Þjóðviljinn - 28.09.1967, Síða 7
Fimmtudagur 28. septembsr 1967 — ÞJÖÐVTLJXNN — SÍÐA J
T
j^íéa
Glœsilegur árangur Er
lends Valdimarssonar
□ Erlendur Valdimarsson í ÍR vann það
einstæða afrek á innanfélagsmóti á Melavell-
inum í Reykjavík, að setja þrjú unglingamet
sama daginn, í ólíkum greinum, og voru það
þessar greinar: Kúluvarp: 15,46 m. Hann ^tti
gamla metið sjálfur. Kringlukast: 49,80 m.
Hann átti einnig gamla metið sjálfur, og í
sleggjukasti 48,43 m en gamla metið átti Jón
Ö. Þormóðsson ÍR.
Q Erlendur Valdimarsson hefur sýnt mikl-
ar framfarir í sumar og má reikna með að
hann fari nú í haust yfir 16 metra strikið í
kúluvarpi og 50 metra strikið í kringlukasti.
Til vinstri: Málverk cftir Gunnlaug Blöndal sem synt er í Liibcck.. Tii haegri; málverk eftir
Finn Jónsson.
Verk tíu íslenzkra lista-
manna á sýningu í Liibeck
□ Um þessar mundir stendur yfir í Lubeck málverka-
sýning sem Myndlistarfélagið efndi til í boði Hansaborg-
arinnar. Þar eru sýnd um .80 málverk eftir 10 íslenzka
listamenn. Meðal íslenzku listamannknna sem verk eiga
á sýningunni er Jutte Devulder Guðbergsson, sem fædd
er í Lúbeck og átti hún frumkvæðið að því að þessi sýn-
ing var haldin.
Þetta er í þriðja sinn sem
íslenzk myndlistarkynning er
haldin í Liibeck. Fyrri sýn-
. ingamar voru 1928, fyrsta yfir-
lilssýning íslenzkra málara —
og 1962. Sýning Myndlistarfé- '
lagsins, sem haldin er í sýn-
ingarsal safnhússins Dom-Mus-
eum í Lubeck var opnuð 7.
september s.l. og Dýkur henni
1. okt. næstkomandi, en síð-
an verða verkin sýnd i Berlín
og ef til vill vfðar.
Við opnun sýningarinnar
voru viðstaddir forráéaimenn
borga.rinnar, auk margra ann-
arra gesta. Frú Jutta Devulder
Guðbergsson mætti sem full-
trúi Myndlistarfélagsins. Bæð-
ismaður íslands, Franz E. Si-
emsen opnaði sýninguna og
dró hann upp mynd af náttúru
Islands og fslendingum og
rakti í 'stórum dráttum sðgu
hinnar ungu íslenzku málara-
listar.
í ávarpi sem borgarráðherr-
ann Heine flutti við opnunina
var komizt svo að orði að verzl-
unarviðskipti milli fslands og
Þýzkaílands væru mjög mikil,
en samskipti á sviði menning-
armála væru stundum erfið-
leikum háð vegna tungunnar.
Fagnaði hann því að unnthefði
verið að halda þessa málverka-
sýningu.
Á sýningunni eru verk eftir
þessa listamenn:
Ásgrím Jónsson, Gurtnlaug
Blöndal, Jóhannes S. Kjarval,
Finn Jónsson, Helgu Weiss-
happel. Jón Gunnarsson, Pétur
Friðrik Sigurðsson, Sigurð K.
Árnason, Svein Björnsson og
Juttu Devulder Guðbergsson.
ir Kvenstúdenta-
félags ðslands
Kvenstúdentafélag íslands hef-
ur nýlega veitt 3 námsstyrki að
upphæð kr. 40.000,00, sem skipt-
ast þannig:
Bergljót Magnadóttir, til náms
í náttúrufræði á frlandi, kr.
15.000,00.
Guðrún Öskarsdóttir, til náms
í lyfjafræði í Danmörku, kr.
12.500,00. i
Eufemia Hannah Gísladóttir,
til náms í dýralæknisfræði í
Danmörku, kr. 12.500.00.
Sængurfatnaður
- Hvítur og mislitur -
★
ÆÐARDtTNSSÆNGUB
GÆSADÚNSSÆNGUB
DRALONSÆN GUB
SÆNGÚRVEB
LÖK
KOÐDAVER
Skólavörðustig 21.
