Þjóðviljinn - 14.10.1967, Side 4
4 StHA — ÞJÓÐVLLJLNN — Lðueardagur 14. ofctóber 1961.
Otgefandi:
alþýðu — Sósialistaflokk-
Ritstjórar:
Auglýsingastj.:
Framkvstj.:
Magnús Kjartansson,
Sameiningarflokkur
urinn.
Ivar H. Jónsson, (áb.j,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Sigurður T. Sigurðsson.
Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðustíg 19.
Sími 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr- 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7.00.
Brýnasta bjargráðið
Jjessa dagana dynur á þjóðinni einhver skjótvirk-
astá og mesta verðbólgubylgja sem um getur í
sögu landsmanna, og kann hún þó að greina frá
mörgum slíkum dæmum. Meðal annars hækka
hverádagslegustu matvæli, kartöflur, kindakjöt og
kjötvörur, cmjólk og mjólkurvörur meira en dæmi
eru um fyrr — og kemst hækkunin upp í nær
100% á kartöflum. Alls er þetta nýja verðbólgu-
stökk talið jafngilda 750 miljónum króna á ári eða
hátt í 4.000 krónum á hvert mannsbam í landinu,
20.000 krónum á fimm fmanna fjölskyldu. Og það
er ærin ástæða til að skipta þessum verðhækk-
unum niður á alla landsmenn frá vöggu til graf-
ar, því hér er fyrst og fremst um nefskatta að ræða
sem allir greiða og leggjast þá að sjálfsögðu þyngst
á þá sem eiga af minnstu að má efnahagslega.
Jginat saman verðhækkanirnar á kartöflum, kjöti,
mjólk ,og mjólkurvörum nema 410 miljónum
króna á ári, en af þeim sökum mun núgildandi
framfærsluvísitala hækka um ca. 12 stig. Aðrar
álögur, hækkun á tryggingariðgjöldum, sjúkra-
samlagsgjöldum, fasteignagjöldum, pósti, síma,
hljóðvarpsgjöldum, sjónvarpsgjöldum, ferðalaga-
skattur, hækkun á tóbaki og áfengi, eru taldar
nema 340 miljónum króna á ári, en áhrif þeirra
hækkana á núverandi vísitölu eru aðeins ca 2 stig
vegna þess hve grundvöllur hennar er 'takmark-
aður. Ef þær hækkanir hefðu hliðstæð áhrif og
hækkunin á landbúnaðarvörum, onyndi núgildandi
framfærsluvísitala hækka um rúm 20 stig, og mun
sú viðmiðunartala gefa næsta rétta mynd af á-
hrifum hinna nýju ráðstafana. En þar á aðeins
að vera um viðmiðun að ræða, því það er eitt at-
riði í hinum nýju aðgerðum að launafólk á að bera
óðaverðbólguna bótalaust með öllu. Þar sem fram-
færsluvísitalan er nú 195 stig, jafngildir kjara-
skerðingin því rúmlega 10% — kaupmáttur launa
verður minnkaður um tíunda hluta. Raunar mun
kjaraskerðingin verða mun meiri hjá þeim sem
búa við þrengstan efnahag og verða að nota mest-
an hluta tekna sinna í matvælakaup. Og þarna er
ekki aðeins um að ræða mjög tilfinnanlega kjara-
skerðingu, heldur vísvitandi svik ríkisstjórnarinn-
ar á samkomulagi því sem hún gerði við verklýðs-
félögin og kennt er við júní. Alþýðusamtökin hafa
því ekki aðeins brýna hagsmuni félagsmanna sinna
að verja, heldur og sóma sinn.
I
jyjikið hefur verið rætt að undanfömu um þann
vanda sem nú steðji að þjóðinni vegna minnk-
andi gjaldeyristekna í samanburði við metárið í
fyrra. Ekki skal gert lítið úr þeim vanda, en hann
er þó hégóminn einber hjá hinu að hafa í stjóm-
arfomstu menn sem einvörðungu, vilja hagnýta
vandann til þess að gerbrey.ta tekjuskiptingu þjóð-
félagsins launafólki í óhag. Það bjargráð sem nú
er brýnast er að hrinda þessum siðlausu og órétt-
látu árásum á lífskjör launafólks með öllum til-
tækum ráðum. — m.
