Þjóðviljinn - 24.09.1967, Blaðsíða 1
til Noregs til breytinga
Þetta er bikarinn, sem Fram og Valur keppa um í dag, og verdur
hann afhentur að loknum leik, ef úrslit fást. Fyrst var keppt
um þennan bikar 1962, en þá var tekinn úr umferð bikarinn sem
Fram gaf 1912 og keppt var um í 50 ár.
Hver hlýtur bikarinn?
Úrslitaleikur milli
Fram og Vals í dag
Úrslitaleikur íslandsmótsins í
knattspyrnu fer fram á Laugar-
dalsvellinum í dag kl. 2 og
keppa þar Valur og Fram um
hinn eftirsóknarverða Islands-
meistaratitil, en þessi félög voru
jöfn að stigum í mótinu.
Valur hefur 13 sinnum orðið
Islandsmeistari, en • aðeins tvis-
var síðan 1954, þ.e. 1956 og svo
i fyrra eftir harða baráttu og
aukaleik gegn Keflvíkingum.
Fram hefur 14 sinnum orðið Is-
landsmeistari, síðan árið 1962 en
þar áður 1947. Á síðasta ári var
Fram í 2. deild og er þetta í
fyrsta sinn að félag sem kemur
beint úr 2. deild kemst svo langt
í baráttunni um íslandsmeist-
aratitilinn.
SksSræðssflóð
í Texasrtki
CORPUS CHRISTI Texas 23/9.
Um ein miljón manna er nú ein-
angruð frá umheiminum í Suð-
ur-Texas fyrir sakir flóða sem
fellibylurinn Baulah hefur vald-
ið. Fióð þessi eru mest í Rio
Cjirande dal én þar hefur úrkom-.
an verið um hálfur metri síð-
ustu daga. Fellibylurinn hefur
valdið tjóni serri nemur miljarð
dala í Texas og kostað 32 manns
lífið, þar af átta í Texas. Urn
100 þús. manns hafa flúið frá
heimilum sínum.
Jafnteíli varð í báðum leikj-
unum mUli Vals og Fram í ís-
landsmótinu í sumar og leikur-
inn í dag verður áreiðanlega
mikill baráttuleikur. Dómari
verður Magnús V. Pétursson og
línuverðir Hreiðar Ársælisson og
Karl Jóhannsson.
festing stendur ónotuð hér og atvinnuskortur er
hjá málmiðnaðarmönnum.
Nýjasta dæmið af þessu tagi
er að stjórnarvöldin hafa nú
ákveðið að senda togarann Gylfa
til Noregs, en þar á að breyta
honum í síldveiðiskip. Togarinn
Gylfi var á sínum tíma gerður
út frá Patreksfirði, en hann hef-
ur nú legið ónotaður um alllangt
skeið. Fyrir nokkru festu sigl-
firzkir aðilar kaup á skipinu í
því skyni að nota það til síld-
veiða. Til þess þarf að gera
ýmsar breyting^ m.a. á skrúfu-
útbúnaði, og íara yfir skipið
allt, þar sem það hefur legið
ónotað að undanförnu. Ákveðið
hefur verið að þessi viðgeið
fari fram í Noregi, hafa eig-
endur fengið öll nauðsynleg leyfi
til þess. þar á meðal bankaá-
byrgðir fyrir noi'skum lánum.
Kostnaður við breytinguna í
Noregi er áætlaður 800.000 n.
krónur.
Skipið er liirft vegar þannig
á sig komið að tryggingafé-
lögin neituðu að tryggja það
á leiðinni til Noregs nema
gerðar væru lagfæringar á
vélinni áður. Ekki varð kom-
izt hjá því að gera þær lag-
færingar hérlendis, og eru
þær unnar hjá Birni og Hall-<
dóri og Vélsmiðjunni Héðni.
íslenzkum fyrirtækjum er
semsé það eitt eftir skilið að
vinna að því að unnt sé að
senda verkefnin úr landi! Lag-
færingarnar á vélinni eru
hins vegar mun meiri ná-
kvæmnisvinná' en það sem
gera á í Noregi, og íslenzk
fyrirtæki hafa alla aðstöðu og
mannafla til þess að fram-
kvæma lagfæringuna að fullu.
í þessu dæmi er ekki aðeins
um að ræða einkaaðila sem eru
að notfæra sér „frelsi“ viðreisn-
arinnar til þess að ráða útlend-
inga til starfa í stað íslendinga.
