Þjóðviljinn - 14.01.1968, Qupperneq 1
HMIi
Sumnidagux 14. janéar 1965 — 33. argangTar — 11. tölublað.
I
\
\
\
\
I
!
I
!
*
Borgarstjóri afsakar að
djúpborinn var ónotaður
Á fundi borgarstjóra með
fréttamönnum í fyrradag bar
málefni hitaveitunnar enn
einu sinni á góma. Var borg-
arstjóri m.a. að bví spurður
hvort tölur þær sem Þjóðvilj-
inn hefði birt um oiíukostinað
vegna starfrækslu kyndistöðv-
arinnar nýju í Árbæjarhveríi
væru réttar. Kvað borgarstjóri
svo vera.
Borgarstjóri sá hins vegar
ástæðu til að gefa fréttamönn-,
um nokkrar skýringar á því,
hvers vegna djúpborinn hefði
verið látinn liggja ónotaður
á fjórða ár. Sagði borgarstjóri
að kostnaður við starfrækslu
borsins næmi 2 miljónum
króna á mánuði og teldu sér-
fræðingar hitaveitunnar að
hann þyrfti að hafa minnst
ársverkefni framundan tiil þess
að rétt væri að hefja starf-
rækslu hans. Kom fram i
svari borgarstjóra, að ýmis
konar undirbúningsstarf hjá
'sérfræðingum hitaveitunnar
undir það að hef ja starfrækslu
borsins hafði tekið svo lang-
an tíma að ekki þótti tiltæki-
legt fyrr en nú í haust að
hefja borun að nýju með
djúpbornum. Stóð m.a. á þvi
að kanna til fullnustu hvort
starfræksla nýrra borhola í
borgarlandinu yrði til þess að
draga úr vatnsmagninu í eldri
borholunum Þá sagði borgar-
stjóri að á síðasta ári hefði
hitaveituna hreinlega vantað
fjármagn, til þess að hefja
borunarframkvæmdir.
Borgarstjóri var að því
spurður, hvort fullkannað
væri hvort nýja borhoLan í
Blesugróf myndi draga úr af-'
kastagetu gömlu borholanna í
borgarlandinu, þegar hún
verður t.ekin í notkun. Kvað
hann það ekki fullreynt enn,
hins vegar þætti margt benda
til þess að þama í Blesuglóf-
inni væri um nýja heita
vatnsæð að rseða, er ekki
stæði í beinum tengslum við
þær æðar sem nú eru nýttar.
Þætti efnagreining vatnsins
benda í þá átt svo og það,
hve mikill þrýstingur er á
vatninu í þessari borholu.
Borgarstjóri var að því
spurður hvort margar og mikl-
ar skaðabótakröfur hefðu bor-
izt á hendur hitaveitunni
vegna skemmda í húsum í
frostunum í byrjun janúar.
Svaraði hann, að um 150 að-
ilar hefðu beðið um aðstoð
hitaveitunnar og í 50-60 til-
fellum hefði reynzt um bilan-
ir að ræða á ofnum eða leiðsl-
um i húsunum af völdum
frosta. Hefði hitaveitan reynt
að aðstoða fólk í þessum til-
fellum en um bótakröfur
vildi hann fátt segja, sagði að
í mörgum tiilfellúm bæru hús-
éigendur sjálfir ábyrgðina á
skemmdunum en ekki hita-
veitan vegna ófullnægjandi
frágangs á leiðslum o.s.frv.
Um skemmdirnar í Landa-
kotsskóla sagði borgarstjóri,
að þar hefði verið ketill í hús-
inu, svo hægt hefði verið að
hita það upþ þótt hitaveitan
hafi brugðizt. Þá nefndi borg-
arstjóri dæmi um verzlun þar
sem orðið hefðu miklar
skemmdir vegina þess að
leiðslur sprungu, og sagði að
hitaveitan hefði verið búin að
aðvara húseigandann um það
áður en kuldakastið byrjaði,
að laga þyrfti leiðslurnar.