Yfirlýsing Bjarna B enediktssonar for*
sætisráíherra um stjórnarsamninginn
Á fundi sameinaðs þings í
fyrradag flutti forsætisráð-
herra, Bjami Benediktsson, eft-
irfarandi boðskap:
Alþýðuflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn hafa nú haft
samvinnu í ríkisstjórn síðan
haustið 1959 eða í 8 ár. Hefur
þetta samstarf staðið lengur
samfleytt en nokktur önnur
samvinna um stjóm landsins.
Við upphaf þess mótuðu flokk-
arnir nýja stefnu i efnahags-
málum. Markmið hennar var
að styðja að aukningu þjóðar-
tekna og bættum lífskjörum
með því að beina framleiðslu
og viðskiptum inn á hagkvæm-
ar brautir, rétta við afgreiðslu-
jöfnuð við önnur lönd ogend-
urvekja lánstraust þjóðarinnar
erlendis. Stefna sú, sem fylgt
hefur verið, hefur ásamt mik-
illi framleiðslu og hagstæðu
útflutningsverðlagi sjávaraf-
urða hin síðari ár fram á árið
1966 orðið þe$s valdandi, að
þjóðártekjur hafa á undanförn-
um árum vaxið meira en á
nokkru öðru sambaerilegu
skeiði, þannig að lífskjör þjóð-
arjnnar jafnt til sjávar og
sveita hafa að undanfömu ver-
ið betri og batnað örar, en
nokkru sinni fyrr. Þetta á sinn
þátt í því að þjóðin hefurvott-
að stjómarflokkunum traust í
þeim tvennum Alþingiskosn-
ingum, sem háðar hafa verið
frá þvi að þeir gengu saman
í ríkisstjóm. Alþingiskosning-
arnar nú í sumar leiddu ílljós,
að stjórnarflokkarnir hafa
meirihluta kjósenda að baki
hér og hlutu meirihluta í báð-
um deildum alþingis. Það er
þess vegna ótvíraeður viiji kjós-
erida, að stjómarflokkarnir
haldi samstarö sínu áfram,
enda hafa þeir ákveðið aðgera
það.
Verkefni þau, sem nú blasa^-
við, em hins vegar mjög ólík
þeim, sem verið hefur við að
etja á undanförnum árum.
Verðfall á helztu útflutnings-
vömm, erfitt árferði víða um
land og aflatregða hafa á sfð-
ustu misserum gerbreytt við-
horfum í íslenzkum efnahags-
málum. Vegna þess, að alHur.
almenningur hefur að undan-
fömu fengið, hlutfallslega
meira en fyrr af stórauknum
þjóðartekjum, verður ekki hjá
því komizt, að samdráttur
þeirra um sinn leiði nú til
minnkandi tekna launþega
jafnt og annarra. En aðalvið-
fangsefnið hlýtur að verða að
koma í veg fyrir, að þessir
örðugleikar leiði til atvinnu-
leysis og varanlegrar kjara-
skerðingar. Til þess, að það
takist, þarf að gera ráðstafan-
ir til að ná jafnvægi í tekj-
um og gjöldum ríkissjóðs,
helztu atvinnugreina og þjóðar-
búsins '• heiHd.
