Þjóðviljinn - 02.02.1968, Síða 2
/
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 2. febrúar 1968.
Karl Guðjónsson:
Vátnsveita Vestmannaeyja
□ í þingbyrjun í haust fluttu tveir af þingmönn-
um Sunnlendinga, þeir Karl Guðjónsson og Björn
Fr: Björnsson, tillögu til þingsályktunar um sér-
stakan stuðning við Vatnsveitu Vestmanneyja,
hið mikla og brýna mannvirki. Tillaga þessi kom
til umræðu á fundi sameinaðs þings fyrir helgina
og flutti þá Karl Guðjónsson ræðu þá eí hér fer
á eftir.
Herra forseti. Það verður
vart sagt að mál, sem þing-
menn leggja hér fyrir, fljúgi f
gegnum þingið. Sú tillaga, sem
hér er tekin á dagskrá, mun
hafa verið lögð fram hinn 6.
nóvember s.l. og hefur ekki
komið til umræðu fyrr en þetta,
og má þá telja, að nœrri láti,
að liðinn sé ársfjórðungur frá
því, að tillagan kom fram og
þar til hún kemur til umræðu
hér á þinginu. Ég vildi nú að-
’eins vekja athygli hæstvirts
forseta á þessu, að á þeirri öld
hagræðingarinnar, sem við
lifum á, væri nú kannski vert
að skoða það svolítið í ljósi
siík'ra staðreynda, hvort við
vinnum héma með þeim hætti,
sem svarar til þeirrar hagræð-
ingar sem við teljum sjálfsagt,
að t.d. atvinnuvegir þjóðarinn-
ar byggi sig upp eftir. En nóg
um það. Ég skal taka það al-
veg sérstaklega fram reyndar.
þó að ég hafi beint orðum
mínum.til forseta, sem nú sit-
ur í forsetastóli, er mér það
mjög ljóst, að hann á hér enga
sök á þeim hægagangi, sem
orðið hefur á þessu máli.
Svo vill nú til. að ég get
sparað mér það að fara mjög
ýtarlega orðum um þá tillögu
sem hér liggur fyrir, þvi að
bæði koma aðalatriði þess
fram í greinargerð sem tillög-
unni fylgir og einnig hef ég
flutt hluta af þessu máli f
sambandi við afgreiðslu fjár-
laga því að það virðist nú vera
nokkuð eihasta leiðin til þess
að koma því við, að mál komi
hér til athugunar og umræðu
að þau geti komizt í samband
við einhver þau mál, sem verða
að fá afgreiðslu. Tillagan fékk
nú ekki byr f því máli, enda
mó kannski segja, að hér sé
um stærra mál að ræða en
svo að við bví sé að búast, að
þingmenn séu - reiðubúnir til
þess að taka afstöðu til þess
í sambandi við fjárlög til eins
árs. ' i
Lélegir möguleikar
til vatnsöflunar
Svo er mál vaxið, að
Vestmannaeyjabær býr við
mjög lélega möguleika til
vatnsöflunar. Hann hefur nýtt
þá eftir því, sem bezt má verða
á undariförnum árum. Hann
hefur nú safnað regnvatni á
húsþökum í þrær, og það hef-
ur verið neyzluvatn bæjarbúa
um margra ára bil. Þetta
verður stöðugt erfiðari aðferð
og kemst stöðugt fjær því að
fuillnægja þörfinni, sem tímar
líða lengra fram. Auk þess ligg-
ur það fyrir, að þessi aðferð
fullnægir ekki hreinlætiskröf-
um þeim, sem gera verður eða
heilsufarslegum kröfum á hin-
um síðustu tímum, þar sem
með auknu þéttbýli blandast
æ meira saman við regnvatnið.
sem á húsaþökin fellur, bæði
ryk og ýmis konar upprót, sem
fylgir lífi í bæjum. en auk
-<S>
Ósk-
hy^gja
I
1 Staksteinum Morgun-
Waðsins í gær er fjallað um
innanflokksmál Alþýðubanda-
lagsins eins og löngum fyrr.
Segir höfundur Staksteina
næsta þykkjuþungur að þkki
verði „sagt að mikils áhuga
eða hrifningar gæti í röðum
þeirra manna sem studdu I-
listann í vor. Þeir stofnuðu
á sínum tíma „Félag Alþýðu-
bandalagsmanna í Roykjavík
og nágrenni" en til þess hef-
ur lítið heyrzt síðan og er þó
formaður þess sá maður úr
þessum hópi, sem telur sig
einna helzt til forustu fall-
inn ... Eina lífsmarkið sem
virðist vera með þessúm
mönnum eru greinar, sem
þeir skrifa stundum í „Verka-
manninn" á Akureyri en
stjórnmálabaráttan krefst ým-
iss annars en iðjusemi við
skriftir. Það má slá því
nokkurn veginn föstu, að
hvorki Hannibal Valdimars,-
son, Bjöm Jónsson né hinir
minni spámenn í þeirrahópi
hafi minnstu hugmynd um
hver næsti leikur þeirra í
refekákinni við kommúnista
eigi að verða. Það eitt er
víst að þessir menn munu
aldrei stofna nýjan flokk
Þeir virðast ekki hafa þá
eiginleika til að bera sem
þarf til slíks“.
