Þjóðviljinn - 02.02.1968, Síða 6
6 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Föstudagur 2. febrúar 1968.
@ntlnental
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með olckar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó ög
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GOMMIVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
Umboðssala
Tökum í umboðssölu notaðan kven- og
herra’fatnað.
Verzlun GUÐNÝJAR, Grettisgötu 45.
MarsTraðing Company hf
IAUGAVEG 103 — SlMI 17373
Plaslmö
ÞAKRENNUR OG NIÐURFALLSPÍPUR
RYÐGAR EKKI
ÞOLIR SELTU OG SÓT,
ÞARF ALDREI AÐ MÁLA
Aðalfundur
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Aldan verður
haldinn að Bárugötu 11 föstudaginn 9. febrúar
klukkan 5.
DAGSKRÁ:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Lagabreytingamar verða ræddar á félagsfundi áð-
ur en aðalfundurinn hefst.
Stjórnin.
Berklavöm Reykjavík heldur
FÉLACSVIST
í danssal Heiðars Ástvaldssonar, Brautarholti 4,
laugardaginn 3. febr. kl. 8.30. — Góð verðlaun.
• Þorrablót
• Þá er þorri genginn í garð,
með mjög umhleypingasama
tíð og ógæftir. Þeir á Veður-
stofunni ráða bókstaflega engu
um hvernig veðrið verður
hvem dag, jafnvel þó þeir
væm allir af vilja gerðir til
að stöðva garra þennan og
stilla haf og storma.
En „Við eigum sumar innra
fyrir andann“ sagði skáldið og
þess nýtur mannfólkið ef kost-
ur er. Nú hefjast þorrablótin,
þessi gamli siður hefur verið
endurvakinn, nú em það veit-
ingahúsin sem sjá lýðnumfyrir
þorragleði, að visu í þó nokkuð
breyttri mynd frá því sem
áður var.
Ýms félög, þar á meðal Al-
þýðúbandalagið hefja nú á
þorranum árshátíðir sínar,
margar fara þær fram í líkingu
við þorratolótin og samkvæmt
auglýsingu á árshátíð Alþýðu-
bandalagsins að vera þorrablót.
Hvernig blóta menn svo
þorra? Kannski eitthvað í lík-
ingu við eftirfarandi:
Ætlar þú ekki, Kallli káti,
að koma á Hótel Borg,
taka þátt í þorra-áti
og þjóra ölsins korg,
hlusta þar á tai og tóna
teyga af Mímis-brunn
og hefja þennan gamalgróna
gleðisöng af munn?
Vísast muntu vel þar meta
vín og hangið krof,
súra púnga og sel að éta,
svið og grillað klof.
Þar á eftir áttu að valsa
er upphefst tóna spil,
því að alit í glaum og galsa
gleðin vekur til.
Þar vcrða þær Lauga, Lína,
Lára, Dísa og Björg,
aliar þá af æsku skína
og ástar hótin mörg
bjóðast mun, en vífsins vangi
verður rjóður þá,
að stíga dans mcð stúlku í fangi
er stund sem gleðja má.
Þar skal dans í deyfðum ijósum
duna fram á nótt.
Þáð er yndi af ungum drósum
þá ailt er kyrrt og hljótt.
Þó mun ekki Ása-Valla
ástir bera á torg,
en vill sjá hann káta Kalla
það kvöld á Hótel Borg.
Jón Aðotf.
• Góðar gjafir til
skógræktarinnar
Skörnmu fyrir jól afhenti
Guðlaugur Þorláksson skrif-
stofustjóri mér kr. 25.000,00 að
gjöf úr dánarbúi Theódórs
Johnsons, fyrrum hóteleiganda
í Reykjavík, sem verja skyldi
til skógræktar. Er þetta aðeins
hluti af stærri gjöf úr þúi Theo-
dórs, sem væntanleg er síðar.
Theodór var mikill áhugamaður
um skógrækt í mörg ár. Meðan
hann bjó í Hjarðarhciti í Döl-
um kom hann upp myndarleg-
um garði og skógarreit. Eftir að
hann settist að í Reykjavík var
trjárækt yndi hans og hann
studdi Landgræoslusjóð oft með
rausnarlegum gjöfum.
