Þjóðviljinn - 23.12.1967, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 23.12.1967, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Laugardagur 2S. desember 19CT. Ctgefandl: alþýð'u — Sóslalistaflofck- Magnús Kjartansson, Samein in garfl ofcfcur urínn. tvar H. Jónsson, (áb.), Sigurður Guðmundsson. Sigurður V Friðþjófsson. Sigurður T Sigurðsson. Eiður Bergmann. Ritst.ióm. afgreíðsla. auglýslngar. prentsmiðja Skólavörðustlg 19 Sími 17500 (5 Ifnur) — Áskriftarverð kr 105.00 á mánuði. — Lausasöluverð fcrónur 7.00. Ritstjórar: Fréttaritstjóri: Auglýsingastj.: Framfcvstj.: „Á réttri leið ■■ |>að er mikill háttur í stjórnmálaumræðum á ís- landi að gera mönnum upp skoðanir og atyrða þá síðan fyrir kenningar sem þeim hafa aldrei til hug- ar komið. Þannig er því nú haldið fram af nýstár- legri samfylkingu sem spannar frá Alþýðublaðinu til Frjálsrar þjóðar og Verkamannsins á Akureyri, að Þjóðviljinn vilji sem minnst gera úr gagnsemi verðlagseftirlits og sé jafnvel orðinn andvígur því. Fyrir slíkri kenningu er að sjálfsögðu ekki flugu- fótur; Þjóðviljinn hefur löngum fjallað einn ís- leniL ra blaða um verðlagsmál og verðlagseftirlit, til að mynda á undanförnum árum þegar Alþýðu- flokkurinn hefur tekið þátt í því ásamt Sjálfstæð- isflokknum að gefa kaupsýslumönnum sjálfdæmi um álagningu sína. JJins vegar mótmælir Þjóðviljinn afdráttarlaust þeirri kenningu að nýjar álagningarreglur séu fullnægjandi svar launamanna við stórfelldri árás stjórnarvaldanna á lífskjörin, að álagningarreglur þessar séu hvorki meira né minna en einhver mesti sigur sem verklýðshreyfingin hafi unnið, að þær geti komið í staðinn fyrir kjarabaráttu launa- fólks.. Frá því hefur verið greint opinberlega að ! hinar nýju álagningarreglur muni hafa það í för með sér að verðlag hækkí um 7,5 vísitölustig, en samkvæmt tillögum kaupsýslumanna hefði vísi- talan hækkað um 9 stig. Það viðfangsefni sem um er deilt í verðlagsnefndinni jafngildir sem sé 1,5 vísitölustigum. Lýst hefur verið yfir því að hinar nýju álagningarreglur eigi aðeins að gilda í nok^r- ar vikur, síðan eigi að auka hlut kaupsýslumanna, og forsætisráðherra hefur lýst því markmiði sínu að álagningarhömlurnar verði afnumdar eftir eitt ár eða svo,« svo að enn er öldungis óvíst hverjar niðurstöðurnar verða á þessu sviðr. En jafnvel þótt þær álagningarreglur héldust sem nú hafa verið settar stendur eftir 7,5% verðhækkun sem launa- menn eiga að bera bótalaust. Hvað. vakir fyrir þeim mönnum sem telja slík málalok stórglæsilegt afrek og einhvem mesta sigur sem verklýðshreyfingin hafi unnið? Þannig hefur Þjóðviljinn spurt án þess að nokkur svör hafi sézt. Sú staðreynd er hins vegar kunn að al- þýðusamtökin hafa lýst yfir því að það sé félags- legt ranglæti að skerða kjör launamanna og a? slíkri árás verði ekki unað. Það er semsé stefna verklýðssamtakanna að fá hið stórfellda kauprán að fullu bætt; það eitt getur talizt viðhlítandi ár- angur. Þeir menn sem telja tímabundnar álagning- arreglur einar samah næsta óviðjafnanlegan stór- sigur hljóta að miða við aðía mælikvarða en þá sem verklýðshreyfingin hefur samþykkt, mark- mið þeirra hljóta að vera önnur en þau sem sam- tök launamanna stefna að. Þeir hafa nú fengið við- urkenningu í öðru aðalmálgagni ríkisstjórnarinnar að þeir séu „á réttri leið“, en.leið ríkisstjórnarinn- ar er ekki hin sama og leið verklýðshreyfingar- innar. — m. , Jackié og Möggu prínsessu fyrst mætt meí óánægjupúi, síðan með léfatuki \ Einn af meiriháttar viöburð- um á því ári sem senn er lió- ið var opnun heimssýningar- innar í Móntreal. Margt og mikið hefur verið skrifað um sýningu þessa t>g einstakar sýn- ingardeildir og margar myndir verið birtar. Hér koma tvær myndir til viðbótar, þó að seint sé og nú sé nokkur tími liðinn síðan hliðum sýningarsvæðisins var lokað. • Myndir þessar eru frá deild Tékkóslóvakíu á sýningunni, þeirri sýningardeildinni sem hvað mesta athygli vakti. Alls komu í tékkneska sýningarskál- ann um sjö miljónir manna. Löng biðröð var að jafnaði fyrir framan skálann, þar biðu menn jafnvel klukkustundum saman eftir að komast inn. Langflesir þeirra tignarmanna og þjóðhöfðingja sem skoðuðu heimssýninguna komoi við í skála Tékkóslóvakíu. Var þeim þá hleypt framhjá fjöldanum sem stóð í biðröðinni og er sagt að oft hafi verið nokkur kurr í mönnum vegna þess. Blöð skýrðu til dæmis frá því, að menn hafi látið heldur betur í sér heyra, er þær komu í sum- ar til að skoða tékknesku sýu- ingardeildina Jaqueline Kenne- dy ekkja Bandaríkjaforseta og Margrét prinsessa Breta. Ó- ánægjuraddirnar breyttust þó í fagnandi lófatak, þegar menn áttuðu sig á þvi hvaða gestir hér vorii á ferðinni. — Myndimar hér á síðunni sýna gamla og nýja tímann í tékknesku sýningardeildinni í Monteral. Á ann,arri sjást mið- aldamálverk á\ végg, en á stöpl- um standa maddonulíkneekjur og helgra manna myndir. Hin myndin er úr|,deiíd nútíma tækni og vísinda. T2r Dregið i kvöld I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.