við, öllum stendur á sama um mig. Þú ert sá fyrsti sem hefur sýnt mér vinsemd. Harry, þú vilt mig- Þú vilt mig, þótt þér geðist ekki að mér. — Vil hana? hugsaði ég. Já, svo sannarlega þráði ég hana. Ég mundi eftir kossinum fyrr um daginn- Ég óskaði einskis frekar en taka hana í rúmið til mín; finna hlýju hennar og kvenlega nærveru, sem ég hafði saknað í mörg ár. Jafnvel þótt hún hefði verið kona vinar míns, held ég að ég hefði tekið hana hvar sem var annars staðar en í hans eigin húsi. Hvar sem var í heiminum nema undir þaki Colins. Ég steig fram úr rúminu og tók sloppinn minn. — Nei, Lois. Colin .— við getum efcki. Hún hallaði sér í áttina til mín,. en maldaði ekki í móinn þegar ég fór að leiða hana til dyra. Ég fann mýkt hennar, ég fann daufan ilminn af líkama hennar. Ég þráði það eitt að segja „já“, en ég hélt áfram að dyrunum. Þegar ég opnaði og leit í skyndi fram ganginn, fann ég til gremju yfir því að ég skyldi þrá hana svo ákaft- Hún hreyfði sig ekki, svo að ég hristi hana örlítið og hún leit á mig og augu hennar voru tárvot. Það heyrðist þrusk úr næsta her- bergi. — Flýttu þér, sagði ég — I guðs bænum flýttu þér. Einhver var vakandi. Hljóðið virtist vekja hana til dáða- Hún steig þrjú röskleg skref og rakst utaní borð í ganginum. Ég sá vasann sem á því stóð riða en ég gat ekki hrært legg eða lið. Vasinn valt til og frá og .datt síðan í gólfið. Ljós var kveikt í hinum . enda gangsins og þar stóð Colin og horfði á okkur. Colin, hún hefur gengið í svefni. Ég .... ég var að hjálpa henni til baka. Ég bjóst ekki við því að hann tryði mér, en ég átti þó ekki von á þeim við- brögðum sem hann sýndi. And- lit hans var náfölt, ljótir, dökkir baugar undir augunum. Vöðvi kipptist til í sífellu við annað munnvikið á honum. Hann gekk í áttina til okkar og þreif í hand- legginn á Lois- .— Gála, sagði hann. — Gála. Um morguninn var húsið enn hljóðara en það hafði verið dag- inn sem ég kom. Nú kóm ekki til greina að lyfta fjölinni í horn- inu og hrópa á heitt vatn; ég rakaði mig úr köldu, lét niður í töskuna mína og læddist niður stigann að vinnustofu Colins þar sem ég taldi vist að ég yrði ekki ónáðaður. Ég fann símanúmer leigubílstjórans á staðnum og sagði honum næstum hvíslandi aö ég þyrfti að láta aka mér á næstu brautarstöð. Hann sagðist myndu koma og sækja mig- eftir stundarfjórðung og ég . hefði nægáb1 tffðá br'‘að''körhást til Birr og ná hraðlestinni til Dublin. Ég skrifaði Colin nokkrar línur um það, að bezt væri að ég færi strax. Ég fór. að ganga fram og aftur um stofuna, bezta herbergið í húsinu — svalt og friðsælt. Á stóra skrifborðinu stóð ritvélin með pappírsörk f; við hliðina á henni segulband. Ósköp eðlilegur útbúnaður fyrir rithöfund — að einu undanskildu. Ég hefði ekki tekið eftir því, ef ég hefði ekki þurft að bíða hér meðan ég beið eftir leigubílnum. Örmjó leiðsla lá frá upptökutæk- inu, ekki að skrifborðmikrafóni, heldur upp vegginn og að loftinu og síðan úr augsýn- Jafnvel í reiði minni og eymd gat ég ekki varizt því að velta fyrir mér hvað í ósköpunum Colin væri að bauka. Það var hljótt í húsinu, alltof hljótt. Fyrsti hávaðinn kom eins og frelsun. Loks heyrðust hjól- barðar snúast eftir möJinni og ég vissi að leigubíllinn var að koma. Ég axlaði golfkylfumar mínar, tók ferðatöskuna og gekk út. Ekkert hljóð að innan, engin hreyfing. Gluggamir á flagnaðri framhliðinni horfðu á eftir mér eins og blind augu þegar við ókum á brott. í lestinni gafst mér tfmi til að hugsa um það sem gerzt hafði. Fyrstu vandræðalegu samfund- ina við Colin og Sally. Upphafs- andúð mína á eiginkonu hans. Síðan hinn óvænti skilningur sem kviknað