Verðfallið, scm hófst fyrir
rúmu ári, gerði að verkum, að
augljóst var, að útflutningsat-
. vinnuvegimir gætu ekiki risið
undir aukningu framleiðslu-
kostnaðar. Ákvað ríkisstjómin
því að beita sér fyrir verð-
stöðvun, í trausti þess, að laun-
þegar æsktu þá ekki launa-
hækkunar. f þessu skyni varð
ríkisstjómin að stórauka nið-
urgreiðslu vöruverðs samfara
öðrum ráðstöfunum • jafnframt
því, sem aðstoð við sjávarút-
veginn var aukin. Var þetta
kleift í bili; án nýrrar tekju-
öflunar, vegna mikils tekjuaf-
gangs ríkissjóðs á árinu 1966,
enda voru þá taldar horfur á,
að verðfallið yrði ekki varan-
legt. Nú hefur raunin orðið
önnur svo bersýnilega er ekki
unnt að minnka fyrirgreiðslu
við sjávarútveginn og ef halda
ætti ölíum þeim niðurgreiðsl-
um, sem eiga sér stað, auk
fjáröflunar til þess að greiða
óhjákvæmilegan kostnaðarauka
rfkisbúsins vegna fólksfjölgun-
ar og skuldbindinga, sem þegar
hvíla á ríkinu, hvrfti á næsta
ári að afla um 750 miljón kr.
nýrra tekna til þess að ríkis- •
búskapurinn yrði hallalaus.
Þess vegna hefur ríkisstjórn-
in ákveðið, að fella niður þær
niðurgreiðslur á íslenzkum
landbúnaðarafurðum, setn á-
kveðnar hafa verið vegna verð-
stöðvunarinnar. Er hér um að
ræða niðurgreiðslur að upphæð
410 milj. kr. á ársgrundvellli. Þá
hefur verð áfengis og tóbaks
nú verið hækkað, og er áætlað,
að það auki tekjur ríkissjóðs
á næsta ári um 75 milj. kr. Ó-
hjákvæmilegt er að fallast á
tillögu Tryggirtgastofnunar rík-
isins um hækikun iðgjalda um
rúmlega 60 miljónir króna þvf
að ella væri fjárhag stofnunar-
innar stefnt í voða. Leyfð
verður hækkun daggjalda
sjúkrahúsa, sem frestað var í
ár með sérstökum greiðslum
úr ríkissjóði. Þá munu af-
numdar undanþágur sem í- gildi
hafa verið um greiðslu sölu-
skatts af póst- og símagjöHdum
og afnotagjaldi af Mjóðvarpi og
sjónvarpi. Eykur það tekjur
ríkisins um 40 milj. kr.
Jafnhliða ' fjárlagafrumvarp-
inu mun ríkisstjórnin leggja
fyrir Alþingi frumvárp um sér-
staka tekjuöflup og aðrarnauð-
synlegar ráðstafanir vegna
efnahagsörðugleikanna. Ætlun-
in er að leggja skatt á farmiða
til útlanda, 3000 krónur á hvem
miða og er gert ráð fyrir. að
þessi skattur afli ríkissjóði um
60 milj. kr. tekna á ári. Enn-
fremur verður lagt til, að við
álagningu eignaskatts • verði
fasteignamat í kaupstöðum <í>g
kauptúnrtm tólf-faldað í stað
þess, að það er nú sex-faldað,
en sexfaOdað í sveitum, þarsem
engin matshækkun er nú, og
verður þessi hækkun þó lægri
en hins nýja fasteignamats.
Jafnframt verður lágmark
skattskyldra nettóeigna tvöfald-
að til þess að hækkun fast-
eignamatsins komi ekki niður á
fólki, sem er tiltölulega eigna-
litið. Auk þess munu verða
gerðar ráðstafanir til sparnað-
ar í opinbérum rekstri.
Með framangreindum ráðstöf-
unum á ríkisbúskapurinn að
að geta orðið hallalaus á næsta
ári, en það er frumskilyrði þess,
að hægt sé að ráða við þá efna-
hagsörðugleika, sem nú steðja
að.
Þessar ráðstafanir og þá auð-
vitað fyrst og fremst niðurfell-
ing þeirra niðurgreiðslna, sem
upp hafa verið teknar, síðan
verðstöðvunin komst á, hljóta
að auka framfærslukostnað.
