Þjóðviljinn - 03.09.1967, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVXLJINN — Sunnudagur 3. september 1967.
I
k
I
!
50 ára afmæli
Sovétríkjanna
MHTirrwcv
INTÚRIST
Hópferð verður 28. október til 18. nóvember í til-
efni byltingarafmaelisins. Flogið verður Keflavík
— Helsinki — Leningrad — Moskva — Tiblisi —
Erevan — Sochi — Leningrad — Helsinki — Kaup-
mannahöfn — Osló — Keflavík. Dvalizt verður 1
Leningrad 4 daga, Moskvu 7 daga, Tibilisi 2 daga,
Erevan 2 daga. Sochi 4 daga og Leningrad 1 dag,
eða því sem næst alls 22 daga með ferðum. Dvah*
izt veirður á fyrsta flokks hótelum, allar máltíðir
innifaldar, en auk þess leiðsögn, skoðunarferðir m.a.
til vatnanna Ritsa og Seven í Kákasus og leikhús-
og ballettmiðar í Kirovóperunni, Bolshoj, Kreml-
leikhúsinu og ríkissirkusnum í Moskvu, auk ým-
islegs annars óupptalins. — Fararst'jóri: Kjartan
Helgason. Verð ótrúlega lágt. Þátttaka miðuð við
25 manns. Þátttakendur eru beðnir að tilkynna
þátttöku sína í tíma. Örfá sæti eftir. Allt innifalið
í verði.
LANDSBN ^
FERÐASKRIFSTOF f1
Laugavegi 54. Símar 22875 /
V;. '-/'íj. j'
x>íí.L'«k
KOMMÓÐUR
— teak og eík
Húsgagnaverzlun Axels Eyjólfssonar
Skipholti 7 — Sími 10117.
Traustur og kraftmikill.
Tryggið yður Toyota.
Japanska bifreiðasalan hf.
Ármúla 7 — sími 34470.
!
TOYOTA LANDCRUISER
Viljum fríðsamlega
lausn á deilumálum
— segir form. Kommúnistafl. Israels
Við vilium fá friðsamlega lausn. Við viljum
varanlegan frið án landvinninga, segir ritari
Kommúnistaflokks ísraels, Esther Vilenska, í
viðtali við blaðamann Friheten í Osló.
Hún skýrir frá þvi að flofck-
urinn hafi lagt sig allan fram
um að koma í veg fyrir það,
að stríðið brytist út. Sama dag
og Israel hóf árásina, þann 5.
júní, — var miðstjórn Slckks-
ins á fundi til að ræða hið al-
varlega ástand.
Báðir aðiilar vora varaðir við
ofbeldisaðgerðum og sfcoraðvar
á öll stórveldin að taka ekfci
afstöðu með öðrum hvoruxn
deiluaðila, en vinna saman að
því að koma á vopnahléi og
kalla saman alþjóðlega friðar-
ráðstefnu til að tryggja friðinn
fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Af hálfu ísraelsku þjóðarinn-
ar var þetta barátta fyrir til-
veru Israelsríkis og fyrir sjálf-
stæði þess, barátta gegn yfir-
lýstri stefnu arabastjórnanna
að afmá Israel.
Sama dag greiddi fulltrúi
okkar á þingi atkvaeði gegn þvi
að Moshe Dayan yrði skipaður
ráðherra.
Enginn ísraelsmaður komst
hjá þvx að finna til ótta um
örlög ísraels. Flokkur okkar var
mjög andsnúinn ógnunum ar-
abaleiðtoganna, lokun Akaba-
flóa og brottsendingu SÞ-liðs-
ins.
Við höfum alltaf verið
mótfalllnir bandarísksinnaðri
stefnu ísraelsku ríkisstjórnar-
innar. Við teljum að eftir þvi
sem viðsjár jufcust hafi það
ekki aðeins verið arabaríkin
heldur engu síður ísraelska
ríkisstjórnin sem skapaði hættu-
ástandið.
Hvað viðvíkur arabáríkjun-
um á . ég við „al fatachs"
hermdarverkastarfsemina og
---------------------------:----<?,
Svifbáturinn í
förum til Akran.
Á þriðjudaginn kom svifbát-
urinn til Reykjavíkur og hefur
hann síðan verið í ferðum milli
Akraness og Reykjavíkur og í
gær var farið i nokkrar stutt-
ar ferðir út á Sundin. Hefur
verið geysimikil aðsókn að þess-
um ferðum.
í gærmorgun frá kl. 10—12
var farið i stuttar skemmtisigl-
ingar út á Sundin, kl. 13,30 upp
á Akranés og í stuttar skemmti-
ferðir þaðan frá kl. 14—15,30.
Svifbáturinn kom svo aftur
til Reykjavíkur og fór stutt-
ar ferðir héðan síðdegis.
