Þjóðviljinn - 03.09.1967, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 03.09.1967, Blaðsíða 7
Sunnuctagur 3. septcmber 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J Grein eftir portúgalskan Siðhlaupa „Portúgalska Guínea er á vesturströnd Afríku. milli Senegal og Gúíneu, sem bæði eru sjálfstæð ríki. Landið er 36.125 ferkm. (u.þ.b. sama stærð og Belgía) en íbúarnir eru aðeins um 800.000. í þessu landi eru daglaun afrískra verkamanna sem svarar þrem íslenzkum krónum og 51,4 prósent af öllum afrískum bömum devja áður en þau ná fjög- urra ára aldri. Það er auðhringurinn CUF (Comp- anhia Union Fabrile) sem „á" alla „portúgölsku" Guíneu. Þessi auðhringur hefur einokun á allri verzlun með hrísgrjón og hnetur. Hafnirnar, skipafélögin útflutningsfyrirtækin, allt lýtur þetta stjórn CUF. Og veldi hringsins er ekki einskorðað við Guíneu. í Portúgal á auðhringurinn flugfélög, lyfjaiðnað- inn, sellúlósaverksmiðjur, sementsframleiðsluna og sáþuiðnaðinn. lis V' \ K :i? ■ ■ «11' MmmmmmHímrwm • .81' :': ■ ; s: Liðskönnun á hersveitum PAIGC, sem nú hefur umráð í þrem fjórðu hlutum Guineu. / I Guíneu er raunverulega ekki um neinn iðnað að ræða, þó erlendir auðhringir aðrir en pnrtúgalskir starfi þar einnig svo sem Unilever og Sofina (belgískt og svissneskt fjár- magn). En nú er veldi CUF ógnað í fyrsta sinn, því að vopnaðir hermenn úr PAIGC (Sjáflfstæð- isflokki Guíneu og Grænhöfða- eyja) ráða nú lögum og lofum í tveim þriðju hlutum landsins og á þessum svæðum er sjálf- stæð afrísk framleiðsla. Portúgalski herinn, sem sit- ur í landinu, gegnir því hlut- verki að vernda hagsmuni CUF. Hermennirnir skilja þetta vel, því að þeir eru með jöfnu miili- bili neyddir til að hjálpa starfsliði CUF, er sækja þarf hrísgrjónaframleiðslu bænda í þorpunum. Þó að portúgalskir herfor- ingjar leitist við að sannfæra hermennina um það, að þeir séu að berjast fyrír Guð og föðurlandið, verður því ekki leynt að herdeildir fremja fjöldaaftökur á fbúum Guíneu- Stríðið í Guíneu er eitthvert hið villimannlegasta stríð, sem háð hefur verið í Afríku- Nú hefur það ^staðið í f jögur ár og portúgölsk yfirvöld hafa sann- reynt að þau eiga í höggi við sjálfstæðishreyfingu, sem er sérlega vel skipulögð á öllum sviðum. Osigrar Portúgalski herinn beið ein- hvern hinn mesta ósigur í sögu baráttunnar gegn nýlenduveld- um á ströndinni gegnt Como- eyju, sem hefur einkar mikið hemaðargildi fyrir allan suð- urhluta Guíneu. Alltaf er verið að fjölga portúgölskum hermönnum. Ár- ið 1961 voru þeir fjögur þús- und, 1963 20 þúsund og 1966 um 30.000. Obbinn af þessu liði hefur. verið sérstaklega þjálfaður í baráttu við skæruliða. Her- skyldan er hin sama og í An- 27 mánuðir. En þó agi sé gola og Mosambique, minnst strangur og hertur í sífellu tekst ekki að koma í veg fyrir það að mikill fjöldi hermanna, baeði óbreyttra t>g yfirmanna, gerist liðhlaupar og gangi í lið með PAIGC. Flóttinn fer yfirleitt fram í samvinnu við skærulíðasveitirn- ar, sem aðstoða þessa Portú- gala við að komast yfir í næstu Afríkuríki. Hvítsr menn Það er í frásögur fært hvað þessir liðhlaupar fá góðar mót- tökur hjá fólkinu sem býr á þeim svæðum sem þeir þurfa að flýja um. Þetta er þakkað mikilli' á- róðursherferð PAIGC, þar sem bent er á, að hvítir menn þurfa ekki endilega að vera fjand- menn en geta líka starfað með sjálfstæðishreyfingunni. PAIGC reynir ekki að nota kynþáttamismun í baráttu sinni. Þvert á móti er áherzla lögð á það að skilja á milli kúgara og andfasista í nýlenduhern- um, milli þeirra sem ekki eru fjandsamlegir uppreisnarhern- um og þeirra sem starfa í sam- vinnu við leynilögrégluna að kúgun Afríkumanna. Hin alræmda leynilögregla Portúgals, sem hefur myrt lýð- ræðissinna heima í Portúgal og pyntað þúsundir af portúgölsk- um föngum, starfar eínnig í ný- lendunum Guíneu, Angóla og Mosamþique. í Guíneu skipta útsendárar lögreglunnar hundruðum og vinna þeir með hernum við pyntingar á föngum og aðra upplýsingasöfnun. Portúgölsku hermennimir eiga -ekiki aðra ósika heitari en að snúa aftur heim í stað þess að herjast við skæruliða fyrir mál- stað sem þeir skilja