Þjóðviljinn - 02.02.1968, Qupperneq 1
Föstudagur 2. febrúar 1968
33. árgangur — 27. tölublað-
Alyktun ASI-þingsins um skipulugsmál
„30 þing A.S.Í., haldið 1 janúar 1968,
lýsir yfir samþykki sínu við þá grund-
vallarstefnu, sem mörkuð er í frum-
varpi að lögum fyrir Alþýðusamband
íslands á þingskjali nr. 1. Jafnframt á-
lyktar þingið að kjósa sjö manna milli-
þinganefnd er taki frumvarpið til frek-
ari meðferðar og athugunar í bví skyni
að lagfæra og samræma einstök ákvæði
þess. Frumvarpið svo breytt verði síð-
an lagt fyrir oæsta reglulegt Alþýðu-
sambandsþing til fullnaðarafgreiðslu.
Milliþinganefndin sendi sambandsfé-
lögunum frumvarpið eigi síðar en í lok
ágústmúnaðar 1968“.
Þing Alþýðusambands íslands samþykkti einróma:
Alþýðusamtökin knýi fram fuBEar vísi-
töiubætur á
egar 1. marz nk.
Með 22938 atkv. gégn 4089 samþykkti þingið grundvallarstefnu lagafrumvarpsins en frestaði afgreiðslu þess
□ Þrítugasta þingi Alþýðusambands íslands lauk í gær. — Sam-
þykkti þingið einróma ályktun verkalýðs- og atvinnumálanefnd-
ar sem lýkur með áskorun á öll verkalýðsfélög landsins að búa sig
undir að tryggja fullar vísitölubætur á kaup 1. marz næstkomandi.
Samþykkti þingið að fela miðstjórn að tryggja sem bezt samstöðu
verkalýðsfélaganna í þeirri baráttu og skipuleggja sameiginlegar að-
gerðir þeirra, ef þessi réttlætiskrafa fæst ekki fram átakalaust.
□ Afgreiðslu sambandslaganna var frestað til hausts, en sam-
þykkt var við allsherjaratkvæðagreiðslu með 22.938 atkv. gegn
4.089 að lýsa samþykki við þá grundvallarstefnu sem mörkuð er í
frumvarpinu sem þingið fjallaði um. Kosin var sjö manna milli-
þinganefnd er taki frumvarpið til meðferðar og verði endurskoðað
lagafrumvarp sent til verkalýðsfélaganna í ágúst og málið síðan
lagt fyrir Alþýðusambandsþing í haust.
Verkalýðs- og atvinnumála-
nefnd þingsins fékk til meðferð-
ar drög Hannibals Valdimars-
sonar og hins vegar Guðmund-
ar J. Guðmundssonar, Benedikts
Davíðssonar og Arnar Schev-
ings að ályktun Alþýðusam-
bandsþingsins um atvinnu- og
kjaramál. Varð nefndin sam-
mála um ályktun sem að mestu
leyti var byggð á drögum þeirra
þremenninganna. — í nefndinni
Þorrablót
Alþýðubanda-
lagsins ,
Arshátíð og þorrablót Al-
þýðubandalagsins í Keykja-
vík er að Hótel Borg í kvöld,
föstudaginn 2. felbrúar.
Húsið opnar kl. 19.00 fyr-
ir þá er snæða vilja þorra-
mat. — Skemmtiatriði hefj-
ast um kL' 21.30.
Tíl skemmtunar:
Árni Björnsson spjallar um
karlinn Þorra og það
hyski.
Sigurður Jónsson , hljóðfæra-
leikari leikur einleik á
sitar.
Þrir háir tónar (Rím-tríó)
syngja þjóðlög og mót-
mótmælasöngva.
Stuttur upplcstur úr verk-
um. Guöbergs Bergsson-
ar. Kjartan Ragnarsson
flytur.
Hljómsveit Hauks Mortens
leikur fyrir dansi.
Verð aðgöngumiða kr. 350
fyrir matargesti en kr. 150
fyrir aðra gesti.
Pöntun og sala aðgöngu-
miða á skrifstofu Alþýðu-
bandalagsins, Miklubraut 34’,
sími 18081. Opið frá kl. 3-6
e.h. Einnig í bókabúð Máls og
menningar og við innganginn.
Skemmtinefnriin.
áttu sæti Guðmundur J. Guð-
mundsson, Jón Sigurðss., Bened-
ikt Davíðsson, Jóna Guðjóns-
dóttir, Tryggvi Helgason, Ragn-
ar Guðleifsson, Benedikt Sæ-
mundsson, Guðmunda Gunnars-
dóttir, Ingimundur Erlendsson,
Örn Scheving og Óskar Gari-
baldason; skrifuðu þau öll und-
ir ályktunina og var þeirri sam-
stöðu fagnað af þingfulltrúum.
Alyktunin sem sameinazt var
um var þannig:
30. þing Alþýðusambands ís-
lands, haldið í janúar 1968 ítrek-
ar ákveðið fyrri samþykktir
þingsins um kjaramál og atvinnu-
mál. Reynslan hefur sannað að
stefna sú sem mörkuð var í þeim
ályktunum er rétt; fram&væmd
hennar hefði komið í veg fyrir
þá alvarlegu kjaraskerðingu sem
verkafólk hefur orðið fyrir að
undanförnu og það atvinnuleysi
sem nú mótar afkomu þúsunda
einstaklinga um land allt. í
framhaldi af þessum ályktunum
leggur þingið áherzlu á eftir-
farandi meginatriði:
1.