Þama ber Morgunbdaðið
fram kröfur um „áhuga“ og
„hrifningu" og aukið „lífs-
mark“ og lætur fylgja ögr-
anir um að menn burfi að
hafa tií að bera „þá eigin-
leika“ sem dugi til þess að
kljúfa Alþýðubandálagið og
stofna nýjan flokk. Er ástæða
til að veita þessum ósk-
hyggjuhugleiðingum Morgun-
blaðsins sérstaka athygli,
vegna þess að höfundur Stak-
steina hefur áður sýnt að
hann hefur annarleg sam-
bönd og áhrif inn í Alþýðu-
bandalagið.
Eina
huggunin
Árum. saman hefur banda-
riska herveldið beitt allri
morðtækni sinni gegn Víet-
nömum. Innrásarhermönnum
hefur fjölgað með ári hverju
og eru þeir nú yfir hálfmilj-
ón talsins. Þeir ráða yfir
þeim vopnabúnaði sem full-
komnastur 'er talinn til tor-
tímingar og hafa nú þegar
kastað meira magni af
sprengjum yfir hina fátæku
bændaþjóð en Þjóðvefjar
tjrðu að þola í allri síðustu
heimsstyrjöld, auk þess sem
beitt hefur verið margvísleg-
um morðtólum sem aldrei
fyrr hafa verið notuð á víg-
velli. Samt eru Bandaríkin
fjær því að ná takmarki sínu
en giokkru sinni fyrr eins og
atburðir síðustu daga hafa
sannað á eftirminnilegan
hátt. Ritstjórar Morgunblaðs-
ins koma aðeins auga á eina
hugsunarglætu i harmþrungn-
um leiðara sínum í gær:hon-
um lýkur á þessu andvarpi:
„En það er alla vega ástæða
til að samfagna því með
Bandaríkjamönnum, að þeim
hefur þó tekizt að ná sendi-
ráðssvæðinu sínu aftur“.
— Austrl.
Karl Guðjónsson
þess er vatn, sem svona er afl-
að í stöðugt meiri geislunar-
hættu heldur en vatn úr öðr-
um vatnsbólum. j
Vestmannaeyjabær hefur á
undanfömum árum gert ítrek-
aðar og kostnaðarsamar til-
raunir til þess að afla sér vatns
með öðrum hætti, með jarð-
borunum, grunnum og djúp-
um, og er þes^ skemmst að
minnast, að fyrir fáum árum
var gerð þar djúpborun nið-
ur á 1700 metra dýpi, og hafð-
ist ekki árangur sem erfiði.
Þessi borhola mun hafa kost-
að 6 miljónir króna, sem bæj-
arfélagið greiddi af hálfu, en
styrkt var að hálfu af ríkinu.
Allir nútíma lifnaðarhætt.ir
manna kalla á stöðugt meiri
vatnsnotkun, en hana er ekki
hægt að auka eftir þeirri reglu
eða eftir þeirri leið, sem Vest-
mannaeyingar hafa orðið að
notast við. Það hefur því rekið
að þvi á hinum síðustu árum,
að þetta byggðarlag hefur orð-
ið að hefja mjög kostnaðar-
samar framkvæmdir við að afla
sér hæfe og góðs neyzluvatns.
Og ég ætla, að öllum alþingis-
mönnum sé það kunnugt, að
nú er einmitt í framkvæmd
vatnsveita, þar sem ráðgert er
að leggja vatn úr Vestur-Eyja-
fjallahreppi niður í Landeyjar-
sand og þaðan í gegnum neð-
ansjávarpípur út til Vest-
mannaeyja.
Mikil framkvæmd
og kostnaðarsöm
Þetta er stórkostlegri vatns-
veita heldur en gerð hefur
verið áður á íslandi og miklu
dýrari heldur en nokkurt
byggðarlag hefur þurft að
leggja í miðað við sína mögu-
leika og miðað við sinn fólks-
fjölda.
Þessi vatnsveita hefur verið
áætluð af efnahagsstofnuninni
rösklega 100 milj. kr„ 102—103
milj. kr. var áætlun, sem gerð
var á s.l. ári af Efnahagsmála-
stofnuninni. Nú mun sýnt að
þessi framkvæmd verði a.m.k.
30 miljónum króna dýrari held-
ur en þar er reiknað með,
enda hafa orðið verðlagsbreyt-
ingar í lándinu síðan.
