Þjóðviljinn - 02.02.1968, Side 10
Cw|í kinni A Cl Framhaldsþing Alþýöusambands Islands, scm hófst hér í Rcykjavík sl. mánudag lauk störfum'á átt-
s I un(ja tímanum í gærkvöld og var frestað afgrciðslu á aðalmáli þingsins, skipulagsmálum Alþýðu-
sambandsins^ til næsta rcglulegs Alþýðusambandsþings sem haldið verður í haust. Miklar umræður fóru fram á þinginu, bæði um
skipulagsmálin svo og um atvinnu- og kjaramál og sést hér á myndinni yfir hluta af þingsalnum þar sem fulltrúar sitja að störfum.
Frumvarp 3ja Alþýðubandalagsmanna til umræðu í neðri deild
SmíðuÍ verðí 50 fiskiskip í innlend-
um skmasmíðastöðv » 1968-1971
□ í neðri deild A'lþingis í gær fóru fram umræður um
frumvarp þriggja Alþýðubandaítagsmanna, þeirra Lúðvíks
Jósepssonar, Geirs Gunnarssonar og Jónasar Ámasonar.
um smíði fiskiskipa innanlands.
□ Aðalefni frumvarpsins er það að lagt er til að at-
^vinnumálaráðuneyti verði falið að hafa forgöngu um að
smíðuð verði 50 fiskiskip í innlendum skipasmíðastöðvum
á næstu fjórum árum.
Hörí keppni á Skák-
þingi Hwíkur 1968
I gærkvöld var tefld 7. um-
ferð í meístaraflokki á Skák-
þingi Reykjavíkur 1968. Höfðu
úrslit ckki borizt er blaðið fór
í prentun.
Að 6 umferðum loknum voru
þeir efstir í A-riðli meistara-
flokks Gunnar Gunnarsson og
Guðmundur Sigurjónsson með
5.5 vinning hvor, i 3ja sæti var
Björgvin Víglundsson með 3.5
vinning og biðskák og fjórði Jón
Pálsson með 2.5 vinning úr 5
skákum.
I B-riðli var Björn Þorsteins-
son efstur með 5.5 vinninga,
Bragi Kristjánsson næstur með
4 vinninga og Leifur Jósteinsson
þriðji með 3.5 vinninga. Gylfi
Magnússon var með 3 vinninga
og Jón Kristinsson með 2.5 vinn-
ing^, báðir úr 5 skákum, og bið-
skák sfn á milli. Bjarni Magn-
ússon hafði 3 vinninga úr 5
skákum.
I I. flokki er Svavar Svavars-
son efstur með 5.5 vinninga úr
6 skákum en' í 2.-3, sæti eru
Stefán Guðmundsson og Harald-
ur Sveinbjörnsson með 4 vinn-
inga.
I XI. flokki A er Ragnar Þ.
Ragnarsson efstur með 6 vinn-
inga úr 6 skákum, Garðar Guð-
mundsson annar með 5.5 vinn-
inga og Hafsteinn Blandon þriðji
með 5 vinninga úr 7 skákum.
1 II. flokki B eru Kristinn
Helgason og Auðunn Snæbjörns-
son efstir með 6, vinninga úr 7
skákum og Ingi . Ingimundarson
þriðji með 5 vinningá úr 7 skák-
um.
I unglingaflokki hafa Sigurður
Sverrisson og Magnús Guð-
mundsson forustu með 4.5 vinn-
inga úr 6 iskákum en í 3.-4. sæti
eru ögmundur Kristinsson og
Kristján Guðmundsson með 4
vinninga, einnig úr 6 skákum.
íbúar He/h'ssands óúnægðir
með ruðning sn/óa af vegum
Hellissandi 1/2 — Ibúum Hcll-
issands finnst það dálítið skrít-
ið að vegagerð rikisins skuli láta
standa á því dag og nótt að
moka Fróðárheiði á sama tíma
og fært er fyrir Jökul flestum
bílum og ekkert er hugsað um
það að halda ópinni leiðinni fyr-
ir mjólkurflutningabíla frá
Grundarfirði til Hellissands.
Undanfarið hefur snjó verið
rutt af veginum yfir Fróðár-
heiði og bílar aðstoðaðir á þeirri
leið tvisvar í viku, á þriðju-
dögum og föstudögum, og er það
vegagerðin sem stendur straum
af þeim kostnaði sem í það er
lagður. Vegagerðin hefur hins
vegar ekki viljað leggja fram
fé til þess að halda opnum veg-
um á norðanverðu SnæfelLsnesi
nema með því skilyrði, að við-
komandi sveitarfélög legðu fram
helming á móti.
Tíðar rafbilanir
Frá því í haust hefur raflín-
an frá virkjuninni við Ólafsvík
til Hellissands bilað 24 sinnum.
Er það almenn krafa hér á
Sandi, að lagður verði jarð-
strengur, a.m.k. á versta kafl-
anum á þessari leið þar sem
línan er alltaf að slitna.
