Þjóðviljinn - 22.12.1967, Page 3

Þjóðviljinn - 22.12.1967, Page 3
Föstudagur 22. desember 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Gin- og klaufa- veikin á undanhaidi LONDON 21/12— Brezki land- búnaðarráðherrann Frederick Peart sagði í dag að yfirvöldin hefðu rökstudda von um að gin- og klaufaveikin sem gengið hef- ur í landinu að undanfömu hefði nú náð hámarki. Sjúkdómurinn sem komið hef- ur í ljós á 2000 bæjum er nú á undanhaldi en það kemur enn um nokkra hríð ekki til greina að draga úr varúðarráðstöfun- um til að hindra að sjúkdómur- inn breiðist út. M.a. hafa allir flutningar á búfé verið bannaðir, svo og íþróttamót svo sem veðreiðar og einnig landbúnaðarsýningar. Um 350.000 dýrum hefur ver- ið slátrað á síðastliðnum átta vikum í baráttunni gegn gin- og klaufaveikinni. MYNDIN er tekin á flokks- skrifstofu Vinstrisósíalista í Kaupmannahöfn, en þar láta menn heldur betur hendur standa fram úr ermum þessa dagana. I fyrradag tókst hin- um nýja flokki að safna 30. 000 dönskum krónum og á fyrista degi meðmælendasöfn- unarinnar söfnuðust 1000 und- iskriftir í Háskólanum I Kaupmannahöfn, en alls söfn- uðust 3000 undirskriftir fyrsta daginn. Deildir SF flokksins um allt land eru að klofna þcssa dag- ana og þegar síðast fréttist höfðu 29 bæjarfulltrúar víða um land gengið í VS, 36 höfðu setlð um kyrrt í SF og fimm voru óráðnir- Æskulýðssamtök SF flokks- ins ganga í heilu lagi í Vinsbrisósíalista og sömulciðis stúdentafélög SF við alla þrjá háskólana í Danmörku. Innrás? WASHINGTON, PHNOM PENH 21/12 — Bandaríska herforingja- ráðið athugar nú alvarlega mögu- leika á því að hefja óslitna eft- irför á eftir n-vietnömskum her- mönnum og skæruliðum ÞFF, sem flýja yfir í héruð sem eru innan landamæra Kambodja eða Laos. Bandaríkin vilja koma upp gerfilýðræði í Grikklandi STOKKHÓLMI 21/12 — Það er sameiginlegt verkefni lýð- ræðisríkja í Evrópu að vemda lýðræðið og því ættu þau að koma til ráðstefnu til að rœða það, hvað hægt sé að gera fyrir Grikkland, sagði útlægur aðalritari Miðflokkasam- bandsins gríska, Nikolai Nikolaidis á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. Það verður að vemda Evrópu fyrir frekari útbreiðslu fasism- ans, sagði aðalritarinn og verða lýðræðisríki að bregðast skjótt við annars geta þau átt það á hættu' að nýtt Vietnam skapist í Grikklandi. Þar sem landið liggur á hags- munasvæði bæði austurs og vesturs getur borgarastyrjöld í landinu auðveldlega snúizt upp í stórveldaátök. Aðalritarinn sagði að mat flokksins á Konstantín konuhgi hefði ekki breytzt eða mildazt þrátt fyrir misheppnaða valda- töku konungsins. Við höfum aldrei borið neitt traust til hans og með fram- komu sinni ruddi hann herfor- ingjunum braut til valdaránsins í apríl síðastliðnum. Þegar herforingjaklíkunni verður steypt mun Miðflokka- sambandið beita sér fyrir því að lýðveldi verði komið á í land- Nikolaidis sagðist vonsvikinn yfir afstöðu Bandaríkjamanna til atburðanna i Grikklandi. Á ferðalagi um Bandaríkin nýlega segist hann hafa komizt að því, að Bandaríkin %dldu halda frið við grísku