Það er alveg auðsæilegt, að
eitt tiltölulega lítið byggðar-
lag hefur ekki möguleika til
þess að standa undir þessum
kostnaði, og reyndar eins og
nú er komið um lónsfjár-
kreppu og annmarka á því, að
geta losað fjármagn til fram-
kvæmda, blasir ekkert við
annað heldur en það verður
að hætta við þessa framkvæmd
eða skjóta henni á frest um
nokkurt skeið, ef ekki fæst
betri fyrirgreiðsla. af ríkisins
hálfu héldur en enn er séð að
verði.
Þess má geta, að af þeim
102—103 milj. kr„ sem Efna-
hagsstofnunin éætlaði, að væri
kostnaður þessarar vatnsveitu,
þegar hún gerði um hað áætl-
un á s.l. ári, var talið, að um
það bil 20miljónirkrónamundi
verða fé, sem ríkissjóður tek-
ur í tolla af því efni, sem til
vatnsveitunnar þarf. Þessi upp-
hæð er þá auðvitað nú orðin
allmiklu hærri sökum þess að
verðlag á þessari vöru, sem
til þessa þarf, hefur auðvitað
hækkað og það sést ekki enn
bóla neitt á þeirri tollalækkun,
sem hæstvirt ríkisstjóm hefur
látið í veðri vaka, að hún ætl-
aði að framkvæma og kallaði
reyndar Alþingi saman fyrr
eftir jólaleyfi að þessu sinni
en vant er til þess að fást við
þau mál. En þau hafa semsagt
ekki jézt hér enn þá og ekki
líkur til þess að tollalækkun-
in verði nokkru sinni slfk,' að
betta mannvirki þurfi ekki
miblu meiri fjárstuðning af
opinberri hálfu heldur en ráð-
gerður hefur verið
Tiíl eru lög, sem almennt
gera ráð fyrir því, að ríkið
styrkl og styðji vatnsveitu-
framkvæmdir. Þar virðist vera
gert ráð fyrir því, að rfkið
geti tekið bátt i allt að' því
að hálfu kostnaði við slík
mannvirki. Á fjárlögum þeim,
sem nýlega hafa Verið sam-
bykkt, er ætlað til slíkra
framkvæmda á öllu landinu á
þessu yfirstandandi ári 6%
miljón kr„ svo að bað geta all-
ir séð, að sá stuðningur, sem
hugsanlegt væri, að til þessa
mannvirkis fengist gegnum þau
lög er svo lítill, að það tekur
vart að nefna hann f sam-
bandi við bá stóru möguleika
eða þá fjárfreku framkvæmd,
sem er næsta skref í þessari
vatnsveitu.
Sérstaknr stiiiíSninsrur
nautfevnlegrur
Það hafa margir menn brot-
ið heilann um það með hverj-
um hætti væri hugsanlegt að
fá meiri stuðning við þetta
verk og fá stuðning, sem eitt-
hvað verulega munaði um,
þannig að þessi vatnsveita
gæti notið þeirrar fyrirgreiðslu
af ríkisins hálfu, sem hin al-
mennu lög um vatnsveitur
gera ráð fyrir, að ríkið geti
veitt, þ.e.a:s. svo sem eins og
helmingsgreiðslur. Kemur þá
auðvitað mjög til mála, aðrík-
ið gefi eftir tolla af efni til
mannvirkisins. Um það hafa
ekki verið filuttar tillögur mér
vitandi enn sem komið er, enda
er það reynsla, að ríkissjóður
er yfirleitt mjög tregur til þess
að styðja framkvæmdir með
þeim hætti og mér finnst það
í rauninni mjög skiljanlegt.
I þeirri tillögu sem við 4.
þingmaður Sunnlendinga höf-
um borið hér fram sameigin-
lega, gerum við ráð fyrir og
viljum láta það koma til at-
hugunar og afgreiðslu Alþing-
is, hvort ekki sé hugsanlegt
að koma við sérstökum stuðn-
ingi við þetta mannvirki um-
fram það, sem gert er ráð fyrir
í hinum alménnu vatnsveitu-
lögum með því að viss hundr-
aðshiluti af sölu, einkasölu rík-
isins á áfengi og tóbaki í Vest-
mannaeyjum, megi renna . til
þessa verks. Við höfum gert
róð fyrir því f tillögunni að
15% af heildarsölu Áfengis- og
tóbaksverzlunarinnar í Vejt-
mannaeyjum megi renna til
verksins. Áfengis- og tóbaks-
verzlun ríkisins er í raun
réttri aðeins einn af tekjuöfl-
unarliðum ríkisins. Það er
ekki haegt að líta á þetta ein-
göngu sem verzlunarfyrirtæki,
heldur hlýtur það að skoðast
iafnframt sem tekjuöflunar-
eða skattheimtufyrirtæki af
Framhald á 7- síðu.