í fyrradag voru farþegar svif-
bátsins m.a. meðlimir í Stjóm-
unarfélaginu, fóru þeir með
bátnum upp á Akranes og þaðan
með bíl að Bifröst, þar sem
fundur félagsins var haldinn.
Yfirleitt er mikil eftirspum eft-
ir ferðum með svifbátnum. sér-
staklega stuttum ferðum. sagði
Hjálmar R. Bárðarson skipa-
skoðunarstjóri, er Þjóðviljinn
leitaði frétta hjá honum.
Er Hjálmar var að því spurð-
ur hvemig svifbáturinn reyndist
við íslenzkar aðstæður sagði
hann: Nú hefur fengizt allmikil
reynsla í sambandi við brim-
lendingar. en svo virðist sem
þesi stærð henti ekki vel fyrir
Vestmannaeyinga. Þessi gerð af
svifbát er eingöngu gerð fyrir
farþegaflutninga. en þeir þyrftu
að geta flutt bifreiðar líka. Það
er mikill kostur fyrir Vest-
mannaeyinga hve stuttan tíma
það tekur að sigla í land, eða
10 mínútur. en aksturinn þaðan
til Reykjavíkur er svo langur.
að flestir kysu án efa heldur að
fara með flugvél.
Svifbáturinn verður áfram í
stuttum ferðum frá Reykjavík.
en umsamið er að hann verði
hér á landi í 20 daga til reynslu.
yfirlýsingarnar um að „frelsa“
Palestínu og af hálfu Israels-
manna er það hin hernaðar-
lega hefndarstefna sem hefur
valdið vaxandi viðsjám fyrir
botni Miðjarðarhafsins.
Við teljum að hægt hefði
verið að komast hjá styrjöld-
inni ef arabaríki hefðu viður-
kennt Israel og hermdarverka-
menn hefðu látið af iðju sinni
og ísraelska ríkisstjómin hefði
lagt sig fram um að fylgja frið-
samlegri hlutleysisstefnu.
Þegar Moshe Dayan var
gerður að varnarmálaráðherra
tók Israelsstjóm nýtt skref til
hægri í pólitík. Við greiddum
atkvæði gegn honum á þingi
því að við töldum skipun hans
hafa aukna stríðsihættu í för
með sér.
Við viljum ná friðsamlegri
lausn á deilumálunum á grund-
velli gagnkvæmrar viðurkenn-
ingar á fullvéldi allra ríkja og
sjálfsákvörðunarrétti Pálestínu-
araba.
Israel og arabalönd verða aö
lifa friðsamlega saman. Hitt
færir öllum þjóðum á þessu
svæði ekki annað en sorg og
óhamingju.
— Hvað um flóttamennina?
—, Kommúnistaflökkur Isra-
els viðurkennir og virðir þjóð-
leg réttindi þeirra og hefur
krafizt þess að ríkistjórnin við-
urkenni rétt þeirra. Flóttamenn-
irnir verða að fá nauðsynlega
hjálp til að þeir geti lifað
mannsæmandi lífi. '
i Við viljum helzt stuðla að
því að það hatur sem nú logar
verði sHökkt. Við teljum að ísra-
elsmenn og arabar geti ogverði
að lifa í friðsamlegri sambúð
sem bræður en'ekki óvinir.
I sögu okkar eru mörg dæmi
um vináttu milli araba og gyð-
inga og við trúum því statt og
stöðugt og vitum að bræðra-
lagið mun sigra í löndum okk-
ar.
pffflWiiHíl.ill
Augiýsingasími Þjóðviljans 17 500
RADI®NETTE
tækin eru byggð || % j if • ' |»|
fyrir hin erfiðustu Jv-..
skilyrði |f|p»
ÁRS ÁBYRGÐ
Radionette-verzlunin
Aðalstræti18 sími 16995]
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2. (
Bátabylgjur
Enskuskóli fyrir börn
Kennslan í enskuskóla barnanna hefst mánudag-
inn 2. október. Kennslan fer þannig fram, að ensk-
ir kennarar kenna bömunum og TALA ÁVALLT
ENSKU. Börnin þurfa ekki að stunda heima-
nám, en þjálfast í notkun málsins í kennslu-
stundunum. ***»
DANSKA er kennd á svipaðan hátt og enskan.
Taltímar í ensku fyrir unglinga í gagn-
fræðaskólum.
Málaskólinn MÍMIR
Hafnarstræti 15 og Brautarholt 4,
sími 2 16 55 og 1 000 4 (kl. 1—7).
ÚTSALA
OKKAR ÁRLEGA
HAUSTOTSALA
HEFST Á MORGUN.
■ Stórlækkað verð á lífsstykkja-
vörum og undirfatnaði.
■ Lítilsháttar gallaðar lífstykkja-
vörur.
■ Fylgizt með fjöldanum.
■ Kaupið vörur fyrir hálfvirði.
Notið tækifærið og
gerið góð kaup
lympDi
Laugavegi 26.
r