Solzjenitsyn er ákærður
fyrir andso vézkan áróður
□ Fréttaritari frönsku fréttastofunnar AFP í Moskvu
segir að sovézka rithöfundasambandið hafi formlega á-
kært rithöfundinn A'lexander Solzjenitsyn fyrir að hafa
framið andsovézkan áróður í bók sinni: Dagur í lífi Ivans
Denisovitsj.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum að rithöfundasam-
bandið hafi komið saman á
föstudag í fyrri viku til að
ræða bréf frá Solzjenitsyn, þar
sem hann ber fram mótmæli
gegn ritskoðun á bók hans og
fer þess á leit að bann á síð-
ustu bók hans, sém gefin hef-
ur verið út á ensku undir nafn-
inu ,,Cancer Ward“ verði num-
ið úr gildi.
Bréf þetta var sent rithöf-
undasambandinu í maí, en hef-
ur ekki verið birt opinberlega .
í Sovétríkjunum.
Á fundinum á föstudag voru
m.a. Konstanþ'n Fedin, og vin-
ir Solzjenitsyns, Aleksander
Tvardovski ritstjóri Novi Mir
og Konstantín Simonov.
Bókmenntafólk í Moskvu tel-
ur að Solzjenitsyn muni nú
birta yfiriýsingu þar semhann
beri af sér ásakanir rithöfunda-
sambandsins.
Áætlanir um stórfelldar að-
gerðir blökkumanna vestra
Q Dr. Martin Luther King, seon að undan-
fömu hefur staðið nokkuð í skugganum af hreyf-
ingunni. fyrir „svörtu valdi“ hefur nú gert á-
ætlanir um mikla borgaralega óhlýðwiherfí^'ð.
Q Harry Belafonte og aðrar stjörnur munu
taka þátt í skemmtanahaldi víða um Bandarík-
in til að standa straum af kostnaði við aðgerð-
irnar.
láta mest kveða að hinni nýju
herferð í Washington og verði
þar famar kröfugöngur áðuren
þingmenn fara í jólafrí.
King hefur áður látið aðþví
liggja að hægt væri að skipu-
leggja það, að þúsundir ungra
Dr. Martin Luther King
atvinnuleysingja slægju upp
tjaldbúðum í Washington og
þúsundir annarra gætu jafn-
framt hafið setuverkfall víða
fyrir verksmiðjudyrum.
En hvaða form sem verður
á mótmælaaðgerðunum, segir
King að þær verði svo um-
fangsmiklar að hinir hvitu
vaJdamcnn neyðist til að hefj-
ast handa.
«
Að ná frumkvæðinu aftur.
Dr. King viðurkennir að
þegar hann hvetji nú til svo-
nefndra borgaralegrar óhlýðni
sé það tilraiun til að ná aftur
til allra þeirra sem aðhyllzt
hafa baráttuhreyfingu blökku-
manna fyrir ,,svörtu valdi“.
Ef hreyfing vor hefur misst
áhrif er það vegna þess að
hvítu valdamennimir hafa virt
jað vettugi baráttu okkar án
ofbeldis, segir King.
Hann nefnir Milwaukee sem
dæmi um þetta. Þar hefur ver-
ið efnt til ýmissa mótmælaað-
gerða, en enginn árangur hefitr
sézt af því enn.
Dr. King hefur nú i heilt ár
unnið að því að endurheimta
þau áhrif sem hann hafði yfír
fjölmennum * blökkumannahóp-
iim í Bandaríkjunum og glat-
aði.
Samtök hans eru veikari en
áður vegna uppþota herskárra
blökkumanna og hins svonefnda
„White Backlash“ gagnsóknar
hvítra manna.
Eftir fundinn í Warrenton
hef ég fengið mikilu Ijósari hug-
mynd um það hvað við verð-
um að gera, segir dr. Martin
Lutherv King friðarverðlauna-
hafi.
Alexander Solzjenitsyn
% viku varan
Bai*nanáttföt kr. 65,00 Crepe sokkabuxur barna kr. 75,00
Drengjanáttföt — 98,00 Crepe sokkabuxur kvenna — 58,00
Herranáttföt — 198,00 Nylonsokkar kvenna frá —- 15,00
Herranærbolir — 26,00 Kvenbuxur, crepe m/skálmum — 55,00
Herranærbuxur — 26,00 Sundbolir, frá — 149,00
Herrasokkar, crepe — 29,00 Náttkjólar, kr. 195,00 til — 295,00
Herrasokkar, ull — 49,00 Undirkjólar, kr. 148,00 til — 198,00