Frú Helga Jónasttóttir Paul í
Palms í Californíu, systir Sig-
urðar heitins 'ónassonar for-
stjóra, hefur gefið kr. 50.000,00
til skógræktar til minningar um
bróður sinn. Hefur Sigurgeir
hæstaréttarlögmaður Sigurjóns-
son afhent mér þá fjármuni fyr-
ir 3 vikum.
í bréfi, sem ég fékk frá frú
Helgu fyrir nokkrum dögum,
óskar hún þess, að gróðursettur
verði minningarlundur fyrir
þessa fjárhæð um Sigurð í
Haukadal í Biskupstungum, því
að það land er eigi fjarri Geysi,
er Sigurður keypti á sínum tíma
a£ útlendingi og gaf íslending-
um.
Sigurður hafði mikinn áhuga
fyrir landgræðslu og skógrækt
hin síðari ár og ræddi þá hluti
oftsinnis við mig. Sakir ann-
ríkis og veraldarvafsturs varð
ekki úr að hann aðhefðist neitt
á þessu sviði meðan hann lifði,
en viðkvæði hans var oft á þá
leið er við hittumst, að nú þyrfti
hann að fara að kynna sér þessi
mál. Af því varð því miður ekki
því andlát hans bar að fyrr en
bæði hann og aðra grunaði.
Fyrir gjafir þessar ber að
minnast þessara heiðursmanna
meg þakklæti.
Reykjavík 29/ 1. 1968.
nákon Bjarnason.
• Hjálparsjóður
æskufólks
• Minningarspjöld Hjálparsjóðs
æskufólks fást á eftir töldum
stöðum: Bókabúð Álfheimum 6,
Bókabúð Braga Brynjólfssonar,
Hafnarstræti 22, Bókabúð Dun-
haga 23. Bókabúð Laugarnes-
vegi 52, Bókabúð Máls og menn.
ingar, Laugavegi 18, Bókabúð
Olivers Steins, Hafnarfirði
Bókabúðinni Veda, Digranesv.
12, Kópavogi. Verzl. Halldóru
Ólafsdóttur, Grettisg. 26. verzl.
M. Benjamínsson, Veltusundi 3,
Burkna, blómabúð. Hafnarfirði,
Fötum og sporti h.f., Hafnarf.
10.10 Fréttir. Tónleikar.
11.10 Lög unga fólksins (end-
urtekinn þáttur).
13.15 Lesin dagskrá næstu
viku.
13.30 Við vinnuna. Tónleikar.
14.40 Við, sem heima sitjum.
„Brauðið og ástin“, saga eft-
ir Gísla J. Ástþórsson; höf.
les (3).
15.00 Miðdegisútvarp. — Fred-
erick Fennell stjórnar hljóm-
sveit sem leikur lög eftir
Gershwin, Nora Brocksted,
Kurt Foss, Alf Blyverket o.
fl. syngja og leika vinsæl
norsk lög. George Feyer o.fl.
leika. The Beaeh Boys syngja
og léika og hljómsveit Ed-
mundo Ros leikur.
16.00 Veðurfregnir. Síðdegis-
tónleikar. Úr Lákakvæði eft-
ir Þórarin Jónsson, Karlakór
Reykjavikur syngur undir
stjóm Sigurðar Þórðarsonar.
Janacek-kvartettinn leikur
Strengjakvartett nr. 2 eftir
Janacek. Erik Saedén syng-
ur þrjú lög eftir Lindblad.
Stig Westerberg leikur undir.
17.00 Fréttir. Á hvítum reit-
um og svörtum. Ingvar Ás-
mundsson flytur skákþátt.
17.40 Útvarpssaga bamanna:
„Hrólfur“ eftir Petru Flage-
stad Larssen. Benedikt Am-
kelsson les (8).
19.30 Efst á baugi. Björn Jó-
hannsson og Tómas Karlsson
tala um erlend mélefni.