herforingjastjórnina og láta sér nægja að fá hana til , að setja nýja stjórnarskrá og Iáta kosningar fara fram. En kosningarnar verða áreið- anlega ekki frjálsari en t.d. þær sem fram eru látnar fara á Spáiii. Svo virðist sem Bandarikin ætli sér áð koma á nokkurs konar gerfilýðræði í Grikklandi. Konstantín AÞENU, RÓM 21/12 — Gríska stjórnin mun birta nýja stjórn- arskrá innan mánaðar og búast má við einhverjum lýðræðisbót- um, er haft eftir áreiðanlegum heimildum í Aþenu. Þessi ákvæði eru sögð geta leitt til sátta Konstaníns konungs og herforingjasjómarinnar. Konungur dvaldi með fjöl- skyldu sinni f Róm áttunda dag- inn í, dag pg sáust jþess merki að samningar ættu sér stað um heimför hans-til Grikk lands. Eftir sama höfurtd og Fjallavirkið og Gullkjölurinn Desmond Bagley FELU BYLUR Fellibylur. þriðja bók Desmond Bagleys, stendur fyllilega á sporði tveim fyrri bókum þessa vinsæla höfundar, Gullkilinum og Fjallavirkinu, sem náðu óhemju miklum vinsældum og eru nú víðast hvar uppseldar. — Fellibylur er sjálfsögð jólagjöf í ár. Verð kr. 349,00 með söluskatti. Jafnrétti og jafnvel sjálf- stæði á dagskrá í Grænlandi KAUPMANNAHÖFN 21/12 — Kosningabaráttan á Græn- landi mun ekkert gefa eftir kosningabaráttunni í Danmörku. Krafa Grænlendinga um jafnrétti verður höfð á oddin- um og flokkur Eskimóa, Inuit-flokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram eigin frambjóðendur í báðum kjördæmum á Grænlandi. ' f 2. kjördæmi á Grænlandi verður kosið sama dag og í Dan- mörku, 23. janúar. í 1. kjördæmi sem nær yfir norðurhluta Græn- jands verður aftur á móti ekki kosið fyrr en 29. febrúar. Það er kosið svona seínt í þessu kjördæmi vegna þess að íSinn í lok febrúar er orðinn traustari, þannig að auðveldara verður að flytja atkvæðaseðlana saman frá hinum dreifðu og smáu kjörstöðum. Tónninn í grænlenzku kosn- íngabaráttunni er þegar orðinn mjög harður og krafan um sjálf- stæði Grænlands hefur þegar verið sett fram. Fyrrverandi formaður Inuit- flokksins, Ulrik Rosing, hefur VARSJÁ 21 /4.2 — Utanríkisráð- herrar frá mörgum Austur-Evr- ópulöndum luku þriggja daga umræðum í Varsjá í dag. Sam- eiginleg opiijber yfirlýsing um fundinn verðjlr gerð á morgun. sagt í viðtali við Grænlands- póstinn nýlega að hann ætli að stofna Sjálfstæðisflokk. Inuit-flokkurinn sjálfur er einnig mjög hlynntur þessari hugmynd. Formaður flokksins, Thomas Bertels, sagði fyrir skömmu, að verði ekki jafnrétti Grænlendinga og annarra danskra ríkisborgara látið koma til framkvæmda hið bráðasta verði Danir að reikna með þvl að Grænlendingar muni vinna að því að fá fullt sjálfstæði eins og aðrar fyrverandi ný- lendur. jólaumbúðapappír 40 og 57 cm rúllur HEILDSÖLUBIRGÐIR Eggert Krístjánsson & Co. b.f. VERÐ KR. 295,- VÖRBUFEll ...ijöamiiii mikuii Snilldarlega skrifuð njósnabók eftir meistara slíkra skáldsagna, Jhon Lé Carré, höfund metsölubókarinnar „NJÓSNARINN, SEM KOM INN ÚR KLÍLDANUM." Bókaútgáfan VÖRÐUFELL - Bókaútgáfan VÖRÐUFELL - Bókaútgáfan VÖRÐUFELL - Bókaútgáfan VÖRÐUFELL

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.