Körfuknattleiksmótið:
/ kvöld leikaPór—
KFR, KR—Armann
I kvöld klukkan 20.15 held-
ur Islandsmótið í körfuknatt-
leik áfram í Laugardalshöll-
inni með tveim leikjum í 1-
deild:
KFR — Þór
KR — Ármann
Sérstök ástæða er til að
vekja athygli á fyrri leiknum,
en í fyrri leik þessara liða, sem
fram fór á Akureyri, sigraði
Þór; með 69:59, en spumingin
er, hvernig tekst KFR upp á
heimavelli?
Stigahæstu leikmenn eftir 3
leiki:
Þórir Magnússon KFR 78 stig
(26 pr. leik)
Einar Bollason Þór 65 stig —
(22 pr. leik)
Birgir Jakóbsson IR 51 stig —
(17 pr. leik)
Agnar Friðriksson IR 46 stig
(15 pr. leik)
Anton Bjamason IR 43 stig
(14 pr. leik)
Marinó Sveinsson KFR 41 stig
(14 pr. leik)
Guttormur Ólafsson KR 40 stig
(13 pr. leik)
Hjörtur Hansson KR 40 stig —
(13 pr. leik)
Það er athyglisvert, að lið-
ið, sem skipar efeta sætið í
mótinu, Islandsmeistayamir —
KR, eiga aðeins 7. mann á list-
anum, en liðið, sem er í 4.
sæti á efsta mann.
Staðan í mótinu:
KR 3-3-0-0 6 st. 175:147 20
IR 3-2-0-1 4 st. 192:172 14
Þór 3-1-0-2 2 st. 162:170 21
KFR 3-1-0-2 2 st- 174:197 21
IKF 2-1-0-1 2 st. 78:92 22
Á 2-0-0-2 0 st. 82:86 10
Aftasti liðurinn er fjöldi víta,
sem liðið hefur fengið dæmd
á sig að meðaltali í leik.
HörB og jöfn keppni í ein-
liðaieik á badmintonmótinu
Síðastliðinn laugardag þann
27. janúar, fór fram einliða-
leikmót í badminton á vegúm
T.B.R. og var leikið í meistara-
og fyrsta flbkki. Keppendur'
voru 76 frá T.B.R., K.R., Akra-
nesi og Keflavík, og voru þar
leiknir skemmtilegir og tví-
sýnir leikir. í meistaraflokki
kepptu til úrslita Oskar Guð-
mundsson, og Jón Árnason og
sigraði Óskar Guðmundsson
K.R., í mjög tvísýnum þriggja
lotu leik. Sigraði Jón i fyrstu
lotu 15:9, en Óskar vann ‘aðra
15:8 og þriðju 17:16. 1 fyrsta
flokk kepptu til úrslita Páll
Ammendrup T-B.R. og Harald
Kornilíusson T.B.R., og sigr-
aði Páll Ammendrup sem er
enn þá í ungíingaflokki, í
þriggja lotu leik. I fyrs-tu Iotu
sigraði Haraldur 15:3, en Páll
vann aðra 15:12 og þriðju 15:4
Kom það greinilega í ljós að
um mikla framför er að ræða
hjá ungu keppendunum og
verður gaman að sjá getu
þeirra í næstu mótum.
Páll Ammendrup
Manchester Utd. slegið ut
A miðvikudagskvöld voru
leiknir nokkrir leikir úr þriðju
umferð ensku bikarkeppninnar, ,
er endaði með jafnt. sl. laugar-
dag. Mesta athygli vakti leikur
Tottenham og Manch. Utd. og
varð að framlengja honum að
venjulegum leiktíma loknum.
Tottenham skoraði þá sigur-
marlc sitt við gífurleg fagnað-
arlæti áhorfenda, en uppselt
var á White Hart Lane-leik-
vanginn í London- Þessi lið
munu leika saman aftur næst-
komandi laugardag í deildar-
keppninni.
Orslit urðu annars:
Crystail Palace — Walsall 1-2
Hull — Middlcsbro 2-2
Reading — Manch. City 0-7
Sunderland — Norwich 0-1
Tottenham — Manch. Utd. 1-0
West Bromw. — Colchester 4-0
Dregið hefur verið hvaða lið
leika saman f 4. umferð:
Aston ViIIa — Rothcrham
Birmingham —Leyton Orient
Chelsea— Norwlch
Coventry — Tranmcre
Carlisle — Everton
Manch. City — Leicester
Sheff. Utd. — Blaekpool
Sheff. Wed. — Swindon
yValsal! — Liverpool
Leeds — Nottingham
WBA — Southamton
Stoke — West Ham
Fulham — Portsmouth
Swansea —, Arsenal
Middlesbro cða Hull Pristol C.
Tottenham — Prcston
i