20.00 Tónskáld mánaðarins:
Jón Leifs. Þorkell Sigur-
bjömsson ræðir við tón-
skáldið og Sinfóníuhljóm-
sveit fslands leikur íslands-
forleik op. 9 eftir Jón Leifs;
William Strickland stjómar.
20.30 Kvöldvaka. a. lestur fom-
rita: Jóhannes úr Kötlum
les Laxdælu (14). b. Báts-
tapi á Þorskafirði. Frásögu-
þáttur eftir Kristján Jóns-
son. Margrét Jónsdóttir les.
e. ísienzk sönglög eftir
Björgvin Guðmundsson og ^
Þórarin Guðmundsson. d. í
hendingum. Vísnaþáttur í
umsjá Sigurðar Jónssonar
frá Haukagili.
22.15 Kvöldsagan: „Hrossa-
þjófar" eftir Anton Tsjekov.
Þýðandi: Geir Kristjánsson.
Hildur Kalman les; fyrri hl
22.35 Gestur í útvarpssal; Ge-
orge Barbour lelku.r á píanó
sónötu í f-moll op. 5 eftir
Johannes Brahms.
j
sjónvarpið
20.00 Fréttir.
20.30 Á öndverðum meiði. lím-
sjón: Gunnar G. Sehram.
21.00 Bílagaman. (Auto Revue)
Skemmtidagskrá frá tekk-
neska sjónvarpinu. Hlaut
verðlaun á kvikmyndahátíð-
inni í Montreaux 1967.
21.30 Dýrlingurinn. Aðafhhit-
verk Roger Moore. íslenzkur
texti: Ottó Jónsson.
22.20 Endurtekið efni. Humph-
rey Bogart. Rakinn er ævifer-
ill leikarans og sýnd atriði úr
nokkrum kvikmyndum, sem
hann lék í. Islenzkur texti:
Tómas Zoega. Áður sýnd 15.
1. 1968.
• Kvikmynda-
sýning
Germaníu
• Á morgun laugardag, verð-
ur fyrsta kvikmyndasýning fé-
lagsins Germaníu á árinu, þar
sem sýndar verða frétta- og
fræðslumyndir. Fréttamyndirn-
ar eru nýjar af nálinni frá
því í nóvember s.l.
Fræðslumyndimar verða
þrjár, og eru þær allar með
einhverjum hætti landslags-
. ...myndir, allar í litum og allar
frá Suður-Þýzkalandi, Bæjara-
landi. Er ein þeirra um landiö
umhverfis Dóná, jarðfræði
þess, landslag og mannvirkja-
gerð allt frá elztu timum, er
Keltar og Rómverjar sátu þar
og höfðu ráð landsins í sinni
hendi. Önnur myndin er um
saltvinnslu, venjulegt matar-
salt, sem fyrrum var mi'kil
tekjulind kónga og fursta. Við
þá vinnslu var á 16. öld farið
að nota rör, svo að hægt var
að láta saltlöginn renna upp
í móti. Voru það trjábolir, sem
holaðir voru að innan. Slikan
útbúnað eins og vatnsrör
þekktu Rómverjar ékki, þess
vegna þurftu þeir oft og tíð-
um að byggja mikil mann-
virki, himinháar brýr, til að
fá vatn í böðin sín alkunnu.
Þriðja fræðslumyndin er frá
hátíðahöldunum í fjallaþorpi á
þessum slóðum.
Sýningin verður í Nýja Bíói
og hefst kl. 2 e.h. Öllum er
heimill aðgangur, bömum þó
einungis í fylgd með fullorðn-
um.
Utsa/a — Kjarakaup
Úlpur — Kuldajakkar —t Peysur — Buxur,
Hvítar fermingarskyrtur — Skyrtupeysur
og margt fleira.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20171.
FRÍMERKI- FRÍMERKl
innlend og erlend í úrvali.
Útgáfudagar — Innstungubækur — Tengur og
margt fleira. — Verðið hvergi lægra.
Verzlun GUÐNÝJAR, Grettisgötu 45.