Kaupgjalldsnefnd og Hagstofan
hafa reiknað út tvær vísitölur
um breytingar á framfærslu-
kostnaði. Samkvæmt gildandi
lögum breytist kaupgjald í sam-
ræmi við breytingar á eldri
vísitölunni. Það verður hins
vegar ekki vefengt, að riýrri
yísitalan er réttari mælikvarði
á breytingu raunverulegs fram-
færslukostnaðar, þvi að hann
er miðaður við neyzluvenjur á
árinu 1965 en ekki 1953-54 eins
og hinn fyrri, þegar lífskjör
almennings voru miklu lakari
en nú. Nýrri vísitalan er talin
munu hækka um 4-5°/» í kjöl-
far þeirra ráðstafana, sem nú
hefur verið lýst. Á hinn bóg-
inn er fulilvíst, að atvinnuveg-
ir landsmanna geta ekki eins
og nú horfir greitt hækkað
kaup. Þess vegna er nauðsyn-
legt að koma í veg fyrir, að
þessi hækkun framfærslukcstn-
aðar valdi tilsvarandi kaup-
hækkun, og eru þyi í frum-
varpinu ákvæði um það, að
kaup skuli ekki hækka vegna
þessara ráðstafána. Að frátöld-
um slíkum óhjákvæmilegum
verðhækkunum eins og þeim,
sem taldar hafa verið, mun
ríkisstjómin áfram fylgja verð-
stöðyunarstefnu, og er gert ráð
fyrir, að ákvæði núgildandi
verðstöðvunarlaga séu fram-
lengd með því frurinvarpi, sern
áður er getið um. Jafnframt er
ætlunin, að hin nýja vísitala
taki gildi 1. marz n.k. og mið-
ist kaupgjald framvegis við
hana á sama hátt og verið hef-
ur samkvæmt hinni eldri vísi-
tölu.
Þær ráðstafanir, sem nú hafa
verið talldar eru tvímælalaust
lágmark þess, er gera þarf at-
vinnuvegunum til styrktar. A
undanfömum árum hefur ávallt
þurft að framkvæma öðru
hvoru aðgerðir af því tagi, sem
nú eru ráðgerðar. Slíkt er auð-
vitað óæskilegt. Til þess að
eyða nauðsyn þvílíkra skyndi-
aðgerða ætíð öðru hvoru, þarf
að gera atvinnuvegi þjóðarinn-
ar fjölbreyttari og síður sveifl-
um háða, jafnframt því, sem
markvíst verði að því unnið, að
auka framleiðni í öllum at-
vinnugreinum sem og hag-
kvæmni í rekstri ríkis og sveit-
arfélaga. Stjómarflokkamir eru
sammála um, að þetta sé á
meðal mikilvægustu verkefna
næstu ára, og mun ríkisstjómin
leggja höfuðáherzlu á, að ár-
angur náist í þessum efrrum.
1 'þessd skyni mun ríkis-
stjómin beita sér fyrir, að
framleiðsllugeta atvinnuveganna
verði nýtt sem bezt, enda verði
þessa gætt bæði í rekstri og
fjárfestingu.
1 sjávarútvegi verði lögð
sérstök áherzla á endur-
nýjun þorskveiðiflotans og þá
endurskipulagningu fiskvinnsl-
unnar, sem nú þegar er hafin,
þannig að betur nýtist þau
Framhald á 7. síðu.
Dr. Kristinn Guðmundsson
' Sjötugur
Dr. Kristinn Guðmundsson er
glæsi legur Islendingur. Þegar
við, sem vorum samtíða dr.
Kristni í Moskvu leiðum hugann
til samskipta við hann, verður
okkur dátt í skapi er við
rifjum upp mannfundi, þar sem
þessi hávaxni og herðabreiði
sómamaður mcð hvítan ljóns-
makkann bar höfuð og herðar
yfir annað fólk. Það var upp-
hafning í því að eiga sér slík-
an fulltrúa- Ekki sízt þar sem
okkur fannst dr. Kristinn einn-
ig bera af öðru fólki að innræti.