Hér eiga stjórnarvöldin beinan
hlut að máli. Þau hafa aðstoðað
Siglfirðinga við að eignast tog-
arann og þau láta í té ábyrgðir
og ieyfi tii l>ess að unnt sé að
senda hann úr liandi.
Rusk hræddur við
kynþáttafordéma
/
WASHINGTON 23/9. Því er
haldið fram í Washington að
Dean Rusk utanríkisráðlierra
hafi boðizt til að segja af sér
í sambandi við það að dóttir
hans, Margaret Elizabeth, giftist
blökkumanni á dögunum. Tals-
maður Hvíta hússins hefur neit-
að að segja nokkuð um þennan
orðróm.
Sagt er að Rusk hafi óttazt, að
það kunni að valda Jóhnson for-
seta óþægindum svo og stjóm-
inni að dóttir hans hefur ,,rofið
kynþátfcamúrinn" með þessum
hætti.
Norimenn viiurkenna ai Leii-
ur Eiriksson var íslendingur
■ Laks hafa Norðmenn
viðurkennt, að Leifur Eiríks-
son, sem fann Vínland, var
íslendingur en ekki Norð-
maður. Afþakkaði sýslumað-
ur Rogalands Leifsstyttu frá
Ameríku á %þessum forsend-
um.
Frá því segir í nýlegu hefti
af Norges Handels og Sjöfarts
Tidende að próf. August Wer-
ner við Washington-háskóla hafi
boðið Rogalandsfylki frummynd
styltunnar af Leifi Eiríkssyni í
Seattle. Myndin er úr gipsi og
hefði fylkið orðið að láta steypa
hana í brons, en það hefði kost-
að nær 50 þúsund krónur norsk-
ar fyrir þriggja metra styttu,
segir blaðið.
Að ráði sýslumanns ákvað
fylkisrað Rogalands að afþakka
tilboðið á þeim forsendum að
Leifur Eiríksson hafi aldrei ver-
ið í Noregi, svo vitað sé, og
heldur. ekki haft neitt samband
við Rogalantj. né Noreg yfirleitt,
fyrir utan það að faðir hans,
Eiríkur rauði, bjó að Jaðri áð-
ur en „hann fór með föður sín-
um, Þorvaldi ÁsvaldsSyni til fs-
lands vegna manndráps og kom
aldrei aftur“, eins og sýslumað-
urinn orðaði það.
Segir að lokum í greininni að
sýslumaðurinn hafi fengið * það
staðfest af ambassador fslands
i Noregi, að Leifur Eiríksson var
íslendingur.
— íslenzk fyrirtæki fá að gera við
vélina svo að skipið komist utan!
□ Ennþá halda stjómarvöldin áfram að senda
til útlanda verkefni í jámiðnaði sem hægft væri
að vinna hér heima, á sama tíma og dýrmæt f jár-
Umræðufundur Alþýðu-
bandalagsins / Reykjavék
□ Fyrsti umræðufundur Alþýðubandalagsins verðqr hald-
inn á morgun, mánudag, kl. 20,30 í Lindarbæ uppi og mun
hann fjalla um „VIÐHORF SÓSÍALÍSKRA FLOKKA TIL
STJQRNARSAMSTARFS MEÐ BORGARAFLOKKUNUM1 ‘.
— M.a. verður komið inn á eftirtalin efnisatriði:
Reynsla Nenni-sósíalista á ltalíu.
Samvinna danska SF-flokksins við sósíaldemókrata
og gagnrýni á hana.
Reynslan af nýsköpunarstjóm og vinstristjóminni.
Nýjar hugmyndir um leiðir til að breyta þjóðfé-
lagsgerðinni. ’
□ Málshefjendur eru Ragnar Arnalds, Jóhann Páll Árna-
son, Loftur Guttormsson og Svavar Gestsson. Umræðu-
stjóri er Guðmundur Magnússon, verkfræðingur.
Jóhann Páll Árnason
Guðmundur Magnússon
Loftur Guttormsson
Ragnar Arnalds.
Sunnudagur 24. september 1967 — 32. árgangur — 214. tölublað
ALÞYÐUBANDALAGID I
|
Fjölmennið á umræðufundinn sem haldinn verður í Lindar-
bæ annað kvöld kl. 8.30.
■
■
Umræðuefni: Viðhorf sósíalískra flokka til borgara-
legs samstarfs.
■
w»tiw«»n—■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Togarinn Gylfi sendur ut
4