Vertíð er nú að byrja hér á
Hellissandi en lítið hefur ver-
ið róið til þessa vegna slæmra
gæfta, hins vegar hefur aflazt
sæmilega, þegar á sjó hefur
gefið. Þeir bátar sem stunda
línuveiðar verðá helzt að fara
út fyrir landhelgi til þess að
fá frið fyrir trollbátunum, sem
eru hér alveg upm í landstein-
um í góðu næði fyrir landhelg-
isgæzlunni. — skal.
Lúðvík Jósepsson
Nýlega beindu samtök járn-
iðnaðarmanna þeim tilmælum til
Alþingis að lögfest yrði. áætl-
un um byggingu 50 fiskiskipa í
innlendum skipasmíðastöðvum á
næstu 4 árum. Sagði fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins, Lúðvík
Jósepsson, að með þessu frum-
varpi yildu Alþýðubandalags-
menn taka undir þessi tilmæli
þar sem talið væri að hér væri
hreyft miklu nauðsynjamáli.
í ræðu Lúðvíks kom m.a. fram
eftirfarandi: Gert er ráð fyrir
því að ráðherra geti skipað sér-
staka 5 manna nefnd sem hafi
á hendi allan undirbúning að
þessum framkvæmdum og sem
geti ákveðið um gerð' og útbún-
að og stærð þeirra skipa-sem
smíðuð yrðu. Lagt er til að þessi
nefnd verði skipuð með þeim
Föstudagur 2. febrúar 1968
33. árgangur
27. tölublað.
Nefndarálit í neðri deild Alþingis:
Fe’St verði frumv.
um frestun H-dags
hætti að skipaskoðunarstjóri
verði formaður hennar en tveir
nefndarmanna verði skipaðir
samkvæmt tilnefningu " Lands-
sambands íslenzkra útvegsmanna
og einn samkvæmt tilnefningu
Alþýðusambands íslands og einn
samkvæmi tilnefningu Sjó-
mannasambands íslands.
í frumvarpinu er lagt til að
gerðir þessara skipa verði þó
ekki af fleiri tegundum en þrem-
ur, þannig að hægt sé að koma
fyrir nokkurri seríusmíði eða
nokkur skip verði örugglega al-
veg af sömu gerð og þannig
hægt að koma við nokkuð hag-
kvæmari vinnubrögðum við
smíðina. Þá er lagt til að allir
tollar af efni og áhöldum til
skipanna verði felldir niður eða
endurgreiddir en líklegra er að
sá háttur vérði hafður á að
endurgreiða tollana eftir sér-
stakri aðferð eins og í rauninni
hefur verið gert undanfarandi
af þeirri nýsmíði sem fram hef-
ur farið i landinu.
Framhald á 7. síðu.
í gær var lagt fram í neðri
deild Alþingis nefndarálit frá
meiri hluta allsherjamefndar um
frumvarp til breytingar á lögum
um hægri handar umferð. í
nefndarálitinu er lagt til að
frumvarpið um að fresta breyt-
ingunni yfir í hægrj handar um-
ferð um eitt ár, verði fellt.
í nefndarálitinu segir m.a.
þetta: „Það er álit okkar, að
þegar Alþingi hefur samþykkt
lög um hægri handar umferð og
undirbúningi að framkvæmd
þessara laga er jafnlangt kom-
ið og raun ber vitni, þá eigi
þjóðin að leggja sig alla fram
um að framkvæmd þessa mik-
ilvæga máls megi takast sem
bezt, hvað sem líður skoðunum
manna um, hvort i þessa breyt-
ingu hefði átt að ráðast eða
ekki.
Ragnar Arnalds
Tekur sæti
á Alþmgi
Ragnar Arnalds, varaþingmaður
ALþýðubandalagsins tók í fyrra-
dag sæti á Alþingi í stað Eðvarðs
Sigurðssonar.
I gær tók Þorsteinn Gíslason,
skipstjóri sæti á Alþingi fyrir
Birgi Kjaran.
Það er staðreynd, að þegar
hefur verið varið miklu fé og
vinnu til undirbúnings að um-
ferðarbreytingunni, sem væri á
glæ kastað, ef frá hennj væri
horfið.
Það kom flestum á óvart, þeg-
ar fimm alþingismenn lögðu
fram á síðustu dögum þingsins
fyrir jól frumvarp um að fresta
framkvæmd laganna um hægri
handar umferð um eitt ár og
efna til þjóðaratkvæðagreiðslu
um málið, og ef sú atkvæða-
greiðsla færi á þann veg, að
meirihlutinn hafnaði hægri
handar umferð, skyldi frá henni
horfið.“
,,Nú, þegar lolfastig að undir-
búningi þessara framkvæmda
er að nálgast, er fráleitt að
hverfa frá fyrri ákvörðunum.
Þess vegna leggjum við til, að
frumvarpið verðj fellt“.