Hann er alltaf jafn hreinn
og beinn i framkomu og var
blessunarlega laus við að setja
sig í diplómatískar stellingar
gagnvart okkur. Við áttum
margar . ánægjulegar stundir
með dr. Kristni. Hann er
gleðimaður, ólatur forsöngvari
ef þörf krefur og það var ekki
á honur.i að sjá, fyrir tveitr,-
þrem árum undir lágnættið
einh”e',)u sinni, þegar hann
stóð á rauðum axlaböndum og
söng Ölafur Liljuros méð urg-
imi löndum sínum, að hann
væri kominn á eftirlaunaaldur.
Hins vegar er það alkunna að
hann er klókur diplómat í
starfi og hefur gengið mjög
fram í því að efla viðskipta-
og menningartengsl Islands og
Sovétríkjanna, jafnvígur á
frosna síld og listdans.
Dr. Kristinn er höfðingi heim
að sækja og þá helzt er eitt-
hvað liggur við. Hann er boðinn
og búinn að leysa hvers manns
vandræði og myndugleiki per-
sónunnar gerir það að verkum,
að maður þiggur greiðvikni og
elskusemi hans eins og ekkert
væri sjálfsagðara.
Það var gaman að kynnast
dr. Kristni og eftir á finnst
manni það mikilsvirði, að þau
kynni skyldu verða f jarri heima-
landinu, því í erlendu umhverfi
ljóma bókstaflega þeir mann-
kostir, sem dr. Kristinn er
gæddur í svo ríkum mæli og
við viljum kalla íslenzka.
Konu hans frú Elsu og öllu
hans fólki óskum Við til ham-
ingju með karlinn, og þeim
hjónum' báðum óskum við
heilsu, hreysti og langra líf-
daga-
Magnús Jónsson.
Kristinn Guðmundsson er
fæddur að Króki á Rauðasandi
í Barðastrandasýslu 14. október
1897. Foreldrar hans voru þau
hjónin Guðmundur Sigfreðsson
bóndi og hreppstjóri á Króki
og Guðrún Júlíana Einarsdótt-
ir Thoroddsen kona hans.
Kristinn lauk stúdentsprófi
(u tanskóla) frá Menntaskólanum
í Reýkjayík" vorið 1920 og las
á næstu árum lögfræðd og hag-
fræði við hásbólana í Kiel og
Berlín. Doktorsprófi í hagfræði
lauk hann við Kielartháskóla
árið 1926.
Næstu 3 ár stundaði Kristinn
Guðmundsson verzlunarstörf og
hafði á hendi einkakennslu í
Reykjavík og Hamborg, en hinn
I. september 1929 var hann ráð-
inn kennari við Menntaskólann
á Akureyri og við þann skóla
kenndi hann síðan til ársins
1953, síðosta áratuginn sem
stundakennari.
Hann var skattstjóri á Akur-
eyri 1944-1953 og embætti, utan-
ríkisráðherra gegndi hann frá
II. september 1953 til 24. júlí
1956.
Haustið 1956 var dr. Kristirin
skipaður ambassador Islands í
Lundúnum og frá 1. janúar
1961 hefur hann gegnt embætti
ambassadors í Sovétríkjunum,
Rúmeníu, Ungverjalandi og
fleiri löndurn, með aðsetri í
Moskvu. Nýlega var honum
veitt lausn frá störfum vegna
aldurs, frá næstu áramótum að
telja.
Auk framangreindra embætt-
isstarfa hefur dr. Kristinn
Guðmundsson gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum. Hann var end-
urskoðandi hjá sýslumönnum
fyrir ríkissjóð 1930-31, í skatta-
nefnd Akureyrar 1930-44, for-
maður fasteignamatsnefndar
þar 1938-53, formaður húsa-
leigunefndar 1940-53, bæjarfull-
trúi á Akureyri 1950^53, í riið-
urjöfnunamefnd 1940-53, íbóka-
safnsnefnd 1931-53, og í stjóm
Laxárvirkjunar. Hann sat tví-
vegis á Alþingi sem varaþing-
maður Eyfirðinga.
Kona hans er Elsa Alma,
dóttir Christians Kalbow kaup-
manns í Berlín.
/
V