Borgarstjóri sagði, að í
gamla bænum væru það
svæðin á Skólavörðuholti og
Landakotshæð, sem fyrst yrðu
vatnslaus, þegar vatnsskortur
væri hjá hitaveitunni. Var
hann að því spurður, hvað
hugsanlegt væri að gera til
úrbóta í þessum hverfum og
nefndi hann enn einu sinni
hemlakerfið sem einu lausn-
ina. Sagði hann að þegar væri
búið að setja hemla á hita-
kerfi 1800 húsa í borginni,
sem væru með einfalt kerfi,
en alls væru um 6000 hús í
borginni með einfalt kerfi.
Ætti þetta hemlafyrirkomulag
að sjá til þess að hús sem
lægra standa á þeim svæðum
þar sem ástandið er verst
taki ekki til sín aiilt vatnið
frá húsunum sem hærra
standa. Ekki virðist þetta
hemlakerfi þó hafa komið að
miklu gagni í kuldakastinu
um daginn.
Ýmislegt fleira bar á góma
varðandi hitaveituna á fundi
borgarstjóra með fréttamönn-
um, einkum í sambandi við
virkjun nýrra hitasvæða í
Krísuvík eða á Hengilssvæö-
inu, en þau mál eru enn svo
óráðin að of snemmt er að
vænta lausnar þaðan á næst-
unni á vandamálum hitaveit-
unnar.
i
i
25 ár eru frá orustunni um Stulingrué
Gríkklandskynnmg á morgun
f tilefni aí byltingu herfor-
ingjanna í Grikklandi hefur
Stúdentafélag Háskóla íslands
ákveðið að gangast fyrir Grikk-
Stálvík fœr
vikufrest
STARFSMENNIRNIR í Stálvík
mæta til vinnu á morgun hjá
fyrirtækinu, en þeir höfðu
samþykkt að mæta ekki til
vinnu ncma vinnulaunaskuld-
ir við ’þá yrðu greiddar upp
eða gengið yrði frá ákveðn-
um greiðsludegi.
SVO SAMDIST milli starfsmann-
anna og forstjórans, að fyrir-
tækið fengi vikufrest til við-
bótar til þess að ganga frá
þessum málum í trausti þess,
að vinnuiaunaskuldirnar ykj-
ust ekki og lokið yrði við
greiðslu sem fyrst.
landskynnirigu. Kynningin verð-
ur haldin í Tjamarbúð mánu-
daginn 15. jan. n.k. og hefst kl.
20.30.
Dagskráin hefst með því, að
Jökull Jakobsson rithöfundur
flytur frásögn frá Grikklandi,
en hann dvaldi þar á sl. ári sem
kunnugt er. Þá munu Sigurður
Guðmundsson skrifstofustj. og
Þorsteinn Thorarensen rithöf-
undur ræða þróun og ástand
stjórnmála landsins í ljósi síð-
ustu atburða. Sigurður A. Magn-
ússon ritstjóri les eigin þýðing-
ar úr verkum grískra ljóðskálda
og kynnir tónlist eftir Theodor-
akis. Að lokum verður lesin
ályktun stjómar stúdentafélags-
ins um Grikklandsmálið.
Samdægurs gangast stúdenta-
samtök víðsvegar í Evrópu fyrir
samkomum, senf verða helgaðar
Grikklandi og grísku þjóðinni.
Slíkar samkomur og fjöldafund-
ir verða m.a. haldnir í London,
París, Varsjá, Vín, Prag, Oslo.
Stokkhólmi, Edinborg, Amster-
dam, Briissel, Róm, Milano,
Múnchen, Frankfurt, Helsing-
fors og Berlin.
(Frá fundanefnd).,
Urn þessar mundir er liðinn
aldarfjórðungur frá þvi orustan
við Stalingrad var liáð, ,en hún
markaði sem kunnugt er þátta-
skil í styrjöldinni í Rússlandi og
þá um leið allri heimsstyrjöld-
inni síðari.