Það er félagslegur rétt-
ur hvers vinnufærs
manns að eiga kost á atvinnu
við sitt hæfi. Atvinnuleysi er á-
stand sem íslendingar mega ekki
þola í landi sínu; þar er í senn
Cr fundarsal AS.l.-þingsins í Lídó,
um að ræða ófrávíkj anleg mann-
réttindi og þjóðhagslega nauð-
syn því vinnan er undirstaða
allrar verðmætasköpunar. Það
er frumskylda hverrar ríkis-
stjórnar að miða stjórn efna-
hagsmála og atvinnumála við
það að full atvinna sé í land-
inu. Ef stefna ríkisstjómar nær
ekki þeim tilgangi verður að
breyta stefnunni, láta hverskyns
pólitískar og hagfræðilegar
kennisetningar víkja fyrir dómi
xeynslunnar. Þingið skorar á ÖU
verkalýðsfélög landsins að gera
baráttuna fyrir fullrí atvinnu að
meginatriði í öllum athöfnum
sínum á næstunni og heitir á
landsmenn alla að taka þátt í
þeirri baráttu og tryggja þá
stjómarstefnu sem líti á fullt
atvinnuöryggi sem ófrávíkjan-
legt þjóðfélagsástand. Verka-
lýðshreyfingin lítur atvinnuleys-
ið svo • alvarlegum augum að
öll önnur samskipti hennar við
atvinnurekendur og stjóimarvöld
hljóta að mótast af því, hvem-
ig brugðizt er við kröfum um
tafarlausar umbætur á þessu
sviði.
Þingið ályktar því að fela
miðstjóm að skipa . sérstaka
nefnd sem vandlega kanni og
fylgist með þróun atvinnumál-
anna. — Framhald á 7. síðu.
Bjartsýni bandarískra ráðamanna fokin út í véður og vind
Skæruliður I hurðri sókn í mörgum
i \ ' .
borgum um gervallt Suður- Vietnam
SAIGON, HANOI, WASHINGTON 1/2 —
Barizt var af mikilli hörku í Saigon í dag og
beittu Bandaríkjamenn og stjórnarherinn stór-
skotaliði og flugvélum til að hrekja skæruliða
á brott úr sjálfri höfuðborginni. Skæruliðar
hafa víða náð borgum á sitt vald að nokkru
eða öllu leyti og komið á fót byltingarráðum
m.a. í einstaka hverfurrvSaigons. Bandaríkja-
menn segja mannfall mikið í liði andstæðinga
sinna, en telja þá geta haldið áfram sókninni
alllengi. Atburðir síðustu daga hafa ber^ýni-
lega feykt burtu þeirri bjartsýni um sigur sem
veifað hefur verið með bæði í Washington og
Saigon að undanförnu.
Bardagar blossuðu upp aftur í
Saigon í gærmorgun, og var bar-
izt af mikilli hörku víða í borg-
inni. Bardagar urðu einna harð-
astir skammt frá kínverska borg-
anhlutanum Cholon og kviknaði
þar í mörgum húsum. Fyrrihluta
dags viðurkenndu menn inn-
an herforingjastjómarinnar að
skæruliðar héldu velli í a.m.k.
sjö borgarhverfuon. Þeir hefðu
ekki aðeins hertekið hverfi held-
ur og sett upp stjóm í þeim.
Eitt áf þeim var hverfið um-
hverfis An Quang, musteri
Búddatrúarmanna, sem hafa ver-
ið andvígir stjórninni, og var
sagt að skæruliðar hefðu settupp
bækistöðvar í musterinu. Síðari
fréttir herma að stjórnarher-
menn hafj hrakið skæruliða frá
An Quang, tekið einn fanga og®*
líflátið hann samstundis.
Útgöngubann er i Saigon og
strangt eftirlit með fréttum og
því ekki auðvelt að fá áreiðan-
alegar heimildir um rás við-
burða. En ljóst þykir að stjórn-
arhermenn og Banda’ríkjamenn
beiti stórskotaliði og flugvélum
gegn íbúðarhverfum þar sem
skæruliðar hafast við — segjast
að vísu flytja íbúana á brott áð-
ur, hvemig sem það er fram-
kvæmanlegt. Víða er barizt í ná-
vígi um hvert hús, hverja hæð.
Stjómarhermenn segjast hafa
náð þannig aftur útvarpsstöðinni
sem skæruliðar tóku í fyrra-
kvöld.
Útvarp skæruliða hefur til-
Framhald á 3. síðu.
486
Tala skráðra atvinnuleys-
ingja í Reykjavík er nú kom-
in upp í 486, að því er Ráðn-
ingaskrifstofa borgarinnar gaf
upp í gærkvöld. Þar af eru
97 konur og 389 karíar, en
skipting milli atvinnugreina
lá ekki fyrir.
1 gær létu skrá sig hjá
skrifstofunni 11 karíar og sjö
konur, en tveim þeirra sem
áður höfðu verið skráðir,
tókst að útvega vinnu.