ekki þrátt fyrir allan opinþeran áróður. Það má sjá þetta á þréfum þeirra og heyra í samtölum. Prestar Én því má ekki gleyma að mikiil hluti af hermönnunum eru bændur- Þeir eru mjög trú- aðir, sérstaklega þeir sem ætt- aðdr eru frá norðanverðu Portúgal eða frá Madeira og Asoreyjum. Þess vegna eru að jafnaði . prestar í för með þeim, og hat'a þeir liðsforingjatign og hlítá hernaðaraga á sama máta og aðrir yfirmenn í hemum. Þessir prestar láta sér ekki nægja að komast í samband við hermennina við messur og á bænastundum. Þeir hafaeinn- ig sérstaka fundi með þeim sem eru miklu fremur pólitísk- ir en trúarlegir. Þeir segja hermönnunum, að stríðið sem þeir heyja sé bless- að af Drottni og sé í raun og sann heilagt stríð. Ríkisstjórnin færir sér trúar- tilfinningu hcrmannanna í nyt og kirkjan lætur nota sig. Deið- togi kaþólsku kirkjunnar í Port- úgal, Cerejeira kardínáli, er gamall vinur dr. Salasars. Þjóðfrelsisherinn hefur 'miklu meiri baráttuvilja. Hann á sér rætur í margra kynslóða misk- unnarlausu arðráni á íbúum Guíneu. Afríkumenn vita vel að enginn endir verður á þjáning- um þeirra fyrr en yfirráð Port- úgala eru úr sögunni og hreysti þcirra er við brugðið. Sjálfur sá ég einu sinni portú- galskan liðsforingja ógna fanga úr PAIGC með spjóti: „ talar ekki, drep ég þig á stund- inni“. „Gerðu það bara“, sagði fang- inn, „nýtt fólk kemur í minn stað“. Pyntingar Alls konar pyntingar eru not- i aðar á afrisku baráttumennina fyrir sjálfstæði lands síns- Það er sparkað í þá, þeir eru húð- strýktir, og oft eru þeir stungn- ir í magann. Staurapynting er oft notuð, en þá eru Afríku- menn hengdir upp á úlnliðun- um milli tveggja staura, þannig að fætur þeirra eru rétt ofan við jörð. Þannig eru þeir látnir hanga tímunum saman í hita sem getur farið upp í 70 stig í sólskininu. Með nokkru millibili eru þeir húðstrýktir og yfirheyrðir um störf félaga sinna. Margir Afríkumenn farast I þessum pyntingum að sjálfsögðu, aðrir lifa af, en andlit þeirra ummyndast þannig að þeir verða ekki líkir möhnum. öðrum Aí'ríkumönnum er kastað í fljót með hendur bundnar á bak aftur og stein við fætur. Aðrir eru drepnir í sérstökum útrýmingarbúðum. Versnandi staða Kúgun Portúgala hefur ekki getað stöðvað sjálfstæðisbarátt- una, þvert á móti eykst and- spyrnan í sama mæli og þeir auka hernaðaraðgerðir sínar rétt eins og Bandaríkjamenn hafa orðið að finna fyrir í Vietnam. Portúgalskar herdeildir geta aldrei fundið sig vera í ör- uggri höfn. 1 beim hlutum landsins, sem hafa náð sjálf- stæði, láta Portúgalar sér nægja að hafa aðstöðu í einstöku þorpum, en hafa ekki áð. öðru leyti yfirráð yfir landiny og hermennirnir voga sér ekki út fyrir víggirðingarnar. í þessum héruðum treysta þeir helzt á flugherinn, sem gerir loftárásir á óbreytta borgara, konur og börn. I þessum héruðum nýtur PAIGC svo að seg.ia skilyrðis- lausrar hollustu íbúanna- Fram- leiðslan hefur aukizt um 20 prósent, jafnframt bví sem neyzla hrísgrjóna hefur aukizt verulega, þar sem Portúgalar geta ekki lengur skattlagt hana. Sérstaklega er framlag kvenna athyglisvert, þær þjóna her- mönnunum, annast uppeldi munaðarlausra barna og sinna öllum störfúm á ökrunum- Portúgalska ríkisstjómin reyn- ir að fá íbúana á sitt band í þeim héruðum sem Portúgalar ráða enn. Á stöku stað hefur þeim tekizt það, en yfirleitt eru þeir dæmdir til að tapa. Það er of létt fyrir Afríkumenn að fá fréttir af því útrýmingarstríði, sem Pörtúgalar heyja á öðrum stöðum í landinu þeirra. Daglaunin samsvara þrcm ísl. krónum Hinzta kveðja til Guárúnar Kristjánsdóttur frá Kvenfélagi sósíalista Við, félagar þínir í Kvenfélagi sósíalista, munum horfa með sárri sorg á auða stólinn þinn, og um leið minnumst við hinnar frá- bæru fórnfýsi þinnar í garð kvenfélagsins. Alltaf varstu reiðubúin að vinna fyrir fé- lagið og málefni þess. En við vitum líka, að þú með þínar heilbrigðu skoðanir mund- ir hafasagt: Maður kemur í manns stað. En það verður erfitt að fylla þitt skarð. Með þökk fyrir allt. F.h. Kvenfélags sósíalista, Margrét Ottósdóttir. / i i t í * 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.