Á myndinni sést herráð sov-
ézka hersins í Stalingrad á fundi
í neðanjarðarbyrgi og er Sjúikoff
hershöfðingi, er frægur varð fyr-
ir að stýra vörn borgarinnar,
aimar frá vinstri á myndinni.
Sjá opnu
Afvinnuleysi er / HafnarfirSi
\
\
30-40 verkamenn voru
skráðir atvinnuiausir
Q Atvinnuleysisskráning fór fram hjá Verka-
mannafélaginu Hlíf í Hafnarfirði á fimmtudag og
föstudag og voru 17 skráðir fyrri daginn og ég
hygg svipaður fjöldi seinni daginn eða ríflega
þrjátíu manns, sagði Hermann Guðmundsson, for-
maður.Hlífar í viðtali í gærdag.
Meiri hlutinn af þessum at-
vinnulausu verkamönnum eru
ungir menn, en þarna eru líka
fjölskyldumenn, sagði Hermann
ennfremur.
Tvö af fjórum aðglfrystihús-
um bæjarins eru lokuð og hafa
verið það um skeið og er at-
vinnuástandið bágborið í sjávar-
útveginum hér.
Kópavogur
Félag óliáðra kjósenda heldur
rabbfund um bæjarmál, á morg-
un, mánudaginn 15. janúar, kl.
8.30 í Þinghól. — Stjórnin.
Þó hygg ég að ástandið sé
verra hjá verkakonum og búi
þær við meira atvirmuleysi en
vetkamenn, sagði Hermann að
lokum.
Þjóðviljinn vill vekja athygli
á því, að Verkakvennafélagið
Framtíðin hefur ekki látið fara
fram atvinnuleysisskráningu á
verkakonum í Hafnarfirði. Til
staðar er þó allstór hópur af
atvinnulausum verkakonum, sem
hafa verið atvinnulausar um
skeið. Er éngin ástæða til þess
fyrir hafnfirzk heimili að nýta
ekki bætur úr atvinnuleysis-
tryggingarsjóði á tímum hækk-
andi verðlags á nauðsynjum og
skertrar atvinnu — ,er enginn
munur á þessum bótum og fjöl-
skyldulífeyri og barnalífeyri frá
almannatryggingum.
Skemmtun
á föstudag
Sósíalistafélag Reykjavíkur
og Æskulýðsfýlkingin halda
skemmtun í Domus Medica
föstudaginn 19. janúar klukk-
an 9.
DAGSKRA:
Avarp: Steingrímur Aðal-
steinsson.
Upplestur: Gísli Halldórs-
son leikari.
Ungt fólk syngur varðliða-
söngva frá Kína undir stjórn
Guðmundar Norðdahl.
DANS.
AlþýSubandalagið Reykgavík
★ Umræðufundur verður n.k. miðvikudag í Lindarbæ uppi og
fjallar hann um atvinnullýðræði. Málshefjendur: Ragnar Arn-
alds bg Guðmundur J. Guðmundsson. Umræðustjóri: Sigurjón
Pétursson. (
★ Árshátíð félagsins verður haldin 2. febrúar að HótePBorg.
★ Skri fstofa félagsins að Miklubraut 34 verður lokuð þessa viku.
.......rnr..............................-..................
Stundin okkar
í 50. sinn í daq
klukkan 18.00
★ í dag \ærður Stundin okkar,
barnaþáttur sjónvarpsins,
fluttur í 50. skipti. Af föst-
um innlendum þáttum sjón-
varpsins er Stundin okkar sá,
sem oftast hefur verið sýnd-
ur, ef frá eru taldir frétta-
þættir.
★ Þátturinn i dag hefst á því,
að Jón Baldur Sigurðsson
rabbar um atr’ði úr ríki nátt-
úrunnar. Síðan segir Hall-
grímur Jónasson sögu. Þá
stinga Rannveig og krummi
saman nefjum. Að lokum
flytja svo nemendur úr Voga-
skóla leikritið Nýju fötin
keisarans, eftir sögu H. C.
Andersen í þýðingu Margrét-
ar Jónsdóttur. Leikstjóri er
Pétur Einarsson.
i