hafði með mér og Lois. Hið óvænta aðdráttarafl rauða hársins og hvíta hörunds- ins, sem lauk með heimsókn hennar í herbergi mitt og hinu óhugnanlega lokaatriði á stiga- pallinum. Þegar ég hugsa um þetta núna, virtust mér viðbrögð Colins svo furðuleg, vegna þess að þau komu ekki heim við manngerðina. Það hefði verið lík- ara honum að koma með mein- lega athugasemd. Þegar á allt var litið hafði hann ekki einu sinni hirt um að leyna sambandi sínu og Sallyar- Ef til vill var það rétt hjá Lois að Colin hefði gifzt henni, vegna þess að hún var hluti af Cl'onco, og þegar draumur hans hafði rætzt, gat hann ekki veitt neinum öðrum hlutdeild í honum. Og þótt Lois væri ekki „neinn annar“, þá var hún þó enn húsmóðirin á heimili hans. Lois .... nafn hennar ómaði fyrir eyrum mér. Ég fengi aldrei að vita hve mikið af tilfinning- um hennar gagnvart mér væri ósvikið, hve mikið væri leikara- skapur. Nú þurfti ég aðeins að reyna að gleyma. I London var að minnsta kosti ekkert sem minnti mig á hana. Miklar annir hjálpuðu mér fyrstu vikurnar; og með tímanum máð- ist og fölnaði jafnvel myndin af henni þar sem hún bjóst til að stinga sér í- vatnið og bar við græn tré og bláan himin. Eftir eitt eða tvö ár, þegar blöðin fóru að skrifa um Colin, gat’ég lesið skrifin með hugarró. Stundum var þetta enginn skemmtilestur. Það var til dæmis smáfréttir um það að hann hefði þurft að leggjast á sjúkrahús vegna ,,taugaáfalls“. Ég vissi hvað það táknaði. Þrjár af bók- um hans voru settar á lista ka- þólsku kirkjunnar yfir bannaðar bækur — bannfræðar opinber- lega af írsku kirkjunni. Ekki svo að skilja að bannið hefði sérlega mikla þýðingu — trúlega jók það sölu bókarinnar um þriðjung — en með næstu bók sinni olli hann reglulegu hneyksli. Nú var ekki lengur um það að ræða að brjóta í - bága við tiltekin trúar- brögð,. heldur kom hið opinbera til skjalanna- Orðið klám var nefnt í fyrsta skipti, og síðan úr- skurðaði dómstóll, bæði í Lon- don og Dublin, að tilteknir kafl- ar í síðustu bók hans féllu undir klám; útgefendur og prentsmiðju eigendur voru sektaðir -...... og Colin? Lundúnablöðin skrifuðu: því miður hefur okkur ekki tek- 4986 I æsingnum hefur Wallace ekki miðað rétt. Furet er aðeins lítillega meiddur sér Angélique, þegar hún stumrar yfir honum. — En hún verður fyrir sárum vonbrigðum: Hróp hennar hafa að því er virðist ekki heyrzt fyrir ölduganginum. — Ameríkaninn • hrósar sigri. „Ég vara ykkur við að endurtaka slíkt! Eða enn betra ......“'Hann tekur upp byssuna. „Niður með ykkur, þar getið þið öskrað eins og við viljið og enginn mun heyra til ykkar!“ — Þau verða að hlýða. - Þau geta ekkert annað gert. KICA.MrS A-l sósa: Með kjöti, með 1‘iski. með hverjn sem er SKOTTA Pabbi er svo ómúsikalskur. Hann kann ekki að meta eitt ein- asta af tíu vinsælustu dægurlögunum! BÍLLINN Bílaþjónusta Höfðatúni 8. — Sími 17184. Gerið við bíla ykkar sjólf Við sköpum aðstöðuna. — BÍLALEIGA. BlL AÞJÖNUST AN Auðbrekku 53. Kópavogi — Sími 40145. Látið stilla bílinn Önnumst hjóla-. ljósa og mótorstillingu. Skiptum um kerti, platínur, l'jósasamlokur Örugg biónusta. BÍLASKOÐUN OG STILLING Skúlagötu 32, sími 13100. Hemlaviðgerðir Rennum bremsuskálar. Slípum bremsudælur. Límum á bremsuborða. Hemlastilling hf. Súðarvogi 14 — Sími 30135. Smurstöðin Sætúni 4 Smyrjum bílinn fljótt og vel. — Höfum fjórar bílalyftur. — Seljuim allar tegundir smurolíu. — Sími 16227. Terylene buxur og gallabuxur í öllum stærðum — Póstsendum. Athugið okkar lága verö. O.L. Tradarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu) — Sími 23169. k *

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.