Þjóðviljinn - 16.11.1967, Side 3

Þjóðviljinn - 16.11.1967, Side 3
Réttarhöld í ,land- ráðamáli' í Aþenu 31 Grikki ákærður fyrir að hafa lotið forystu Theodorakisar gegn stjórninni AÞ'ENU 15/11 — Gríska tónskáldið Mikis Theodprakis var of veikur til þess að hægt vær að leiða hann fyrir rétt í dag með öðrum ákærðum Grikkjum sem sakaðir eru um neðanjarðarstarfsemi. Theodorakis getur ái't dauðadóm yfirvofandi. Sakborningar eru ákærðir fyrir að hafa lotið forystu Theodorak- isar i neðanjarðarstarfsemi sem miðaði að því að steypa herfor- ingjastjóminni. Sovéik nefnd skipuð tíl uð nthugu „fíjúgundi sigðir" Mikos Theodorakis Talsmaður ríkisstjórnarinnar 6agði í gær að Tlheodorakis væri ekki alvarlega sjúkur, en þar sem búizt er við að réttarhöldin standi yfir í marga daga með margra tíma yfirheyrslum á hverjum degi, töldum við bezt að leiða hann sérstaklegg fyrir rétt síðar, sagði talsmaðurinn. Theodorakis sem varð heims- fraegur fyrir tónlist við kvik- myndarinnar Zorba og Phedra liggur á sjúkrahúsi. Ekki hefur verið frá því skýrt hvað gangi að honum. Theodorakis var handtekinn í Aþenu í ágúst síðastl. eftir að hann hafði verið í felum lengi. Af hinum 31 eru, 15 konur og em þau ákærð fyrir að hafa brotið gegn 20 ára gömlum lög- jm, sem upphaflega voru sett gegn kommúnistum. Samkvæmt ákærunni hafa þau reynt að steypa stjórninni, dreift bæk- lingum gegn henni og fjandsam- legum áróðri í útlöndum og fal- ið Theodorakis eftir valdatöku hernaðarklíkunnar í apríl. Theodorakis sem hefur verið þingmaður EDA (sem er sósíal- istaillokkur) ihefur einnig verið leiðtogi hinna bönnuðu æsku- lýðssamtaka Lambrakis. Kiaraskerðing Framhald af 1. síðu. hefur mest að segja fyrir venju- legt heimili. Stjórnarflokkarnir einhuga um kjaraskerðinguna Allur fundartími neðri deildar Alþingis í gær fór í umræður um kjaraskerðingarfrumvarpið og var auk fundar á venjuíegum tima einnig síðdegisfundur. Gerðu þingmenn stjórnarandstöðunnar harða hríð að ríkisstjóminni. Bjarni Benediktsson var nú heldur hógværari en fyrr og bað menn að hafa ekki í frammi neinar hótanir! Ráðherrarnir væru alllir af vilja gerðir til að athuga úrræði. Hins vegar væru ráðherrar Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins alveg sammú1a um að þetta frumvarp yrði a£ samþykkjast. Því yrði ekki a" stýrt að þjóðin yrði að taka á sig kjaraskerðinguna, óhugssnch væri að afstýra því. Bjarni bar „fróða menn“ fyrir því að það sem stolið er undan af söluskatti kynni að nema 50 miljónum. MOSKVU 13/11 — Nú hefur í Sovétríkjunum verið skipuð nefnd vísindamanna og annarra sérfræðinga til að kanna fyrir- bæri þau sem nefnd hafa verið „fljúgandi diskar“ og var skýrt frá því í Moskvu í dag að eitt tilefnið hefði verið að yfir Kák- asus hefði sézt á lofti hlutur eins og sigð í lögun Einn nefndarmanna skýrði írá því að um eitt þessara fyrirbæra hefðu borizt fimm áreiðanlegar skýrslu? sjónarvotta. í nefnd- inni eru 18 vísindamenn, þ.á.m. stjörnufræðingar. og foringjar úr flughernum og um 200 menn munu vinna úr þeim gögnum sem berast- um fyrirbærin. Þessi frétt vekur nokkra at- hygli vegna þess að í Sovét- ríkjunum hefur jafnan verið talað háðulega um það mikla fjaðrafok sem „fljúgandi diskar" hafa hvað eftir annáð vakið á vesturlöndum, ekki sízt í Banda- ríkjunum, þar sem flugherinn hefur árum saman safnað og unnið úr gögnum um þessi und- arlegu fyrirbæri. Einn af sov-, ézku nefndarmönnunum sagði í dag að fréttirnar af „fljúgandi diskum" sem urðu til nefndar- stofnunarinnar hefðu borizt