Leitinni að togaranum Kœtt
Leitinni að brezka togaranum
Kingston Peridot er nú hætt af
hálfu Slysavarnafélagsins, að því
er Henrý Hálfdánarson sagði
blaðinu í gærkvöld. — Ekkert
fannst við leitina í gær, en þá
flugu tvær flugvélar frá Kefla-
víkurflugvelli og vél Tryggva
Helgasonar frá Akureyri yfir
svæðið norður af Axarfirði, auk
þess sem skip á þessum slóðum
svipuðust um eftir braki og leit-
að var með froskmönnum í
kringum Lágey. Átta bátar frá
Húsavik leituðu í gær austur
af Rauðunúpum, fóru í Flatey
og Lundey, en fundu ekkert rek
úr togaranum, hins vegar mik-
ið af fugli, sködduðum og dauð-
um af oliu, einkum í Flatey.
f fyrrakvöld taldi annar brezk-
ur togari sig heyra veikan neyð-
arsón norðan úr höfum, en slík-
ur sónn er oft sendur á und-
an neyðarköllum til að vekja
frekari athygli. Ekkert neyðar-
kall fylgdi þó sóninum og eng-
in önnur skip á þessum slóðum
heyrðu hann. Var sett á skarpari
hlustun, en ekkert heyrðist.
f gærkvöld náði bóndinn á
Nípá í Köldukinn lifandi, renn-
blautum hundi, sem virtist koma
frá fjörunni. Var hann talinn
af útlendu kyni og gizkað á að
þetta væri skipshundur.
Þingsályktunartillaga frá Geir Gunnarssyni:
Gerðar séu ráðstafanir til
að tryggja útgerð bátanna
□ Geir Gunnarsson hefur lagt fram í neðri deild svo-
hljóðandi þingsályktunai'tillögu um rekstur fiskibáta:
n Neðri deild Alþingis ályktar að fela ríkisstjórninni
að láta framkvæma nú þegar sérstaka athu^un á því,
hversu margir fiskibátar í landinu munu ekki verða gerð-
ir út á vetrarvertíðinni vegna fjárhagsörðugleika viðkom-
andi fyrirtækja og hversu mikils fjár er þörf, til þess að
unnt sé að hefja útgerð þeirra.
□ Að loknum þessum athugunum beiti ríkisstjómin
sér fyrir útvegun nauðsynlegs lánsf jár og geri aðrar tiltæk-
ar ráðstafanir til þess að tryggja, að allir þeir rekstrar-
hæfir bátar { landinu, sem henta til veiða á vetrarvertíð,
verði gerðir út.
f greinargerð fyrir tillögunni
segir flutningsmaður:
Við upphaf vetrarvertíðar eru
tvær staðreyndir efstar í hugum
manna. Annars vegar, að geig-
vænlegt atvinnuleysi hefyr hafið
innreið sína ó íslandi eftir langt
hlé, og hins vegar, að skortur á
hráefni til vinnslu veldur óhag-
kvæmum rekstri langfjestra
fiskvinnslufyrirtækja í landinu
og stórfelldum fjárhagsörðug-
leikum.
Þessar staðreyndir að því við-
bættu, að gjaldeyristekjur þjóð-
arinnar hafa farið minnkandi að
undanförnu, valda því, að enn
meiri þörf er á því nú en endra-
nær, að tryggð sé full notkun
hvers einasta framleiðslutækis,
sem getur veitt atvinnu, bætt
rekstrarafkomu fiskvinnslufyrir-
tækjanna og aukið gjaldeyris-
tekjurnar.
Nú í lok janúar ættu þau skip
pem nothæf geta talizt til vetr-
arvertíðar, að vera komin í
gagnið eða undirbúningi að út-
gerð þeirra að vera svo langt
komið, að tryggt sé, að þau verði
gerð út á vetrarvertíðinni, vegna
fjárhagserfiðleika viðkomandi
útgerðarfyrirtækja.
Vegna þess alvarlega ástands,
sem rfkir í atvinnumálum, í
relcstri fiskvinnslustöðva og í
gjaldeyrismálum þjóðarinnar, er
það algerlega óviðunandi, að
ekki sé tryggt, að allir rekstrar-
hæfir bátar séu gerðir út, og
slæm rekstrarafkoma einstakra
útgerðarfyrirtækja, sem teljast
eigendur bátanna, má ekki verða
til þess, að þeir liggi ónotaðir.
Það er ekki einkamál við-
skiptabanka eða annarra lána-
drottna þessara fyrirtækja, hvað
um þessa báta verður, hvort þeir
veita atvinnu og afla giafldeyris
eða þeir liggja i höfn alla ver-
tíðina., Hér verður ríkisvaldið að
koma til og tryggja, að hags-
muna þjóðarheildarinnar sé
gætt. Því er lagt til með þings-
ályktunartillögu þessari, að rík-
isstjórninni verði falið að kanna
í hve ríkum mæli er um það
að ræða, að einstakir vélbátar
verði ekki gerðir út nú á vetr-
arvertíð, og að beita sér síðan
fyrir útvegun nauðsynlegs láns-
fjár og gera aðrar tiltækar ráð-
stafanir til þess að tryggja, að
allir rekstrarhæfir vélbátar, sem
henta til veiða á vetrarvertfð,
verði gerðir út.
Þörf er á að framkvæma slfka
athugun tvisvar til fjórum sinn-
um á ári hverju en sérstök á-
stæða er til að vekja athygli á
slíkum aðgerðum nú.
»