um sama leyti og fólk víða í Vest- ur-Evrópu sá slík fyrirbæri. Þúsundir munnu gerðu uðsúg uð Deun Rusk i New York NEW YORK 15/11 — Þúsundir manna’ gerðu aðsúg að Hilton-hó- telinu í New York í gærkvöld þar sem til stóð að Dean Rusk utanríkisráðherra héldi ræðu á fundi og reyndu að koma í veg fyrir að hann kæmist inn í hús- ið. Fjöknennt lögregluilið var sent á vettvang og varð hörð viður- eign á götunum við gistihúsið. Umferð stöðvaðist alveg um .götumar og ýmis spjöll voru unnin, en lögreglan beitti kylf- um sínum til að ryðja göturnar svo að Rusk kæmist inn í húsið. DÖMUR Takið effit’ Tökum upp í dag og næstu daga loðfóðrað- ar kuldaúlpur með hettu (lítil númer). Einnig mikið úrval af slám, kjólum, pils- um og kápum. Munið hina hagstæðu greiðsluskilmála. KJÓLABÚÐIN Lækjargötu 2. Sími 19250. KJÓLABÚÐIN Bankastræti 10. Sími 24440. Temple og McCIoskey Shirley Temple var gersigruð SAN MATEO, Kaliforníu 15/11 — Shirley Temple Black sem lieims- fræg varð barn að aldri fyrir leik sinn í kvikmyndum beið mikinn ósigur í kosningum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í San Mateo í gær. Flokksbróðir hennar McCloskey hlaut rúm- lega 55.000 atkvæði, en hún rúm 33.000. Ósigur hennar er talinn stafa af því að hún beitti sér mjög fyrir mögnun Vietnam- stríðsins, en McCloskey lýsti fylgi sínu við það að bandaríski herinn yrði smám saman flutt- ur frá Vietnam. Aðuifundur Skautafélags Reykjavíkur verður haldinn að Frí- kirkjuvegi 11 fimmtudag- jnn 16. nóv. kl. 8,30 stund- víslega. Stjómin. Fimmtudagur 16. nóvember 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J Eiturhernuðurinn í Vietnum eyðir gróðri og dýrulífi Þetta er sjálfsagt aðeins enn ein auglýsingabrellan. WASHINGTON 15/11 — Eitur- hemaður Bandaríkjamanna í Vi- etnam getur leitt til þess að gróður muni eyðast og eitrað verði fyrir dýr í landinu um árabil, segir í skýrslu sem tveir bandarískir vísindamenn hafa samið. Skýrslan birtist í síðasta hefti timaritsins ,Vísindamaðurinn og borgarinn“ en það er allt helgað eiturhernaðinum og eru höfund- ar hennar þeir dr. Arthur Gal- ston, forseti bandaríska grasa- fræðingafélagsins og dr. Jean Mayer, prófessor í næringareðlis- fræði við Harvard-háskóla. Þeir segja i skýrslu sinni að Bandaríkjamenn hafi eftir öllu að dæma ekki náð því markmiði sínu með eiturhernaðinum að koma upp um felustáði og leyni- göng skærulliða en hins vegar hafi notkun eiturefnanna haft í för með sér miklar skemmdir á ávaxtarunnum og gúmmítrjám og emnig spillt uppskeru af ýmsum neyzlujurtum. "Búast megi við að eitrið hafi borizt í læki og fljót og muni eyða þar fiskistofnum. „Daily Expressu ræSir við Philby LONDON 15/11 — Lundúna- blaðið „Daily Express“ birtir í dag viðtal sem fréttamaður þess átti við Kim Philby í Moskvu. Philby var einn af helztu yfir- mönnum brezku leyniþjónustunn- ar um árabil, en flúði til Sov- étríkjanna 1963. Undanfarið hafa brezk blöð skýrt frá ævintýra- legum ferli hans. Philby kvéðst einskis iðrast af þvi _sem hann hafi gert, nema þá e.t.v. þess að hann hefði getað unnið Sov- étrfkjunum meira gagn með betra starfi. LANDSSMIÐJAN ÍUX við atvinnuvegi landsins« PLÖTUSMIÐI RENNSSMÍDI VÉLSMSDI MÁLMSTEYPA ELDSMÍÐI RAFVSRKJUN LANDSSMIÐJAN SIMI 20680. Alþýðubandalagsfólk n FYRR VAR 0F TI K0TI KÁTT" en kátara verður í HLÉGARÐI n.k. föstudag, en þar verður árshátíð Alþýðubandalagsmanna í Reykjaneskjö rdæmi haldin. — Allir eru velkomnir. SKEMMTIATRIÐI — DANS — KÆTl. V

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.